Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 8
Útgefandi: Útgáfufétag Þjóðvfljana Afgreiðsla: w 68 13 33 Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Auglýsingadeild: ® 68 1310-68 13 31 Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason Sfmfax: 68 19 35 Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Kartsson Verð: 150 krónur (lausasölu Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson Setnlng og umbrot: Prentsmiója Þjóðviljans hf. Utfit: Pröstur Haraldsson Prentun: Odcfi hf. Aðsetur: Slðumúla 37,108 Reykjavík Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfmgar og þjóðfrelsis Fötlun og fræknleikur í dag eru væntanlegir heim til landsins á ný íslensku keppendurnir í heimsleikum fatlaðra sem fram fóru í Hollandi. Þeir stóðu sig með óvenjumiklum glæsibrag, Ólafur Eiríksson hlaut ekki einvörðungu þrenn gullverðlaun í sundi, heldur setti þar að auki heimsmet í 200 metra skriðsundi. Fleiri íslendingar unnu þarna til gullverðlauna og annarra verðlauna, auka þess sem bætt voru nokkur íslandsmet. Þessum ágætu fulltrúum þjóðarinnar er óskað til hamingju með árangurinn. Hann verður vonandi hvatning til þeirra sem ekki ganga heilir til skógar um að halda sér í eins góðu líkamlegu ástandi og unnt er, hvort sem fólk ætlar sér að stunda keppnisíþróttir eða al- menna heilsurækt í sambandi við þjálfun fatlaðra má sérstak- lega nefna þann hóp sem hefur farið í endur- hæfingu eftir mænuskaða, en þeir eru flestallir fórnarlömb slysa, ekki síst umferðaróhappa. Vísindamenn eru vongóðir um að sá tími kunni að veraframundan, að leiðir finnist til að koma ýmsum þeirra til aðstoðar með nýrri tækni. Það er því mikilsvert að mænuskaddaðir kapp- kosti að halda líkamlegu atgervi jafn góðu og hægt er, til að glata ekki endurnýjunarmætti sínum eða þurfa að eyða tíma í uppbyggingu líffæra á ný, ef svo fer að þau gætu nýst þeim á nýjan leik. Samtök mænuskaddaðra endurhæfðra, - SEM-hópurinn svonefndi, - hefur ráðist í byggingu íbúðar- og þjónustuhúss við Sléttu- veg í Reykjavík og ráðgert að henni Ijúki í júní að ári, samkvæmt frétt Þjóðviljans sl. miðviku- dag. Fjármögnun byggingarinnar er enn að hluta óleyst mál, en góðar undirtektir þjóðar- innar í fjársöfnun samtakanna benda til þess að skilningur ríki á því að þessi þjóðfélagshóp- ur þurfi sem fyrst að njóta betri aðstöðu en nú er. Þótt hér eigi enn eftir að efla mjög aðstöðu fatlaðra til íþróttaiðkana og mikið sé óunnið, bæði í ferlimálum og húsnæðismálum, hefur sem betur orðið talsverð þróun á þessu sviði undanfarin ár. Augu þjóðarinnar hafa opnast fyrir því, að fatlaðir eiga ekki einungis heimtingu á því að njóta sömu aðstöðu og tækifæra og aðrir landsmenn, heldur hafa ekki síður í fjölmörgum tilvikum sannað sig bæði í starfi og á íþróttavettvangi sem jafn framúr- skarandi einstaklingar en þeir sem „heilir“ kallast. Lagasetning er óþörf Ríkisstjórnin þarf ekki að gefa út bráða- birgðalög til að forðast kollsteypur í efna- hagsmálum í kjölfar úrskurðar Kjaradóms í BHMR-deilunni. Samninganefnd BHMR hefur gefið viðræðunefnd sinni umboð til að ræða við ríkisstjórnina um 15. grein samningsins, sem kveður á um að BHMR-félagar muni njóta almennra launabreytinga sem verða kunni á samningstímanum. Þar með gæti verið úrsög- unni framhald „höfrungahlaupsins" svo- nefnda, víxlverkunarinnar sem blasir ella við, ef ASÍ og BSRB fá nú einhverja þá kjarabót sem BHMR mundi aftur að bragði meta og krefjast sér til handa líka. Páll Halldórsson, formaður BHMR lýsti því yfir í gær, að jafnhliða þessu tilboði BHMR um viðræður um 15. greinina mundi bandalagið þá fara fram á einhverjar leiðir til tryggingar á langtímasamningi sínum og leiðréttingum þeim sem í honum eiga að felast gagnvart háskólamönnum á almennum markaði. Ákvörðun BHMR-forystunnar er fagnaðarefni. Ríkisstjórnin hlýtur að ganga til þessara við- ræðna og skoða möguleikana í framhaldi þeirra gaumgæfilega. Vandinn er ekki leystur með þessu. Skýrt hefur komið fram, að ASÍ og BSRB krefjast leiðréttingar á kjörum til samræmis við breytingarnar sem urðu hjá BHMR eftir úr- skurð Kjaradóms. En aðilarvinnumarkaðarins og ríkisstjórnin hafa úr ýmsum leiðum að velja til að greiða úr því efni, öðrum en setja bráða- birgðalög. Forystumenn ASÍ og BSRB hafa skiljanlega ekki viljað styðja hugmyndir um lagasetningu sem takmarkaði rétt annarra launamannasamtaka. Bráðabirgðalög nú mundu ekki reynast ríkisstjórninni nothæf tímavél. óht 8 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. júlf 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.