Þjóðviljinn - 20.10.1989, Side 21

Þjóðviljinn - 20.10.1989, Side 21
HELGARPISTILL ÁRNI BERGMANN Frægðarfólk einkamál og fjölmiðlar EITURLYF AISLANDI OG STYJÖLDIN GEGN EITURLYFJABARÓNUNUM HANNES HAFSTEIN OG ÆTTMENNIHANS eftir Guðjón Friðriksson HÁLF ÖLD FRÁ HEIMSSTYRJOLD GY8INGARNIR KREPPAN ER KOMIN GAMLA KYNSLÓÐIN DÆGUmjAN HVAÐFÆRHANATILAÐ BROSA í GEGNUM TÁRIN? Fram til skamms tíma hefur ís- lensk blaðamennska átt sér eitt heldur geðfellt sérkenni. Hún hefur umgengist einkalíf manna með varúð. Blaðamenn hafa ekki spurt ýkja mikið um einkahagi (skilnaðarmál frægs fólks til dæmis), enn síður hafa þeir gerst njósnarar í þeim málum: hver sefur nú hjá hverjum? Þeir hafa líka - oftast nær - haft aðgát í nærveru syrgjandi sálar: það þætti meirháttar svívirða ef ís- lenskir blaðamenn og ljósmynd- arar sæjust lemja hver annan í hausinn með myndavélum og segulbandstækjum í ákafa sínum við að troða sér upp að mann- eskjum sem voru að fregna það að nákomnir ættingjar hefðu far- ist með voveiflegum hætti. En allt eru þetta hlutir sem mjög eru á dagskrá í þeim fjölmiðlum í ná- lægum löndum sem mest seljast. Menn hafa verið að velta því fyrir sér stundum, hve lengi menn geti búist við því að halda þessari sérstöðu. Alltaf öðru hverju hafa íslensk blöð eða tímarit eins og stigið yfir það ósýnilega strik sem menn höfðu dregið utan um það sem „býr hjarta nær“. En ekki svo mjög og ekki svo oft að beinlínis væri hægt að tala um stefnubreytingu. Þetta er að breytast Hér er þó ein undantekning á. í mánaðarritunum glæsiprentuðu sem byggja mjög á viðtölum við þekkt fólk, hefur jafnt og þétt verið sótt inn á einkamálasviðið. Þetta er ekki mjög illkynjuð þró- un að því leyti, að allt gerist með samþykki þeirra sem spurðir eru. Það neyðir þá enginn til að fcegja hvers vegna þeir eða þær hafi tekið saman við þennan eða skilið við hina. Mönnum getur fundist sjónarspilið óþarft eða smekklaust - en menn geta, þeg- ar einhver uppinn geipar um sín kvennamál, hugsað með hagyrð- ingnum: hann er verstur sjálfum sér og svo eru fleiri. Hitt er svo lakara, þegar farið er að túlka einkamálasprengjuna sem eitthvað jákvætt og framfar- asinnað, kannski eitthvað sem á að vera. Nú er úr því bætt... En þessa gætir til dæmis í við- tali í tímaritinu Heimsmynd við Valgerði Matthíasdóttur, þar sem það er rifjað upp að í við- tölum við aðstandendur Stöðvar tvö gerðist það, „að í fyrsta sinn á íslandi hefur spennandi ástarþrí- NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 21 Aðgát skal höfð hyrningur verið kunngerður og nánast gerður upp á síðum tíma- rita“. Viðtalshöfundur, Ólafur Hannibalsson, segir á þá leið, að með þessu móti hafi „nýr tími“ haldið innreið sína í íslenskan fjölmiðlaheim. íslendingar hafi eignast svokallaðar dægurhetjur, en það er frægðarfólk „sem slúð- urdálkahöfundar þrífast á og ljósmyndarar hundelta hvert fót- inál til að skjalfesta hver er með hverjum, hvar hvenær og hversu innilega". Síðan segir í viðtalinu: „Hér heima er að sjálfsögðu slúðrað um fyrirfólk ekki síður en í öðrum löndum, en það slúður rataði yfirleitt ekki á prent heldur var sannnefnt baktal, sem fram fór á vinnustöðum, götum og gatnamótum, skemmtistöðum og í stofunni heima. En nú var sem sé úr þessu bætt og sýndist sitt hverjum, sumir hneyksluðust og fannst þetta smekklaust og gróft, en öðrum fannst tími væri til kominn að íslendingar opnuðu sig, stigju út úr atvinnugervinu og fegruðu sjálfsímyndinni og ræddu opinskátt og hispurslaust um átök sín í einkalífi, ekki síður en því lífi, sem lifað er í almanna- ásýnd.“ Að hrista upp í lognmollu Augljóst er hvert greinarhöf- undur er að fara: honum finnst það til hins betra að tala „opin- skátt og hispurslaust“ um einkalíf en stunda það sem hann kallar „fegraða sjálfsímynd“ - sem eru falleg orð yfir það athæfi að falsa veruleikann. Og viðmælandinn, Valgerður Matthíasdóttir, tekur undir þetta fyrir sinn hatt. Hún segir um þessi hin „einlægu“ við- töl: „Þegar ég kom heim frá námi fannst mér ástæða til að hrista svolítið upp í lognmollunni hér, til dæmis með því að rjúfa þessa hefð um stöðluð viðtöl við kunn- ar persónur þar sem margt var sagt, en enginn var nokkru nær eftir en áður.“ Þessi málflutningur allur er mjög hæpinn, ef ekki beinlínis rangur. Hvenær lýgur hver að hverjum? í fyrsta lagi eru menn ekkert að „fegra sína sjálfsímynd" með því að þegja í blöðum um sín einka- mál. Þeir eru kannski fyrst og fremst að sýna öðru fólki tillits- semi: enginn er eyland, einkamál svonefnd koma fleiri en einum við. í annan stað geta menn ein- mitt verið að fegra sína mynd með hjali um sín einkamál: hver ætlar að halda því fram, að menn segi frekar satt þegar þeir eru að tala um sín einkamál heldur en þeir eru að tala um sín viðhorf til stjórnmála, þjóðarkarakters eða fiskveiðikvóta? Það er meira en líklegt að menn ljúgi meir einmitt um sín einkamál (meðvitað eða ómeðvitað, það skiptir ekki máli). Lognmollu- pytturinn í annan stað: það hristir enginn upp í lognmollu með einkamála- skrafi. Það gerist ekkert merki- legt við að venjulegt slúður, sem fylgir mennskri kind á öllum tím- um, flyst yfir í prentmiðla. Það gerist hinsvegar annað: eins víst að þeir sömu miðlar verði ómerkilegri en áður. Það breytast í þeim áherslur í þá veru, að gægjugatsástríðan fær forgang og gerist æ frekari og fyrirferð- armeiri - meðan það vekur enn síður en áður athygli, hvað frægð- arfólkið hefur að öðru leyti til reynslu— og viðhorfabrunns að bera. Ef að alltof mörg viðtöl í íslenskri blaðamennsku hafa ver- ið, eins og Valgerður tekur fram réttilega, orðmörg en þó þannig að enginn var neinu nær en áður, þá er það ekki vegna þess að í þau hafi vantað einkamálaþáttinn. Heldur er það fyrst og fremst vegna þess, að blaðamenn hafa staðið illa að verki, vaðið áfram án þess að þekkja viðmælanda sinn eða viðfangsefni hans, ekk- ert gert til að hreyfa markvisst við minni viðmælandans, ögra við- horfum hans. í hvaða heima skal halda? í þriðja lagi: Þótt einkamála- viðtöl eins og þau sem tímarit hafa haft við Jón Óttar, konu hans og Valgerði Matthíasdóttur, séu enn tiltölulega saklaus eða meinlaus í þeim skilningi, að þau eru enn á valdi viðmælendanna, þá geta þau hæglega opnað leið til annarra og verri heima. Opnað fyrir samantektir þar sem blaða- maðurinn er spíón og frægðar- fólkið getur ekki varist neinu því, sönnu eða lognu, sem hann til tekur. Nema þá með einhverjum kauðalegum ærumeiðingar- réttarhöldum seint og síðarmeir. Göngum hægt inn um þær dyr. Dansað á landamærunum Elísabet Jökulsdóttir: Dans í lokuðu herbergi. Reykjavík 1989. Elísabet Jökulsdóttir kallast á við hafið og eldinn í vöku og draumi, stígur dans við ástina og tregann og ofsann, særir fram barnið í okkur og hjá okkur. Og verða af þessu ýmisleg tíðindi og misjöfn eins og verða vill. í fyrsta bálkinum, þar sem spunnið er stefið um barnið, þar er margt blátt áfram fallega mælt, til dæmis um lítil börn „sem fylla tóm heimsins / með óvissu og litum og vonum“. En þar getur textinn líka dottið niður í hálf- kauðalegt sálfræðislángur: „Veruleikinn og draumurinn komu saman / í mótsagnakennda heild án þess að / litla barnið yrði geðveikt.“ Það er margt að varast. Líka það að láta undan ein- hverskonar súrrealískri óráðsíu sem réttlætir sig með því að allt geti gerst, en endar kannski í ein- hverri óvissu sem neitar að festa sig við okkur: „Bros kattarins er ótvírætt miðáð við lofthæð í leikhúsi og tréð meiðir þögnina" segir á einum stað („Afstaða"). Elísabet Jökulsdóttir. Mynd: Jim Og í „Bréf“ er svo komið að „Kettirnir reykja hass, drekka te, önnum kafnir við súmeríska orðaleiki“. Það er nefnilega það. Ég snússa mig bara á meðan. Smart. Grunið mig um íhaldssemi, en miklu betri og reyndar góðum ár- angri skilar Elísabet þegar ein- faldleikinn, sparsemin, úrdrátt- urinn, ræður ríkjum í stuttum ljóðum og marksæknum. Eins og því sem nefnist „Eru eldfjöll blá?“: Auðvitad þori ég hvorki né vil segja þér hvernig mér líður En mér finnst ég vera fjall og þú ert annað fjall. Blátt. Ég nefni til annað stutt kvæði, „Verk fyrir áhorfendur" sem er rúmgott fyrir lesandann, taki hann tilboðinu sem í því felst: Sviðið er leiksvið Salurinn er þéttskipaður áhorfendum Ljósin eru slökkt og tjaldið er dregið frá Sviðið er autt í tvo tíma... Ekki svo að skilja. Elísabet á fleiri strengi sem hljóma vel, eins og í ljóði sem heitir „Dans á vegg“ um stúlkuna sem dró fugl á vegg, og berst hann við að hefja sig til flugs. Þar er seilst til furð- unnar með því öryggi sem heldur þétt utan um feril myndanna frá orði til orðs. Árni Bcrgmann

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.