Þjóðviljinn - 11.05.1991, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 11.05.1991, Qupperneq 4
Líkamsleikhús Þjófurinn - fyrsta tilraun Unnið úr hughrifum af verkum Jean Genet Lítill leikhópur áhugafólks réð fyrir nokkru til sín tvo leiðbeinendur, þau Árna Pét- ur Guðjónsson leikara og Sylviu von Kospoth danshöf- und, og lásu saman þrjú verk eftir Jean Genet. Síðan var unnið úr hughrifum þeim sem hópurinn og einstakling- ar innan hans urðu fyrir af verkunum. Eftir helgi ætla þau að sýna verk sitt í Kram- húsinu. Þjófurinn, fyrsta til- raun, nefnir hópurinn verkið. Málfríður Gísladóttir, ein úr hópnum, sagði þau hafa soðið verkið saman úr hughrifum þriggja verka Genet, Þjóínum, Svölunum og Vinnukonunum. Genet hélt því fram að í skítnum blómstraði rósin. Hann sagði menn verða að leita að sannri ást og sönnu hatri í göturæsinu. Grunntilfinningin i verkinu, sagði Málfríður, er ást og hatur. Inn í það fléttum við hreyfing- um og tónlist, ekki hreyfingum sem okkur hafa verið kenndar, heldur miðar hver og einn hreyfingamar út frá sjálfum sér. Þetta er mjög sjónræn sýning. Við emm ekki að reyna að sýna eitthvað eitt sérstakt, heldur að benda á að við emm öll ólík og skynjum hlutina á mismunandi vegu. Við höfum lagt öllum hefðum leikhússins fyrir róða, spjótunum er beint að einstak- lingunum, og vonandi tekst okkur að snerta áhorfendur, það kemur í Ijós. Hópurinn varð til eftir nám- skeið í Kramhúsinu fyrir ári. Þá setti hann upp sýningu til að sýna afrakstur námskeiðsins. Eftir það fengu meðlimir hans styrk frá menntamálaráðuneyt- inu til að koma þeirri sýningu á laggimar sem lítur dagsins ljós eftir helgi. Þá hefúr hópnum verið boðið á leiklistarhátíð i Danmörku í sumar. Málffíður sagði að þá yrði um að ræða Þjófinn, aðra tilraun. Meðlimir hópsins em á aldrinum 19 til 35 ára úr flestum starfsstéttum. Sýningamar í Kramhúsinu verða mánudag, þriðjudag og fimmtudag kl. 21, og er miða- verð 500 krónur. BE G ATN AMÁLAST JÓRIN N í REYKJAVÍK Tilkynning frá Gatnamálastjóra um hreinsunar- daga í hverfum Reykjavíkur. Hverfi 2 og 3. - Vesturbær, Miðbær og Aust- urbær að Kringlumýrarbraut, laugardagur 11. maí. Hverfi 4. - Laugarnes, Langholt, Bústaða- hverfi, Fossvogur og Blesugróf, laugardagur 18. maí. Hverfi 5 og 6. - Breiðholt og Seljahverfi, Ár- bær, Selás og Grafarvogur, laugardagur 25. maí. Ruslapokar verða afhentir á hverfastöðum. Safnað verður saman pokum og rusli sem er á aðgengilegum stöðum. Borgarbúar eru hvattir til að nota sér þessa þjón- ustu. Þjófurinn, fyrsta tilraun, kallast verk það sem hópur áhugaleikfólks sýnir ( Kramhúsinu eftir helgi. Á myndinni eru þau Sverrir Stephensen og Ásta S. Ólafsdóttir á æfingu á Þjófnum. Mynd: Jim Smart. Óratórían Páll postuli (Paulus) op. 36 eftir Felix Mendelssohn - Bartholdy verður frumfiutt á Islandi í Hallgríms- kirkju föstudaginn 24. maí kl. 20:00. Mendelssohn var af gyðingaættum en játaði kristna trú af mikilli alvöru. I Paulus fjallar hann m.a. um trúskipti Sáls frá Tarsus og er verkið „óslitin keðj, fagurra hluta“ enda fór það sigurför um alla Evrópu fyrir einni og hálfri öld. Flytjendur: Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Alina Dubik mezzósópran, Frieder Lang tenór og Andreas Schmidt barítón, Mótettukór Ilallgrímskirkju og Sinfóníuhljómsveit Islands. Konsert- meistari er Andrzej Kleina. Stjórnandi er Hörður Askelsson. Forkynning a Páli postula Við guðsþjónustu í Hallgrímskirkju sunnu- daginn 12. maí verða sungin kunn sálma- lög sem Mendelssohn notar í óratóríunni Páli postula. Að messu lokinni talar Hörður Áskelsson um verkið og skýrir það með aðstoð Mótettukórsins. Gatnamálastjórinn í Reykjavík Miðasala í Hallgrímskirkju. Upplýsingar í síma 11416, 11417, 11418. HVÍTA HÚSID / SÍA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.