Þjóðviljinn - 15.05.1990, Side 3
Hafnarfjörður
Stöð 2 ritskoðar vegna þrýstings
Stöð 2frestar sýningu á þáttum um œskulýðsmál og menningarmál í Hafnarfirði vegna þrýstings sjálfstœðismanna.
Þorvarður Elíasson: Neitaþvíekki að MatthíasÁ. Mathiesenfórfram áfrestun. Gunnar Rafn Sigurbjörnsson: Engin
skynsamleg skýring áfrestun myndanna
* *
Eg neita því ekki að Matthías A.
Mathiesen hafði samband og
fór fram á að sýningu þessara
þátta yrði frestað fram yfir kosn-
ingar, því annars yrði sýningunni
mótmælt opinberiega af sjálf-
stæðismönnum í Hafnarfirði,
sagði Þorvarður Elíasson sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2 við Þjóð-
viljann í gær.
5. apríl sl. samþykkti bæjarráð
Hafnarfjarðar samhljóða að láta
gera tvær kynningarmyndir, ann-
arsvegar um æskulýðsmál í Hafn-
arfirði og hinsvegar um menning-
armál í Firðinum. Fundinn sátu
m.a. tveir fulltrúar Sjálfstæðis-
fiokksins, þeir Árni Grétar
Finnsson og Jóhann Bergþórs-
son. Gunnari Rafni Sigurbjöms-
syni bæjarritara var falið að hafa
umsjón með gerð þessara mynda
og fékk hann til liðs við sig kvik-
myndafyrirtækið Nýja bíó og sér
Sonja B. Jónsdóttir um gerð
mvndanna.
Stöð 2 mun hafa sýnt því áhuga
að fá þessa þætti til sýningar og
var gengið frá samkomulagi um
það. Þættirnir áttu að vera á dag-
skrá sl. sunnudag og nk. sunnu-
dag, en á síðustu stundu var hætt
við sýninguna vegna þrýstings frá
Sjálfstæðismönnum í Hafnar-
firði.
„Þetta kemur mér á óvart,
vegna þess að í okkar huga, sem
stóðum að gerð myndanna, er
ekkert í þeim sem réttlætir að þær
séu ekki sýndar hvenær sem er og
hvar sem er,“ sagði Gunnar Rafn
við Þjóðviljann.
Gunnar Rafn sagði að Nýja bíó
hefði fengið alveg frjálsar hendur
við gerð myndanna, hinsvegar
hefðu hann og tveir aðrir emb-
ættismenn bæjarins veitt þeim
allar upplýsingar sem farið var
fram á.
„í myndunum er ekki rætt við
neina stjórnmálamenn. Krakkar
taka viðtal við æskulýðsfulltrúa
bæjarins og síðan er rætt við for-
stöðumenn Hafnarborgar og Vit-
ans. Bæjarráð samþykkti sam-
hljóða að fela okkur að gera
kynningarmyndir en ekki
áróðursmyndir og við höfum
unnið í samræmi við það. Mynd-
irnar fjalla eingöngu um þessa
tvo þætti mannlífs í Hafnarfirði,
æskulýðsmálin og menningar-
málin. Mér er lífs ómögulegt að
finna neina skynsamlega skýr-
ingu á að myndunum sé frestað,
einkum þar sem enginn hefur séð
þær,“ sagði Gunnar Rafn.
„Við ákváðum að fresta sýn-
ingu þáttanna, þar sem
stjórnmálamenn gátu ekki orðið
sammála um að þessir þættir yrðu
á dagskrá fyrir kosningarnar.
Okkar stefna hefur ætíð verið sú
að blanda okkur ekki í pólitík og
því ákváðum við að fresta sýn-
ingu þáttanna fyrst menn í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar voru ekki á
einu máli,“ sagði Þorvarður.
Jóhann Bergþórsson bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagð-
ist vera andvígur því að opinberir
fjármunir Hafnfirðinga væru not-
aðir til að auglýsa einstaka fram-
bjóðendur Alþýðuflokksins.
„Aðalatriðið í þessu er að það
var staðið rangt að þessu. Við
samþykktum að láta gera kynn-
ingarmyndir um æskulýðs- og
menningarmál, en í framhaldi af
því hefði verið eðlilegt að kynna
fyrir bæjarráði handrit að mynd-
unum áður en þær voru gerðar og
seldar sjónvarpsstöð. Við sam-
þykktum aldrei að gerðar yrðu
kosningamyndir fyrir Guðmund
Árna Stefánsson. Það er lág-
markskurteisi að kynna myndirn-
ar bæjarráði áður en þeir yrðu
sýndir í sjónvarpi.“
Jóhann sagðist ekki hafa haft
samband við Stöð 2 og reynt að
hafa áhrif á að sýningu myndanna
yrði frestað. Þegar hann var
spurður hvort afskipti Mathíasar
Á. Mathiesen, sem ekki ætti sæti í
bæjarstjórn, væru ekki óeðlileg,
svaraði hann: „Ég veit ekkert um
það hvort þau eru eðlileg.“
Þorvarður sagðist hafa verið
erlendis þegar ósk um frestun
kom. Hann vildi ekki segja hverj-
ir höfðu haft samband og mót-
mælt en viðurkenndi svo þegar
hann var spurður beint að Matt-
hías Á. Mathiesen hefði verið á
meðal þeirra.
Þorvarður var spurður hvort
ekki hefði verið rétt að skoða
þættina áður en ákvörðun var
tekin um frestun.
„Við fórum fram á að fá að sjá
þættina en þeir voru þá ekki til-
búnir,“ svaraði hann.
Gunnar Rafn sagði að engin
ósk hefði komið um að fá að
skoða myndirnar.
-Sáf
SÍS hf.
Sundran SÍS á döfinni
Stjórn Sambandsins kannar möguleika á að sundra því í sex hlutafé-
lög. Heildarskuldir Sambandsins yfir tíu miljarðar króna
Stjórn Sambands íslenskra
Samvinnufélaga ákvað á
tvcggja daga fundi á föstudag og
laugardag að kanna möguleika á
að skipta Sambandinu í sex sjálf-
stæð hliitafélög.
Ólafur Sverrisson stjórnarfor-
maður Sambandsins segir að eins
og málum sé háttað telji hann lík-
legt að þetta verði ofan á. Hins
vegar sé ekki hægt að taka
ákvörðun fyrr en niðurstöður
rannsóknarinnar liggi fyrir.
órarinn Tyrfingsson yfir-
læknir á Vogi og formaður
SÁÁ telur það ekki fjarri lagi að
áætla að allt að 60 þúsund íslend-
ingar hafi prófað eða neytt fíkni-
efna einu sinni eða oftar.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem Þórarinn boðaði til í
gær til að vekja athygli á því að
fjöldi íslendinga 29 ára og yngri
sem leita sér meðferðar á ári
hverju hjá SÁÁ fer stöðugt vax-
andi. Á ári eru þetta um 550 ein-
staklingar. Athyglisvert er að
40% þess fjölda eru atvinnulausir
og um 25%-30% þeirra hafa ekki
lokið skyldunámi.
Um 60% koma fyrst og fremst
vegna áfengisvandamála. Sextíu
til sjötíu prósent hafa notað hass
10 sinnum eða oftar. Um 40%
eru greindir misnotendur kanna-
bisefna, það er að hafa neytt
þeirra vikulega í eitt ár. Um 30%
eru fíknir kannabisneytendur
Þetta er í fyrsta skipti sem
stjórn Sambandsins ákveður að
kanna möguleika á að breyta því í
hlutafélög þótt hugmyndir um
það hafi áður verið ræddar á
stjórnarfundum. Ákvörðunin um
þetta var tekin einróma þótt ýms-
ar aðrar hugmyndir hafi verið
ræddar.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans námu heildarskuldir Sam-
bandsins rúmum tíu miljörðum
króna um síðustu áramót. Tap
sem hafa neytt þeirra daglega í
hálft ár eða lengur. Allt að 30 til
40% segjast hafa reynt kókaín og
15% segjast hafa notað kókaín 10
sinnum eða oftar. Að mati Þórar-
ins eru fíknir kókaínneytendur
þó enn sem komið er mjög fáir og
þá líklega vegna þess hve lítið
framboð er af efninu hér á landi.
Þórarinn Tyrfingsson segir að
SÁÁ sé nánast eini aðilinn hér-
lendis sem bjóði þessu fólki með-
ferð og aðstandendum þess ein-
hverja fræðslu. í ljósi þessa fjölda
telur Þórarinn þörf á fjölgun
meðferðarrúma og auknu
forvarnar- og fræðslustarfi en það
sé við ramman reip að draga því
að á þessu ári vantar 20 miljónir
króna til að endar nái saman í
rekstri Vogs. Þá blasir sá vandi
við í haust að þann 1. október
missir SÁÁ húsnæðið á eftirmeð-
ferðarstöðinni að Sogni.
-grh
þess undanfarin tvö ár mun vera
hátt á annan miljarð króna. For-
ystumenn þess vonast til að með
þvi að breyta því í hlutafélög
verði auðveldara að bæta stöðu
þess og fá nýtt fjármagn inn í
reksturinn.
Guðjón B. Ólafsson forstjóri
Sambandsins segir langt síðan
hann benti á að hlutafél-
agsformið hafi ýmsa kosti fram
yfir samvinnuformið. Þannig
gætu fyrirtækin endurspeglað
innra virði sitt í efna-
hagsreikningi og haft möguleika
á að auka rekstrarfé með hluta-
fjáraukningu.
Guðjón segist hafi talið að
mörgu leyti eðlilegra að Sam-
bandið yrði eitt hlutafélag frekar
en mörg ef ákveðið yrði á annað
borð að breyta rekstrarforminu.
Hins vegar segist hann alls ekki á
móti því að kanna möguleika á að
breyta því í sex hlutafélög fremur
en eitt. Hann muni að sjálfsögðu
styðja þá leið komi í ljós að hún sé
besta leiðin úr úr rekstrarerfið-
leikum Sambandsins. Guðjón
bendir á að Sambandið sé fulltrúi
ýmissa hagsmunahópa. Ef þeir
telja hagsmunum sínum best
borgið með því að skipta því í
smærri einingar þá verði það að
sjálfsögðu gert. Könnunin á
möguleikum þess að breyta Sam-
bandinu í sex hlutafélög felst
meðal annars í því að leitað verð-
ur til helstu lánadrottna Sam-
bandsins hérlendis og erlendis og
athugað hvernig þeim líst á hug-
myndina. Ennfremur verða
fjármögnunarmöguleikar kann-
aðir.
Annar stjórnarfundur verður
haldinn eftir næstu viku þar sem
ræða á niðurstöður könnunarinn-
ar. Stjórnarmenn eru undir
mikilli tímapressu vegna þess að
aðalfundur Sambandsins verður
haldinn 8. og 9. júní
næstkomandi.
-rb
Fíkniefni
Sextíu þúsund
hafa prófað
Steinunn Einarsdóttir afhendirfyrsta bækiing Soroptimistasambands-
ins á fæðingardeild Landsspítalans í gær. Mynd:Kristinn.
Soroptimistar
Segðu mér sögu
Soroptimistasamband íslands
afhenti í gær fyrsta bækiing-
inn í átaki sem sambandið gengur
fyrir í tilefni af alþjóðlegu lestrar-
ári Sameinuðu þjóðanna 1990.
Fyrstu bæklingunum í átakinu
var dreift meðal mæðra á fæðing-
ardeild Landsspítalans.
Bæklingarnir, sem dreift verð-
ur meðal foreldra og forráða-
menn til þess að tala við börn,
lesa fyrir þau og raula strax frá
unga aldri. Þess vegna byrjuðum
við á fæðingardeildinni, segir
Steinunn Einarsdóttir, forseti
landssamtaka Soroptimista.
Lestur er okkur í blóð borinn,
segir hún, og það er mikilvægt að
byrja snemma að kynna börn
fyrir hinu ritaða máli.
BE
Björgvinráðstefnan
Bandaríkjamenn gagnrýndir
Hörð gagnrýni kom fram á
Bandarikjamenn á umhverf-
ismálaráðstefnunni í Björgvin í
gær. Ræðumenn gagnrýndu
bandarísk stjórnvöld fyrir að
tefja samkomulag um alþjóða-
átak gegn mengun andrúm-
sloftsins.
Bandarísk stjórnvöld segja að
enn liggi ekki fyrir óyggjandi
sönnun á að koltvísýringsmengun
leiði til víðtækra veðurfars-
breytinga á jörðinni. Þau hafa því
ekki viljað ljá máls á að innleiða
strangar takmarkanir á koltvísýr-
ingsmengun frá bflum og iðnaði
að svo komnu rnáli.
Jan Syse forsætisráðherra
Norðmanna sagði í opnunarræðu
ráðstefnunnar, sem hófst í gær og
stendur í þrjá daga, að ónægar
vísindalegar sannanir mættu ekki
verða afsökun fyrir því að fresta
pólitískum ákvörðunum.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra og Júlíus Sólnes
umhverfisráðherra taka þátt í
henni fyrir íslands hönd ásamt
Páli Líndal ráðuneytisstjóra, Jóni
Sveinssyni aðstoðarmanni for-
sætisráðherra og Gunnari G.
Schram prófessor. Reuter/rb
Síðasti pöntunardagur í næsta hluta nýs ríkissamnings tíl kaupa á Madntosh tölvubúnaði með verulegum afsktti er
6 Apple-umboðið Radíóbúðin hf. J_ • mai Innkaupastofnun ríkisins