Þjóðviljinn - 15.05.1990, Blaðsíða 7
X-ÓLAFSFJÖRÐUR
H-listinn
1. Björn Valur Gíslason sjó-
maður, 2. Jónína Oskarsdóttir hús-
móðir, 3. Guðbjöm Amgrímsson
húsvörður, 4. Þuríður Astvalds-
dóttir kennari, 5. Þórhildur Þor-
steinsdóttir versíunareigandi, 6.
Sigríður Rut Pálsdóttir verkakona,
7. Jón Ami Konráðsson lögreglu-
maður, 8. Sigurbjörg Ingvadóttir
kennari, 9. Helga Jónsdóttir skrif-
stofumaður, 10. Ríkharður Sig-
urðsson bifreiðarstjóri, 11. Rög-
valdur Ingólfsson framkvæmda-
stjóri, 12. Agúst Sigurlaugsson
skrifstofumaður, 13. Bjöm Þór O-
lafsson kennari, 14. Armann Þórð-
arson útibússtjóri.
n'WÉWI Ill""~l'-Illl
Ólafsfirðingar eiga sér hefð fyrir samfylkingu vinstri manna I baejarmálum. Þeir sameinuðust árið 1974, náðu þá meirihluta og héldu honum til 1986. Mynd gg.
Olafsfjarðarframboðin
Löng hefð fyrir samfylkingu
r
Tveir listar í boði á Olafsfirði allt frá 1974. Samfylking vinstri manna hefur reynst vel.
Sjálfstæðisflokkurinn náði sjö atkvœða meirihluta síðast
AÓlafsfirði er löng hefð fyrir
samfylkingu vinstri manna
gegn Sjálfstæðisflokknum og
það sem meira er: félags-
hyggjufólk þar í bæ hefur haft
meirihluta í bæjarstjórn lengst
af síðan samfylking var fyrst
reynd. Síðustu fjögur árin hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn þó
haft meirihluta í bæjarstjórn.
Allt síðan 1974 hafa Ólafs-
firðingar valið á milli aðeins
tveggja framboðslista, D-lista
Sjálfstæðisflokksins og H-lista
vinstri manna. A-flokkamir,
Framsóknarflokkurinn og fólk
utan flokka mynduðu H-lista
vinstri manna og náðu meirihluta
árið 1974 eftir margra ára yfir-
burði Sjálfstæðisflokksins í bæn-
um. Arið 1978 fengu vinstri menn
fimm af sjö bæjarfulltrúum og í
kosningunum 1982 hélt meiri-
hluti vinstri manna velli með
fjóra bæjarfúlltrúa á móti þremur
bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins.
Naumur meirihluti
D-listans
I síðustu kosningum snerist
dæmið hins vegar við. Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk 359 atkvæði og
fjóra bæjarfulltrúa, en vinstri
menn fengu 352 atkvæði og þrjá
bæjarfúlltrúa. Meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins byggist því á að-
eins sjö atkvæðum, en til saman-
burðar má geta þess að vinstri
menn fengu 53 atkvæðum meira
en Sjálfstæðisflokkurinn í kosn-
ingunum 1982 og þar áður var
munurinn hátt í 200 atkvæði.
Nokkrar mannabreytingar
hafa orðið á D-listanum síðan í
síðustu kosningum. Bima Frið-
geirsdóttir, forseti bæjarstjómar,
skipar nú heiðurssæti D-listans,
en Óskar Þór Sigurbjömsson er
efstur á listanum. Hann skipaði
þriðja sæti listans síðast. Sigurður
Bjömsson lögreglumaður og bæj-
arfúlltrúi er enn í öðm sætinu, en
Guðrún Jónsdóttir skipar þriðja
sætið. Anna María Elíasdóttir og
Anna María Sigurgeirsdóttir em í
íjórða og fimmta sætinu.
Forval hjá H-lista
H-listinn hefúr einnig fengið
nýjan oddvita síðan siðast. Bjöm
Valur Gíslason sjómaður og bæj-
arfulltrúi var í öðm sæti listans
1986, en hann er nú oddviti H-
Við stefnum auðvitað að því
að endurheimta meirihlut-
ann í bæjarstjórn. Við finnum
ekki fyrir hægrisveiflu hér, seg-
ir Björn Valur Gíslason, sjó-
maður, bæjarfulltrúi og oddviti
vinstri manna á Ólafsfirði, í
samtali við Þjóðviljann.
Bjöm Valur er að ljúka sínu
fyrsta kjörtímabili í bæjarstjóm.
Hann tók þátt í forvali ásamt 13
öðmm og hlaut atkvæði nær allra
þeirra 105 sem greiddu atkvæði.
„Forval sem þetta er nýjung á
Ólafsfirði og mæltist greinilega
vel fýrir. Það hefur orðið mikil
endumýjun á H-listanum bæði nú
og síðast og í því felst styrkur
okkar meðal annars. Við emm
með nýtt fólk og því íylgja nýjar
hugmyndir,” segir Bjöm Valur í
samtali við Þjóðviljann.
Ófriðarblikur á lofti
Atvinnumálin brenna á Ólafs-
firðingum, enda hefúr atvinna
verið mjög stopul þar undanfarin
ár. Hraðfrystihús Ólafsfjarðar
varð að hætta starfsemi um tíma
vegna rekstrarerfiðleika, en það
er nú komið i gang á ný og at-
vinna hefúr verið nokkuð stöðug
listans í stað Ármanns Þórðar-
sonar útibússtjóra og bæjarfúll-
trúa. Armann skipar heiðurssæti
listans.
Nýtt fólk er einnig að finna í
næstu þremur sætum. Jónína
Óskarsdóttir húsmóðir skipar
síðasta árið eða svo. Hins vegar
em ófriðarblikur á lofti að sögn
Bjöms Vals.
„Afli sem hér kemur á land er
of lítill, en auk þess gengur rekst-
ur togarans Ólafs Bekks erfið-
lega. Utgerðin er mjög skuldum
vafin og það er nauðsynlegt að
leita leiða til lausnar á þeim
vanda. Það og áframhaldandi
uppbygging hafnarinnar em brýn-
ustu verkefni nýrrar bæjarstjóm-
ar. Ef togarinn fer, missir fólkið
vinnuna. En ég er smeykur um að
vandi Ólafs Bekks verði ekki
leystur nema með opinberri að-
stoð.”
Þátttaka f atvinnulífi
„Við emm þeirrar skoðunar
að bæjaryfirvöld bæði geti og eigi
að beita sér í atvinnumálum. Þeg-
ar við vorum síðast í meirihluta
byggðum við t.d. iðngarða sem nú
em í notkun. Sjálfstæðismenn
hafa verið á móti þátttöku opin-
berra aðila í atvinnulífi, en hafa
orðið að beygja sig í þeim efnum.
Það var áberandi þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn náði meirihluta í
bæjarstjóm að hann hengdi sig í
stefnu flokksins í landsmálum.
annað sætið, Guðbjöm Amgríms-
son húsvörður það þriðja og Þur-
íður Ástvaldsdóttir kennari er í
Qórða sætinu, baráttusæti H-list-
ans.
Þessi úrslit vora fengin í for-
vali þar sem rúmlega hundrað
Félagsleg verkefhi hafa ekki verið
ofarlega á verkefnalista þessa
meirihluta, en þeir hafa að hluta
verið neyddir til að horfast í augu
við að stefna flokksins í lands-
málum á ekki við 1200 manna
bæjarfélag eins og Ólafsfjörð,”
segir Bjöm Valur.
Uppgangur í tíð H-Iista
Hann segir að þegar H-listinn
fór með meirihlutavald hafi verið
uppgangur í bænum og félagsleg
verkefni í hávegum höfð. Byggð-
ur var leikskóli, hafist var handa
við byggingu heilsugæslustöðvar
og þjónusta við aldraða efld.
„Það er mikill munur á áhersl-
um þessara tveggja framboða í
mörgum málum. Ef við endur-
heimtum meirihlutann munum
við áfram leggja áherslu á upp-
byggingu atvinnulífs og félags-
manns tóku þátt. Bjöm Valur
fékk langflest atkvæðí í fyrsta
sætið og lætur nærri að hver ein-
asti þátttakandi í forvali hafi
greitt honum atkvæði sitt.
legrar þjónustu.
Við leggjum mikla áherslu á
að bæta sambandið milli bæjaryf-
irvalda og almennra bæjarbúa
með því að veita bæjarbúum
greiðari aðgang að stofhunum og
embættismönnum bæjarins. Á
þetta hefúr mjög skort hér í bæn-
um á undanfömum ámm.
Auk þess viljum við hverfa frá
þeirri stefhu Sjálfstæðisflokksins
að spenna bogann of hátt í álögum
á bæjarbúa. Okkur veitir ekki af
tekjustofnum okkar, en álögur
verða að vera í takt við það sem
bæjarbúar og fyrirtæki ráða við
hveiju sinni.
Sjálfstæðismenn hafa hækkað
ýmis gjöld vemlega, t.d. leik-
skólagjaldið og hitaveitu. Hækk-
anir á þessu ári em t.d. algjörlega
í blóra við gerða kjarasamninga,”
segir Bjöm Valur Gíslason.
-gg
-gg
H-listinn
Endurheimtum
meirihlutann
Björn Valur Gíslason: Mikil endurnýjun á H-
listanum. Töluverður munur á áherslum fram-
boðanna tveggja
Við finnum ekki fyrir haegrisveiflu hér, segir Bjöm Valur Gislason. Á myndinni
eru fjórmenningamir sem H-listinn þarf að koma inn ( bæjarstjóm til þess að
hnekkja meirihlutanum, talið frá vinstri: Jónlna Óskarsdóttir, Bjöm Valur, Þur-
iður Ástvaldsdóttir og Guðbjöm Amgrimsson. Mynd gg.
Þriðjudagur 15. maí 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 7