Þjóðviljinn - 28.09.1990, Síða 18
Kamsky og Ivantsjúk deildu
efsta sætinu í Tilburg
Hinum 16 ára gamla Gata
Kamsky tókst það sem engan
hafði órað fyrir, að bera sigur úr
býtum á sterkasta skákmóti árs-
ins í Tilburg í Hollandi. Kamsky
var einn í efsta sæti svo til allt
mótið en í síðustu umferð tókst
Vasily Ivantsjúk að komast upp
að hliðinni á honum með því að
vinna skákir sínarí 13. og 14. um-
ferð. Ivantsjúk bætti þarna enn
við orðstír sinn og er að mínu
mati sterkastur þeirra stór-
meistara sem unnu sér þátttöku-
rétt í áskorendakeppninni í
sumar. Kamsky og Ivantsjúk
hlutu báðir 8Vi vinning úr 14
skákum sem er frábær árangur.
Jafnframt virðist þetta mót hafa
staðfest kynslóðaskipti í skákinni
því yngstu skákmennirnir röðuðu
sér í fjögur efstu sætin eins og
lokaniðurstaðan ber með sér.
1.-2. Kamsky (Bandaríkin) og
Ivantsjúk (Sovétríkin) 8V2 v. 3.
Gelfand (Sovétríkin) 8 v. 4. Short
(England) 71/2 v. 5.-6. Timman
(Holland) og Andersson (Svíþjóð)
61/2 v., 7. Nikolic (Júgóslavía) 6 v.
8. Seirawan (Bandaríkin) 4V2.
Kamsky tók forystuna þegar í
sínar hendur með hverjum sigrin-
um á fætur öðrum og lauk fyrri
hluta mótsins með því að hljóta 5
V5 vinning úr 7 skákum. Seinni
helmingurinn var torsóttari því
margir andstæðingar hans virtust
hafa vanmetið hann í fyrri hlutan-
um. Hann tapaði fyrir Nigel
Short í 9. umferð en vann helsta
keppinaut sinn, Ivantsjúk í 10.
umferð. Þegar aðeins tvær um-
ferðir voru eftir var hann með
vinningsforskot á næstu menn en
tapaði fyrir Jan Timman í 12. um-
ferð og ídykkti út með því að gera
jafntefli við Andersson og
Seirawan í tveim síðustu umferð-
um mótsins.
Kamsky var vel að árangri sín-
um kominn. Hann barðist til síð-
asta blóðdropa í hverri einustu
skák og sýndi ótrúlega kunnáttu
af svo ungum manni að vera í
endatöflum og stöðum sem
kröfðu á um tæknilega úrvinnslu.
Vasily Ivantsjúk hefur náð frá-
bærum árangri í svo til hverju því
móti sem hann hefur tekið þátt í
hin síðari ár. Hann virðist hafa
róast mikið og virðist eins og sak-
ir standa full verðugur andstæð-
ingur Kasparovs og Karpovs.
Boris Gelfand náði þriðja sæti
sem er vel af sér vikið eftir slaka
byrjun. Margir þykjast sjá heims-
meistaraefni í þessum unga
manni og Kasparov hefur látið
svo um mælt að í einvíginu um
heimsmeistaratitilinn 1993 muni
Gelfand verða andstæðingur
hans. Gelfand er sennilega best
lesni skákmaðurinn í Tilburg-
mótinu og sigrar hans margir eru
oft æði áreynslulausir. Það er spá
mín að greinilegir einbeitingar-
örðugleikar geri honum erfitt
fyrir í komandi áskorenda-
keppni.
Félagarnir Timman og
Andersson komu næstir. Tim-
man byrjaði afleitlega og var
langtímum saman í neðsta sæti.
Hann átti hinsvegar góðan enda-
sprett og bjargaði þannig andlit-
inu. Andersson tefldi fjörlegar en
síðast þegar honum var boðið í
Tilburg-mótið og gerði þá 13
jafntefli í 14 skákum. Hann var í
tímahraki í flestum skákunum og
virðist eiga í erfiðleikum með að
fá upp „sínar“ stöður gegn ungu
mönnunum.
Lftum á eina af skákum Kam-
sky í mótinu þar sem hann mætir
frægasta undrabarni Eng-
lendinga fyrr og síðar, Nigel
Short. Þessi skák er um margt
dæmigerð fyrir Short. Hann teflir
af yfirveguðu öryggi gegn Caro-
Kann vörn Kamskys og brýtur sér
leið til sigurs hægt og bítandi.
Þetta var fyrsti ósigur Kamskys í
mótinu og jafnframt einhver
áferðarfallegasta skákin sem
tefld var í Tilburg en mikill fjöldi
furðulegra afleikja setti svip á
mótið:
Yasser Serawan varð í neðsta
sæti sem hlýtur að vera mikið
áfall fyrir hann. Seirawan hefur
ekki látið sitt eftir liggja í mikilli
gagnrýni á meint dekur við Gata
Kamsky enda mun svo komið að
líkur eru á því að þeir feðgar
Rustam og Gata flytji til Frakk-
lands. Færi svo þá myndu Banda-
ríkjamenn tapa raunhæfum
möguleika á að eignast annan
heimsmeistara á þessari öld.
9. umferð:
Nigel Short - Gata Kamsky
Caro-Kann
1. e4 c6
2. d4 d5
3. e5 Bf5
4. c3 e6
5. Be2
(Short hefur beitt þessari að því
er virðist órökréttu leið gegn
Caro-Kann vörninni með góðum
árangri upp á síðkastið. Síðar í
mótinu lagði hann Seirawan að
velli með sömu leið.)
5. .. Be7
6. Rf3 g5!?
7. 0-0 h5
8. Be3 Rd7
9. a4 g4
(Þrátt fyrir traustan skákstíl ein-
kenna djarfir peðsleikir margar
skákir Kamsky.)
10. Rel Bg5
11. Rd3 Rh6
12. Rd2 h4
13. Dcl Hg8
14. Rb3 Bxd3
15. Bxd3 a5
16. f4!
(Á réttu augnabliki brýtur Short
upp stöðuna kóngsmegin. Hann
nær að einangra h-peðið sem síð-
ar er dæmt til að falla.)
16 .. gxf3
17. Hxf3 b6
18. Bxg5 Dxg5
19. Dxg5 Hxg5
20. Hh3! Ke7
(Svartur verður að láta h-peðið af
hendit.d. 20. ,.Hg4 21.Be2 He4
22. Bf3 Hf4 23. Rcl og síðan 24.
Re2.)
21. Hxh4 Rg4
22. Hel Hag8
23. g3 c5
24. Rd2 c4
25. Bc2 f5
26. exf6+ Rgxf6
27. Rf3 Hh5
28. Hxh5 Rxh5
(Uppskipti auðvelda ekki að-
stöðu Kamsky. Nú verður honum
ýtt af borðinu án þess að fá nokk-
uð að gert.)
29. Kf2 Kd6
30. Re5 Rdf6
31. Bdl Rg7
32. g4 Hb8
33. Bf3 b5
34. axb5 Hxb5
35. He2 a4
36. h4 a3
37. bxa3 Hb3
38. Hc2 Hxa3
39. h5 Rh7
40. Kg3 Ke7
31. Hb2 Hb3
42. Ha2 Hb7
43. Kf4 Re8
44. g5 Rd6
45. g6 Rf6
46. h6 Kf8
47. Ha8+ Rde8
48. Rg4 Rxg4
49. Bxg4 He7
50. Ke5
- og Kamsky gafst upp.
Lokastaðan verðskuldar
stöðumynd.
Sveit TR teflir við Solingen
Næstkomandi þriðjudag teflir
sveit TR við v-þýsku sveitina So-
lingen í undanúrslitum Evrópu-
keppni taflfélaga. Sveit TR er
komin svo langt eftir sigra yfir
belgísku sveitinni Anderlecht
með Jan Timman á 1. boði, skák-
sveit þess fræga knattspyrnufé-
lags Bayern Múnchen og MTK
Budapest með Lajos Portisch á 1.
borði. Ekki er minnsti vafi á því
að Þjóðverjarnir verða erfiðir
viðfangs því frægir stórmeistarar
eru innan vébanda sveitarinnar:
Shotr, Spasskí, Húbner, Kavalek
og Lobron svo nokkrir séu nefnd-
ir. Keppnin fer fram í húsa-
kynnum TR að Faxafeni 12,
þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld.
Helgi
Ólafsson
Tímamót framundan?
Líkur eru á að ársþing Bridgesam-
bandsins verði sunnudaginn 21. októ-
ber, daginn eftir Selfoss-mótið
(minningarmót Einars ÞorfJ.
Staðfest hefur verið að lsak Örn
Sigurðsson lætur þá af störfum sem
starfsmaður sambandsins, eftir 2 ára
starf. Óráðið er hver tekur við starfi
hans hjá BSÍ, en heyrst hefur að með-
limir innan stjórnar renni hýru auga
til starfans. Einnig hefur nafn Ragn-
ars Magnússonar tengst umræðunni.
Og að síðustu, Elín Bjarnadóttir.
Kannski það?
Kaup sambandsins á spilagjafavél-
inni Iíta afar vel út, og með fyrirfram
sölu á gefnum spilum til ákveðinna
félaga í höfuðborgarsvæðinu er ljóst
að sambandið ber lítinn sem engan
kostnað af kaupunum. Með éigin
notkun BSÍ má telja fullvíst að vélin
„borgi“ sig upp á 6 mánuðum. Næsta
skrefið í þróuninni hlýtur að vera „ró-
bót“ frá Japan, til að taka að sér
keppnisstjóraverkið. Sá hinn sami
mætti þá gjarnan taka að sér út-
reikning móta (þ.e. ef það er ekki
frátekið fyrir aðila innan stjórnar
BSÍ).
Sveit Sigurðar Sigurjónssonar
Kópavogi sigraði sveit Tryggingamið-
stöðvarinnar í 3. umferð Bikarkeppni
BSÍ, nokkuð óvænt. Munurinn varð
um 20 stig. Sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar Reykjavík sigraði
sveit Delta (Roche) frá Hafnarfirði í
3. umferð í jöfnum leik. Og á þriðju-
daginn áttust við sveitir Forskots
Reykjavík og Estherar Jakobsdóttur
Reykjavík. Fyrrnefnda sveitin sigraði
nokkuð örugglega.
Og síðasti leikur 3. umferðar verð-
ur á morgun (laugardag) er sveitir S.
Ármanns Magnússonar Reykjavík og
Ásgríms Sigurbjörnssonar Siglufirði
mætast. Leikurinn verður spilaður í
húsi BSÍ og hefst um kl. 14. Dregið
hefur verið í undanrásum keppninnar
(4. umferð). Eftirtaldar sveitir mæt-
ast; Ásgrímur Sigurbj./S. Ármann
Magnússon gegn Samvinnuferðum
og Sigurður Sigurjónsson gegn For-
skoti.
Undanrásir verða spilaðar í húsi
BSÍ á sunnudaginn kemur og hefst
spilamennska kl. 10 árdegis. Spiluð
verða 48 spil. Sigurvegararnir mætast
svo á Loftleiðum um aðra helgi, en þá
verða spiluð 64 spil milli sveita, fyrir-
fram gefin af BSÍ.
Sími Bridgesambandsins var lok-
aður á mánudaginn var. Undirritaður
man ekki til þess að slíkt hafi gerst
áður, eða hvað?
Góð þátttaka var hjá Skagfirðing-
um sl. þriðjudag. Spilað var í tveimur
áttum. Efstu pör urðu: N/S: Sigrún
Jónsdóttir og Ingólfur Lilliendahl og
A/V: Hjálmar S. Pálsson og Sveinn
Þorvaldsson.
Næsta þriðjudag verður enn á ný
eins kvölds tvímenningskeppni, en
annan þriðjudag er stefnt að stuttri
barometer-keppni (3-4 kvöld). Fyrir-
fram skráning í þá keppni er í s: 16538
(Ólafur).
Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35
og hefst spilamennska kl. 19.30.
Dagskrá Bridgefélags Reykjavíkur
þetta starfsárið er í grófum dráttum á
þessa leið; Sl. miðvikudag hófst 6
kvölda barometerkeppni. 7. nóvem-
ber hefst 6 kvölda Butler-keppni. 19.
desember er jólakvöld félagsins. í
janúar verður spilað í Reykjavíkur-
mótinu í sveitakeppni, en 30. janúar
hefst svo aðalsveitakeppni, og stend-
ur í 6 kvöld. Spilaðar verða 12 um-
ferðir (2x16 spila leikir) eftir Monrad-
kerfi. 13.-27. mars verða 3 spilakvöld
lögð undir eins kvölds spilamennsku
en 3. aprfl hefst svo aðaltvímennings-
keppni félagsins og Iýkur starfsárinu
8. maí. Aðalfundur boðaður 15. maí.
Olafur
Lárusson
Nv. formaður félagsins er Sævar
Þorbjörnsson.
Og sl. miðvikudaghófst 6 kvölda
barometer-keppni hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur með nýstárlegu sniði.
Efstu pör mætast í hvert sinn, þ.e.
eins konar Swiss-fyrirkomulag, þar-
sem pörin geta mæst oftar en einu
sinni. Enn er hægt að bæta við pörum
í þá keppni. Upplýsingar veitir Jón
Baldursson.
Fullvíst má telja að Bridgesam-
bandið muni helgina 9.-10. nóvember
gangast fyrir íslensksu „Cavendish"
móti, þ.e. tvímenningskeppni þar
sem pörin eru „boðin" upp. Stefnt er
að 28-32 para móti og yrði þátttöku-
gjaldið kr. 7.500 pr. par og að auki
yrðu pörin að ábyrgjast aðrar 7.500
kr., sem boð í sjálfa sig, ef enginn
annar lítur við viðkomandi. Fróðlegt
að fylgjast með framvindu þessara
mála.
Landstvímenningur Bridgesam-
bandsins verður spilaður vikuna 22.-
27. október. Búast má við að flest öll
félögin innan BSÍ verði með að þessu
sinni, enda undirbúningsvinnu þá
lokið af hálfu sambandsins.
Einsog áður hefur komið fram í
þessum þætti, bera hinar ýmsu spila-
aðferðir ákveðin nöfn. Mörg af þeim
þekkjum við, en aðrar aðferðir sem
við dags daglega notumst við í
leiknum, hafa verið reyndar, þótt
heitið á aðferðinni komi ókunnuglega
fyrir sjónir. Eða hver kannast við
„Pitt“-bragðið?
Lítum á hvernig það virkar:
S:G986 H:863 T: 865432 T .
S: 10432 JL.— S:D
H:95 H:ÁDG1072
T:KD T:107
L:D9852 S:ÁK75 H:K4 T:ÁG9 L:K1063 L:ÁG74
Eftir spaðaopnun Suðurs og hjarta-
ströggl Austurs, er Suður sagnhafi í 4
spöðum. Útspil Vesturs er hjartanía,
upp á ás og hjartadrottning, sem við
tökum á kóng. Vandamálið í spilinu,
ef tígullinn brotnar 2-2, er stíflan í
tígli. Næst leggur Suður niður spaða-
ás, og hendir áttunni úr borði (sem
heldur þeim möguleika opnum að
geta spilað upp á spaðatíuna báðum
megin). Legan kemur í ljós, er
Austur lætur spaðadrottningu í. Þá
kemur tígulás og meiri tígull. Vestur
er inni á drottningu og spilar laufi,
sem tígli er hent í úr borðinu. Austur
drepur á ás og spilar hjartagosa. Þá
trompar sagnhafi með spaðakóng,
lætur spaðasjöu og síðan spaðafimmu
og yfirtekur á níuna í borði, loks
spaðagosa og losar sig við gosann í
tígli. Stíflan fjarlægð og 10 slagir
mættir á svæðið.
Já, við höfum flest okkar séð þetta
áður, eða í svipuðum dúr, en vissi
einhver um heitið á þessari spilaað-
ferð?
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ i Föstudagur 28. september 1990