Þjóðviljinn - 15.05.1990, Blaðsíða 9
X-OLAFSVIK
s
Arni Elías Albertsson
Vatnsveitan
í forgang
Stokkað upp á lista Alþýðubandalagsins. Árni
Elías Albertsson: Parfað bæta lagnakerfi vatns-
veitunnar. Framkvœmdaofgleði hefur komið
bænum í skuldir og sniðið honum þröngan stakk
Árni Elías Albertsson er efstur á lista Alþýðubandalagsins í Ólafsvík.
Árni Elías Albertsson efsti
maður á lista Alþýðubandalags-
ins sagði Þjóðviljanum að fyrri
hluti núverandi kjörtímabils hefði
einkennst af framkvæmdaof-
gleði, menn hefðu farið allt of
geyst í framkvæmdir án þess að
hafa nokkra hugmynd um hvaða
afleiðingar þær hefðu í för með
sér. Þetta hefði komið ofan á
slæman viðskilnað fyrri meiri-
hluta, H-lista og Sjálfstæðis-
manna. Þá hefðu skuldir verið
verulegar fram yfir árstekjur
bæjarins.
„Hlutfall heildartekna og
heildarskulda fyrir árið 1985 var
1,65, það er skuldirnar voru 65%
hærri en heildarárstekjur,“ sagði
Árni Elías. Hlutfallið hefði verið
2,13 fyrir árið 1988 sem þýddi að
skuldirbæjarins væru 113% hærri
en heildartekjur eins árs. Skuld-
irnar hefðu vaxið þrátt fyrir að
rauntekjur bæjarins hefðu aukist
á þessu tímabili um 12 milljónir
króna.
Framreiknað frá 1985 til 1988
jukust skuldir Ólafsvíkurkaup-
staðar um rúmar 60 milljónir
króna, að sögn Árna Elíasar.
Stærstu framkvæmdir sem bær-
inn hefði ráðist í væru bygging
Félagsheimilisins og endurbygg-
ing gamla pakkhússins. Fram-
kvæmdir hefðu allar meira og
minna snúist í kring um afmælis-
hátíð Ólafsvíkur árið 1987, þegar
haldið var upp á 300 ára verslun-
arafmæli. Þá hefðu menn viljað
halda hátíð með glæsibrag og
Fimm listar fram
Uppstokkun í efstu sœtum listanna
Fimm listar bjóða fram við
sveitarstjórnarkosningarnar í Ól-
afsvík. Sjálfstæðismenn eru einir
í minnihluta á líðandi kjörtíma-
bili en Alþýðubandalag, Alþýðu-
flokkur, Framsóknarflokkur og
Samtök lýðræðissinna í Ólafsvík
fara fyrir meirihlutanum.
Það eru töluverðar tilfærslur á
lista Alþýðubandalagsins frá síð-
ustu kosningum. Árni Elías Al-
bertsson er nú í fyrsta sæti en
hann var í tíunda sæti árið 1986.
Heiðar Elvan Friðriksson er í
öðru sæti en var áður í fjórða
sæti, Margrét Sigríður Birgisdótt-
ir er í þriðja sæti en var í áttunda
sæti 1986 og núverandi oddviti
Alþýðubandalgsins, Herbert
Guðmundur Hjelm skipar fjórða
sæti listans nú. Alþýðubandalag-
ið fékk einn fulltrúa kjörinn
1986.
Sami maður skipar efsta sæti
lista A-listi Alþýðuflokks og
óháðra og skipaði lista Alþýðufl-
okksins 1986 þegar flokkurinn
fékk tvo menn kjörna, en það er
Sveinn Þór Elínbergsson. Guð-
mundur Karl Snæbjörnsson kem-
ur nýr inn á listann í annað sætið
en Gústaf Geir Egilsson flyst úr
sjötta sætinu í það þriðja. í fjórða
sæti er nýr maður, Ágúst Ingimar
Sigurðsson.
Nýr maður, Atli Alexanders-
son, skipar efsta sæti lista Fram-
Heiðar Elvan Friðriksson skipar
annað sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins.
sóknarflokksins en Stefán Jó-
hann Sigurðsson sem skipaði
fyrsta sætið 1986 er nú í öðru sæti.
Kristján Guðmundsson var ekki
á listanum 1986 en skipar nú
þriðja sætið sem Kristín Vigfús-
dóttir í fjórða sætinu skipaði
áður. Framsóknarflokkurinn
fékk einn mann kjörinn í síðustu
kosningum.
Björn Arnaldsson var í öðru
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
1986 en er nú í fyrsta sætinu. Mar-
grét Vigfúsdóttir flyst úr þriðja
sæti í annað sætið en Páll Ingólfs-
son kemur nýr inn í þriðja sætið. í
Margrét Sigríður Birgisdóttir
skipar þriðja sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins.
fjórða sæti er Helgi Kristjánsson
sem skipaði þrettánda sæti listans
árið 1986. Sjálfstæðisflokkurinn
á tvo fulltrúa í sveitarstjórn nú.
Litlar breytingar eru á lista L-
listans, Samtaka lýðræðissinna í
Ólafsvík sem fékk einn mann
kjörinn 1986. Sama fólk skipar
þrjú af fjórum efstu sætum en
Sigurlaug Jónsdóttir kemur ný
inn á listann í þriðja sætið. í fyrsta
sæti er eins og áður Kristján Páls-
son, í öðru sæti Emanúel Ragn-
arsson og í fjórða sæti er Ragn-
heiður Helgadóttir.
-hmp
Þriðjudagur 15. maí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
með glæsilegri brag en fjárráð
hefðu gefið tilefni til.
„Dæmi um hvað framsýnin var
mikil þá, var gerð áætlun um
byggingarkostnað Félagsheimil-
isins sem hljóðaði upp á 21,3
milljónir. Þegar ársreikningar
fyrir árið 1987 voru síðan birtir
kom í ljós að það fóru tæpar 70
milljónir í að klára Félagsheimil-
ið,“ sagði Árni Elías. Þetta sýndi
að hans mati hvað lítið hefði ver-
ið spáð í hlutina.
Það fóru líka miklir fjármunir í
veisluhöld í kring um afmælishát-
íðina, að sögn Árna Elíasar. Tal-
að væri um að veislan ein á hátíð-
arkvöldinu sjálfu hefði kostað á
þriðju milljón en það væru óstað-
festar tölur.
Það blasir því ekkert annað við
á næsta kjörtímabili en að ná nið-
ur skuldum bæjarins að sögn
Árna Elíasar og Alþýðubanda-
lagið setti einstefnu á að ekki
verði farið út í neinar nýjar fram-
kvæmdir nema brýna nauðsyn
beri til. Það væri aðeins ein fram-
kvæmd sem nauðsynlegt væri að
ráðast í varðandi vatnsveituna.
Fyrirtæki í Ólafsvík hefðu fengið
hótun um lokun vegna vatns-
skorts og við það væri ekki un-
andi. Lagnakerfið væri of lítið og
því bærist allt of lftið vatn til fyrir-
tækjanna. Þau hefðu mörg hver
komið sér upp aukadælubúnaði
sem hefði lítið að segja en gerði
aðeins öðrum erfiðara fyrir.
Opin sorpþró
við bæjardyrnar
„Það er líka ljóst að gera þarf
stórátak í sorp- og umhverfismái-
um hér í Ólafsvík," sagði Ámi
Elías. Það væri opin sorpbrenns-
luþró við bæjardyrnar og við
leiðina upp að Jökli sem ætti að
vera aðalaðdráttaraflið fyrir
ferðamenn. Þetta væri ógeðfelld
sjón og fnykinn frá brennslunni
leggði yfir bæinn í suðvestan átt. í
norðaustan átt leggði reykin síð-
an yfir opið vatnsból bæjarins.
Arni Elías sagði einnig ráðstaf-
ana þörf varðandi úrgangsmál
fiskvinnslustöðvanna. Eins og
gæfi að skilja félli mikill úrgangur
frá fiskvinnslu í stómm útgerðar-
bæ sem færi meira og minna beint
í sjóinn þó eitthvað færi í
brennslu. Þetta væru kjömar að-
stæður fyrir varginn að fjölga sér,
enda væri gífulegur fjöldi var-
gfugls í Ólafsvík. Það bætti síðan
ekki ástandið að sérfræðingar
teldu stóran hluta stofnsins
smitaðan af salmonellu, sem
varla væri gæfulegt þar sem væri
opið vatnsból.
Samdráttur hefur verið í lönd-
uðum afla í Ólafsvík og greiðslu-
geta fiskvinnslustöðvanna hefði
minnkað í samræmi við það og
þar af leiðandi hafa útgerðar-
menn leitað út úr bænum með
fisk, bæði til útlanda og á mark-
aði innanlands, að sögn Árna
Elíasar. Þetta minnkaði tekjur
fólksins í bænum og bæjarfélags-
ins sjálfs. Það þyrfti að sporna
gegn þessu og styrkja atvinnu-
ástandið í bænum og liður í því
væri að halda togaranum Má í
bænum og þar væm allir af vilja
gerðir. En Már var keyptur að
mestum hluta fyrir lánsfé á sínum
tíma, sagði Árni Elías.
Það þarf að bæta félagslega
þjónustu í Ólafsvík, en Ámi Elías
sagði erfitt að gera stórátak í
þeim efnum á meðan fjárhags-
staðan væri eins og hún er og
tekjumar ekki meiri. Menn
hefðu sjálfsgt nóg með að halda í
horfinu. En engu að síður væri
nauðsynlegt að bæta til að mynda
þjónustuna við aldraða í heima-
húsum og við einstæða foreldra
sem margir hverjir ættu erfitt
þegar í harðbakka slær. „Það
hlýtur að vera hægt að létta róð-
urinn hjá einstæðum foreldrum
til að auðvelda þeim atvinnuþátt-
töku, þegar hægt er að flytja
jafnvel inn erlent verkafólk frá
Suður Evrópu, sem varla er ódýr-
ari kostur,“ sagði Árni Elías.
-hmp
G-listinn
1. Árni Elías Albertsson, 2. Heiðar Elvan Friðriksson, 3. Margrét
Sigríður Birgisdóttir, 4. Herbert Guðmundur Hjelm, 5. Sigríður Þóra
Eggertsdóttir, 6. Jóhannes Ingi Ragnarsson, 7. Margrét Jónsdóttir, 8.
Rúnar Benjamínsson, 9. Guðmundur Baldursson, 10. Alfons Finns-
son, 11. Kjartan Heiðar Haraldsson, 12. Sigurður Þorsteinsson, 13.
Sveinbjörn Þórðarson, 14. Haraldur Guðmundsson.