Þjóðviljinn - 17.11.1989, Blaðsíða 5
Mynd: Kristinn
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins
Ný heimsmynd
Nýr gmndvöliur
Nýir tímar
Morgunstund á bökkum fljóts-
ins mikla sem harður vetur hefur
bundið klakaböndum. Kuldinn
hefur drepið í dróma sérhvert líf
og gróður. Bak við fjöllin er sólin
hulin langa vetrardaga. Tímans
elfur virðist standa kyrr en undir-
niðri býr þó hulinn kraftur. Biðin
eftir birtu og yl virðist aldrei ætla
að taka enda.
Þá gerist það í skyndi árla dags
að sólin brýst fram ofar fjallsins
brúnum. IGakaböndin bresta á
skammri stundu. Fljótið flæðir
fram og fyllir farveg sinn á ný.
Gróðurmoldin fyllist ferskum
krafti. Birta sólar boðar vor að
nýju. Heimurinn allur klæðist
öðrum búning. Myndin verður
hrein og tær í okkar huga. Ver-
öldin sjálf hefur tekið stakka-
skiptum.
Tímamót
Við lifum nú á vormorgni nýrr-
ar sögu. Gömlu klakaböndin eru
brostin. Ný heimsmynd birtist við
dagsbrún. Gömul gildi hverfa og
nýjar leiðir opnast á degi hverj-
um. Sérhver maður og heilar
þjóðir finna að í brjósti hvers og
eins býr þráin sterka til að ganga
nýjar götur.
Hið kalda stríð hefur runnið
sitt skeið á enda. Járnhælarnir slá
ekki lengur taktinn í kapphlaupi
vígbúnaðarins. Hinn vopnaði
friður hefur glatað sínu gildi.
Múrinn mikli opnaðist á einni
morgunstund og fjöldinn
streymdi um stræti og götur.
Verðir sem í aldarfjórðung höfðu
borið byssustingi voru nú með
blóm í hendi. Frelsið og lýðræðið
voru ekki lengur fjarlægur
draumur heldur lofsöngur þús-
undanna á öllum torgum.
Á degi hverjum birtast okkur
myndir og frásagnir af raunveru-
legum atburðum sem fyrir fá-
einum vikum hefðu talist draum-
sýn um framtíðarheim. Heimur
er í sköpun. Heimsmyndin nýja
krefst hugdirfsku og áræðis. For-
sendur fyrri tíma glata gildi sínu á
einni nóttu.
Já, heimur í sköpun, en einnig
heimur í hættu.
Hið tryllta kapphlaup fram-
leiðslu og gróða hefur skapað
nýja ógn við allt það sem við telj-
um gæði daglegs lífs. Ósonlagið
sem um aldir hefur verið vemdar-
hjúpur jarðarinnar eyðist nú með
meiri hraða en nokkurn grunaði
fyrir aðeins fáum árum. Tröll-
aukin markaðsöfl iðnríkjanna
miklu em að umbylta hitastigi
jarðar, þróun sem kennd hefur
verið við hitasvækju gróðurhús-
anna. Haldi svo fram sem horfir
blasir við okkur hryllingsmynd að
skömmum tíma liðnum. Svo
kynni að fara að á öðram áratug
næstu aldar minni Evrópa sunn-
anverð á eyðimörk, að hinir víð-
feðmu akrar Bandaríkja Norður-
Ameríku, öflugasta fæðuforða-
búr mannkynsins, verði orðnir að
sviðinni jörð, að jöklamir bráðni
og hafsborðið lyftist og færi í kaf
fjölmenn byggðarlög sem nú era
blómleg og allir töldu öragg
heimkynni þar til fyrir skömmu.
Auðhringir ráðast að regn-
skógum Suður-Ameríku og rjúfa
mikilvægasta hlekkinn í lífkeðju
jarðarinnar. Súrt regn fellir lauf
og gróður um lönd og álfur.
Dómur reynslunnar
Lofsöngurinn um gæði hins
óhefta gróða hefur snúist í and-
hverfu sína, örvæntingaróp
vegna örlaga mannkynsins alls. í
áratug hefur frjálshyggjan, sem
kennd er við Hayek og Friedman
og birtist í verki í valdatíð Reag-
ans og Thatchers verið grand-
völlur að kröfu aflanna til hægri
um forræði í landsstjórn og þjóð-
málum. Stefna þeirra fékk tíma
til að sanna gildi sitt og getu. Ekki
aðeins í Bretlandi og Bandaríkj-
unum heldur einnig hér. Dómur
reynslunnar blasir nú við á
spjöldum sögunnar. Járnfrúin
sterka riðar nú tii falls, vaxta-
kapphlaup og verðbólga naga
stoðir framleiðslunnar. George
Bush tók í arf þverbrestina frá
valdatíð Ronalds Reagans.
Skuldir Bandaríkjanna era orðn-
ar að efnahagslegu hyldýpi.
Kauphöllin titrar af ótta við yfir-
vofandi hrun. Pappírsgróði
verðbréfasjóðanna, braskið með
einingarbréfin í kaupþingum
Wall Street, hefur reynst án inni-
stæðu í framleiðslukerfi landsins.
í stað þeirrar gósentíðar sem
frjálshyggja Reagans lofaði am-
erískum almenningi era jap-
önsku stórfyrirtækin orðin hand-
hafar veðanna. Þau kaupa nú
þrotabúin hvert af öðru, hin hei-
lögu vé Rockefeller Center og
Columbia Pictures eru nú með
heimilisfang í Tokyo miðri.
Á íslandi eignaðist fagnaðar-
boðskapur gróðahyggjunnar
einnig sína eimreið. Hún branaði
fram með nýja forystu Sjálfstæð-
isflokksins í stjórnklefanum. Frá
árinu 1983 hófst fimm ára tilraun
peningahyggjunnar með íslenska
hagkerfið. Lærisveinar Thatc-
hers og Reagans í forystu Sjálf-
stæðisflokksins fengu forræði yfir
ráðuneytum fjármála og við-
skipta, iðnaðar og verslunar og
loks forsætið sjálft að loknum síð-
ustu kosningum. Fimm ára for-
ysta. Dómur reynslunnar um
forræði frjálshyggjunar.
Fimm örlagarík ár
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins færði útflutningsgreinar
íslendinga fram á heljarbrún.
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins færði í fyrsta sinn í 30 ár
að bæjardyram okkar hættuna á
atvinnuleysi tugþúsunda.
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins skóp trylltan vaxtadans
á mörkuðum peninga og papp-
írsgróða.
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins gróf hyldýpi milli höf-
uðborgar og landsbyggðar.
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins skildi eftir sig bruna-
rústir gjaldþrota um atvinnulífið
þvert og endilangt.
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins drap nýsköpun í dróma
í sjávarútvegi og iðnaði, fram-
leiðslu og útflutningi. Þá var gós-
entími pappírsgróðans meðan líf-
æðar framleiðslukerfisins vora
skomar sundur, krafturinn þvarr
úr hagkerfinu öllu.
Fimm ára forræði Sjálfstæðis-
flokksins endaði í stórslysi á
miðri þjóðbraut íslendinga. Sár-
in vora mörg og djúp. Blóðtakan
mikil.
Eimreið frjálshyggjunnar
hafði branað um ísland allt. Á
elleftu stund er hyldýpið sjálft var
á næsta leiti stökk hin unga
eimreiðarforysta Sjálfstæðis-
flokksins úr stjórnklefanum og
aðrir fengu það hlutaverk að taka
í hemlana.
Já, heimsmyndin gamla hefur
hlotið harðan dóm. Bæði hér og
víða í veröldinni. Á degi hverjum
birtist nýr vitnisburður. Tog-
streitan milli miðstýrðrar ríkis-
forsjár þar sem flokksræðið gerð-
ist alvaldur í daglegu lífi og firjáls-
hyggjunnar þar sem kapphlaup
um gróðann og taumlaus mark-
aður mótuðu lífssýn alla og at-
hafnir hversdagsins - þessi tog-
streita hefur nú hlotið sinn stóra
dóm - báðum í óhag. Sú harð-
stjórn sem sovéski herinn kom á
fót í löndum Austur-Evrópu og
reist var á rústum heimsstyrjaldar
hefur nú blessunarlega rannið sitt
skeið á enda. Hagkerfi hinnar
stalínísku miðstýringar riðar nú
til falls.
Ný heimsmynd
Heimsmyndin nýja er veröld
lýðræðis og jafnaðar, manngildis
og samhjálpar. Hún birtist nú
óðum með bjarma af nýjum degi.
Mannkynið allt skynjar æ betur
að örlög okkar allra eru samofin.
Hugsjónin um jafnrétti og
bræðralag er og verður skærasta
leiðarljósið inn í nýja öld. Frjálsir
menn í þúsund löndum þurfa nú
að taka höndum saman í nýju
verki. Sá akur er í senn okkar
garður og heimsins alls.
Flokkur sem er skapandi
hreyfing hikar aldrei við að líta
heiminn nýjum augum.
Flokkur sem er skapandi
hreyfing kveinkar sér aldrei
undan lærdómum reynslunnar.
Flokkur sem er skapandi
hreyfing hleypur ekki frá erfiðum
verkum.
Fyrir rösku ári síðan tókum við
þá ákvörðun að stöðva tortíming-
areimreið frjálshyggjunar í ís-
lensku þjóðfélagi. Á fáeinum
dögum var lagður grundvöllur að
nýrri landsstjórn sem tók við því
erfiða verki að sauma saman sár-
in eftir fimm ára forræði Sjálf-
stæðisflokksins í þjóðmálum ís-
lendinga. Verkið hefur vissulega
verið torsótt, enda sárin dýpri en
nokkurn grunaði. Við erfið skil-
yrði höfum við í tvö misseri staðið
í björgunarstarfinu miðju.
Minnkandi sjávarafli og brestir í
verðlagi á erlendum mörkuðum
hafa gert þrautina þyngri en
nokkru sinni í 30 ár. í*að þarf að
leita allt aftur til ársins 1950 til að
finna þrjú samfelld samdráttarár
í íslensku hagkerfi. Afleiðingar
frjálshyggjunnar, fimm ára for-
ræðis Sjálfstæðisflokksins, hafa
ásamt hinum erfiðu ytri skilyrð-
um reynt meira á þolrifin í lands-
stjórninni og í fólkinu í landinu
en við höfðum þekkt i áratugi.
Engu að síður getum við í dag
litið verulegan árangur þessa
björgunarstarfs. Blóðtakan hefur
verið stöðvuð og sárin hafa verið
saumuð saman. Nú er brýnt að
þau fái að gróa á ný hægt og ör-
ugglega svo íslensk þjóð geti not-
ið efnahagslegs stöðugleika og
lagt nýjan grundvöll að bættum
lífskjörum og auknum jöfnuði
með landsmönnum öllum.
Nokkrar staðreyndir
Nokkrar staðreyndir tala skýra
máji um árangur þessa fyrsta árs:
Útflutningsgreinar sem áður
vora á heljarþröm era nú smátt
og smátt að fá nýjan þrótt. Raun-
gengisbreyting á þessu ári hefur
skapað ný og betri rekstrarskil-
yrði. Stöðvun sjávarútvegs- og
fiskvinnslufyrirtækja um landið
allt er ekki lengur yfirvofandi.
Þess í stað sýna mörg þeirra nú
afgerandi bata. Gengisþróun hef-
ur senn náð því stigi að það sam-
ræmist sanngjörnu mati á eðli-
legum rekstrarskilyrðum. Það
reynir því senn á fyrirtækin sjálf
og stjórnendur þeirra að bjarga
sér af eigin rammleik.
Hin geigvænlega þensla sem
drottnaði á höfuðborgarsvæðinu
öllu og ár af ári gróf dýpri gjá milli
suðvesturhornsins og lands-
byggðarinnar hinnar hefur nú að
mestu horfið. Nýtt jafnvægi er að
festa rætur. Þessi jákvæða
breyting hefur eðlilega skapað
minni eftirspurn eftir störfum í
verslun og viðskiptum. Það þurfti
að flytja starfskraftana yfir til
atvinnugreina í útflutningi og
framleiðslu. Okkar smáa þjóð
nær aldrei að bæta sín lífskjör til
lengdar ef áherslan á eyðsluna er
útflutningnum og framleiðslunni
sterkari.
Hinn tryllti vaxtadans er ekki
lengur stiginn á gráum markaði
nýrra verðbréfafyrirtækja. Aug-
lýsingamar um gylliboðin frá
kaupþingum verðbréfagróðans
fylla ekki lengur fjölmiðlana
kvöld eftir kvöld eða heilsíður
dagblaðanna viku eftir viku. í
staðinn er komin ný spamaðar-
sókn þar sem sjóður landsmanna
sjálfra er í fararbroddi. Þúsundir
Setningarrœða á 9. landsfundi Alþýðu-
bandalagsins 16. nóvember 1989
Föstudagur 17. nóvember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5