Þjóðviljinn - 27.07.1990, Síða 23

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Síða 23
s ts/ZíHS, Það var mikill kraftur í Hamingjubandinu og fólk skemmti sér konung lega. Myndir: Reynir. Sýruhús með hjálp lögreglunnar Listahátíð næturlífsins er af- staðin, þótt framhald verði á henni um komandi helgi vegna afskipta laganna varða, þökk sé þeim. Án þess að vita það fylltu þeir menningarlegt tómarúm með aðgerðum sínum gegn næt- urlífinu á föstudag fyrir viku. í Englandi stendur nefnilega yfir fyrirbæri sem heitir „Azid House“ og gengur út á risavaxin partý í vöruskemmum. Þessi partý fyrir finnast ekki í lundúnískum lög- reglusamþykktum og halda þess vegna uppi ákveðnu atvinnustigi hjá lögreglunni. En Listahátíð næturlífsins fór vel af stað með tónleikum bresku hljómsveitarinnar The Band Of Holy Joy í Tunglinu. Júpíters hit- aði upp fyrir Hamingjubandið og gerði það með sóma eins og við mátti búast. Vegna seinkunar á flugi og mikils áhuga tollvarða á hljómsveitarmeðlimum Haming- jubandsins, seinkaði tónleikun- um nokkuð, en það kom ekki að sök. Ég er reyndar orðin uppi- skroppa með hrósyrði á Júpíters, svo ég ætla að sleppa því að ræða frammistöðu hljómsveitarinnar að öðru leyti en því, að tónleika- gestir virtust vera með á Júpíters- uótunum, því meirihluta gesta réði ekki við skankana og dans- aði grimmt. Manni varð óneitan- lega hugsað til tónlistarlögregl- unnar sem hefði komist í feitt við innheimtu virðisaukaskatts, hefði hún staðið alla þessa tón- leikagesti að því að dansa á auglýstum tónleikum. En þessi skattsvik komust ekki upp, önnur deild lögreglunnar hafði meiri áhuga á því að Tunglið væri sæmi- lega skúrað þetta kvöld. Hamingjubandið kom ekki á svið fyrr en um miðnætti. Þeir hamingjumenn virtust vera á heimavelli. Móttökurnar voru eins og heimsfræg íslensk hljóm- sveit kæmi á svið. Án tafa tók hljómsveitin mörg af sínum bestu lögum bæði af „Manic, Magic, Majestic" og „Positively Spook- ed“ og einnig mátti heyra slatta af nýjum lögum, sem voru mörg hver hin áheyrilegustu. Þrátt fyrir góðar móttökur var nokkurt hik á samskiptum hljóm- sveitar og tónleikagesta í fyrstu en það komst allt í eðlilegt horf eftir þrjú til fjögur lög. Mér fannst leikur hljómsveitarinnar nokkuð spíttaðri og grófari en þegar Hamingjubandið lék í Tunglinu fyrir tæpu ári. Ljúfir Alf harmonikkuleikari var í góðu fonni en dragspil hans hefði mátt njóta sín betur. tónar harmonikku og fiðlu fengu ekki eins vel notið sín en básúnan hafði áfram stóru hlutverki að gegna. Þessi áherslubreyting var ekki til trafala, bara skemmtilegt að fá að sjá hljómsveitina á grófari nótum en síðast. Enda varla ætlunin að fara á sömu tón- leikana og í febrúar í fyrra. -hmp Listmálarinn Alcopley Opnar sýningu í Nýhöfn á morgun Alcopley opnar á morgun mál- verkasýningu í Nýhöfn við Hafn- arstræti 18. Á sýningunni eru verk unnin á síðustu þremur áratugum: svo- nefndar skýjakljúfamyndir, skemmtigöngumyndir og örlitlar myndir að auki, sem Alcopley hefur ekki sýnt hérlendis áður. íslendingar þekkja Alcopley best af því að hann va giftur list- akonunni Nínu Tryggvadóttur, en hann hefur komið árlega til landsins síðan 1950. Hann hélt sýningu á Kjarvalsstöðum árið 1977 og í Norræna húsinu fyrir tveimur árum. Alcopley er ekki einungis virt- ur listamaður, heldur einnig heimskunnur vísindamaður. Hann fæddist í Dresden árið 1910, en gerðist bandarískur ríkisborgari árið 1943. Alcopley hefur frá mörgu að segja af langri og viðburðaríkri ævi, og geta les- endur blaðsins kynnst honum betur í næstu viku. Sýningin í Nýhöfn verður opn- uð á morgun kl. 14-16, og stendur til 15. ágúst. Salurinn er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 10-18, og kl. 14-18 um helgar. Kvöldtónar í Sigurjóns- safni Stephan Kaller leikur á píanó næstkomandi þriðjudag Á næstu þriðjudagstónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þann 31. júlí kl. 20.30 leikur þýski píanóleikarinn Stephan Kaller. Kaller mun flytja Waldstein- sónötuna eftir Beethoven og fimm verk eftir Chopin. Stephan Kaller hefur um árabil starfað með Margréti Bóasdóttur sópransöngkonu, og hafa þau haldið fjölda ljóðatónleika í Þýskalandi. Ennfremur héldu þau saman þrenna tónleika hér á landi í fyrra, m.a. í Listasafni Sig- urjóns. Auk einleikstónleika Kallers í safninu mun hann halda tónleika með Margréti á Norður- landi. Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, þar sem á morgun verður opnað- ur nýr sýningarsalur. Sumarsýning í nýjum sal Sverrissalur verður opnaður í Hafnarborg á morgun og jafnframt sumarsýning á verkum í eigu safnsins Á morgun verður opnaður nýr sýning- arsalur í húsakynnum Hafnarborgar. í virðingarskyni við dr. Sverri Magnússon lyfsala hefur salurinn hlotið nafnið Sverr- issalur. Einnig verður opnuð sumarsýn- ing á verkum í eigu safnsins, sem Sverrir og eiginkona hans færðu því að gjöf. Dr. Sverrir Magnússon lyfsali í Hafnar- firði og kona hans Ingibjörg Sigurjóns- dóttir voru frumkvöðlar að stofnun Hafn- arborgar. Sverrir lést í júní s.l. en kona hans árið 1986. Til heiðurs þeim hjónum er sumarsýningin haldin á hluta þeirra verka er þau afhentu stofnuninni í júní 1983 í tilefni af 75 ára afmæli bæjarins og stofnun Hafnarborgar. í hinum nýja sal verða síðan til sýnis þrjátíu listaverk sem Sverrir afhenti stofn- uninni til eignar í nóvember á síðasta ári. Verkin á sýningunni er á annað hundr- að talsins og eftir þjóðkunna listmálara, eins og Finn Jónsson, Ásgrím Jónsson, Nínu Tryggvadóttur, Jóhann Briem, Kjarval, Alfreð Flóka, Valtý Pétursson og marga fleiri. Sumarsýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 14-19, og stendur til 27. ágúst n.k. Föstudagur 27. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.