Þjóðviljinn - 20.10.1989, Qupperneq 16
FLJÓTT • FLJÓTT - AUC LÝSI N C ASM 1 Ð J A
BÍLAR
Nýjung
Swift-inn tekur
stakkaskiptum
Nýr Suzuki Swift verður stœrri, kraftmeiri og
með sídrifi svo eitthvað sé nefnt
með forvera sínum. Hann telst nú
til millistórra bfla, í sama hópi og
VW Golf, Renault 19, Fiat Tipo
og fleiri slíkir sem eru að verða
óskastærð flestra fjölskyldna.
Sýnilegustu útlitsbreytingarnar
auk stærðarbreytinga eru að nú
verður bíllinn í fernra dyra út-
færslu „með skotti“ en ekki
þrennra eða fimm dyra „skott-
laus“ einsog áður.
Bíllinn verður 790-860 kg eftir
vélarstærðum en vélin verður
einmitt eitt aðal tromp bílsins.
Helsta útgáfa hennar er 1,6 lítra,
fjögurra strokka með fjóra ventla
á hvern strokk. Slagrými vélar-
innar fæst einkum með hinni
löngu slaglengd strokkanna sem
er 90 mm með 75 mm þvermáli.
Þessi vél gefur 95 hestöfl við 6000
snúninga og 133 Nm tog við 3500
snúninga. Rafeindastýrð bein
innspýting verður í þessari nýju
vél. Þá verður einnig hægt að fá
bílinn með 1,3 lítra vél sem gefur
71 hestafl og 101 Nm tog við sama
snúning. Báðar vélarstærðir ættu
að vera ákjósanlegar, sérstaklega
stærri vélin í 850 kg bfl. Mjög lík-
legt er að Suzuki tefli einnig fram
GTi útfærslu af þessum bfl með
enn kraftmeiri vél.
Eitt af því sem Swift-inn býður
uppá er fjórhjóladrif en sífellt
fleiri japanskir bflar bjóða uppá
slíkt. Hægt er að fá bflinn með
svokölluðu sídrifi og breytast
hlutföllin á milli fram- og aftur-
hjóla eftir aksturslagi. Við þetta
verður bfllinn aðeins þyngri, með
minni vélarstærðinni verður hann
820 kg en 910 kg með 1,6 lítra
vélinni. Hægt verður að fá bflinn
ýmist 5 gíra eða með þriggja
þrepa sjáifskiptingu.
Argerð 1990 af Suzuki Swift
kemur ekki alveg strax til íslands
en hann aptti að vera væntanlegur
þegar vetur konungur fer að ang-
ra okkur.
Japanskir bílar taka yfirleitt tíð-
ari breytingum en aðrir bílar og
eru bílar þaðan yfirleitt aðeins um
tvö ár án breytinga. Einn af þeim
bílum sem koma mikið breyttir í
árgerð 1990 er Suzuki Swift, en
hann hefur fram að þessu verið á
meðal smæstu smábíla hér-
lendis.
Nýi Swift-inn tekur miklum
breytingum og á fátt sameiginlegt
Svona lítur nýja línan af Suzuki
Swift út.
UTSALA
Síðustu bílamir «rf Suzuki Swift árgerð 1989
SWIFT GA3ja dyra,5gíra
SWIFT GL 3ja dyra, 5 gíra
SWIFT GL 3ja dyra, sjálfskiptur
SWIFT GL 5 dyra, 5 gíra
SWIFT GL 5 dyra, sjálfskiptur
VERÐ
599.000,-
650.000,-
711.000,-
682.000,-
745.000,-
ÚTSALA
549.000,-
590.000,-
653.000,-
626.000,-
683.000,-
AFSLÁTTUR
56.
62.<
Við seljum þar að auki 4 Swift GTi árgerð 1988
með ótrúlegum 202.000,- kr. afslætti.
Verð áður kr. 997.000,-, nú kr. 795.000,-
Útborgun frá kr. 150.000,-. Eftirstöðvar lánaðar til allt að 36 mánaða.
Suzuki Swift traustur og sparneytinn bíll.
$ SUZUKI
--V/M-----------
SVEINN EGILSSON ■ HÚSI FRAMTÍÐAR
FAXAFENI 10 • SlMI 689622 OG 685100
Nýr bíll
frá Subaru
Fjórdrifinn Legacy
sýndur um helgina
Ingvar Helgason mun um helg-
ina kynna nýjan bíl frá Subaru,
en þeir hafa í áraraðir verið á
meðal vinsælustu bifreiða hér-
lendis.
Nýja Iínan kallast Subaru
Legacy og hefur vakið talsverða
athygli á sýningu erlendis. Þessi
bíll er ma. á meðal þeirra fjórtán
sem keppa um titilinn Bíll ársins í
Evrópu eins og fram kemur ann-
ars staðar á síðunni. Skutbíllinn
frá Subaru hefur verið óbreyttur í
nokkuð langan tíma og því hefur
þessa bfls verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu.
Sýningin verður í sýningarsal
Ingvars Helgasonar við Sævar-
höfða og er opin á laugardag og
sunnudag frá 14-17.
Sumir vegir eru
þannig að mætingar
eru mjög varasamar og
framúrakstur kemur
vart til greina.
mÉUMFERÐAR
Uráð
/
3» Afli'i -- ÚAjaRttsJ-’a'H TT'r'j Ofc'bf Cs