Þjóðviljinn - 20.10.1989, Page 10
JffRÍKISSPÍTALAR
tu tCMutfJOjHujÍf
Barnaspítali Hringsins
Hjúkrunarfræðingar óskast á almennar
barnadeildir. Góöur aðlögunartími meö
reyndum hjúkrunarfræöingum. Starfið er mjög
fjölbreytt og vinnuaðstaða góð. Unnið er þriðju
hverja helgi og sveigjanlegur vinnutími. Gott
bókasafn og möguieiki á símenntun.
Fóstrur og þroskaþjálfar óskast. Stöðurnar
eru lausar til umsóknar nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar gefur Hertha W. Jónsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri í síma 60 1033 eða
60 1000.
Reykjavík 1. október 1989
RÍKISSPÍTALAR
ÐAGVIST BARIVA
Umsjónarfóstra óskast
Dagvist barna óskar að ráða umsjónarfóstru
með daggæslu á einkaheimilum til starfa nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur deildarstjóri fagdeildar í síma
27277.
Krafturinn í Ómari getur verið slíkur að hann beinlínis tekst á loft eins og sést á þessari mynd.
Ómar á þremur hjólum
Háðfuglinn góðkunni Ómar Ragnarsson með bensínið í botni
á Hótel Sögu á laugardögum
Ómar Ragnarsson er langt í frá
af baki dottinn og þýtur enn með
áheyrendur sína um sveitir
landsins á þremur hjólum, ýmist
á hvolfi úti í skurði eða fastur í
þriðja gír. Þjóðarspaug í 30 ár
heitir dagskrá með Ómari sem
þegar er farin af stað á Hótel
Sögu og kemur Ómar til með að
skemmta gestum í Súlnasal öll
laugardagskvöld út þennan og
næsta mánuð.
Sýningin byggist á stuttum
grínatriðum þar sem menn og
málefni líðandi stundar eru tekin
fyrir og engu er hlíft fremur en
fyrri daginn. Ómar bregður sér
einnig allt að 30 ár aftur í tímann
og rifjar upp í tali og söngvum
skondna atburði þessa tímabils.
Honum til aðstoðar í sýningunni
eru Helga Möller og Hermann
Gunnarsson, en auk þeirra kem-
ur fram leynigestur á hverri sýn-
ingu.
Á undan skemmtuninni er
framreiddur þriggja rétta kvöld-
verður þar sem val er á réttum.
Eftir skemmtunina spilar hljóm-
sveitin Einsdæmi fyrir dansi til
klukkan 3. Einsdæmi spilaði í
Súlnasal síðast liðinn vetur við
miklar vinsældir og byrjar núna
aftur eftir sumarfrí.
Verð á mat og skemmtun er
óbreytt frá síðastliðnum vetri.
Einnig er gisting boðin á hag-
stæðu verði í tengslum við
skemmtunina.
-hmp
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagid í Hafnarfirði
Aðalfundur
verður haldinn fimmtudaginn 25. október kl. 20:30.
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Önnur mál. Gjaldkeri
Umbúðalausa jafnaðarstefnu!
Birting - félag jafnaðar- og lýðræðissinna heldur félagsfund mið-
vikudaginn 25. október í Tæknigarði, og hefst hann klukkan
20.30. Gestur fundarins er Hörður Bergmann sem spjallar um
þverstæður umbúðaþjóðfélagsins, nýja mælikvarða á fram-
farir og endurnýjun jafnaðarstefnu, en nýútkomin er bók Harð-
ar um þessi efni, „Umbúðaþjóðfélagið - Uppgjör og afhjúpun 4
Nýr framfaraskilningur”.
Á fundinum verða einnig kosnir fulltrúar Birtingar á landsfund
Alþýðubandalagsins um miðjan nóvember, rætt um
málefnaundirbúning fyrir landsfundinn, og bollalagt um stöð-
una í borgarmálum.
Nýir félagar og gestir velkomnir. Stjórnin
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylking
Alþýðubandalagsins
Landsþing
Kveiktu á perunni
Landsþing Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins verður
haldið laugardaginn 21. októ-
ber klukkan 12.30 að Hverfis-
götu 105 Reykjavík.
Dagskrá:
1. Setning
2. Skýrsla stjórnar
3. Lagabreytingar
4. Stjórnmálaumræða
5. Kosningar
6. Kvöldbæn
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Þórður
Svanfríður
Sigríður
Ólafur Svavar Steingrímur
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra verður haldinn í Hlíðaskjálf, Hótel Húsavík dag-
ana 21.-22. október nk.
Dagskrá:
Laugardagur
Kl. 13.00 Þingsetning, skipun starfsnefnda og rannsókn kjör-
bréfa.
Sveitarstjórnarmál. - Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga - Þórð-
ur Skúlason sveitarstjóri Hvammstanga.
Staða sveitarfélaga á landsbyggðinni - Svanfríður Jónasdóttir
aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Sveitarstjórnarkosningar - Sigríður Stefánsdóttir baejarfulltrúi
Akureyri.
Almennar umræður um málefni sveitarfélaga og komandi kosn-
ingar.
Fulltrúar og varafulltrúar í sveitarstjórnum, nefndarmenn og ann-
að áhugafólk um sveitarstjórnarmál er sérstaklega boðið velkom-
ið.
Kl. 20.00. Léttur kvöldverður og kvöldvaka í umsjá heimamanna.
Sunnudagur
Kl. 09.30 Venjuleg aðalfundarstörf.
Kl. 11.00 Stjórnmálaviðhorfið- þátttaka í ríkisstjórn. - Ráðherrar
flokksins reifa málin og sitja fyrir svörum - almennar
umræður.
Kl. 13.00 Framhald almennra umræðna.
Kl 14.30 Afgreiðsla mála. Kosning stjórnar, fulltrúa í miðstjórn
o.fl.
Kl. 15.30 Þingslit.
Kl. 16.00 Almennur stjórnmálafundur í félagsheimili Húsavíkur.
Ræðumenn: Ráðherrar Alþýðubandalagsins Ólafur
Ragnar Grímsson, Svavar Gestsson og Steingrímur J.
Sigfússon.
Allir velkomnir.
Stjórn kjördæmisráðs
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsfundur
Alþýðubandalagið á Akureyri heldur félagsfund í Lárusarhúsi,
Eiðsvallagötu 18 mánudaginn 23. október klukkan 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund AB.
2. Starfið framundan og komandi sveitarstjórnarkosningar. Frum-
mælendur verða þau Brynjar Skaftason, Sigríður Stefánsdóttir og
Heimir Ingimarsson.
3. Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgönguráðherra
ræðir stjórnmálaviðhorfið.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn
laugardaginn 21. október kl. 14 í Rein.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjör fulltrúa á landsfund.
3. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð.
4. Önnur mál. stjórnjn
Alþýðubandalagið í uppsveitum Árnessýslu
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í uppsveitum Árnessýslu heldur aöalfund í Ar-
atungu þriðjudaginn 24. október klukkan 21.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund AB. _ .
3. Önnur mál. Stjormn.
Alþýðubandalagið
í Suður-Þingeyjarsýslu
Félagsfundur:
Alþýðubandalagið í Suður-Þingeyjarsýslu heldur félagsfund í
Skjólbrekku, Mývatnssveit, föstudaginn 20. október kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa í kjördæmisþing.
2. Kosning fulltrúa á landsfund sem haldinn verður 16.-19. nóv-
ember n.k.
Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra
mætir á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld verður í Þinghól, Hamraborg 11, þriðju hæð, mánu-
dagrnn 23. október kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið Kópavogi