Þjóðviljinn - 15.05.1990, Side 5
VIÐHORF
Þögn í stað ábyrgðar
Á fjögra ára borgarfulltrúaferli
mínum hef ég ekki orðið jafn
slegin og á fundi Stjórnar sjúkra-
stofnana Reykjavíkurborgar í
síðustu viku. Hafa þó valdhafar
borgarinnar ótal sinnum gengið
fram af mér og öðrum sem fylgj-
ast með vinnubrögðum þeirra.
Á fundinum lagði sá hjúkrun-
arframkvæmastjóri Borgarspítal-
ans, sem ber ábyrgð á starfsemi
Fæðingarheimilis Reykjavíkur,
fram erindi til stjórnarinnar.
Þessi hjúkrunarframkvæmda-
stjóri er yfirmaður allra starfs-
manna Fæðingarheimilisins
nema fæðingarlæknisins.
Erindið hefst á þennan hátt:
„Undirrituð telur sig tilknúna til
að vekja athygli SSR á alvar-
legum vanda í rekstri FHR sem
má rekja til langvarandi óvissu
um framtíðarstarfsemi borgar-
innar fyrir fæðandi konur. Nú er
einungis einn starfandi sérfræð-
ingur í fæðingarhjálp við FHR og
sinnir hann vaktþjónustu allan
sólarhringinn alla daga vikunnar.
Engir aðstoðarlæknar eru starf-
andi. Ljóst er að slíkt fyrirkomu-
lag er alls ekki viðunandi fyrir
skjólstæðinga FHR.“
Starfsfolksflotti
Hjúkrunarframkvæmdastjór-
inn vekur síðan athygli á því að
starfsfólksflótti sé hafinn,
mönnun ljósmæðra á deildinni sé
nú í algjöru lágmarki og að ekki
hafi tekist að ráða nýtt fólk til
starfa. Niðurlag erindisins er:
„Undirrituð leggur til í ljósi að-
stæðna að FHR verði lokað um
óákveðinn tíma nú þegar, og
unnið verði skilvirkt að eftirfar-
andi atriðum:
1. Taka ákvörðun sem byggj-
andi sé á um hvort borgin ætli að
reka áfram fæðingarhjálp á FHR
og sjá þá fyrir þeim forsendum
sem til þarf (sbr. tillögur um
húsnæðisbreytingar og nauðsyn-
legan tækjabúnað ásamt því
hvernig standa beri að slíkum
framkvæmdum ef af verður).
2. Tryggja viðunandi læknis-
þjónustu á FHR. Ef ekki verður
tekið ábyrgt á þessu máli af SSR
er að mati undirritaðrar viðbúið
að skjólstæðingar hljóti alvar-
legar afleiðingar af þjónustu
FHR fyrr en síðar.“
Á fundinum kom fram að
hjúkrunarforstjóri Borgarspítal-
ans studdi erindi hjúkrunarfram-
kvæmdastjórans og formaður
læknaráðs lýsti þeirri skoðun
sinni að ekki væri forsvaranlegt
að einn læknir stæði 24ra tíma
vakt alla sólarhringa. Bæði hafa
fastasetu á fundum stjórnarinnar
án atkvæðisréttar. Yfirlæknir
Fæðingarheimilisins, sem einnig
sat fundinn, sagðist hins vegar
treysta sér til þess að sinna þjón-
ustunni.
Átti ekki að
bera upp tillöguna
Að umræðu lokinni varð ljóst
að formaður stjómarinnar, Páll
Gíslason hugðist ekki bera upp
tillögu hjúkrunarframkvæmd-
astjórans. Eg gerði tillöguna þá
að minni og féllu atkvæði þannig,
að ég ein greiddi henni atkvæði,
formaðurinn og hinn fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur
f>. Vilhjálmsson felldu hana.
Tveir fulltrúar starfsmanna Borg-
arspítalans sátu hjá.
Þarna varð mér ljóst, að Sjálf-
stæðismönnum er svo mikið í
mun að halda niðri umræðu um
málefni Fæðingarheimilisins
fram yfir kosningar, að þeir
jafnvel hunsa aðvörun ábyrgra
fagaðila um að skjólstæðingar
Kristín Á. Ólafsdóttir skrifar
Fæðingarheimilisins, börn í fæð-
ingu og mæður þeirra geti hlotið
alvarlegar afleiðingar af þjónustu
FHR fyrr en síðar. Ég sat nánast
sem lömuð eftir að hafa orðið
vitni að þessu ábyrgðarleysi.
Ahugaleysi
fjölmiðla
Eftirleikurinn er athyglisverð-
inn eftir í síðdegisútvarpi rásar 2.
Það undarlega er, að nú, á sunnu-
degi hefur hvorki Stöð 2 né
Morgunblaðið greint frá fundin-
um og þeim alvarlegu aðvörun-
um sem þar komu fram.
Ég sé hins vegar í Morgunblað-
inu í dag áskorun núverandi
sængurkvenna á Fæðingarheimil-
inu til borgaryfirvalda um að
halda uppi og hlúa að starfsemi
brugðist hverju ákalli um að
vernda Fæðingarheimili Reykja-
vfkur. Á stjómarfundinum á
miðvikudaginn kom meira að
segja í ljós að ekki var enn frá-
gengið samkomulag við leigu-
læknana um það húsnæði sem
borgin hugðist fá leigt til baka
fyrir Fæðingarheimilið og okkur í
borgarstjórn var tilkynnt um fyrir
hálfum öðrum mánuði. Enda
.. Sjálfstœðismönnum er svo mikið í mun að
halda niðri umrœðu um málefni Fæðingar-
heimilisins fram yfir kosningar, að þeir
jafnvel hunsa aðvörun ábyrgrafagaðila um
að skjólstœðingar Fœðingarheimilisins, börn
ífœðingu og mæður þeirra geti hlotið alvar-
legar afleiðingar afþjónustu FHR
fyrr en síðar... “
ur. Ég lét strax fréttastofu ríkisút-
varpsins vita af atburðum fundar-
ins, enda skylda mín sem fulltrúi
Reykvíkinga að koma aðvörun
fagaðila á framfæri. Greint var
frá atburðinum í kvöldfréttum út-
varpsins þennan sama dag, mið-
vikudag, og fjallað um málið dag-
FHR. Við sem barist höfum gegn
aðför Sjálfstæðismanna að heim-
ilinu frá því í haust, þegar ljóst
var að leigja átti læknum það
húsnæði sem Fæðingarheimilið
þurfti nauðsynlega á að halda
tökum svo sannarlega undir þá
kröfu. En Sjálfstæðismenn hafa
engar lagfæringar hafnar á hús-
næðinu né komin þau tæki sem
beðið hefur verið um í marga
mánuði.
Pólitísk eða
fagleg sjonarmið?
í áskorun sængurkvennanna
segir skv. Morgunblaðinu: „Vel-
líðan móður og barns í sængurl-
egunni er ein undirstaða þess að
barnið verði hamingjusamur ein-
staklingur í framtíðinni. Að-
hlynning þeirra á Fæðingarheim-
ili Reykjavíkur er til fyrirmynd-
ar.“ Á Fæðingarheimilinu vinnur
hæft og gott starfsfólk, sem þrátt
fyrir undirmönnun og erfiðar að-
stæður vegna þrengsla veitir
sængurkonum og fæddum börn-
um hlýja og persónulega
umönnun. Um það get ég vitnað,
hafandi fætt bæði börn mín á
þeim stað og notið þjónustu
kvenna, sem sumar vinna þar
enn. Fram hjá hinu verður þó
ekki litið að í aðdraganda fæðing-
ar og í sjálfri fæðingunni skortir á
að hægt sé að tryggja fyllsta ör-
yggi við núverandi aðstæður. Á
það bentu ábyrgir fagaðilar og þá
aðvörun eiga pólitískir stjórn-
endur að taka alvarlega. Það er
að mínu mati stóralvarlegt mál að
þeir skuli velja að taka áhættu af
slysum sem hent gætu börn í fæð-
ingu eða mæður þeirra fremur en
að hætta á óvinsældir fyrir kosn-
ingar með því að bregðast við
ástandi sem skapast hefur vegna
rangra ákvarðana Sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn.
Kristín Á. Ólafsdóttir er borgarfullt-
rúi og stjórnarmaður hjá sjúkrastofn-
unum Reykjavíkurborgar.
Fangelsismál a Islandi
Gunnar Freyr Gunnarsson skrifar
„Gildi og tilgangur refsingar á að vera sá að
bœta menn, koma í vegfyrir að þeirfremji
glæp aftur og gera þeim kleift að verða eðli-
legir borgarar á ný. Eins og málum er háttað
í dag, erufangar oft óundirbúnir tilþess að
hefja líf að nýju þegar út kemur. “
Það hefur verið allnokkuð rætt
um fangelsismál á þessum vetri
sem er að líða. Mikil umræða var
um Hegningarhúsið að Skóla-
vörðustíg 9, og bar öllum saman
um bágt ástand hússins. Þessi
umræða bar þann árangur að lag-
færingar voru gerðar á hús-
næðinu, allir klefar voru málaðir,
og nýjar gólfflísar lagðar á ganga.
Einnig var fækkað um einn í
þriggja manna klefum, og eru því
19 fangar vistaðir í fangelsinu, í
stað 23 áður. Þó er enn öll að-
staða fyrir fanga ófullnægjandi,
félagsleg þjónusta því sem næst
engin. Það þyrfti að reisa nýtt
fangelsi í stað núverandi fangelsa
sem fyrst. Nánar verður vikið að
því síðar í greininni.
Fangelsin á Litla-Hrauni og
Kvíabryggju eru eins og
Hegningarhúsið orðin gömul,
komin til ára sinna. Þau eru raun-
ar löngu úrelt. Lítið hefur verið
gert í umbótum á öllum þessum
fangelsum á síðustu áratugum,
þau eru frá 50-115 ára gömul og
þau standast engan veginn nú-
tíma kröfur um aðbúnað á stofn-
unum sem þessum.
Það má því segja sem svo að
fangar séu flokkaðir sem annars
flokks borgarar, manngildi þeirra
lítils metið. Atvinnumöguleikar
fanga, og mannsæmandi kaup,
eru takmarkaðir innan veggja
fangelsisins. Möguleikar á því að
verja tíma sínum í tómstundum á
sómasamlegan hátt eru ekki
miklir. Helst er að menn spili vist
eða bridge, eða verji tímanum í
að tefla skák. Þá er líka horft á
vídeó og sjónvarp.
Hverjar ástæður afbrota eru
má lengi deila um. Oft er það
ágóðasjónarmiðið sem ræður
ferðinni, og stundum eru það
andþjóðfélagslegar hvatir sem
ráða þar um. Hver og einn
einstaklingur í samfélaginu hefur
sína sérstöku persónuleikagerð.
Uppeldisumhverfi mannsins
mótar hann og myndar. Heimili
sérhvers einstaklings hefur sín
sérstöku einkenni og útvarp og
sjónvarp eru mikilvægir aðilar í
skoðanamyndun og lífsvið-
horfum.
Það sem ýtir á um það að
fremja glæp er oft atvinnuleysi,-
húsnæðisskortur og peningaleysi.
Þetta eru lykilatriði í lífi sérhvers
manns.
Gildi og tilgangur refsingar á
að vera að bæta menn, koma í veg
fyrir að þeir fremji glæp aftur, og
gera þeim kleift að verða eðlilegir
borgarar á ný. Eins og málum er
háttað í dag, eru fangar oft
óundirbúnir að hefja líf að nýju
þegar út kemur. Oft er erfitt með
hvort tveggja, vinnu við hæfi, og
viðunandi húsnæði. Fangar
þyrftu að stofna með sér samtök
eða félag, eins og t.d. Samtök
fanga. Þar gætu þeir barist fyrir
réttindamálum sínum, og komið
sjónarmiðum sínum á framfæri. í
stað þess að enda í fangelsi á ný
gætu þeir orðið fullfærir vinnandi
menn.
Það eru ekki síður lög-
fræðingar sem ættu að láta
fangelsismál til sín taka. Þeir eru
umboðsaðilar fanga. Allir vita
hverju læknar og samtök þeirra
hafa áorkað í heilbrigðismálum.
Tugir heilsugæslustöðva hafa ris-
ið um Iand allt á síðustu 10-15
árum. Þetta hefur verið eins kon-
ar forgangsverkefni, frá hendi
stjórnvalda. Peninga virðist ekki
hafa skort til allra þessara fram-
kvæmda, kostnaðurinn við þetta
skiptir eflaust miljörðum króna.
Þetta ættu lögfræðingar, dóm-
arar, réttargæslumenn, og aðrir
þeir sem starfa að málefnum
fanga að taka sér til fyrirmyndar.
Ný fangelsisbygging, Ríkisfang-
elsi, myndi koma að góðum not-
um um ókomna áratugi.
Framkvæmdageta er í fang-
elsismálum, sem og við aðrar
ríkisframkvæmdir, bundin fjár-
veitingum Alþingis. Fjármagn og
peningar þurfa að vera fyrir
hendi. En fangelsismál hafa ekki
verið vinsæll málaflokkur, hvorki
hjá stjórnmálamönnum né kjós-
endum. Sagt er sem svo að refsi-
verðum mönnum þurfi ekkert að
hygla. Sama gildir raunar um
heimilislausa, Gistiskýli Reykja-
víkurborgar er hlutur sem má fá
umfjöllun fjölmiðla. í lesenda-
bréfi sem ég skrifaði í DV í janúar
sl. tók ég málefni þess fyrir. Við-
brögð við því voru engin, ekkert
var um málið rætt.
Það liggur ljóst fyrir, að það
eru fyrst og fremst lögfræðingar,
sem ættu að vinna að því að koma
fangelsismálum á íslandi í viðun-
andi horf. Þeir hafa að baki sér
mikið vald sem þeir eiga að nota.
Fangar sjálfir eiga að fylgja þessu
máli eftir, í samvinnu við fanga-
verði.
Ríkisfangelsi þarf að komast
inn á fjárlög á næstu árum. Þá er
hægt að hefja hönnunarvinnu, og
ákveða staðarval þess. Máli
þessu þarf að fylgja fast eftir.
Eitt er svo líka sem nefna má í
umræðunni um fangelsismál. Það
er sú nauðsyn sem er á viðeigandi
hæli, fyrir þá fanga sem eiga við
geðræn vandamál að stríða. Þetta
mál hefur legið í salti hjá for-
svarsmönnum dómsmálaráðu-
neytis alllengi á undanförnum
árum. Það er ábyrgðarskylda
yfirmanna ráðuneytisins að við-
eigandi hæli það, sem um getur í
hegningarlögum, sé til og starf-
rækt. fþví ófremdarástandi sem
þessi mál eru í nú, eru miklar
byrðar lagðar á þessa fanga sem
úrskurðaðir hafa verið ósak-
hæfir, og eru með dóm á við-
eigandi hæli.
Enginn skyldi ætla snögg um-
skipti, eða einhver hamskipti í
fangelsismálum. Róm var ekki
byggð á einum degi. Það sem þarf
er áhugi og vilji þeirra sem við
fangelsismál starfa. Þetta er hags-
munamál allra þeirra sem við
fangelsismál fást. Það væri gott ef
einhverjir aðrir en ég, sem þess-
um málum eru tengdir, fylgdu í
kjölfarið og hæfua máls á þessu.
Ég reiði mig fyrst og fremst á
styrk og getu lögfræðinga, um
þetta átak sem verða þarf í fang-
elsismálum.
Gunnar Freyr Gunnarsson er stúdent
frá M.H og stýrimaður að mennt.
Hann er nú oryggisgsesiufangj
á Akureyri.
Þriðjudagur 15. maí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5