Þjóðviljinn - 29.12.1990, Qupperneq 28
Bálkestir
munu
loga glatt
á gamlárs-
kvöld
Áramótabrennur verða á
gamlárskvöld í velflestum
kaupstöðum og kauptúnum
landsins og víst er að ungir sem
aidnir hlakka til þegar tendrað
verður í bálköstunum og gamla
árið verður kvatt með viðeig-
andi hætti.
Að venju verða bálkestimir
flestir í Reykjavík.
Þegar hefur verið tilkynnt um
níu brennur í borginni. Þær verða
á eftirtöldum stöðum: Faxa-
skjól/Ægisíða, á sjávarkambi neð-
an Fossvogskirkjugarðs, sunnan
við Fylkisvöllinn, sunnan Árbæj-
arskóía, upp af Leirubakka, aust-
an við Gufúnesveg á móti ösku-
haugunum, við Skildinganes, I
Laugardal fyrir neðan Laugarás-
veg og í Vatnsmýrinni.
Á Seltjamamesi hefur verið
tilkynnt um einn bálköst, á Val-
húsahæð.
1 Mosfellssveit verða tvær
brennur: Við Hafravatnsveg ofan
Reykholts og sunnan Teigahverf-
is.
I Kópavogi verður bálköstur
yst á Kársnesi, í Vatnsendahverfi
og við Kópavogshæli.
I Garðabæ verður ein brenna, í
Krókamýri.
I Bessastaðahreppi verður
brenna á sjávarbakkanum í Gests-
húsalandi.
1 Hafnarfirði verður ein
brenna, við Reykjanesbraut ofan
Hvammabrautar.
Á Suðumesjum verða nokkrar
brennur. I Keflavík hefur verið
veitt leyfí fyrir þijár brennur, á
Iðavöllum, ofan Bragavalla og
við Heiðargil.
Þá verða einnig brennur í
Innri-Njarðvík, í Garðinum, Vog-
um og í Höfnum.
Akumesingar verða ekki með
bálköst á garniárskvöld - þeir bíða
þrettándans og brenna þá jólin út.
Á norðanverðum Vestfjörðum
verða brennur í Súðavík, Suður-
eyri, Flateyri og á Þingeyri.
Þá verða tveir bálkestir tendr-
aðir á Isafirði á gamlárskvöld.
Sömu sögu er að segja frá Ak-
ureyri og Vestmannaeyjum.
Brennumar á Akureyri verða
við afleggjarann upp að Skíða-
skálanum og á Bárufellsklöppum
í Glerárþorpi.
I Vestmannaeyjum verður
önnur brennan rétt ofan Hásteins-
vallar í Skriðu. Hin verður í Nýja
Hrauni.
Á Neskaupstað verða þijár
brennur, ofan við Vitann, við
vesturendann á Urðarteig og ofan
við Marbakka.
STAÐGREIÐSLA
Skatthlutfall
og persónuafsláttur
árið 1991
Áríðandi er að launagreiðendur kynni sér
rétt skatthlutfall og skattafslátt 1991
Þrátt fyrir breytingar á almennu skatt-
hlutfalli og persónuafslætti verða ný
skattkort ekki gefin út til þeirra sem
þegar hafa fengið skattkort.
Frá og með 1. janúar 1991 ber launa-
greiðanda því að reikna staðgreiðslu af
launum miðað við auglýst skatthlutfall
og upphæð persónuafsláttar og taka
tillit til þess hlutfalls persónuafsláttar
sem tilgreint er á skattkorti launamanns.
Ný skattkort sem gilda fyrir árið 1991
verða einungis gefin út til þeirra sem
öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Á þeim
verður aðeins tilgreint hlutfall persónu-
afsláttarauk persónubundinna upplýs-
inga um launamanninn en skatthlutfall
og upphæð persónuafsláttar kemur þar
ekki fram.
Frá og með 1. janúar 1991 eru fallin úr
gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort
með uppsöfnuðum persónuafslætti og
námsmannaskattkort útgefin 1988-1990.
Skatthlutfall
staðgreiðslu er 39,79%
Áárinu 1991 verður skatthlutfall
staðgreiðslu 39.79%. Skatthlutfall
barna, þ.e. sem fædd eru 1976 eða
síðar, verður 6%.
Persónuafsláttur
er22.831 kr.
Persónuafsláttur ársins 1991 hefurverið
ákveðinn 273.969 kr. Mánaðarlegur
persónuafsláttur verður þá 22.831 kr.
Sjómannaafsláttur
er 630 kr.
Sjómannaafsláttur ársins 1991 verður
630 kr. fyrir hvern dag sem maður telst
stunda sjómannsstörf.
Breytingar síðar á árinu
Breytingar sem kunna að verða á upp-
hæð persónu- og sjómannaafsláttar
síðar á þessu ári verða auglýstar sér-
staklega. Auk þess fá allir launagreið-
endur sem hafa tilkynnt sig til launa-
greiðendaskrár RSK orðsendingu um
breytingar á fjárhæðum.
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
HVlTA HÚSIO / SÍA