Þjóðviljinn - 15.05.1990, Side 11
X-BOLUNGAVIK
Jón Guðbjartsson bifvélavirki
Stefnum að meirihluta
Kjósendur hafa í raun um tvo póla að velja í komandi kosningum: F-listafélagshyggjufólks
eða D-lista Sjálfstœðismanna
Astæða þess að við bjóðum
fram undir merkjum F-
listans, Samstöðu um bæjarmá),
er til að ná sem vfðtækastri sam-
stöðu ailra þeirra sem kenna sig
við félagshyggju í þeim tilgangi að
ná meirihluta í bæjarstjórn Bol-
ungarvíkur í komandi bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum. í raun
og veru stendur valið hjá kjósend-
um í Víkinni um tvo póla þó svo
að framboðin séu þrjú. Annars
vegar um F-Iistann, lista félags-
hyggjufólks og D-listann, lista
flialdsins. Félagshyggjufólk hefur
verið sett til hliðar í allri ákvarð-
anatöku um málefni bæjarins í
átta ár samfellt og því brýnt að
þar verði breyting á, segir Jón
Guðbjartsson bæjarfulltrúi
Oháðra og sem skipar annað sæti
á framboðslista Samstöðu í Bol-
ungarvík.
Fátt sem ég
geri ekki
Jón Guðbjartsson er fæddur á
ísafirði í lok seinna stríðs en hef-
ur búið og starfað í Bolungarvík í
tæpan aldarfjórðung eða um 25
ára skeið. Jón er menntaður bif-
vélavirki og hefur rekið bifreiða-
verkstæðið Nonna í rúman ára-
tug. Þar vinna að jafnaði 4-6
manns. Eins og áður segir er Jón
bæjarfulltrúi fyrir Óháða sem
fengu einn fulltrúa kjörinn við
síðustu bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningar.
Sjálfur lýsir Jón sér á þann hátt
að hann sé einn af þeim sem
kunni best við sig þar sem nóg er
að gera og meðal annars af þeim
sökum hefur hann skotið rótum í
Bolungarvík. Þar hefur hann
komið víða við í störfum að fél-
agsmálum og er til að mynda for-
maður slysavamadeildarinnar
Hjálpar í Bolungarvík en að
björgunar- og öryggismálum,
hefur Jón starfað í tvo áratugi. Þá
gengdi Jón stöðu slökkviliðs-
stjóra í Víkinni þar til nú nýlega
er hann lét af þeim starfa. Að
auki hefur hann starfað með
Leikfélagi staðarins til viðbótar
við önnur félagsmálastörf. Fyrir
utan sína hefðbundnu vinnu
starfar Jón einnig við köfun eða
eins og hann segir sjálfur: Það er
ansi fátt sem ég geri ekki og kann
vel við það.“
Stóraukin
skuldasöfnun
Helsta baráttumál Jóns í kosn-
ingabaráttunni sem og þeirra sem
standa að Samstöðu er að styrkja
og efla atvinnulífið í Bolungarvík
auk þess að koma lagi á fjármál
Jón Guðbjartsson bifvélavirki skipar annað sæti á lista Samstöðu.
bæjarins. En raunskuldir bæjar-
sjóðs hafa vaxið til muna á ör-
fáum árum. Sem dæmi um það þá
hafa skuldir bæjarsjóðs aukist á
tveimur árum, frá árslokum 1987
til loka síðasta árs um 535%,
hvorki meira né minna. Umfram
skatttekjur bæjarsjóðs hafa
skuldir hans hækkað um 330%
þ.e.a.s. raunhækkun skulda. Að
öllu óbreyttu stefnir í áframhald-
andi skuldasöfnun hjá bæjarsjóði
Bolungavík
Samstaða gegn íhaldi
Forvígismenn núverandi bæjarstjórnarmeirihluta hafa dregið sig íhlé
að undanskildum Ólafi Kristjánssyni bœjarstjóra. Gífurleg óánœgja
meðal sjálfstœðismanna ogstóð til að þeir byðufram klofið að hœtti
félaga þeirra á ísafirði
Pað sem einkum vekur athygli
við framboðsmál í Bolungar-
vík við komandi kosningar er sú
staðreynd að framboðin eru að-
eins þrjú en voru fimm áður. Það
helgast af því að undir merkjum
Samstöðu F-listans bjóða félags-
hyggjuöflin fram sameiginlega en
buðu síðast fram undir merkjum
G-lista Alþýðubandalags og H-
lista Óháðra.
Þá er það einnig athyglisvert að
forvígismenn núverandi meiri-
hluta í bæjarstjórn, þeir Valdim-
ar L. Gíslason, Alþýðuflokki,
Einar Jónatansson forseti bæjar-
stjórnar og Björgvin Bjarnason
bæjarráðsmaður, báðir úr Sjálf-
stæðisflokki hafa dregið sig í hlé.
Að vísu er Einar í 14. og síðasta
sæti D-listans svona eins og fyrir
siðasakir. Enda virðist sem geysi-
leg ólga sé meðal sjálfstæðis-
manna í Víkinni sem sést best á
því að fyrir stuttu síðan lá við að
óánægðir sjálfstæðismenn byðu
fram klofið eins og félagar þeirra
á ísafirði.
Oddviti íhaldsins í Vfkinni
virðist vera Ólafur Kristjánsson
bæjarstjóri sem skipar efsta sæti á
framboðslista þeirra og er hann
einn fárra sem býður sig jafn-
framt fram sem pólitískur bæjar-
stjóri næsta kjörtímabil. Hann er
líka sá eini af þeim þremur bæjar-
fulltrúum íhaldsins sem kjörnir
voru í síðustu kosningum sem er í
öruggu sæti á framboðslista þess.
Alþýðuflokkurinn býður að
þessu sinni ekki fram undir eigin
nafni heldur er A-listinn borinn
Ólafur Kristjánsson
og oddviti D-lista.
bæjarstjóri
fram af jafnaðarmönnum og
frjálslyndum. Forystumaður list-
ans og arftaki Valdimars Gísla-
sonar er Ólafur Þór Benedikts-
son.
Úrslit 1986
Sigurvegari í kosningunum
1986 var tvímælalaust G-listi AI-
þýðubandalagsins sem fékk 217
atkvæði og 2 fulltrúa í stað 85 at-
kvæða og eins fulltrúa í kosning-
unum 1982. Oddviti G-listans,
Kristinn H. Gunnarsson leiðir nú
lista Samstöðu og Þóra Vagns-
dóttir sem skipaði annað sæti á
þeim lista 1986 hefur dregið sig í
hlé og skipar 13. sæti á F-lista.
Óháðir fengu í síðustu kosn-
ingum 107 atkvæði og einn mann
kjörinn. Þeir bjóða nú fram undir
merkjum Samstöðu F-listans og
Ólafur Þór Benediktsson efsti
maður á A-lista sem er boðinn
fram af jafnaðarmönnum og
frjálslyndum.
skipar Jón Guðbjartsson bæjar-
fulltrúi þeirra þar annað sætið. í
kosningunum 1982 buðu jafnað-
armenn og óháðir fram saman og
fengu þá 156 atkvæði og 2 menn
kjörna.
Sjálfstæðisflokkur fékk 224 at-
kvæði og 3 menn kjöma í síðustu
kosningum en fengu 4 menn
kjörna og 282 atkvæði í kosning-
unum 1982. Alþýðuflokkurinn
fékk í kosningunum 1986 95 at-
kvæði og einn mann kjörinn en
bauð fram sameiginlega með
Óháðum 1982. Framsóknar-
flokkurinn fékk aðeins 50 at-
kvæði í síðustu kosningum og
engan mann kjörinn en 119 at-
kvæði og 2 menn kjörna í kosn-
ingunum 1982. Þeir bjóða ekki
fram sérstakan lista að þessu
sinni.
-grh
og í dag er hún orðin svipuð og
hjá bæjarsjóði ísafjarðar en
veltuhlutfallið þó sýnu lakara hjá
bæjarsjóði Bolungarvíkur en ísa-
fjarðar. „Þessu ætlum við að
breyta til betri vegar og snúa vöm
í sókn fáum við til þess nægilegan
stuðning frá kjósendum,“ segir
Jón Guðbjartsson.
Styrkja og efla
atvinnulífið
Staða atvinnumála í Víkinni er
Jóni ofarlega í huga og í þeim
efnum þarf að taka til hendinni ef
ekki á illa að fara fyrir stað eins og
Bolungarvík sem byggir afkomu
sína svo til eingöngu á fiskveiðum
og vinnslu. Niðurskurður á kvóta
og samdráttur í sjávarútveginum
hefur ekki farið framhjá Bolvík-
ingum fremur en öðmm sjávarút-
vegsstöðum og til að snúa vöm í
sókn telur Jón að þurfi að efla og
styrkja atvinnulífið og skjóta
undir það styrkari stoðum en ver-
ið hefur. Jón telur brýnt að auka
útgerð frá Víkinni með því að
kaupa þangað bæði skip og kvóta
í því markmiði að unnt verði að
fjölga störfum í sjávarútvegi. Við
það mun störfum einnig fjölga í
ýmsum þjónustugreinum sem
tengdar eru veiðum og vinnslu.
„Eini vaxtarmöguleikinn í at-
vinnulífinu hér er í sjávarútvegi
og í þeim efnum búum við afar
vel frá náttúmnnar hendi. Eins
og málum er háttað nú hljótum
við að krefjast þess að fá að njóta
þeirrar nálægðar okkar við ein
gjöfulustu fiskimið landsins sem
við gerum ekki í dag í núverandi
kvótakerfi,“ segir Jón.
Skipulagsmál
í ólestri
Á yfirstandandi kjörtímabili
hefur meirihlutinn í bæjarstjórn
Bolungarvíkur trassað raunar allt
sem viðkemur skipulagsmálum í
bænum og skiptir þá engu hvort
um er að ræða aðalskipulag eða
deiliskipulag sem komið hefur
niður á úthlutun lóða. Þá hefur
hafnarsvæðið ekki verið skipu-
lagt sem er mjög til baga fyrir alla
framtíðarskipan á því svæði.
Þessu vill Jón breyta enda ekki
vanþörf á eins og í pottinn er
búið.
Umhverfismál
á oddinn
Til þessa hafa Bolvíkingar urð-
að það sorp sem ekki hefur verið
brennt í sameiginlegri sporp-
brennslustöð þeirra og ísfirðinga
Mynd: grh
við Skarfasker, í landi sem er á
bak við Hólinn, kirkjustæði
þeirra Bolvíkinga. Jón telur það
vera mjög til vansa fyrir bæinn og
íbúa hans að þar skuli vera urðað
sorp og auk þess hafa Hnífsdæ-
lingar kvartað mikið undan
mengun frá sorpbrennslustöð-
inni. Jón segir að í þessum málum
þurfi að gera verulega bragarbót
á um leið og hugað er að upp-
græðslu og fegrun bæjarins sem
og opnum grænum svæðum.
Jafnframt þurfi að gera átak í við-
haldi gatnakerfsins eftir harðan
og langan vetur.
Lýðræðislegra
stjórnkerfi
Jón segir að núverandi bæjar-
stjórnarmeirirhluti hafi í raun
stjórnað bænum í krafti fámenn-
isvalds og haldið upplýsingum
um gang mála frá bæjarbúum.
Þessu ætlar Samstaða að breyta
til betri vegar fái hún til þess
nægilegan stuðning. Jón segir að í
þessum málum sé brýnt að auka
upplýsingastreymi til bæjarbúa
og gefa þeim jafnframt kost á að
fá að tjá sig um þau málefni sem
brenna á þeim og hæst bera
hverju sinni. Þá þurfi bæjarbúar
að geta átt kost á viðtalstíma við
bæjarfulltrúa og þá sé nauðsyn á
að halda borgarafundi þegar svo
ber undir.
Jafnframt telur Jón það afar
brýnt í þessu sambandi að auka
virkni í nefndum bæjarins frá því
sem nú er. Til þessa hefur bæjar-
ráð Bolungarvíkur verið mjög
sterkt og nánast stjórnað öllu og
það hefur leitt til þess að sjálf
bæjarstjórnin hefur nánast verið
afskipt. Þessu vill Jón breyta og
auka virkni bæjarbúa í ákvarð-
anatökum, jafnframt því að gera
stjórnkerfi bæjarins mun lýðræð-
islegra en það hefur verið.
-grh
Þriðjudagur 15. maí 1990 þjóÐVIUINN - SÍÐA 11
F-listinn
1. Kristinn H. Gunnarsson
2. Jón Guðbjartsson
3. Valdimar Guðmundsson
4. Helga Jónsdóttir
5. Anna Björgmundsdóttir
6. Ketill Elíasson
7. Ágúst Sverrir Sigurðsson
8. Elsa Jóhannesdóttir
9. Guðlaug Árnadóttir
10. Guðmundur Óli Kristinsson
11. Þórður Vagnsson
12. Guðný Eva Birgisdóttir
13. Þóra Hansdóttir
14. Sveinbjörn Ragnarsson