Þjóðviljinn - 28.09.1990, Side 16
Handbolti
Fleiri leikir - meiri reynsla
Leikjum í VÍS-keppninni í
handbolta hefur verið fjölgað úr
90 í 192. Leiknar verða 22 um-
ferðir og síðan 10 umferðir í sér-
stakri úrslitakeppni, sem sex efstu
liðin taka þátt í. Skiptar skoðanir
eru um þetta nýja fyrirkomulag
Íslandsmótið í handknattleik
hófst um miðjan mánuðinn og
þegar er lokið þremur umferðum.
Mótið í ár er töluvert frábrugðið
því sem var á síðasta ári og mun-
ar mest um gríðarlega mikla
Qölgun leikja. A síðasta ári voru
leiknir alls 90 leikir í VÍS-keppn-
inni, eins og mótið heitir, en í ár
verða þeir alls 192. Þá hefur lið-
um í 1. deild verið fjölgað úr 10 í
12.
Alls verða leiknar 22 umferð-
ir í fyrstu umferð íslandsmótsins,
en síðan taka við 10 umferðir þar
sem leikið verður til úrslita um Is-
landsmeistaratitilinn. Sex efstu
liðin að loknum umferðunum 22
leika þá um efsta sætið og sex
neðstu liðin um það hvert af þeim
fær það miður skemmtilega hlut-
verk að leika í annarri deild að ári.
Liðin sem leika í 1. deildinni i ár
eru Stjaman, FH, Haukar, Vík-
ingur, Selfoss, Fram, ÍBV, KR,
Grótta, Valur, KA og ÍR.
Styrktaraðili mótsins er nú
sem fyrr Vátryggingafélag ís-
lands og mun félagið sjá um að
auglýsa mótið í fjölmiðlum, auk
útgáfu bæklinga og veggspjalda.
Axel Gíslason forstjóri VÍS segir
að félagið sé með þessu að leita
eflir samstarfi við ungt fólk í leik
og starfi. En síðast en ekki síst er
það markmið félagsins með þessu
að efla íþróttir hjá ungu fólki, sem
sé það forvamarstarf sem talið er
að skili bestum árangri. „Hand-
boltinn gerir miklar kröfúr þar
sem saman fara snerpa, hraði,
barátta og drengileg samkeppni,'1
sagði Axel Gíslason.
Skiptar skoðanir
Margir hafa haft það á orði að
þetta nýja fyrirkomulag í 1. deild-
inni muni ekki bæta handboltann
nema síður sé. Þá muni sérstök
úrslitakeppni að afloknum 22 um-
ferðum verða til þess að áhorf-
endur muni jafnvel sitja heima
þangað til að henni kemur. Jón
Hjaltalín Magnússon formaður
Handknattleikssambands Islands
er þessu ekki sammála. Jón segist
lítast vel á þetta nýja fyrirkomu-
lag í deildinni. Liðin em fleiri en
áður sem þýðir að fleiri leikmcnn
fá að spreyta sig en ella. Þetta sé
mjög gott bæði fyrir viðkomandi
lið og landsliðið í þeirri uppbygg-
ingu sem þar er hafin. Jón Hjalta-
lín spáir því að keppnin í vetur
verði bæði jöfn og spennandi og
það verði mikið kappsmál fyrir
liðin að verða í sex efstu sætum
deildarinnar til að komast í úr-
slitakeppnina í vor. Formaður
HSI er ekki sammála því að
áhorfendum muni fækka, heldur
bendir allt til þess að þeim muni
frekar fjölga. Jón segir að aðsókn-
in á lcikina til þessa hafi verið
mjög góð sem helgast meðal ann-
ars af því, að æ fleiri lið leika nú í
eigin húsum.
Gengi íslandsmeistara FH í
fyrstu þremur umferðunum hefur
verið slakt og nú síðast tapaði lið
fyrir Stjömunni í Kaplakrika.
Guðjón Amason fyrirliði FH seg-
ir að Iiðið sé nokkuð breytt ffá því
í fyrra og eins séu menn að leika í
nýjum stöðum og leikskipulagið
sé annað. Fyrirliðinn segir að þó
byijunin lofi ekki góðu sé leik-
tímabilið langt og það taki sinn
tíma að lagfæra þá hluti sem af-
laga hafa farið. „Við höfúm hins-
vegar trú á því sem við emm að
gera og takmarkið er að komast í
úrslitakeppnina í vor,“ sagði
Guðjón Amason. Hann segir að
þessi mikli leikjafjöldi geti komið
niður á gæðum íþróttarinnar og
þá sérstaklega þegar efstu liðin
em búin að tryggja sér sæti í úr-
slitakeppninni. Þá er ekkert leng-
ur í húfi fyrir þau fyrr en í sjálfa
úrslitakeppnina er komið.
Um sjálft mótið segir Guðjón
að það loft góðu það sem af er og
helsti áviningurinn við nýja fyrir-
komulagið sé að leikmennimir fái
mun meiri leikæfingu en áður.
Selfyssingar spila nú í fyrsta
skipti í 1. deildinni í handbolta og
þjálfari þeirra er Björgvin Björg-
vinsson. Handboltaíþróttin er til
þess að gera mjög ung íþrótt á
Selfossi, en engu að síður er
geysileg stemmning fyrir henni í
bænum. Bjögvin segir að takmark
liðsins sé að halda sér í deildinni
þó það kunni að verða erfítt.
Helsti veikleiki liðsins er hvað
liðsbreiddin er ákaflega lítil og
því getur bmgðið til beggja vona
með árangur í keppninni, fari svo
að leikmenn verði tíðir gestir á
sjúkralistanum.
Björgvin segist hafa stutt þá
ákvörðun að breyta fyrirkomulagi
deildarinnar í núverandi horf. Að
mati Björgvins em helstu kostim-
ir þeir að leikmenn öðlast meiri
leik- og keppnisreynslu. Hvort
leikjaföldinn sé of mikill verði
einfaldlega bara að koma í ljós,
en tilraunin sé vel þess virði að
reyna hana í vetur.
„Að taka þátt í 1. deildinni
kostar auðvitað mikinn pening,
en einnig leggja menn mikið á sig
í sjálfboðavinnu, sem maður skil-
ur stundum ekki hvemig er
hægt,“ sagði Björgvin Björgvins-
son þjálfari 1. deildarliðs Selfoss.
-grh
Akstur
Rallað um Borgarfjörð
Næstsíðasta rallkeppni sumarsins á morgun. Fyrsta sérleið um Skútu-
Tvær leiðir
eru hentugar til þess
að verja ungbarn í bíl
Látið barnið annaðhvort liggja
í bílstól fyrir ungbörn eða
barnavagni sem festur er
með beltum.
UMFERÐAR
RÁÐ
Fimmta og næstsíðasta rall-
keppni ársins fer fram á morgun,
laugardag og verða fyrstu bílamir
ræstir klukkan 10 við aðalstöðvar
akstursíþróttamanna við Bílds-
höfða. Það em Bifreiðaíþrótta-
klúbbur Borgarfjarðar og Bif-
reiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur
sem standa fyrir þessari keppni.
Alls em skráðir ellefu bílar til
keppni og þar á meðal em þeir
sem slást um íslandsmeistaratitil-
inn í þessari mjög svo erfiðu
íþrótt. Þar ber helst að nefna þá
sem standa best að vígi með 50
stig, feðgana Rúnar Jónsson og
Jón R. Ragnarsson sem keppa
núna á Talbot vegna bilunar í
Escort-bíl þeirra frá því í síðustu
keppni. En þá fór vélin á næstsíð-
ustu sérleiðinni. I öðm sæti til ís-
landsmeistara em þeir Ásgeir
Sigurðsson og Bragi Guðmunds-
son á Metro með 40 stig. Þeir
sigmðu í tveimur fyrstu keppnun-
um á árinu, en urðu fyrir því
óhappi að falla úr keppni í þeim
tveimur næstu vegna bilana, en
höíðu forystu í þeim báðum.
Fyrirfram er reiknað með að
keppnin verði aðallega á milli
þessara tveggja áhafna. I ljósi
reynslunnar er þó ekki hægt að
afskrifa aðra keppendur þó þeir
aki á mun kraftminni bílum. Þar
VOg
er helst að nefna þá bræður Birgi
og Gunnar Vagnssyni á Toyota,
Þröst Reynisson og Viktor Sig-
urðsson á Ford Escort, sem em í
þriðja sæti til íslandsmeistara og
hafa sýnt miklar framfarir í sum-
ar.
I þessari keppni verður fyrsta
sérleiðin, en á þeim leiðum fer
hin eiginlega keppni fram, er fyr-
ir neðan Skútuvog í Reykjavík og
kjörið fyrir áhugafólk að sjá bíl-
ana þar. Fyrsti bílinn verður ræst-
ur þar níu mínútur yfir 10. Næsta
sérleið er Kaldidalur, frá Þing-
völlum í Húsafell og þar á eftir
nokkrar leiðir í Borgarfírði. Eflir
matarhlé í Hreðavatnsskála verð-
ur síðan ekið um Uxahrygg og
aftur um Kaldadal og endað við
Hreðavatnsskála um klukkan
17,30. Fari svo að Kaldidalur
verði ófær á morgun verður grip-
ið til varaleiða. Þá verða eknar
sömu leiðimar en bara oftar.
Möppudýrin erffið
Eins og kunnugt er stóð í
miklu stappi við yfírvöld unt að fá
tilskilin leyfi fyrir alþjóðlega rall-
inu sem fram fór fyrri skömmu.
Að sögn Magnúsar Amarsonar
hjá Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykja-
víkur fást aldrei fullnægjandi
leyfi nema á síðustu stundu, sem
gerir skipuleggjendum rallmóta
afar erfitt fyrir. Hinsvegar sé ekk-
ert út á löggæslumennina sjálfa
að sakast og er samvinna við þá
mjög góð. Afhir á móti er sýnu
erfiðara að eiga við þá að eiga
sem sitja á bak við skrifborðin.
Magnús segir að það sé dálítið
erfitt að skilja þessa þverúð því
mótshaldarar greiða alfarið fyrir
löggæsluna sem aðrar íþrótta-
greinar þurfi ekki.
Þó svo að sumarið sé keppnis-
tími rallökumanna er mikill vilji
til þess að keppa einnig á vetuma.
Magnús segir að ekki sé hægt að
fá betri vegi en hér á landi til vetr-
arakturs og hafa menn þá sveita-
vegina í huga. Heilsárskeppni
mundi án efa auka áhuga fólks á
iþróttinni fyrir utan það hvað
akstur á vetuma er oft á tíðum
mun meira krefjandi en á sumrin.
Þá hafa menn áhuga á því að fá
heimsfræga rallökumenn til
keppni hérlendis, því það mundi
tvímælalaust beina kastljósum er-
lendra Qölmiðla að íslenska rall-
inu. Þar fyrir utan er næsta víst að
áhugi innanlands mundi einnig
aukast fyrir þessari erfiðu en
skemmtilegu íþrótt.
-grh
Fyririiðar liðanna tólf sem keppa um fslandsmeistaratitilinn I VfS- keppninni í handbolta í vetur. Mynd: Jim Smart
16 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. september 1990