Þjóðviljinn - 11.05.1991, Síða 9

Þjóðviljinn - 11.05.1991, Síða 9
HELGARUMRÆÐAN Áætlunin á að varpa Ijósi á vandamál sem bíða úrlausnar í skólakerfinu og beina athyglinni að ákveðnum forgangsverkefnum sem leysa þarfá síðasta áratug 20. aldar. Kæri menn sig um getur stefnan einnig verið rökstuðningur fyrir fjárlagatillögum þegar fjármunum er skipt á Alþingi. Fráfarandi menntamálaráðhera Svavar Gestsson afhenti nýskipuðum menntamálaráðherra Ólafi G. Einars- syni framkvæmdaáætlun menntamála- ráðuneytisins í skólamálum til ársins 2000 þegar Óiafur tók við iyklum að menntamálaráðuneytinu 30. apríl si. Áætlunin, sem hlotið hefur heitið Til nýrrar aldar, er um 200 síður og hefur að geyma lýsingu á stöðu mála á öllum skólastigum og áætlanir um þróun á ein- stökum sviðum á næstu árum. Stefna menntamálaráðherra á hveijum tíma mótast af lögum sem sett eru á Al- þingi og þeim áherslum sem hann vill setja á oddinn. Það er mikill styrkur fyrir nýjan ráðherra að fá slíka áætlun í hendur. Hann sér hvaða málum er verið að vinna að og getur þá tekið afstöðu til einstakra mála, samþykkt að halda áfram á sömu braut, breytt um áherslu og forgangsröðun eða tekið upp ný mál. Meðan ráðherra hefur ekki ákveðið að breyta um áherslur geta starfsmenn innan og utan ráðuneytis haldið áffam að vinna á þeirri braut sem mörkuð hefur verið. Það er síðan á valdi Alþingis á hverjum tíma að breyta heildarstefnu sem mörkuð er með lögum. Rökstuðningur ffyrir framkvæmda- áætluninni Það skiptir miklu máli að þeir sem vinna að skólamálum geri sér far um að sjá sem lengst fram í tímann eða eins og segir í inngangi ffamkvæmdaáætlunarinnar „Lífsafkoma þjóðarinnar byggist annars vegar á auðævum lands og sjávar og hins vegar á menntun þjóðarinnar og þekkingu. Nemendur sem nú eru í grunnskólum stíga sín fyrstu spor í atvinnulífinu og stofna Qölskyldur um og eftir aldamót. Þau böm sem um þessar mundir eru að heíja skóla- göngu á leikskólum koma á vinnumarkað- inn á öðrum áratugi næstu aldar." Ennfrem- ur segir: „Þessari langtímaáætlun um fram- kvæmd ýmissa þátta skólamála er ætlað að auðvelda öllum þeim sem vinna að menntamálum að sjá verkefni í samhengi, hvetja menn til að horfa fram í tímann og stuðla að meiri samfellu í starfsemi og þró- un þeirra mála sem unnið er að. Henni er jafnffamt ætlað að örva framsækna hugsun og stuðla að hagræðingu og samvinnu á sviði menntamála. Hún á að varpa ljósi á vandamál sem bíða úrlausnar í skólakerf- inu og beina athygfinni að ákveðnum for- gangsverkefnum sem leysa þarf á síðasta áratug 20. aldar. Þannig er á hveijum tíma ljóst hvert er stefnt en ekki teknar ákvarð- anir um einstaka þætti án samhengis við annað; meiri líkur eru á að málum verði fylgt eftir; auðveldara en ella að útskýra það sem gert er; menn vita betur hvar þeir standa og auðveldara er að andmæla stefh- unni eða lýsa sig fylgjandi henni.“ Kæri menn sig um getur stefnan einnig verið rökstuðningur fyrir fjárlagatillögum þegar Qármunum er skipt á alþingi. Undirbúningur að þessari áætlanagerð fór að mestu fram á árinu 1989 en þá stóð menntamálaráðuneytið m.a. fyrir víðtækri skoðanakönnun um helstu forgangsverk- efni í skólamálum næstu 10 árin, sendir voru spumingalistar til framhaldsskóla og háskóla, haldnir voru fundir víða um land þar sem fjallað var um þróun mála á öllum skólastigum eða einstök skólastig tekin fyrir sérstaklega og nefndir störfuðu um einstaka málaflokka. Vinna við áætlunina sjálfa hófst síðan i ráðuneytinu í byijun árs 1990 og henni lauk í febrúarlok 1991. Drög að áætluninni voru til umfjöllunar á menntamálaþingi sem ráðuneytið stóð fyr- ir í nóvember 1990. Um þrír tugir bréfa bárust með tillögum og athugasemdum við drögin og haldnir voru nokkrir fundir um einstaka þætti þeirra. Við áætlanagerðina var einnig tekið mið af niðurstöðum fjölda nefnda sem starfað hafa á vegum ráðuneyt- isins á undanfomum ámm, fyrirliggjandi frumvörpum og stefnuskrám kennarasam- taka og stjómmálaflokka, en megingrunnur hennar er að sjálfsögðu þau markmið sem sett em fram í fyrirliggjandi lögum og reglugerðum. Eins og segir í áætluninni „Það sem einkennir því þessa áætlun er að margs konar markmið sem sett hafa verið, áætlanir sem unnið hefur verið að og kann- anir sem gerðar hafa verið og snerta skóla- mál em hér tvinnaðar saman á einum stað, jafnffamt því sem farið hefur fram víðtæk umræða við fjölda aðila um áætlunina." Allra stuðningsgagna er getið i heimilda- skrá og ffernst í hverjum kafla er listi yfir útgáfur menntamálaráðuneytisins frá und- anfömum ámm. Aætlunin skiptist í átta kafla, auk inn- gangs og ávarps ráðherra. í viðauka er gerð grein fyrir kostnaði af framkvæmd hennar. 1 inngangi er áætlunin rökstudd, gerð grein fyrir undirbúningi og vinnu við hana, fjall- að um ytri aðstæður eins og fjölda nem- enda og kennara, samfélagsþróun, þróun efnahagsmála og fjárhagslcga getu, hefðir um skólahald, húsnæði o.fl. Fjögur meginmarkmið I fyrsta kafla er fjallað um meginmark- mið sem snerta öll skólastig. Sett em fram markmið um * jafnrétti allra til náms - menntun fyr- ir alla, allt lífið * lýðræði og skólastarf- valddreifingu og aukið sjálfstæði skóla * mat og rannsóknir á skólastarfi * tengsl skóla við umhverfi sitt - nátt- úm og mannlegt samfélag í alþjóðlegu ljósi. Eins og segir í áætluninni „valddreif- ing, mat og tengsl skólastarfs við alla þætti samfélagsins em leiðir til að stuðla að betri menntun. Góð menntun fyrir alla, allt líjið em því einkunnarorð þessarar áætlunar í skólamálum til ársins 2000“. Með menntun fyrir alla er átt við að fötlun, búseta, kynferði, þjóðemi eða bágur efnahagur hindri engan í námi og lögð áhersla á virka upplýsingamiðlun og leið- sögn með öflugri námsráðgjöf á öllum skólastigum. Sömuleiðis er lögð áhersla á að allir fái notið sín í námi og likamleg eða andleg líðan eða félagslegir erfiðleikar séu þar sem minnstur þrándur í götu. Því þurfi að skoða möguleika á samstarfi þeirra sem vinna margs konar fyrirbyggjandi starf og sinna sál- og heilsugæslu í heilbrigðiskerf- inu, sálfræðiþjónustu skóla og félagslegri þjónustu sveitarfélaga. Nátengd markmiðum um skóla fyrir alla em markmið um menntun allt lífið eða símenntun sem hefst í leikskóla og endar í fullorðinsffæðslu. „Allir þegnar þjóðfé- lagsins eiga ekki aðeins að hafa jafnan rétt á grunn- og ffamhaldsmenntun á yngri ár- um heldur einnig til fullorðinsfræðslu og endurmenntunar alla ævi svo hæfileikar hvers og eins fái notið sín og þeir fái tæki- færi til að virkja sköpunargáfu sína og hug- myndauðgi í bóklegu og verklegu námi.“ Með auknu sjálfstæði og dreifingu valds til fræðsluumdæma, skóla og skóla- nefnda er gengið út ffá því að starfið verði árangursríkara og þar með verði menntun- in betri og fjármagn sem lagt er í menntun nýtist betur. Lögð er áhersla á sjálfstæði grunnskóla, ffamhaldsskóla og háskóla t.d. um námsskipan, skólaþróun, mannaráðn- ingar og fjármál. Faglegt sjálfstæði leik- skóla hefur alltaf verið mikið og áhersla er lögð á að svo verði áffam. Aukinn hlutur foreldra er liður í valddreifingu. Mat og rannsóknir á skólastarfi hafa þann tilgang að hjálpa skólum að bæta menntun, bera kennsl á þróun og greina vandamál svo bregðast megi við þeim. Upplýsingaöflun, rannsóknir og þróunar- starf þarf að vera grunnur ákvarðana og stefnumótunar og breytingum og nýjung- um þarf að fylgja eftir með rannsóknum og mati. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist og taki þátt í atvinnulífinu í nánasta um- hverfi sínu með heimsóknum og dvöl á vinnustöðum og að nemendur í framhalds- námi á sem flestum námsbrautum hljóti þjálfun í atvinnulífmu til ákveðinna starfa sem byggi á samvinnu skóla og aðila í at- vinnulífinu. Einnig er lögð áhersla á að nemendur tengist menningarlífi, m.a. með því að iðka list og njóta hennar. Loks er áréttað að í skólakerfi allt ffá leikskóla sé lögð rækt við virðingu fyrir náttúrugæðum og rétti komandi kynslóða til jarðarinnar. Áhersluþættir ffrá leikskóla til fullorðinsfræðslu Kaflar tvö til sex fjalla um skólastigin fimm, leikskóla, grunnskóla, framhalds- skóla, haskóla og fullorðinsffæðslu. Sér- takur kafli er um menntun kennara og fóstra til að leggja áherslu á mikilvægi þessarar menntunar fyrir þróun skóla. Lokakaflinn er um menntamálaráðuneytið. Hver kafli hefst á almennum inngangi þar sem greint er frá stöðu mála á viðkom- andi skólastigi og er m.a. getið um nem- endafjölda, námsskipan, lög og reglugerð- ir. Síðan eru sett ffarn nokkur meginmark- mið um viðkomandi skólastig, markmiðið skilgreint og rökstutt og getið helstu skrefa sem stíga þarf til þess að ná markmiðinu. Leikskóli er menntastofnun I kafla um leikskólann er lögð áhersla á að staða leikskóla sem uppeldis- og menntastofnunar fyrir böm undir grunn- skólaaldri verði styrkt og stefnt að því að leikskólinn verði opinn öllum bömum á leikskólaaldri. Nám við hæffi í grunnskóla og framhaldsskóla I gmnnskólakaflanum er m.a. lögð áhersla á einsetinn, samfelldan skóla, lengri skóladag yngstu nemenda og skóla- máltíðir, stefnt verði að því að allir nem- endur eigi kost á námi við hæfi í skóla- hverfi sínu og nám í grannskóla sé skipu- lagt á forsendum allra nemenda. Sett era fram markmið um aukinn hlut lista, verk- menntagreina og skólaíþrótta og lögð áhersla á fjölbeytt námsgögn. Jafnffamt er fjallað um sjálfstæði skóla og skólaþróun og mat og eftirlit með skólastarfi. Framhaldsskólakaflinn hefur að geyma markmið um aukna fjölbreytni í námi þar sem segir að allir nemendur i ffamhalds- skólum eigi að eiga völ á fjölbreyttu bók- legu og verklegu námi sem höfðar til þeirra og þeir ráða við. Námið sé mislangt og tengist helstu sviðum atvinnu- og menn- ingarlífs á hveijum tíma. Allir eiga þannig kost á starfsmenntun, ýmist í framhalds- skóla eða háskóla. Einnig era sett fram markmið um samstarf skóla og atvinnulífs, listiðkun og umfjöllun um listir, námskrá og náms- og kennslugögn. Lögð er áhersla á framkvæði skóla, sérhæfingu þeirra og verkaskiptingu og mat og eftirlit með skólastaríi. Háskóli og fullorðins- fræðsla tekur við af framhaldsskóla I háskólakaflanum er lögð áhersla á mikilvægi þess að skilgreina háskólanám og mörk ffamhaldsskóla- og háskólastigs, samvinnu og verkaskiptingu milli skóla og sjálfstæði þeirra. I kafla um fullorðinsfræðslu era sett fram markmið um upplýsingamiðlun um fullorðinsffæðslu, leiðsögn og ráðgjöf á þessu sviði. Lagt er til að stofnað verði fullorðinsffæðsluráð og menntunarsjóður fullorðinna. Á sviði kennara- og fóstramenntunar era sett ffam markmið um menntun fyrir starfsfólk skóla á öllum helstu sviðum skólakerfisins, kennara- og fóstrumenntun fyrir fólk búsett víðs vegar um landið og endurmenntun uppeldisstétta. Starfshættir menntamálaráðuneytisins era teknir fyrir í kafla um menntamála- ráðuneytið, sömuleiðis er m.a. fjallað um eflingu fræðsluskrifstofa, samráð um stefnumörkun og þróunarráð. Þegar hefur nokkram þáttum sem þama er mörkuð stefna um verið hrint i ffarn- kvæmd, þar ber hæst lög um leikskóla og grannskóla sem era grannur að mörgum öðram stefnumiðum. Til nýrrar aldar hefur verið send til allra skóla og annarra menntastofhana. Það er á valdi skólamanna sjálfra að nýta hana sem hjálpartæki í þró- un skólans telji þeir það æskilegt, en það ber að undirstrika að lokum að stefna sem þessi verður aldrei fullskrifuð, hana þarf stöðugt að endurskoða og aðlaga breyttum tímum og nýjum sjónarmiðum. Gerður G. Óskarsdóttir Höfundur var ráðu- nautur fym/erandi menntamálaráðherra um uppeldis- og skólamál. „Til nýrrar aldar“ markar leiðina Laugardagur 11, maí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.