Þjóðviljinn - 28.09.1990, Page 19
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiöenda skal vakin á því
aö gjalddagi launaskatts fyrir september er 1.
október n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda aö greiöa til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leiö launaskattsskýrslu í
þríriti.
Fjármálaráðuneytið
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Haustferð í
Landmanna
laugar
27. októ-
ber 1990 : . m
Laugardaginn 27. október fer ABK haustferö í Landmannalaugar.
Farið verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur
Hellisheiði. Farið verður um Ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, upp
Landveg að Tröllkonuhlaupi við Búrfell. Með viðkomu í Foss-
brekkum verður farið um Sölvahraun á Landmannaleið. Skammt
frá Landmannahelli verður ekið upp á Mógilshöfða og yfir í
Hrafntinnusker og skoðaður íshellirinn þar sem jarðhitinn bræðir
íshelluna án afláts. Allt um kring eru spúandi hverir á þessu mikla
háhitasvæði, Þaðan verður aftur haldið á Dómadalsleið og hjá
Frostastaðavatni í Landmannalaugar þar sem gist verður í skála
Ferðafélags Islands eftir kvöldvöku og söng.
Á sunnudeginum verður árdegis gengið á Bláhnjúk en sumir taka
sér styttri göngu eða baða sig í lauginni Ijúfu. Laust eftir hádegið
verður haldið af stað heimleiðis. Þá verður ekið hjá Hófsvaði á
Tungnaá, niður meö Vestur-Bjöllum, hjá Sigölduvirkjun og
Hrauneyjarfossvirkjun, yfir Þjórsá hjá Sandafelli, niður Hrossa-
tungur að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal. Þaðan verður svo ekið að
Hjálparfossi og heim um Gnúpverjahrepp og Skeið. Heimkoma er
áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnudagsins.
Gistigjald í skála er kr. 550 og fargjald er kr. 2.500. Hálft fargjald er
fyrir eftirlaunaþega og ófermda og ókeypis fyrir börn átta ára og
yngri.
Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla Ólafi Pét-
urssyni í síma 42462.
ATHUGIÐ að þátttaka er ÖLLUM velkominl! Ferðanefnd ABK
Sunnlendingar
Opinn fundur
um málefni garðyrkjunnar
Opinn fundur um málefni garðyrkjunnar í Aratungu þriðjudaginn
2. október kl. 21.
Frummælendur verða Hjördís B. Ásgeirsdóttir, Kjartan Ólafsson,
Magnús Ágústsson, Steingrímur J. Sigfússon og Örn Einarsson.
Fundarstjóri Margrét Frímannsdóttir.
Alþýðubandalagið Suðurlandi
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsvist
Fyrsta spilakvöld í þriggja kvölda keppni verður haldið í Þinghól,
Hamraborg 11, mánudaginn 1. október klukkan 20.30.
Spilað verður annan hvern mánudag.
Kaffi og kvöldverðlaun.
Allir velkomnir
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opið hús í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 29. september
milli kl. 10 og 12.
Elsa Þorkelsdóttir bæjarfulltrúi og Eggert Gautur fulltrúi ABK í
skólanefnd verða með heitt á könnunni.
Allir velkomnir.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið í Hveragerði
Aðalfundur
Alþýðubandalagsins í Hveragerði verður haldinn laugardaginn
29/9 kl. 10 árdegis í sal verkalýðsfélagsins Boðans, Austurmörk
2.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Margrét Frímannsdóttir þingmaður og Ingibjörg Sigmundsdóttir
mæta á fundinn.
Stjórnin
Spítalarnir
Skorturá
aðstoðartæknum
Þorvaldur Veigarfor-
maður læknaráðs Land -
spítalans: Nauðsynlegt að
endurskipuleggja störf-
in á spítölunum
„Áhrif f] öldatakmarkana í
læknadeild, þ.e. skortur á að-
stoðarlæknum, er að koma fram
núna og það hafa allir áhyggjur af
þessu. Það sem þarf að gera er
hreinlega að skipuleggja störfin á
spítölunum upp á nýtt,“ sagði
Þorvaldur Veigar Guðmundsson,
formaður læknaráðs Landspítal-
ans við Þjóðviljann.
Nú blasir við mikil fækkun að-
stoðarlækna og fyrirsjáanlegt er
að um 30 nýútskrifaðir læknar
komi til starfa á ári sem aðstoð-
arlæknar, sem er nær helmings
fækkun frá því sem verið hefur.
Samstarfsnefndin skipaði í vet-
ur undirnefnd sem í situr einn
fulltrúi frá hverjum spítala og er
hlutverk hennar að ræða hvernig
á að bregðast við þessum vanda.
Undirnefndin gerir ráð fyrir að
skila tillögum í lok þessa mánað-
ar.
Læknaráðin, aðstoðarlæknar
og aðstoðarlandlæknir hafa kom-
ið saman og rætt þetta mál. „Það
hefur ýmislegt verið nefnt. T.d.
má færa hluta af pappírsvinnu
kandidata yfir á annað starfs-
fólk,“ sagði Þorvaldur. „Það er
mikið talað um að koma á fót
upphafi framhaldsmenntunar í
fleiri sérgreinum hér á landi. Þá
myndu menn staldra lengur við á
íslandi. í þriðja lagi verður að
endurskipuleggja stöðubyggingu
spítalanna. Það myndi þýða að
vinna aðstoðarlækna myndi fær-
ast að hluta á ungu sérfræðing-
ana.“
-vd.
Sjávarútvegsráðuneytið
Um eldi sjávardýra
Á undanförnum árum hefur
orðið mikil framför í rannsókn-
um og í eldi á ýmsum sjávardýr-
um. INoregi hafa t.d. farið fram
miklar rannsóknir á eldi kald-
sjávartegunda eins og lúðu,
þorsks og steinbíts. Spurningar
hafa m.a. vaknað um það hvort
slíkt eldi muni í vaxandi mæli
keppa við hefðbundnar veiðar.
íslendingar hafa reynt að fylgjast
náið með framþróuninni erlendis
og jafnframt hafa fyrstu skrefin í
eldi sjávardýra verið stigin hjá
Hafrannsóknastofnun við
Grindavík og hjá Fiskeldi Eyjafj-
arðar. Með hliðsjón af þeim erf-
iðleikum sem laxeldi gengur nú í
gegnum hafa augu manna í vax-
andi mæli beinst að nýjuin teg-
undum. í því sambandi verður
traust þekking að liggja til grund-
vallar meiriháttar fjárfestinga.
Þess vegna er aðkallandi að ís-
lendingar marki stefnu og sérs-
taka rannsóknaáætlun fyrir eldi
sjávardýra. Á ráðstefnunni munu
þrír Norðmenn flytja erindi um
rannsóknir og eldi á sjávardýr-
um. Einnig verða flutt erindi um
hvert stefni í íslenskum rann-
sóknum og möguleika okkar á að
nýta jarðvarma til eldis á hlýsjá-
vartegundum. Þá verða einnig
sérstök erindi um sjúkdóma og
markaðsmál. Megininntak ráð-
stefnunnar verður framtíðar-
möguleikar íslendinga á arðvæn-
legu eldi sjávardýra.
Ráðstefnan verður haldin á
Hótel KEA, Akureyri, dagana
16. og 17. október n.k. Þátttaka
tilkynnist á Hafrannsóknastofn-
un í síma 91-20240 fyrir 5. októ-
ber n.k. Ráðstefnan er öllum
opin og eru allir áhugamenn um
eldi sjávardýra á íslandi hvattir til
þess að taka þátt í henni.
(Fréttatilkynning)
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Steingrímur Sigfússon,
Ragnar Arnalds og
Gunnlaugur Júlíusson
mæta á almennum opnum fundi á Húnavöllum, sunnudaginn 7.
október n.k. Fundurinn hefst kl. 15.00.
Hvað líður gerð búvörusamnings? Verður landinu skipt í
framleiðslusvæði - eða miðað við landkosti hverrar jarðar? A að
leyfa sölu fullvirðisréttar? Hver verða áhrif nýs álvers á Reykjan-
esi á byggðaþróun? Er hætta á að opnað verði fyrir innflutning
landbúnaðarvara? Eru blikur á lofti í efnahagsmálum? Eða bjart-
ari tíð framundan?
Alþýðubandalagið
Steingrímur Sigfússon,
Ragnar Arnalds og
Gunnlaugur Júlíusson
mæta á almennum opnum fundi i Ásbyrgi, Laugarbakka sunnu-
daginn 7. október n.k.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Hvað líður gerð búvörusamnings? Verður landinu skipt í fram-
leiðslusvæði - eða miðað við landkosti hverrar jarðar? A að leyfa
sölu fullvirðisréttar? Hver verða áhrif nýs álvers á Reykjanesi á
byggðaþróun? Er hætta á að opnað verði fyrir innflutning land-
búnaðarvara? Eru blikur á lofti í efnahagsmálum? Eða bjartari tíð
framundan?
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opið hús
í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 29. september milli kl. 10
og 12. Elsa Þorkelsdóttir bæjarfulltrúi og Eggert Gautur, fulltrúi
ABK í skólanefnd, verða með heitt kaffi á könnunni.
Allir velkomnir.
Djúpivogur -
almennur fundur
Opinn fundur með Hjörleifi Guttormssyni
alþingismanni, Hótel Framtíð, föstudagsk-
völdið 28. september kl. 20.30.
Rætt um heimamál og stjórnmálahorfur við
upphaf Alþingis.
Allir velkomnir
Alþýðubandalagið
Stjórn ABK
Hjörleifur
Félagsfundir hjá
Alþýðubandalagsfélögum á Austurlandi
Djúpivogur: Hótel Framtíð: Félagsfundur í Alþýðubandalagsfé-
lagi Djúpavogs og nágrennis, föstudagskvöld 28. september,
að loknum almennum fundi.
Höfn, Miðgarði: Félagsfundur í Alþýðubandalagsfélagi Austur-
Skaftafellssýslu, laugardaginn 29. september kl.13.30.
Á fundunum verða m.a. kosnir fuiltrúar í kjördæmisráð.
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður kemur á fundina.
Félagar fjölmennið.
Stjórnir AB-félaganna
Alþýðubandalagið Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Keflavíkur og Njarðvíkur
verður haldinn laugardaginn 6. október nk. í Iðnsveinahúsinu
Keflavík og hefst kl. 15.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Stjórnarkjör.
3. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs AB í Reykjanes-
kjördæmi.
4. Ónnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Margrét
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Félagsfundur
Félagsfundur Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður
haldinn fimmtudaginn 4. október kl. 20.30.
Fundarefni:
Staðan í stjórnmálunum.
Margrét Frímannsdóttir og Ragnar Arnalds mæta á fundinn.
Stjórnin
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalags Selfoss og nágrennis verður hald-
inn miðvikudaginn 3. október að Kirkjuvegi 7 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Margrét Frímannsdóttir mætir á fundinn.
Stjórnin