Þjóðviljinn - 01.02.1991, Blaðsíða 2
Fótfimar dansmeyjar
Áður en danssýning er fullbúin
þurfa dansarar að leggja á sig
margt erfiðið, þrotlausar æfingar
sem taka jafnt á likama og sál.
Jim Smart brá Ijósauganu nýverið
upp á æfingu hjá íslenska
dansflokknum. Myndir: Jim Smart
•GARÐINUM
MILLI MANNS
OG HESTS
OG HUNDS
Fólki finnst eðlilegt að sækja
námskeið í meðferð og umönn-
un hunda, en því fmnst ekki
sjálfsagt og eðlilegt að undirbúia
hjónabandið með sama skiln-
ingi.
Morgunblaóió
ALLT ANNAR
RASS
„Það er sami rassinn undir
þeim öllum“ er stundum sagt um
stjómmálamenn. Alþýðublaðið
rekur í leiðaranum helstu sér-
kenni jafnaðarstefnunnar sem
skilja hana frá öðrum stjóm-
málahreyfingum.
Alþýóublaöió
ÁR ANGURSRÍ K
BARÁTTA GEGN
ATVINNULEYSI
Fjölmennasta atvinnustétt
þjóðarinnar er maðurinn sem
talar í síma.
Alþýóublaöiö
ÚR ÖSKUNNI í
ELDINN
Gunnar sagði að leikritið
fjallaði um píslargöngu Rakelar
Fitzsimmons í gegnum lífið, allt
frá leigumorðingjum og jóla-
sveinum til sálfræðinga og sjón-
varpsmanna.
Morgunblaöiö
GUÐ AGAR
ÞÁ SEM HANN
ELSKAR
Vatnsleysið i Hafnarfirði:
Það er verið að reyna í okkur
þolrifin, segir Albert Valdimars-
son, íbúi í Hafnarfirði.
DV
UPPHAF MANNÚÐ-
ARSTEFNU
704 starfsmenn vega meira
en 60.000.000 kg af tækjum og
búnaði.
Auglýsing
frá Eimskip
SKELFILEGUR
SKORTURÁ
LÍFSHÁSKA
Enda em þeir (íslenskir sjón-
varpsmenn) því vanastir að
komast í starfl sínu ekki nær
dauðanum en að leiða mann eins
og framkvæmdastjóra LÍÚ ber-
höfðaðan niður að höfh í tíu
stiga ffosti til að spyija hann um
fiskprísa.
Tíminn
ÞVÍ ÞÁ TEKUR
ENSKAN VIÐ
Flestir íslendingar halda
ekki íslenskunni við eftir ffam-
haldsskóla.
Morgunblaöiö
2.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. febrúar 1991