Þjóðviljinn - 20.10.1989, Page 26
MYNDLIST
Asmundarsalur v/Freyjugötu, Sig-
urborg Stefánsdóttir, málverk. Til
23.10.16-20 virka daga, 14-20 helg-
ar.
Bókasafn Kópavogs, Rafn Stefáns-
son, blýantsteikningar og málverk,
10-21 mán-fö, 11 -14 lau til október-
loka.
FÍM-salurinn, Kristinn G. Jóhanns-
son, málverk, opn. lau kl. 16. Til 5.11.
13-18 virka daga, 14-18 helgar.
Gallerí Borg, Torfi Jónsson, vatns-
litamyndir frá Vestfjörðum. Til 24.10.
10-18 virka daga, 14-18 helgar.
Gallerí Madeira, Evrópuferðum,
Klapparstíg 25, Björgvin Pálsson,
Ijósmyndastækkanir með Gumb-
ichromat tækni, opn. lau kl. 17. Til
24.11. virka daga 8:30-18.
Hafnarborg, Strandg. 34 Hf, 14-19
alla daga nema þri. Kaffistofa: Sigur-
björn Eldon Logason, vatnslitamynd-
ir.
Helgi Jónsson sýnir vatnslitamyndir
á göngum Landspítalans til 11.11.
Kjarvalsstaðir, opið daglega 11-22.
Til 22.10: Stefán Axel Valdimarsson,
málverk. Erró, málverk.
Listasafn ASÍ, Fréttaljósmyndir 89
(World Press Photo 89). Til 29.10.
16-20 virka daga, 14-20 helgar.
Listasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
innalladaga11-17.
Listasafn íslands opið alla daga
nema mánudaga kl. 11-17.Til5.11.
yfirlitssýning á verkum Jóns Stefáns-
sonar. Mynd októbermánaðar Svanir
e/Jón, leiðsögnin Mynd mánaðarins
fer fram í fylgd sérfræðings fi kl.
13:30. Aðgangur að sýningu og leið-
sögn ókeypis og öllum heimill.
Llstasafn Sigurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
þri 20-22.
Norræna húsið, til 29.10: Kjallari,
Björg Þorsteinsdóttir, olíukrítar- og
vatnslitamyndir, 14-19 daglega. And-
dyri, Öðruvísi fjölskyldumyndir, Ijós-
myndire/ToneArstila, Jim Bengt-
son, Frank Watson og Nönnu Bisp
Búchert, 12-19 su, 9-19 aðra daga.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Valgarður
Gunnarsson, málverk. Til 25.10.10-
18 virka daga, 14-18 helgar.
Riddarinn, Hafnarfirði, Við búðar-
borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á
vegum Byggðasafns Hf.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16 fram í
feb.1990.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/eftir
samkomulagi.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11-16. Bogasalur: Ljósmyndin
150 ára- Saga Ijósmyndunar á ís-
landi. Til nóvemberloka, aðgangur
ókeypis.
TÓNLIST
Jasssveit F.Í.H. flytur ný verk eftir
finnska hljómsv.stj. píanóleikarann
og tónskáldiö Jukka Linkola lau kl. 16
í sal Félags íslenskra Hljómlistar-
manna að Rauðagerði 27. Stjórnandi
er Jukka Linkola, sveitina skipa Björn
Thoroddsen, Gunnlaugur Briem,
Stefán Stefánsson, Sigurður Flosa-
son, Kjartan Valdimarsson, Össur
Geirsson, Bjarni Sveinbjörnsson,
Sæbjörn Jónsson, Reynir Sigurðs-
son og Martin van der Valk.
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur
tónleika í Listasafni íslands mán kl.
20:30. Síðari hluti einleikaraprófs
Önnu M. Magnúsdóttursembal-
leikara, á efnisskránni Svíta í a-moll
eftir L. Couperin, Toccata Settima í
d-moll eftir Frescobaldi, Ms. Magnús-
dóttir's Maggot eftir John Speight
(frumflutningur), Svíta eftir Forqueray
og Partíta í e-moll eftir J.S. Bach. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
HljómsveitTónlistarskólans í
Reykjavík heldur tónleika í Háteigs-
kirkju sunnud. Á efnisskránni er Sin-
fónía nr. 6 eftir Haydn og Sinfónía nr.
2 eftir Schubert. Tónleikarnir hefjast
kl. 17 og standa í um klst. Stjórnandi
er Kjartan Öskarsson. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Kirkjukór Ólafsvíkur heldur tónleika
í Ólafsvíkurkirkju su kl. 17. Á efnis-
skránni eru stutt kórverk eftir William
Byrd, Schútz, Elgar, Fauré, Þorkel
Sigurbjörnsson og Pítoni. Hljóðfæra-
leikuráflautu, klarinet, básúnuog
píanó tekur við af kórverkunum og
m.a. fluttir þættir úr verkum eftir T ele-
mann, Brahms og Rachmaninov. Að
lokum verða sungin íslensk kórlög,
m.a. eftir kórfélaga. Stjórnandi kórs-
ins er Elías Davíðsson organisti,
undirleik og flutning einleiksverka
annast Guðmundur Norðdahl, Valva
Gísladóttir, Michael Jacques og Elías
Davíðsson. Aðgangurerókeypis.
Tónlistarhátið verður á Hótel íslandi
sunnudag og hefst kl. 19 fyrir matar-
gesti, Lúðrasveitin Svanur leikur við
móttöku gesta og Árni Elvar á meðan
á borðhaldi stendur, en kl. 21 hefjast
tónleikar sem standa til 01 og selt inn
á þá sérstaklega fyrir aðra en matar-
gesti. Fram koma Þorsteinn Gauti
Sigurðsson píanóleikari, Ólöf Kol-
brún Harðardóttir sem syngur við
undirleik Jóns Stefánssonar, Jasss-
veit FÍH undir stjórn Jukka Linkola,
Sálin hans Jóns míns, Bachmann
Möller Bernburg, félagar úr Fél.
Harmonikkuunnenda, Bubbi Mort-
hens, Strax, BjartmarGuðlaugsson,
T regasveitin og Ríó T ríó, sem jafn-
framt annast veislustjórn.
LEIKLIST
Afþýðulelkhúsið, ísaðar gellur, su
kl. 16.
Frú Emilia, Skeifunni 3 c, Djöflar, í
kvöld og lau 20:30.
íslenska Óperan, Brúðkaup Fígar-
ós, lau kl. 20, síöasta sýn.
Litla leikhúsið, Gerðubergi, Regn-
bogastrákurinn.
Nemendaleikhúsið, Lindarbæ,
Grímuleikur, lau og mán 20:30.
Þjóðleikhúsið, Oliver! í kvöld kl. 20,
lauogsu kl. 15ogkl.20.
ÍÞRÓTTIR
Handbolti. 1 .d.kv. Víkingur-Grótta
fös kl. 20.15, Valur-KR lau. kl. 16.30,
FH-Stjarnan sun kl. 16.30.2.d.ka.
Fram-ÍBK fös. kl. 19, Selfoss-Þór lau.
kl. 14, FH b-Þórsun. kl. 14.3.d.ka.
Haukar b-Stjarnan sun. kl. 17.45, (R
b-Víkingur b sun. kl. 14, KR b-UMFÖ
sun.kl. 15.15.
HITT OG ÞETTA
MÍR Vatnsstíg 10, kvikmyndasýn. su
kl. 16, Níu dagar af einu ári, ein af
síðustu myndum Mikahíls Romm,
fullgerð 1962. Myndin fjallar um
kjarnorkuvísindamenn og ábyrgð
þeirra gagnvart öllu mannkyni. Mynd-
in er talsett á ensku, aðgangur öllum
heimill.
Eskf irðingar og Reyðfirðingar í
Reykjavík og nágrenni halda sitt ár-
lega kaffisamsæti fyrir eldri sveitunga
su kl. 15 í Sóknarsalnum, Skipholti 50
a.
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Raunir þingfréttaritara
Nú er búið að leggja fram
frumvarp til nýrra útvarpslaga og
samkvæmt því á að leggja niður
útvarpsráð. í þess stað á að koma
framkvæmdaráð sem skipað
verður með allt öðrum hætti og á
það bæði að útrýma útvarpsráði
og draga úr völdum útvarps-
stjóra.
Útvarpsráð ætlar ekki að gera
það endasleppt og nú í vikunni
voru ráðsmenn einhuga í því að
veitast að Ingimar Ingimarssyni
þingfréttamanni Sjónvarps.
Krafðist hið þverpólitíska ráð
þess að téður Ingimar fengi ann-
að hvort yfirfrakka, eins og sagt
er í handboltanum, eða yrði vikið
af leikvelli ella. Það væri allsendis
ófært að hann sæi einn um þing-
fréttir á komandi vetri. Satt að
segja á ég dálítið erfitt með að
skilja hvað það er sem sameinar
annars afar sundurleitt útvarps-
ráð í fordæmingu á Ingimar Ing-
imarssyni. Ég hef ekki séð að
hann sé svo mjög frábrugðinn
forverum sínum í þingfréttunum.
Varla er það hlutdrægni sem
veldur hræringum ráðsins, ráðs-
menn hafa hingað til ekki sýnt þá
faglegu dómgreind að sameinast
um að mótmæla því þegar frétta-
menn draga augljóslega taum
einhvers í fréttum. Ekki man ég
eftir því að ráðið ályktaöi mjög
stíft eftir að fyrrverandi þingfrétt-
aritari, Ingvi Hrafn Jónsson,
hafði með aðstoð Halls Halls-
sonar rannsóknarblaðamanns
strokið Alberti Guðmundssyni
um bak og kvið í beinni útsend-
ingu. Og er það þó eflaust eitt
frægasta dæmi úr seinni tíma fjöl-
miðlun á íslandi um það hvernig
ekki á að tala við pólitíkusa.
Mér hefur fundist stíll Ingimars
hafa sama megineinkenni og ann-
arra þeirra sem annast um þing-
fréttir í sjónvarpi: hann er of
feiminn við að ganga nærri við-
mælendum sínum, leyfir þeim að
komast upp með að svara spurn-
ingum illa, út í hött eða alls ekki,
og grípur ekki lausa enda sem
póiitíkusar missa einatt frá sér.
Hins vegar er Ingimar alveg laus
við það sem kollegar hans á Stöð
2 eiga oft til, semsé að sýna við-
mælendum sínum frekju, hroka
og yfirgang, gefa fólki engan séns
á að svara af neinu viti því sem um
er spurt.
Feimnin veldur því að
stjórnmálamenn geta farið sínu
fram, hagrætt öllu sem þeir óska
og falið það sem þeir vilja fela.
Hrokinn og frekjan breyta við-
tölum hins vegar í marklaust karp
og hanaslag sem enginn græðir á
nema hugsanlega stjórnmála-
maðurinn sem fær samúð al-
mennings. í hvorugu tilvikinu
næst það sem á að vera markmið
þingfrétta: að upplýsa almenning
um það sem er að gerast á þingi
og varpa ljósi á viðhorf og af-
stöðu þingmanna.
Þingfréttir hafa þróast veru-
lega á síðustu árum, jafnvel
meira en aðrar tegundir frétta.
Hvað á að gera um helgina?
Mynd: Jim Smart
Jóhannes Kristjánsson
skemmtikraftur
„Ég verð að skemmta eins og fyrri helgar," sagði Jóhannes Kristjáns-
son þegar Nýtt Helgarblað forvitnaðist um helgaráform þessa lands-
kunna skemmtikrafts. Hann sagðist verða á einni skemmtun í Reykja-
vík á föstudeginum, en á laugardeginum myndi hann skemmta björg-
unarsveitarmönnum á Húsavík. „Ég ætla síðan að reyna að koma mér
heim á sunnudaginn og lunginn úr þeim degi fersennilega í það. Þetta
verður púravinnuhelgi eins og aðrar helgar hjá mér,“ sagði Jóhannes,
eða var það Ólafur Ragnar eða Steingrímur?
Námskeið í Bridge eru að hefjast í
menningarmiðst. í Gerðubergi. Átta
vikna byrjendanámskeið hefst 25.10.
kl. 20. Átta vikna námskeið fyrir
lengra komna 23.10 kl. 20. Kennslu-
gjald 4000 kr. 10% afslátturfyrirhjón.
Dregið hefur verið í verðlaunaget-
raun Þjóðleikhússins, vinninga hlutu
Steinn Sigurðarson Vogarseli 7,
Rvík, Magnús S. Kristjánsson, Efsta-
sundi27, R, Hlíf Jónsdóttir Unnarb-
raut 28, Seltjarnam. Halldóra Geirs-
dóttir Hátúni 10 a, R og Friðrik Guð-
jónsson Barmahlíð 37, R. Verðlaunin
eru tveir miðar á einhverja sýningu
leikhússins í vetur og geta vinnings-
hafar gefið sig fram við miðasölu þeg-
ar þeir vilja fara í leikhúsið.
Félag eldrl borgara í Reykjavík og
nágrenni, Göngu Hrólfur hittist á
morgun kl. 11 að Nóatúni 17, opið
hús í Goðheimum, Sigtúni 3 su kl. 14.
Frjálst, spil og tafl, dansaðfrá kl. 20.
Útivist, dagsferð su kl. 13: Köldu-
námur- Lambafellsgjá, gönguferð á
svæðinu Kleifarvatn-Trölladyngja.
Helgarferð: Fjallaferð um veturnætur
- óvissuferð.
Þær hafa losnað úr viðjum þess
að vera einskonar lögbirtingur
hins opinbera þar sem ekki mátti
segja frá neinu nema því sem
augljóslega sást á yfirborðinu. í
þeirri þróun á fréttastofa útvarps-
ins stærstan þátt og þó enginn
frekar en Atli Rúnar Halldórs-
son. Hann fór inn á þá braut að
skyggnast á bakvið framhliðina
sem stjórnmálamenn allra flokka
vildu halda að almenningi, greina
frá flokkadráttum og átökum
innan flokka og ríkisstjórna. Við-
þetta losnaði mjög um allan frétt-
aflutning af íslenskum
stjórnmálum.
Á hinn bóginn hefur aukin
samkeppni, einkum milli ljósvak-
amiðlanna, leitt til þess að við
fáum miklu nánari fréttir af því
sem þingfréttaritarar telja
„skemmtilegt" eða „söluvæn-
legt“ en því sem skiptir okkur
kannski miklu meira máli. Þing-
fréttamenn eru oft svo uppteknir
af því að segja okkur fréttir af
innanflokksátökum eða deilum
ráðherra að heilu stórmálin sem
geta valdið tímamótum f lífi þjóð-
arinnar sigla hljóðalaust í gegn-
um þingið.
Auðvitað er það hlutverk fjöl-
miðla að upplýsa almenning um
það sem gerist á bak við tjöldin
og veita þingmönnum aðhald ef
þeir fara yfir strikið í brennivíns-
kaupum og veislugleði. En það
má ekki vera á kostnað málefna-
legrar umfjöllunar um þau þing-
mál sem varða þjóðina mestu.
En ég er ennþá að velta því
fyrir mér hver er glæpur Ingimars
Ingimarssonar að mati hins ein-
huga útvarpsráðs.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. október 1989