Þjóðviljinn - 11.05.1991, Síða 12
Sól úr sorta
„Heimurinn
færði mér
óhamingju
í ár“
Rauði krossinn stendur nú
fyrir alheimsátaki til hjálpar
stríðshrjáðum undir yfirskrift-
inni „Sól úr sorta“. Helmingur
söfnunarijár mun renna til
Kúrda og helmingur til stríðs-
hrjáðra í Afganistan. Rauði
kross íslands hefur ákveðið að
verja þeim fjármunum sem hér
safnast til hjálpar fólki sem
hefur misst útiimi í Afganistan
°g byggja upp gervilimaverk-
stæði. Hildur Magnúsdóttir
hjúkrunarfræðingur er ný-
komin heim frá Kabúl þar sem
hún hjúkraði særðum börnum
á sjúkrahúsi Rauða krossins í
sex mánuði. „Ég er tilbúin að
fara út aftur en ég verð að fá
tíma til að safna orku og hvíla
mig. Maður er alveg búinn að
vera eftir hálft ár,“ segir hún.
Gleymdu stríöin
Árið 1988 vann Hildur á skurð-
sjúkrahúsi í búðum fyrir kambód-
íska flóttamenn í Thailandi í hálfl
ár. „Það geisa tugir gleymdra stríða
um allan heim. Eg held að fáir ís-
lendingar geri sér grein fyrir því að
það séu einhver slík vandamál í
Thailandi,“ segir Hildur. „Kamp-
útsea liggur að Thailandi og allt frá
árinu 1979 hefur legið stoðugur
straumur flóttamanna þaðan. 011
landamærin eru þakin flóttamanna-
búðum. í þeim eru að minnsta kosti
250-300.000 manns. Búðimar eru
allar lokaðar og margir þeirra sem
komu fyrstir fyrir ellefu árum eru
þar ennþá. Þama fæðast böm og al-
ast upp við ömurlegar aðstæður.
Skortur er á hreinlætisaðstöðu og
algengt er að lungnabólga, berklar
og niðurgangspestir heiji á fólkið.
Thailendingar vilja ekki opna land
sitt íyrir flóttamönnum og thai-
lenskir hermenn gæta þess að eng-
inn flýi úr búðunum."
Hildur vann á eina skurð-
sjúkrahúsinu á svæðinu og það tók
eingöngu við særðum. „Spítalinn
er úr bambus og heldur hvorki
vatni né sandroki. Vatn er flutt inn í
tankbílum en allur aðbúnaður og
vistir em mjög takmörkuð.“
Hildur kom heim frá Thailandi
um mitt ár 1988 og segir það hafa
tekið langan tíma að jafna sig aftur
eftirþessa lífsreynslu. „Það er jafn-
vel erfiðara að koma heim aftur en
fara út,“ segir hún. „Maður upplifir
svo mikið á þessum stutta tíma og
er klipptur út úr öllum aðstæðum
sem maður hefúr vanist. Það tekur
þvi langan tíma að melta þetta allt
þegar heim er komið.“
Eldflaugum
rignir daglega
yfir Kabúl
Hildur hikaði þó ekki þegar
hún var beðin um að fara til Afgan-
istan á síðasta ári. Þar vann hún á
bamadeild sjúkrahúss Rauða
krossins i Kabúl.
í Afganistan ríkir enn stöðugur
innanlandsófriður. Landið er
illa farið af eldflaugaárásum og
jarðsprengjum. Efnahagur er bág-
borinn og Afganir, sem telja 20
miljónir, eru nú ein af fátækustu
þjóðum heims. Meirihluti þjóðar-
Algengustu áverkarnir sem börn verða fyrir eru bruni og áverkar af völdum fiisa úr eldflaugum.
Mynd: Hildur
innar er ólæs og mikill skortur er á
fagfólki í öllum greinum atvinnu-
lífs. Heilbrigðisþjónusta er léleg og
stendur hinum fátæku ekki til boða.
Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur er nýkomin frá Kabúl: „Maður fyllist reiði þegar maður tekur á móti
sundurtættum og fótalausum bömum og spyr sjálfan sig: Af hverju, af hverju?" Mynd: Kristinn
Átta miljónir hafa flúið ófriðinn,
flestir til Pakistan.
Landið er íjalllent og harðbýlt.
Útflutningur, sem áður byggðist á
landbúnaði, er lítill. Vegir eru fáir
og hæltulegir vegna jarðsprengja
og hemaðar. Almenningur býr í illa
upphituðum leirhúsum eða kofúm
án rafmagns.
Stjómarherinn hefúr Kabúl og
nokkrar aðrar borgir á sínu valdi en
skæruliðar ráða rikjum á lands-
byggðinni og geta einangrað borg-
imar. „Vegimir em umsetnir af
báðum aðilum. Stjómarherinn
heldur einum vegarbút og skæm-
liðar öðmm bút þannig að fólk get-
ur ekkert farið og er kyrrsett þar
sem það er. Sundurleitir skæmliða-
hópar halda til í fjöllunum um-
hverfis borgina. Þeir láta eldflaug-
um rigna yfir borgina á hveijum
degi og stjómarherinn skýtur eld-
flaugum út. Tilviljun ræður hvar
flaugamar lenda og það má segja
að önnur hver bygging í borginni
sé í rústum.
Hreinlætisaðstaða er léleg og
sjúkdómar því algengir. Niður-
gangs- og ormapestir em landlægar
og fólk tekur þeim orðið eins og
sjálfsögðum hlut.
Stjómin rekur þó nokkra spít-
ala í borginni en það þarf að greiða
fyrir læknishjálp þar og það geta
hinir fátæku ekki. Okkar þjónusta
er ókeypis en það er ofl yfirfullt hjá
okkur þegar við vitum um rými
annars staðar.
Við sinnum einungis þeim sem
em særðir af völdum ófriðarins og
því er reynt að beina öðm fólki á
sín eigin sjúkrahús. Rauði krossinn
er eina hjálparstofnunin sem rekur
sjálfstætt sjúkrahús í Kabúl og hef-
ur þar 300 rúm en það er engan
veginn nóg. Á landsbyggðinni
starfa einnig nokkrar smærri hjálp-
arstofnanir auk Sameinuðu þjóð-
anna að öðmm verkefnum en
sjúkrahúsrekstri, t.d. að bæta hrein-
lætisaðstöðu, bólusetja böm, gefa
afgönskum sjúkrahúsum lyf og
fleira."
Brenndu börnin
lifa sjaldan af
„Algengast er að fólk særist á
fótum eftir jarðsprengjur eða eld-
flaugar. Fólk missir ofl fætur, ann-
an eða báða. Það er eitt gervilima-
verkstæði í Kabúl sem er rekið í
gamalli reiðhjólaverksmiðju og
það er ætlunin að veija því fé sem
safnast hér til að stækka hana og
byggja fleiri á landsbyggðinni. Ka-
búl er umsetin og fólk kemst ekki
út úr borginni. Á landsbyggðinni
em tugir þúsunda manna sem vant-
ar fætur.
Á bamadeildina var oflast
komið með böm með áverka um
allan líkamann eftir eldflaugaflísar.
Mörg þeirra fá höfuðáverka og það
em þau tilvik sem við eigum mjög
erfitt með að sinna.
Talsvert var einnig um að taka
þurfti fótlegg af bömum.
Sjá næstu slðu a
12.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ ‘ Laugardagur 11. maí 1991
'O i.i.
t'iT ,íí
i'jysb'if'gt't--1