Þjóðviljinn - 26.10.1990, Page 17

Þjóðviljinn - 26.10.1990, Page 17
Þegar íþróttastjarna er alveg búin að vera... Þegar íþróttastjörnur eru hættar að vinna frækilega sigra fyrirföðurlandið eða firmað sem rekur þær í auglýs- ingaskyni, þá finnst mörgum sem þeir hafi alla fótfestu misst í tilver- unni. Margir verða að enn einu „fé- lagslega vandamálinu". í samantekt í Spiegel um þessi efhi seg- ir fyrst frá hollenskum atvinnumanni í hjól- reiðum. Hann var handtekinn fyrir að geys- ast um á miklum steypubíl sem hann hafði stolið, og á fögreglustöðinni játaði hann á sig slatta af innbrotum um leið. Maður þessi, Johan van der Velde, afsakaði sig með því, að hann hefði fundið hjá sér þörf fyrir spennu og áhættu og ævintýri sem ekki fékk útrás eftir að hann gat ekiki leng- ur keppt með árangri. Hægur leikur er að tína saman ótal hlið- stæðar sögur. Þegar ferli íþróttastjömu er lokið, reynist þetta frægðarfólk furðu hjálparvana og úti að aka í heiminum. Fer hér margt saman: Iþróttamenn hafa oft ekki þurft að hugsa hið minnsta um venjulega praktíska hluti, sem skella svo á þeim með miklum þunga um leið og vemdinni lýkur. Um leið og sá frægð- arljómi sem hélt þeim á floti er ekki lengur til staðar. Hver man sigurvegarann frá því í gær? Hvar skal nú snjórinn frá liðnum vetri? Það tekst ekki einu sinni lengur að byrja nýtt líf með því t.d. að selja íþrótta- vaming. Enginn fer að kaupa neitt af þér út á það að einu sinni varst þú manna fljótast- ur að hlaupa, segir afdankaður þýskur spretthlaupari. Afleiðingin er svo sú, að allt að því helmingur íþróttagarpa á við verulega að- lögunarerfiðleika að striða. Og kemur það, Van der Velde á mektardögum sfnum: Ég vildi áfram fútt í tilveruna... sem fyrr segir, m.a. ffarn í því, að furðu margir lenda í kasti við lögin fyrir líkams- meiðingar, innbrot, citurlyfjastúss og fleira því Hkt. Og harðnandi samkeppni gerir líf- ið jafnt og þétt enn erfiðara fyrir þá sem heltast úr lestinni á hinni löngu göngu til gullverðlaunanna. í meöferö Hollendingar, sem em mjög félagslega sinnaðir, hafa bmgðist við þessum vanda með því að skipuleggja félagslega og sál- fræðilega aðstoð fyrir þá íþróttamenn sem komast ekki alminnilega niður á jörðina. Þjóðveijar og fleiri era nú að kynna sér ár- angurinn og hvort þeir eigi að fara að hol- lenskri fyrirmynd. Og sannast hér enn, að margur er lífsháskinn og að seint mtm skortur verða á félagslegum vandamálum. áb byggði á Spiegel NUERAÐ HITTAA Efþú hittirfœrðu milljónir Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. SAMEINAÐA/SÍA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.