Þjóðviljinn - 01.02.1991, Page 6
Allah
með oss
Sumra ætlan er að Saddam, sem hingað til hef-
ur ekki verið talinn trúmaður mikill, líti nú í
fullri alvöru á sig sem trúarleiðtoga er eigi með
fulltingi Allah sigur vísan
eginatriði hjá Saddam Ir-
aksforseta er að breyta
Persaflóastríði í „heilagt stríð“
múslíma um allan heim gegn
„síonisma (gyðingdómi)" og
kristni og áróður hans í þá átt
hefur fundið talsverðan hljóm-
grunn meðal araba og múslíma
almennt.
Til að leggja áherslu á þetta
hefur íraksforseti látið sauma eitt
þekktasta trúar- og hyllingarákall
íslams, Allahu Akbar (Allah er
meiri (en allir aðrir)) í fána hers
síns.
Litli satan
Þessi trúarhiti Saddams hefur
komið ýmsum á óvart, einnig í ís-
lamslöndum. Saddam hefur frá
unga aldri verið í Baath-flokkn-
um, sem sótti margt til evrópskra
stjómmálahreyfinga (fijáls-
lyndra, sósíalista, fasista) og hef-
ur í samræmi við það talist ver-
aldlega sinnaður. Meginatriði í
stefnu þess flokks hefur verið ar-
abísk þjóðemishyggja, ekki ís-
lam, þótt þvi fari fjarri að hann
hafi vísað trúarbrögðum á bug.
Íransk-íraska stríðið 1980-88
Persaflóastríð
Heilagleiki
báðumegin
George Bush, Bandaríkjafor-
seti, skoraði í gær á landa sína að
gera næsta sunnudag, 3. febr., að
bænadegi alþjóðar. „Hvet ég allt
trúað fólk til að biðja sérstaka bæn
þann dag,“ sagði forsetinn.
Mæltist Bush til þess að beðið
yrði fyrir friði, fyrir öryggi banda-
rískra hermanna í Persaflóastríði,
fyrir fjölskyldum hermannanna,
fýrir „saklausu fólki sem verður
fyrir barðinu á ófriði þessum og
fýrir því að Guð blessi áfram
Bandaríki Ameríku.“
í Riyadh, höfuðborg Saúdi-Ar-
abíu, lýsti Abdelaziz Bin Abdullah
Bin Baz, æðsti klerkur múslíma
þess alíslamska ríkis, því yfir að
stríðið gegn Saddam Hussein, Ir-
aksforseta, væri heilagt íslamskt
stríð, sem allir múslímar væm
skyldugir að taka þátt í, enda væri
Saddam óvinur Allah.
í Tyrklandi kvað Said Yaz-
icioglu, forstöðumaður trúmála-
ráðuneytis stjómarinnar þar, upp
þann úrskurð að yfirlýsing Sadd-
ams um að Persaflóastríð væri
heilagt stríð gegn Vesturlöndum
væri gildislaus, enda væri þetta
ekki stríð á milli kristinna manna
og múslíma, heldur háð til þess að
koma í veg fyrir að eitt ríki kúgaði
annað.
varð í samræmi við þetta að vem-
lega leyti glíma íslamskrar bók-
stafstrúar og arabískrar þjóðemis-
hyggju. Iranskierkar undir fomstu
Khomeinis lýstu stríð sitt heilagt
og íslamskt og kölluðu Saddam
„litla satan“ (titillinn „stóri satan“
var frátekinn handa Bandaríkjun-
um). Byltingarvarðliðar írans
æddu beint á jarðsprengjubelti og
virkjalínur íraka í þeirri íslömsku
trú að með því að deyja í heilögu
stríði kæmust þeir beint af víg-
vellinum til paradísar. (Þeir sem
deyja í íslam án þess að nokkur
sérstakur heilagleiki sé því sam-
fara verða hinsvegar að bíða
dómsdags til að fá úr því skorið,
hvort þeir séu verðugir paradisar-
vistar.)
Þjóðernishyggja
og íslam
I því stríði stóð íraksstjóm að
vísu fast á því að hennar ríki væri
réttilega íslamskt, en áróður
Saddams þá fyrir heimamarkað
og með araba yfirleitt í huga var
þó öllu fremur í anda arabískrar
þjóðemishyggju. Var mikið gert
að því að minna á fyrri tíða stríð
milli araba og Írana/Persa, ekki
síst þá heimssögulegu atburði á
sjöundu öld er Persaveldi Sassan-
ída hmndi fyrir áhlaupi araba.
Heilagleiki stríðs þessa af ír-
ana hálfu dugði þeim ekki til sig-
urs í því, en Saddam hefur eigi að
síður tekið sama ráð í núverandi
flóastríði. Enda stendur hann í því
að ýmsu leyti betur að vígi en
Khomeini þegar þeir áttust við.
Það var stríð milli tveggja ís-
lamskra ríkja en aðalandstæðing-
ar Saddams nú em kristnir. Sadd-
am slær þar að auki í áróðri sínum
saman íslam og arabískri þjóðem-
ishyggju og á heldur gott með
það. Hjá aröbum varð íslam til og
tunga þeirra trúarbragða er enn
fyrst og fremst arabíska. Arabísk
þjóðemishyggja og íslam hafa þvi
alltaf verið að talsverðu leyti
samofin.
Khomeini var
Persi
Bókstafnum samkvæmt er al-
þjóðahyggja hinsvegar regla í ís-
lam og þjóðemishyggja sem slík
því ekki vel séð þar. Uppreisn
klerkanna í Iran gegn keisaranum
þar var ásamt með öðm atlaga
gegn íransk-persneskri þjóðemis-
hyggju, sem þeir Pahlavi-feðgar
efldu þarlendis að fyrirmyndum
frá Evrópu og Tyrklandi Atatiirks.
En þrátt fyrir allan trúarhita
Khomeinis gamla komst hann
ekki framhjá þeirri staðreynd að
hann var Persi. Og hversu mjög
sem hann reyndi að gera stríð sitt
við írak að alþjóðlegri atlögu ís-
lams gegn þeim lítiltrúaða verald-
arhyggjumanni er hann sagði
Saddam vera,
hlýddu flest araba-
ríkin opinskátt kalli
arabíslaar þjóðem-
Dagur
Þorleifsson
Eitt fómarlamba olíubrákarinnar á Persaflóa - öllum vopnum beitt „með
guðs hjálp."
ishyggju og studdu írak í þeim
ófriði.
Sagt er að Saddam hafi lengst
af ævinnar ekki verið trúmaður
mikill, í samræmi við aðild sína
að Baath-flokknum. Meira að
segja er hermt að hann hafi nennt
misjafnt að hafa fyrir því að láta
sjá sig við bænahald í moskum.
En sumra álit er að Persaflóadeila
hafi gert hann að öðrum manni í
trúarefnum.
Nú skyldi ég
hlæja ■■■
Útlendir framámenn sem hafa
hitt hann síðustu vikumar fúrða
sig á stillingu hans og sigurvissu
gagnvart feiknaöflugum and-
stæðingum. Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, lét að því liggja að
þetta væru merki um sturlun og
svipað hugsa fleiri. En þeir era
líka til sem halda því ffarn að ír-
aksforseti sé í fullri einlægni far-
inn að líta á sig sem trúarleiðtoga
alls arabaheims og íslams og að
hann sé í raun orðinn fúllviss um
að Allah muni færa honum sigur
að lokum. Saddam væri þá ekki
fyrsti áróðursmaðurinn sem tekist
hefði að heilaþvo sjálfan sig.
Orðalagið og tónninn í yfir-
lýsingum hans og hvatningum
síðustu vikur hefúr í vaxandi
mæli þótt minna á erkióvin hans
sem einu sinni var, Khomeini
erkiklerk af íran. Ef Khomeini
karl, hvar sem hann er nú, hefur
hafl aðstöðu til að íylgjast með
gangi mála í yfirstandandi Persa-
flóadeilu, er ekki ólíklegt að hon-
um hafi orðið að orði: Nú skyldi
ég hlæja væri ég ekki dauður.
Palestínumenn I Jórdanlu fagna
eldflaugaárásum (raka á Israel -
viðleitni Saddams að breyta
Persaflóastríði í arabískt- ís-
lamskt stríð gegn gyðingum og
kristnum mönnum hefur fundið
hljómgrunn.
Júgóslavía
Króatar
ganga af
neyðar-
fundi
Króatiska stjórnin hefur
neitað að verða við tOskipun
dómstóls á vegum júgóslavneska
hersins um að handtaka varnar-
málaráðherra sinn, Martin
Spegelj, sem herinn segir hafa
bruggað háttsettum herforingj-
um banaráð. í gær gengu leið-
togar Króatíu af fundi með for-
sætisráði Jugóslavíu og yflr-
mönnum hersins.
Til fundarins hafði verið boðað
í skyndi til að fyrirbyggja meiri-
háttar vopnuð átök milli Króata og
hersins, sem margir telja að séu yf-
irvofandi eftir birtingu handtöku-
skipunarinnar á hendur Spegelj.
Franjo Tudjman, forseti Króatíu,
kvað fúlltrúa lýðveldisins hafa
gengið af áminnstum fúndi, sem
haldinn var í Belgrad, vegna þess
að sýnt hefði verið að hann yrði
ekki til neins.
í bráðina er deilan einkum
milli Króatíustjómar og hersins,
sem haft hefur sig mjög í ffammi í
stjómmálum undanfarið og reynt
að knýja Króata og Slóvena til að
láta af kröfúm sínum um víðtæka
sjálfstjóm. Lýðveldi þessi tvö, þar
sem kommúnistar misstu völd í
kosningum s.l. ár, vilja að Júgó-
slavíu verði breytt í bandalag fúll-
valda ríkja. Serbía, þar sem (fyrr-
verandi) komm,' •''stafiokkur
stjómar enn, vill að Júgóslavía hafi
áffam sterka miðstjóm og á sama
máli er herinn, þar sem Serbar ráða
mestu.
6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. febrúar 1991