Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 16
IÞROTTIR Líkamsrækt fyrir almenning. Mynd: Jim Smart. Breyttur lífsstíll Undanfarinn áratug hefur þátttaka almennings í íþróttum aukist til muna. Þó eru almenn- ingsiþróttir ekki eins mikið í brennideplinum og keppnisí- þróttir. Mikil hugarfarsbreyting hefur átt sér stað í þá átt að fólk hugsi meira um heilsu sína og líf- erni. Löngum hafa menn sagt við sjálfa sig „merkilegt hvað maður er þrátt fyrir hvernig maður lifir,“ en í dag þýðir lítið að af- saka sig því tækifærum almenn- ings til íþróttaiðkana hefur fjölg- að mikið. Fyrir utan að drífa sig út og skokka, skella sér i sund eða eróbik býðst nú fólki I auknum mæli skipulögð þjálfun sem er miðuð við þarfir hvers og eins. í mars síðastliðnum hóf forvarnar- og endurhæfingar- stöðin Máttur starfsemi sína. Stöðin er í eigu verkalýðsfélaga og fyrirtækja og einbeitir sér að hóp sem hingað til hefur verið afskiptur í líkamsræktarstöð- un-um: meðaljóninum sem ekki hyggst ná vaxtarlagi Arnold Schwarzeneggers, heldur einung- is koma sér í þokkalegt form. „Við leggjum áherslu á það fyrst og fremst að fá fólk til að hugsa um heilsuna. Við reynum að höfða til fólks sem stundar ekki hefðbundna hreyfingu, erum fyrst og fremst forvarnar- og end- urhæfingarstöð en ekki líkams- ræktarstöð þó auðvitað stundi fólk líkamsrækt hérna líka. Mikilvægast er að fá fólk til að breyta um lífsstíl og fá einhverja hreyfingu,“ sagði Hilmar Björns- son framkvæmdastjóri Máttar. Yfir 20 þúsund manns eru með- limir í þeim samtökum launafólks sem eiga hlut í stöðinni, að sögn Hilmars og fá félagar í viðkom- andi stéttarfélögum 10% afslátt í stöðinni. „Viðbrögð við þessari starf- semi hafa verið gífurlega góð. Menn hafa verið að tala um að það væri þörf á svona starfsemi en ekkert gert í málinu. Þetta er forvarnarstarf. Heilbrigðiskostn- aður er gífurlega hár hér á landi, stjórnvöld mættu velta þessum málum fyrir sér. Það er miklu dýrara að bregðast við þegar fólk er orðið veikt. Endurhæfing er geysilega dýr,“ sagði Hilmar. Öll þjálfun í Mætti er undir eft- irliti þjálfara og fyrir utan hefð- bundna hreyfingu býður Máttur upp á ýmis námskeið og fyrir- lestra til að aðstoða fólk við að breyta um lífsstíl. Má þar nefna námskeið um slökun gegn streitu, breyttar matarvenjur, líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, námskeið í að hætta að reykja auk fjölmargra annara. Er áhugi fyrirtækjanna á heilbrigði starfsfólks að aukast? „Já, það eykst sífellt að fyrir- tæki taki þátt í þessu með starfs- mönnum. Mörg stéttarfélög og fyrirtæki eru með það í athugun að koma inn í dæmið með okk- ur,“ sagði Hilmar Björnsson að lokum. el Frakkar svekktir Frakkar hafa verið ein sterk- asta knattspyrnuþjóð heims undanfarinn áratug þó heldur hafi sigið á ógæfuhliðina hjá landsliði þeirra síðustu ár. Liðið komst hvorki í úrslit Evrópuk- eppninnar 1988 né á nýlokið heimsmeistaramót á Ítalíu. Fransmenn eru að vonum sárir og mun áhugi á HM hafa verið heldur klénn þar í landi. f sárabót byrjaði franski boltinn að rúlla um síðustu helgi og er það óvana- lega snemma. Eru aðdáendur heitir og krefja knatthetjurnar um snilld í sumarsólinni. Hinir geysidýru erlendu leikmenn sem frönsk félagslið hafa sankað að sér á undanförnum árum eru undir hvað mestu álagi og láta franskir knattspyrnuáhugamenn sig litlu skipta þó leikmenn eins og Dragan Stojkovic frá Júgósla- víu, Englendingurinn Chris Wa- ddle, Brasilíumaðurinn Moser og Belginn Patrick Vervoort hafi ný- lokið erfiðri Heimsmeistara- keppni. Aðdáendur meistaranna frá Marseille, sem sagðir eru þeir blóðheitustu og tilfinninganæm- ustu í Frakklandi, verða þó að kæla sig með öðru í sólinni en ánægjusvita yfir snilld Chris Wa- ddle. Englendingurinn mun þurfa nokkra hvíld eftir að hafa hjálpað til við að koma Englend- ingum alla leið í undanúrslit á HM. Mikils er krafist af meistur- um Marseille, forseti félagsins, fjölmiðlakóngurinn og sósíalist- inn Bernand Tapie heimtar Evr- ópumeistartitilinn og auk þess að sjálfsögðu franska meistaratiti- linn. Til þess að þetta hafist nú allt saman hefur Tapie keypt Júg- óslavann Stojkovic frá Rauðu Stjörnunni í Belgrað fyrir litlar 520 milljónir króna. Stojkovic mun ekki ætla að taka sér hvfld eins og Waddle enda er hann æfur yfir því að hann skuli ein- ungis hafa verið valinn á varam- annabekkinn í heimsliðinu sem fréttamenn völdu eftir HM. Hann segir hæfileika sína stór- kostlega vanmetna og vill hefjast handa strax við að sanna það að hann sé besti knattspyrnumaður heims. el Geimaldarkappreiðar Bandaríkjamaðurinn Greg Le- Mond sigraði á sunnudaginn í hinni árlegu Tour de France hjól- reiðakeppni. Var það þriðji sigur LeMond en hann sigraði einnig 1986 og 1989. Þótt LeMond sé heimsmeistari í hjólreiðum áttu fæstir von á því að honum tækist að verja titilinn. í það minnsta kepptust blaða- menn viö að spá honum slæmu gengi enda kappinn búinn að eiga við erfið veikindi að stríða allan fyrri part ársins. LeMond er held- ur ekki sá alvinsælasti í evrópsku pressunni. Evrópumönnum þyk- ir slæmt að sjá á eftir hverjum titlinum á fætur öðrum hverfa yfir hafið enda hjólreiðar sem kepp- nisíþrótt löngum verið einokuð af Evrópumönnum. LeMond þykir líka nokkuð góður með sig, sagð- ist fyrir keppnina eiga sigur vísan og jafnvel þó ftalinn Chiappucci hafi um tíma haft tveggja klukku- stunda forskot, sagðist LeMond viss um að ítalinn myndi springa á fjallaleiðunum. Þetta særði mjög stolt Evrópumanna en reyndist engu að síður hárrétt hjá LeMond. Margir vilja skrifa velgengni LeMond á hin geysilega vel út- búnu reiðhjól sem hann notar og sumir kalla reyndar geimhjól því þau eru hönnuð með aðstoð NASA. LeMond skiptir um hjól eftir sérleiðum eins og aðrir hjól- reiðakappar skipta um treyjur. LeMond tekur þessa gagnrýni óstinnt upp, „það er gert alltof mikið úr hjólunum,“ segir Le- Mond, „enginn veltir fyrir sér öðrum atriðum eins og tækni og skipulagningu. Það er ekki nóg að vera á hjóli með litla loftmótstöðu ef maður tapar tíma með rangri líkamsstöðu. Þú þarft ekki annað en að lyfta höfði ör- lítið eða rétta hjálminn á hausnum við og nokkrar sekúnd- ur bætast við tímann hjá þér“ segir LeMond. Ýmsir halda því reyndar fram að Greg LeMond sé einhver best þjálfaði íþróttamaður heims. Hann hefur átt við þrálátann vír- ussjúkdóm að stríða og var auk þess heilt ár að jafna sig eftir að hann varð fyrir slysaskoti á veiðum 1987. Þrátt fyrir þetta hefur hann nú sigrað í einni alerf- iðustu íþróttakeppni heims í þriðja skipti. el Hjólreiðar á geimöld. Greg LeMonde sigurvegari í Tour de France. Síðasta ameríska hetjan Það er ekki tekið út með sæld- inni að vera íþróttahetja í henni Ameríku en þó virðist enn erfið- ara að vera íþróttaáhugamaður og hafa engar sannar hetjur til að dýrka. Ritstjórar bandaríska íþróttatímaritsins Sport Magaz- ine hafa áhyggjur af hetjuskorti. í ritstjórnargrein síðasta tölu- blaðs segir meðal annars: „í ár sáum við Magic Johnson og Los Angeles Lakers eiga í vand- ræðum og detta snemma úr meistarakeppninni. Larry Bird og Boston Celtics áttu í jafnvel enn meiri vandræðum. Wayne Gretzky (íshokkíhetja) var ekki einu sinni tilnefndur sem besti leikmaður deildarinnar, þó hann skoraði reyndar flest mörk. Mike Tyson var laminn í gólfið og stóð ekki upp aftur. Eric Dickerson virðist ekki nenna að hlaupa lengur (hann er einn stigahæsti leikmaður í ameríska fótboltan- um frá upphafi). Chris Evert er hætt - í alvöru í þetta skiptið og Jack Nicklaus er farinn að spila golf í gamlingjaflokki.“ Ekki er þó algert svartnætti hjá ritstjórum Sport Magazine, því ein er sú hetja eftir sem lýsir upp himininn. Eða eins og segir síðar í greininni: „Við sem lifum og hrærumst í íþróttunum förum að fölna eilítið þegar mikilmennin falla. Þó er ekki allt búið. Maður getur alltaf reitt sig á Joe Mont- ana. Flann klikkar aldrei, enda spyrjum við: Á hvern er hægt að treysta til að sýna mikilfengleika ef ekki Joe Montana?" Lesendum til fróðleiks skal þess getið að Montana þessi sem á svo stórbrotinn hátt bjargar sálarlífi amerískra íþróttaáhuga- manna, er álitinn besti leikstjórn- andinn í sögu ameríska fótbolt- ans. Hann leiddi í vor lið sitt San Francisco 49ers til sigurs í NFL deildinni annað árið í röð. Sport Magazine verðlaunaði hann að sjálfsögðu fyrir afrekið með því að skella undir hann forsíðunni í umræddu tölublaði auk mið- opnumyndar og ofangreindrar lofgjarðar. Sem desert nefndu þeir hann stórkostlegasta íþrótta- mann heims. el Feitur en í fínu formi Ekki allir íþróttamenn geta státað af jafn rennilegum skrokki og hjólreiðakappinn Greg Le- Mond. Það virðist þó ekki alltaf koma að sök. Enski landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne hefur þótt í heldur þéttara lagi og hefur þjálfara hans hjá Tottenham, Terry Ven- ables þótt nóg um aukakílóin hjá „Gazza“. Líklegt er þó að Gasc igne leyfist að koma spikfeitur < sællegur til æfinga í ágúst. Bæ átti kappinn snilldarleiki á HM Ítalíu og eins kom í ljós þegi ensku leikmennirnir gengu undir ýtarlegt þrekpróf að Gas oigne var í bestri þjálfun þó hann væri þyngsti maður liðsin 16 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.