Þjóðviljinn - 01.02.1991, Síða 28

Þjóðviljinn - 01.02.1991, Síða 28
Kauptu ný spariskírteini með skiptiuppbót Nú býðst þér skiptiuppbót á nýjum spariskírteinum í stað spariskírteina í 1 .fl.D 1988, sem eru á lokagjalddaga 1. febrúar. Innlausnarverð þessa flokks er kr. 20.109,80 fyrir hvert 10.000 kr. skírteini. Til að fá skiptiuppbót á nýjum spariskírteinum þarftu einungis að kaupa ný spariskírteini um leið og þú innleysir þau gömlu og þá færðu nýju skírteinin með 6,6% raunvöxtum, eða 0,6% hærri raunvöxtum en bjóðast í almennri sölu. Lánstími skírteinanna er 5 eða 10 ár að eigin vali. Þú færð ný spariskírteini með skiptiuppbót í Seðlabanka íslands og Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa. Til þæginda fyrir þig getur þú hringt fyrst og pantað nýju skírteinin. Þetta tilboð gildir aðeins til 22. febrúar. Njóttu öryggisins áfram og tryggðu þér ný spariskírteini með skiptiuppbót sem fyrst. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Kalkofnsvegi 1,150 Reykjavík Sími 91-69 96 00 Hverfisgötu 6,2. hæð, 101 Reykjavík Sími 91-62 60 40

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.