Þjóðviljinn - 20.10.1989, Side 9
Síðasta kvöldmáltíð byggingarnefndar Borgarleikhússins fór fram í gær þegar hún
skilaði af sér hinni glæsilegu leikhúsbyggingu arkitektanna Guðmundar Kr. Guðmunds-
sonar, Ólafs Sigurðssonar og Þorsteins Gunnarssonar. Verður Borgarleikhúsið formlega
afhent Leikfélagi Reykjavíkur til afnota með hátíðardagskrá í kvöld. Fyrsta frumsýningin
verður næstkomandi þriðjudag á litla sviðinu, þar sem sýnd verður leikgerð Kjartans
Ragnarssonar á Ljósi heimsins eftir Halldór Laxness. Höll sumarlandsins eftir sömu
höfunda verður frumsýnd á stóra sviðinu næstkomandi fimmtudag. Borgarleikhúsið er alls
59.849 rúmmetrar að stærð með 10.806 fermetra gólfflöt. Stærri salurinn tekur allt að 540
áhorfendur í sæti, en minni salurinn 270. Sætaskipan er breytileg, en framanvið stóra
sviðið er hljómsveitargryfja sem hægt er að lyfta og rúmar þá 55 áhorfendur. í kjallara
hússins undir hluta af forsalnum verður veitingastaður. Leikhúsið er búið öllum
fullkomnasta tæknibúnaði, og er áætlað að endanlegur byggingarkostnaður verði
1.572.632.000. Þar af hefur Leikfélag Reykjavíkur lagt 89.439.993 kr. í bygginguna.
Ljósm. Jim Smart
Bamamál - ráðstefna
um bijóstagjöf
Barnamál, áhugafélag um
brjóstagjöf, vöxt og þroska barna
á fimm ára afmæli um þessar
mundir. Félagið hefur staðið fyrir
fræðslu meðal mæðra ungbarna
um brjóstagjöf, meðal annars
með útgáfu fréttabréfsins Mjólk-
urpósturinn.
Laugardaginn 28. október
næstkomandi hyggst félagið
gangast fyrir ráðstefnu um efnið í
tilefni afmælisins, og verður hún
haldin í Félagsheimili Kópavogs
við Fannborg og stendur frá kl.
10-16. Verður þar fjallað um
ólíka þætti þessa máls svo sem
þann vanda margra mæðra,
hvernig sameina megi útivinnu
og brjóstagjöf. Helgi Valdimars-
son mun fjalla um þá vörn gegn
ofnæmi sem í brjóstamjólkinni er
fólgin, Anna Valdimarsdóttir sál-
fræðingur mun fjalla um sjálf-
styrkingu kvenna og Valgerður
Baldursdóttir læknir mun fjalla
um þunglyndi eftir fæðingu.
Á vegum Barnamáls eru nú
starfandi 13 „hjálparmæður", en
það eru konur sem samfara per-
sónulegri reynslu hafa aflað sér
sérstakrar fræðslu um brjósta-
gjöf. Hjálparmæðurnar veita
símaþjónustu, og liggur bæk-
lingur með nöfnum þeirra og sím-
anúmerum frammi á fæðingar-
deildum og á heilsugæslustöð
Kópavogs. Pá hafa konur í Barn-
amál tekið að sér að miðla
brjóstamjólk til barna sem ekki
fá mjólkurþörf sinni sinnt með
öðrum hætti. Allar mæður eru
velkomnar á ráðstefnuna, en
þátttökugjald er 900 kr.
Föstudagur 20. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 9