Þjóðviljinn - 15.05.1990, Síða 2
FRETTIR
Rannsóknasjóður
Dregið úr styrkveit ingum
Rannsóknaráð ríkisins kynnti í
gær úthlutun styrkja úr
Rannsóknasjóði árið 1990. Alls
var úthlutað 62 styrkjum að
heildarupphæð 104,1 miljón
króna sem er fimm miljónum
króna lægri upphæð en árið 1989.
Það er 23% niðurskurður að
raungildi milli ára.
í fréttatilkynningu vegna út-
hlutunarinnar kemur fram að
framlög til Rannsóknasjóðs hafa
rýrnað um 40% frá árinu 1985
þegar sjóðurinn var stofnaður.
Jón Sigurðsson formaður
matsnefndar, sem gerði tillögur
um úthlutun styrkja úr Rann-
sóknasjóðs, var harðorður í garð
stjórnmálamanna á fréttamanna-
fundi þar sem úthlutun styrkja
var kynnt í gær. Hann sagði m.a.
að niðurskurður á framlögum til
sjóðsins sýndi að ekki væri nægi-
legur pólitískur vilji til að halda
uppi rannsóknum og skapa
grundvöll fyrir nýsköpun í
atvinnulífi sem pólitíkusar væru
samt alltaf að tala um.
Alls bárust 148 umsóknir að
þessu sinni að upphæð samtals
327 miljónum króna. Framlög til
Rannsóknasjóðs voru í fjárlögum
1990 ákveðin 95 miljónir króna.
En þau voru lækkuð niður í 85
miljónir króna með niðurskurði í
fjárlögum í kjölfar kjarasamn-
inga.
Með því að úthluta 104,1 milj-
ón króna er farið 19 miljónum
króna fram úr fjárveitingu ársins.
Lachmanns
verðlaunin
Sveinn sæmdur
Sveinn Einarsson tók fyrir
helgi við Lachmanns viðurkenn-
ingunni fyrir störf sín að nor-
rænni samvinnu í leiklistar-
málum og nema verðlaunin um
400 þúsund krónum.
Sveinn Einarsson er annar ís-
lendingurinn sem hlýtur þessa
viðurkenningu. Árið 1972 hlaut
Sigurður Þórarinsson verð-
launin.
Sveinn Einarsson hefur unnið
ötullega að norrænni leiklistar-
samvinnu. Hann vann m.a. í
Vasanefndinni að skipulagningu
norrænna leiklistarnámskeiða og
í Gestaleikjanefndinni. Auk þess
hefur Sveinn starfað í Norrænu
leiklistarnefndinni og haldið
fyrirlestra víða á Norðurlöndun-
um um íslenska leiklist og leikrit-
un- BE
Sú upphæð kemur til greiðslu á
næsta ári með fjárveitingu þess
árs. Með því vill Rannsóknarráð
reyna að draga úr áhrifum þessa
skyndilega niðurskurðar á
rannsóknarstarf í landinu.
Þrátt fyrir samdrátt í úthlutun-
um sjóðsins er áberandi mikil
aukning í styrkjum hans til verk-
efna sem lúta að upplýsinga- og
tölvutækni í fiskiðnaði. Þau fá að
þessu sinni um 22% af úthlutun-
inni. Önnur þróunarverkefni í
þágu matvælatækni fær um 20%.
Ferðamálaráð íslands veitti ný-
lega Hjálmari R. Bárðarsyni
Fjölmiðlabikarinn fyrir árið 1989
fy rir ötult starf hans við ky nningu
lands og þjóðar.
Hjálmar hefur gefið út bækur á
fjölmörgum tungumálum um
þjóðlíf á íslandi og náttúru lands-
ins. Sú fyrsta, lsland farsælda
Fiskeldi nýtur líka áfram veru-
legs stuðnings, um fjórðungs út-
hlutunarinnar. Mikill niður-
skurður er hins vegar á styrkjum
til Líefna og líftækni sem nú fær
einungis rúm sextán prósent af
ráðstöfunarfé sjóðsins saman-
borið við um 38 prósent árið
1987.
Langhæsti styrkur vegna eins-
taks verkefnis rennur til þróunar
á tölvumyndagreiningu eða
tölvusjónar til að flokka og gæða-
meta ferskfisk og saltfisk í
frón, kom út árið 1953 og á síð-
asta ári kom út ritið Hvítá. Alls
eru bækur Hjálmars sex talsins og
hefur höfundur gefið þær allar út
sjálfur. Bækurnar prýða Ijós-
myndir Hjálmars en hann fékk
snemma mikinn áhuga á ljós-
myndun.
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
vinnslurásum. Átta miljóna
króna styrkur er veittur til þessa
verkefnis sem er samvinnuverk-
efni Marels hf. og Upplýsinga- og
merkjafræðistofu Háskólans.
Miklar vonir eru bundnar við
það og verða frumgerðir tækja
reyndar á næstunni. Sölusamtök
fiskiðnaðarins, Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna, og Sjávaraf-
urðardeildir Sambandsins hafa
lagt fram styrki til þessa verkefnis
á móti Rannsóknaráði og er
reiknað með að svo verði áfram.
-rb
göngumálaráðherra, afhenti
Hjálmari bikarinn, en þetta er í
sjöunda skipti sem fjölmiðlabik-
arinn er veittur. Meðal þeirra
sem áður hafa hlotið þessa viður-
kenningu er Magnús Magnússon,
Ríkisútvarpið og Örlygur Hálf-
dánarson.
BE
Johnny Cash, „The man in
Black".
Tónlist
Johnny Cash
til íslands
Hinn ókrýndi konungur
bandarískrar sveitasælutónlistar,
Johnny Cash, er væntanlegur til
Islands og mun halda tvenna tón-
leika í Laugardalshöll 7. og 8.
júní. í för með honum eru 14
manns, þar á meðal eiginkona
hans og dætur og koma þær fram
á tónleikunum.
Johnny Cash sló fyrst í gegn
með laginu „I walk the line“ árið
1955 og á því 35 ára starfsafmæli
um þessar mundir. í tilefni þess-
ara tímamóta hefur Johnny Cash
verið á hljómleikaferðalagi um
heimsbyggðina og staldrar hér
við á leið sinni frá meginlandi
Evrópu til Bandaríkjanna.
Það eru Körfuknattleikssam-
band íslands og SÁÁ sem standa
að tónleikunum og verður sér-
staklega vandað til aðstöðu fyrir
tónleikagesti í Laugardalshöll,
m.a. verða öll sæti númeruð.
-Sáf
Bröste
Bjartsýni
verðlaunuð
Glerlistamanninum Leifi
Breiðfjörð verða veitt
Bjartsýnisverðlaun Bröste þegar
þau verða afhent í tíunda sinn
þann 4. júní næstkomandi.
Leifur Breiðfjörð er forvígis-
maður á sviði steinglerlistarinnar
hér á landi, segir í greingerð
dómnefndar, hugmyndaríkur og
afkastamikill.
Leifur stundaði nám í
Myndlistar- og handíðaskóla ís-
lands á árunum 1962-1966. Eftir
það sótti hann frarnhaldsnám í
steinglerlist í Edinborg. Verk
hans hanga víða m.a. í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Formaður dómnefndar bjart-
sýnisverðlaunanna er Gunnar J.
Friðriksson og verndari þeirra er
frú Vigdís Finnbogadóttir.
Steingrímur J. Sigfússon, samgöngumálaráðherra, afhendir Hjálmari R. Bárðarsyni fjölmiðlabikarinn.
Mynd: Kristinn.
Ferðamálráð Islands
Landkynningarfrömuður
heiðraður
Hjálmar R. Bárðarson hlaut Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs íslands
Álfur byggir upp
land og lýð
Landgræðslan og SÁÁ standa
fyrir tvöföldu átaki við að byggja
upp land og lýð helgina 19. og 20.
maí. Þá verður álfur, sem er lítill
gulur karl með litskrúðugan hatt
boðinn til sölu til að styðja mikil-
vægt uppbyggingarstarf SÁÁ,
forvarnir meðal ungs fólks og
landsbyggðarþjónustu samtak-
anna. I hatti Alfs leynast birki- og
lúpínufræ, sem fólk er hvatt til að
sá á stöðum, þar sem uppgræðslu
er þörf. Þannig slær Álfur tvær
flugur í einu höggi. Álfur kostar
300 krónur og verður boðinn til
sölu á fjölförnum stöðum og í
heimahúsum um næstu helgi
Ferðaþjónusta
utan háannatíma
Ferðamálaráð fslands heldur al-
mennan fund í Viðey í dag. Efni
fundarins er Ferðaþjónusta utan
háannatíma. Á fundinum verða
kynntar niðurstöður könnunar,
sem ráðið hefur látið gera nú í vor
meðal erlendra ferðamanna.
Flutt verða stutt erindi um málið
af þeim Dieter Wendler Jóhann-
son, forstöðumanni Ferðamálar-
áðs í Frankfurt, Ingjaldi Hanni-
balssyni, forstjóra útflutnings-
ráðs, Júlíusi Hafstein formanni
ferðamálanefndar Reykjavíkur
og Orra Vigfússyni forstjóra. Síð-
an verður almenn umræða.
Fyrirlestur um
Þorleif Repp
Dr. Andrew Wawn, lektor við
enskudeild University of Leeds
flytur opinberan fyrirlestur í boði
Stofnunar Sigurðar Nordals, í
dag kl. 17.15 í stofu 101 í Odda,
hugvísindahúsi Háskólans. Fyrir-
lesturinn nefnist „The silk-clad
skald: Þorleifur Repp, Færeyinga
saga and Nineteenth-Century
Britain" og verður fluttur á
ensku. Dr. Wawn er hér á landi
að vinna að ritgerð um 19. aldar
fræðimanninn Þorleif Guð-
mundsson Repp og störf hans á
Bretlandseyjum og mun hún birt-
ast í ritröðinni Studia Islandica.
Áður hefur dr. Wawn birt margar
greinar um bókmennta- og
menningartengsl milli íslands og
Bretlands á síðustu öldum.
Vortónleikar
í Garðabæ
Vortónleikar kórs Fjölbrautar-
skóla Garðabæjar verða haldnir í
Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskrá eru m.a. íslensk lög
og lög frá Norðurlöndunum.
Stjórnandi kórsins er Hildigunn-
ur Rúnarsdóttir. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Foreldrafélag
misþroska barna
Þriðja starfsári Foreldrafélags
misþroska barna er að ljúka og
verður síðasti fundur vetrarins
haldinn annað kvöld, miðviku-
daginn 16. maí kl. 20.30, í Æf-
ingadeild Kennaraháskólans á
mótum Bólstaðarhlíðar og Há-
teigsvegar. Fundarefnið verður:
Réttindi barna til aðstoðar í
skólakerfinu og hjá Tryggingast-
ofnun. Arthur Mortens verður
gestur ásamt Þór Þórarinssyni frá
Svæðisstjórn Reykjavíkur.
Fram og KA í
Meistarakeppni KSÍ
Árlegur leikur íslandsmeistara
og Bikarmeistara síðasta árs í
knattspyrnu fer fram á gervi-
grasinu í Laugardal í kvöld kl. 20.
Að þessu sinni eru það íslands-
meistararnir KA frá Akureyri og
Bikarmeistararnir Fram úr
Reykjavík, sem leiða saman
hesta sína.
Gestafundur
í Kópavogi
Kvenfélag Kópavogs stendur
fyrir gestafundi fimmtudaginn
17.5. kl. 20.30 í Félagsheimili
Kópavogs. Skemmtiatriði og
kaffiveitingar.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. mal 1990