Þjóðviljinn - 28.09.1990, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 28.09.1990, Qupperneq 13
abriel sími 67 - 67 - 44 Pjakkur líkist helst klnverskum virðulegum öldungi til foma. Hann er mjög spekingslegur til augnanna og veiðihárin eru snúin. Hann er mjög værukær og vildi helst ekki hreyfa sig nema þegar Þórður kom með sælgæti. Myndir Kristinn. Kynja- kettir á sýningu Fyrsta sýning kynjakatta á sunnudag. Ymsar tegundir katta keppa í fegurð Kynjakettir, Kattaræktarfélag íslands heldur sína fyrstu katta- sýningu á sunnudaginn. Sýningin verður haldin í Gerðubergi og verða sýndar þær kattategundir sem til eru á landinu. Kettir lands- ins munu því keppa sín í milli í fegurð, mikilleika og fleiru. Til sýnis verða m.a. pers- neskir kettir, síamskettir, norskir skógarkettir, angórakettir og meira að segja íslenski heimilis- kötturinn. Langflestir kettir hér á landi eru blandaðir og lítið til af hreinræktuðum köttum. Sem dæmi má nefha að einungis þrir hreinræktaðir persneskir kettir eru til hérlendis. Eigandi tveggja þeirra er Þórður Jóhann Þórisson. Þórður á þau Pjakk og Kan- dísi, sem eru sérdeilis fallegir og indælir kettir. Eins og aðrir pers- neskir kettir eru þau með mjög sérstakt útlit, síðhærð, kringluleit og trýnið ílatt. En Pjakkur og Kandís eru ekki einu kettimir á heimilinu, því auk þeirra er læðan Isa Tai Fu. Hún er blanda af pers- neskum ketti og síams. Kynjakettir, Kattaræktarfélag íslands, var stofnað 5. apríl sl. og telur um 80 félaga. Þórður var einn af stofnendum félagsins, en það vom áhugamenn um katta- rækt sem stóðu að stofnun þess. Ekki er byrjað að skrá kettina ennþá, en stefnan er að hefja skráningu á þeim eftir sýninguna á sunnudaginn, en þá verða bara skráðir íslenskir síamskettir. Þórður segir að allir geti orðið fé- lagar i Kynjaköttum, jafnvel þótt fólk eigi ekki kött. A sýningunni verða sýndir rúmlega 50 kettir og henni verður skipt í 5 deildir. Þar verður pers- nesk deild, síamsdeild, angóra- deild, norsk skógarkattadeild eða síðhærðrakattadeild, heimilis- kattadeild og svo verður öldunga- deild. Þar verða sýndir kettir sem em eldri en 8 ára, en elsti köttur sýningarinnar er tæplega 15 ára. Hins vegar verða yngstu meðlim- ir sýningarinnar persneskir kett- lingar sem fæddust í júní sl. og em afkvæmi Pjakks. Kettimir verða í búmm og eigendur þeirra verða væntanlega á staðnum til að veita upplýsingar. Kandls virtist vera ögn hressari en Pjakkur, enda yngri og alveg ólm (gotteriiö. Þórður flutti Pjakk og Kan- dísi inn frá Danmörku í fyrra, og þurfti að fá sérstakt leyfi fyrir því. Persneskir kettir em sérlega ljúfir og blíðir og mjög vel til þess fallnir að vera innikettir. Þegar Nýtt Helgarblað heimsótti Þórð, Pjakk, Kandísi og Isu Tai Fu vildu hin tvö fyrmefhdu helst ekki hreyfa sig eða gera neinar kúnstir fýrir ljósmyndarann. Það var ekki fyrr en Þórður kom með sælgæti að þau komust á hreyf- ingu. Isa Tai Fu virtist vera hress- ari, en var samt ekkert um ljós- myndarann gefið. Hún vill helst vera ein út af fyrir sig. Um þijátíu skilgreind aíbrigði em til af heimilisköttum, og sem fyrr segir verða öll þau afbrigði sem til em á íslandi sýnd á sýn- ingunni. Hún verður opin frá kl. 10-18 og gestir fá atkvæðaseðil þegar þeir koma inn. Þeir kjósa síðan fallegasta köttinn í hverri deild og svp fallegasta kött sýn- ingarinnar. Úrslitin verða tilkynnt kl. 16 og fær vinningshafinn m.a. verðlaun frá dýrabúðum. Sýning- in er að sjálfsögðu opin fyrir alla og er aðgangseyrir 300 krónur fyrir fúllorðna og 150 krónur fyr- ir böm. Á sýningunni getur fólk gerst meðlimir í félaginu og fær þá fréttabréf o.fl. Ætlunin er að Kynjakettir verði meðlimir i Evr- ópusamtökum kattaræktarfélaga, Federation Intemational Féline, og fái þar með alþjóða viðurkenn- ingu. ns. fsa Tai Fu vildi ekk- ert hafa með Pjakk og Kandísi að gera. Hún er blanda af persneskum og s(- ams og vill helst vera útaffýrir sig. (sa Tai Fu er mjög falleg, steingrá og frekar snögghærð. HANDBRAGÐ MEISIARANS BAKARI BRAUDBERGS Ávallt nýbökuð brauð - heilnæm og ódýr^ Aðrir útsölustaðir: Hagkaup: Skeifunni - Kringlunni - Hólagarði Verslunin Vogar, Kópavogi Brauöberg UftuhóUr 2 • 6 »imi 71539** Hrounborgi 4 sim 77272 Föstudagur 28. september 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SfÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.