Þjóðviljinn - 17.11.1989, Qupperneq 8
Helgarveðrið
Horfur á laugardag: NA-átt og vægt frost um mest allt land. Él víöa við strendur landsins, síst
V-lands.
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. nóvember 1989
Horfur á sunnudag: Hæg breytileg átt og bjart veður víðast hvar. Þó líklega V-strekkingur við
N-ströndina síðdegis. Nokkurt frost inn til landsins en hiti nálægt frostmarki við sjóinn.
Og ekki orð um það meir!
Fyrirbæri úr djúpinu
Jóhanna Bogadóttir sýnir að Kjarvalsstöðum
„Þetta eru fyrirbæri sem sækja á mig, sum
hvað eftir annað og árum saman, og geta haft
margræða merkingu. Eins konar frummyndir
eða erkitýpur um manninn, náttúrukraftinn,
lífið, dauðann og upprisu eða flug í óeiginlegri
merkingu."
Eitthvað á þessa leið sagði Jóhanna Boga-
dóttir þegar hún sýndi okkur málverk og
teikningar sem hún var að hengja upp í Vest-
ursal og anddyri Kjarvalsstaða í vikunni. Jó-
hanna hefur notið starfslauna sem borgarlista-
maður síðasta árið, og er sýningin afrakstur
þess tíma og reyndar síðustu þriggja ára, en
þrjú ár eru síðan Jóhanna hélt síðast einkasýn-
ingu í Reykjavík.
Myndir Jóhönnu eru ólgandi af tilfinninga-
hita sem fyrr, en miðað við síðustu sýningu eru
verk hennar nú fyllri í sér og heitari í lit um leið
og formin verða óhlutbundnari og meira í lík-
ingu við eins konar frummyndir sóttar djúpt í
undirvitund mannsins, sem geta orðið býsna
áleitnar.
Jóhanna sagðist hafa dvalið í A-Skaftafells-
sýslu síðastliðið sumar og sótt áhrif og kraft í
skaftfellska jökla og gljúfur.
„Áhrifa frá Indlandsferð minni fyrir ári gætir
líka í nýjustu myndunum, en það ferðalag var
svo yfirþyrmandi reynsla að ég er fyrst að byrja
að geta unnið úr henni núna eftir eitt ár.“
Sýning Jóhönnu að Kjarvalsstöðum verður
opnuð á laugardag kl. 14 og verður síðan opin
alla daga kl. 11-18 til 3. desember.
-ólg
Jóhanna Bogadóttir með nokkrum verka sinna á sýning-
unni að Kjarvalsstöðum. Ljósm. Kristinn.
Helgarblað
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: ÞrösturHaraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla:@68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Símfax:68 19 35
Verð: í lausasölu 140 krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Orsök og afleiðing
Á öllum vettvangi tilverunnar er mikilvægt aö reyna að gera
sér grein fyrir muninum á orsökum og afleiðingum, skilja sög-
una til að geta skapað fyrir framtíðina. Það eitt að skoða stað-
reyndirnar, lýsa niðurstöðum, getur hæglega leitt til rangrar
stefnumótunar, ef forsendur eru ekki Ijósar, orsakir skýrar.
í setningarræðu sinni við upphaf 9. landsfundar Alþýðu-
bandalagsins í gær fórust formanni flokksins, Ólafi Ragnari
Grímssyni, orð á þennan veg:
„Heimur er í sköpun. Heimsmyndin nýja krefst hugdirfsku og
áræðis. Forsendur fyrri tíma glata gildi sínu á einni nóttu. Já,
heimur í sköpun, en einnig heimur í hættu.“
Þessi vel völdu, hnitmiðuðu orð eru kjarninn í boðskap þeim
sem formaðurinn túlkaði síðan í máli sínu. Hann skilgreindi
atburði síðustu daga, vikna og mánaða í Austur-Evrópu og
fagnaði þeim lífsþrótti sem nú á í vændum vaxtarrými í samfé-
lögum lýðræðis og jöfnuðar. Á sama hátt fordæmdi hann frjáls-
hyggjuna og minnti á afleiðingar hennar hérlendis og á alþjóða-
vettvangi.
Ólafur Ragnar Grímsson skyggndist á bak við atburðina með
augum hins reynda stjórnmálakönnuðar og þátttakanda. Hon-
um er vel lagið að skilgreina þætti sem líklegir eru til að villa
okkur sýn, ef við áttum okkur ekki á muninum á orsökum og
afleiðingum í stjórnmálunum.
Hvað stýrir efnahags- og menningarþróun í heiminum? Eru
það einstakir atburðir, eins og hrun Berlínarmúrsins, eða
kannski djarfar ákvarðanir forystumanna?
Svarið er í báðum tilvikum nei. Þótt vinnuvélstjórarnir sem
sundra Berlínarmúrnum vinni gott starf, er ofrausn að þakka
þeim niðurrifið. Og það er á sama hátt villandi að heiðra
ákveðna persónuleika austan tjalds og vestan fyrirframsýni og
kjark.
Orsök framfaranna eru hugmyndir sem ræddar eru og fá að
þróast. Afleiðingin er snjallir forystumenn, réttar ákvarðanir,
afdrifaríkir atburðir. Ólafur Ragnar Grímsson og aðrir leiðtogar í
heimi stjórnmálanna teljast á þann hátt til afleiðinga en ekki
orsaka.
Formaður Alþýðubandalagsins vék reyndar sjálfur að þess-
um sannleika í ræðu sinni og sagði:
„Flokkur sem er skapandi hreyfing hikar aldrei við að líta
heiminn réttum augum. Flokkur sem er skapandi hreyfing
kveinkarsér aldrei undan lærdómum reynslunnar. Flokkursem
er skapandi hreyfing hleypur ekki frá erfiðum verkum.“
Þessi ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar bera vitni um
traust hans og skilning á úrslitaþýðingu stjórnmálaflokkanna.
Þeir hafa tekið að sér eitt grundvallarhlutverk lýðræðisþjóðfé-
laganna, eru sjálfboðaliðasamtök ábyrgra smiða í því ef svo má
að orði komast. í deiglum flokkanna eru málmarnir bræddir,
hamraðir og þeim komið í nýtanlegt form, samfélaginu öllu til
heilla.
Allir sem tekið hafa þátt í pólitísku starfi kannast við andrúms-
loft smiðjunnar. Þar verða slíkar sveiflur í hitastigi, hljómum og
þef, að sumir hrökkva undan þegar mest gengur á. En slíkt er
öðrum þræði eðli allrar smíði. Formaður Alþýðubandalagsins
sagði í niðurlagi ræðu sinnar:
„í flokki okkar eru og eiga að vera margar vistan/erur. Hann
verður aldrei breiðfylking án þess að umburðarlyndi og fjöl-
skrúðug lýðræðisleg umræða fái að njóta sín til fullnustu. Eng-
inn okkar er handhafi sannleikans. Við eigum öll að bera virð-
ingu fyrir leit hvers annars.“
Setningarræða Ólafs Ragnars Grímssonar er birt í heild hér í
Þjóðviljanum í dag. Hún er þarft lesefni öllum þeim sem vilja
átta sig á helstu atriðum nútíma stjórnmála, á íslandi og í
umheiminum. Augljóst er af boðskap formanns Alþýðubanda-
lagsins hve mjög hann lítur til framtíðar, hve hátt hann skipar
þeirri kröfu að við búum börnum okkar betri heim.
Inntak sósíalismans er þessi skilgreining á veruleika fortíðar
og samtíma og áætlun um framtíðina. Aðrar stjórnmálahreyf-
ingar reyna tíðum að líkja eftir þessari vinnuaðferð. En grund-
völlur aðferðarinnar er upp sprottinn í sósíalismanum. Hug-
myndaforði hans er orsökin. Einn mesti sigur hans er þessi
afleiðing, þetta landnám í hugum jarðarbúa í fjölmörgum flokk-
um, krafan um betri heim, meiri jöfnuð, - réttlæti. aht