Þjóðviljinn - 15.05.1990, Page 8
MENNING
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra og Gunnlaugur Haraldsson
safnvörður fyrir ffaman Garðahúsið.
Á stæm myndinni sjást gestir á M-
hátíð á hlaðinu. Myndir gg.
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
18.341.545 kr.
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 5.719.523
2. 5® 14 73.070
3. 4af5 391 4.513
4. 3af 5 11.032 373
Fjöldi manns tók þátt í M-há-
tíð á Akranesi og í Borgar-
nesi um helgina og er taiið að
um 500 manns hafi notið hátíð-
arinnar í Borgarnesi. Skaga-
menn hófu M-hátíð sína með
opnun Garðahússins, elsta
steypta húss á íslandi og jafnvel
á Norðurlöndum. Gerðar hafa
verið gagngerar endurbætur á
húsinu utan sem innan og er
það búið gömlum húsmunum
Byggðasafnsins í Görðum.
„Garðahúsið er arfleifð og
staðfest tákn um ákveðið þróun-
arstig í byggingarsögu okkar,
vitnisburður um foma verkkunn-
áttu og handverk,” sagði Gunn-
laugur Haraldsson, safnvörður i
Görðum og formaður þjóðminja-
ráðs, þegar hann bauð gestum að
ganga inn í Garðahúsið að nýju.
Gunnlaugur minnti á að í raun
var þríheilagt í Görðum þennan
dag. Séra Jón M. Guðjónsson,
stofnandi byggðasafnsins, verður
85 ára innan tíðar, þijátíu ár em
liðin frá stofnun safnsins og við-
gerð Garðahússins er lokið.
M-hátíð
Þríheilagt í Görðum
Fjöldi manns á M-hátíð á Akranesi og í Borgarnesi um helgina.
Skagamenn hófu M-hátíð með opnun Garðahússins, elsta steypta húss á Islandi
Byggingarsögulegt gildi
Séra Jón Benediktsson, sókn-
arprestur í Görðum, byggði
Garðahúsið á árunum 1876-1882.
Sigurður Hansson var yfirsmiður
við verkið, en hann vann m.a. við
smíði Hegningarhússins í
Reykjavík.
Þar sem lítið var um hentugt
hleðslugijót á staðnum greip Sig-
urður til þess ráðs að steypa
hleðslusteina í trémótum. Veggir
hússins eru hlaðnir slíkum stein-
um, en efstu hlutar gaflenda voru
steyptir í uppslegin mót og sú
Vinningstölur laugardaginn
12. maí ‘90
byggingaraðferð var einnig ný-
lunda á þeim tíma.
Séra Jón Benediktsson varð
reyndar nánast gjaldþrota vegna
þessarar byggingar sem þá var
einstök sinnar tegundar á Islandi
og jafnvel víðar. Hann hrökklað-
ist frá brauðinu, en eftir það
bjuggu bændur í húsinu þar til
jörðin fór í eyði árið 1930.
Byggðasafní30ár
Síðan hefur húsið mátt þola
ýmislegt. Arið 1936 var ákveðið
að breyta því í útfararkapellu. Það
varð aldrei, en miklar breytingar
voru gerðar á húsinu.
Tíu árum síðar stóðu Skaga-
menn í hafnarframkvæmdum og
var bæjarverkstjóri þá sendur upp
að Görðum til þess að brjóta hús-
ið og átti að nota það til uppfyll-
ingar í hafnargarðinn. Verkstjór-
anum leist ekki á að vinna verkið
og bar málið undir Jón Sigmunds-
son sóknamefndarformann, en
hann stöðvaði þegar öll áform um
að bijóta húsið.
Séra Jón M. Guðjónsson fékk
húsið til afnota fyrir byggðasafn
árið 1959. Því hlutverki gegndi
það til ársins 1986, þegar ákveðið
var að endurbyggja það.
Byggðasafnið naut aðstoðar
Hjörleifs Stefánssonar arkitekts
við endurbygginguna, en Gutt-
ormur Jónsson hefur verið yfir-
smiður verksins. Auk þeirra og
Gunnlaugs hefur fjöldi manna
unnið við endurbygginguna og
fjármagn hefur komið víða að.
M-hátíð á fjárlög
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra setti M-hátíð á
Akranesi af palli vörubíls í
byggðasafninu. Síðar um daginn
var opnuð myndlistarsýning tíu
kvenna sem búa á Akranesi eða
tengjast bænum með öðrum
hætti. Um kvöldið var menning-
ardagskrá í Bíóhöllinni. í haust
verður þráðurinn svo tekinn upp
að nýju á Akranesi.
Menntamálaráðherra segist
mjög ánægður með ffamkvæmd
M-hátíðar á Vesturlandi sem
staðið hefúr yfir á undanfomum
vikum.
Þátttakan hefur alls staðar
verið mjög góð og það sannar
gildi þessarar hátíðar. „Við í
menntamálaráðuneytinu höfúm
fjármagnað þessa hátíð með því
að skera niður risnu ráðuneytis-
ins, en ég tel mjög mikilvægt að
hátíðin verði fastur liður á fjár-
lögum ríkisins,” segir Svavar í
samtali við Þjóðviljann.
-gg
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Inga Backman söng einsöng við opnun listsýningar tíu kvenna sem tengjast Akranesi með einum eða öðmm hætti.
8 SÍÐA— ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 15. maí 1990