Þjóðviljinn - 11.05.1991, Page 17
Sól úr Sorta
Þið vitið að stríðinu við Persaflóa
er lokið. Það er ekki lengur í fréttum.
Sennilega eru bæði foreldrar ykkar
og kennarar hættir að tala um það við
ykkur. Flestir eru fegnir að það varð
ekki lengra.
En af stríðinu hlaust mikið tjón. Nú
þarf að taka til eftir það. Það þarf að
ryðja í burtu rústunum. Það þarf að
byggja upp á nýtt það sem var eyði-
lagt. Það þarf að hjálpa þeim sem
urðu að flýja. Það þarf að gefa börn-
unum sem misstu heimili sín, heimili
á ný. Það þarf að hugga þau sem
misstu feður sína, eða mæður eða
aðra nákomna ættingja.
Það er hægt að hjálpa
Alþjóðleg samtök eins og Rauði
krossinn og Rauði hálfmáninn hafa
það hlutverk að hjálpa fólki, sem hef-
ur orðið fyrir miklu tjóni af völdum
stríðs eða náttúruhamfara. Og ein-
mitt þessa dagana eru þau að vekja
athygli á starfsemi sinni og safna
peningum til þess að kosta hjálpar-
starfið. Bæði rokkkonsertinn sem Óli
Helgi fór á og Ijölskylduhlaupið, sem
sum ykkar tóku þátt í, fóru fram til
þess að styðja við bakið á börnum,
sem þið hafið aldrei hitt og munuð
sennilega aldrei hitta. Þið vitið bara
að þau eru til. Og þið vitið að nú eiga
þau bágt.
Og þó að seint verði hægt að
hjálpa öllum börnum, sem eiga bágt,
þá er hægt að hjálpa sumum. Það er
hægt að gefa þeim nýja von um að
sólin komi aftur úr sortanum. Að
myrkrið sem helltist yfir þau, þegar
þau misstu land sitt eða heimili,
breytist aftur í bjartan dag.
Símasambandið
- Eyja, þetta er Öli Helgi.
- Sæll, elsku drengurinn
minn. Mikið er langt síðan ég
hef heyrt í þér.
- Eg er alltaf úti að leika
mér. Það er komið svo gott
veður.
- En skólinn er ekki búinn
enn. Þarftu ekki að læra fyrir
vorpróf?
- Jú, soldið. En ég verð
samt að fá að leika mér.
- Já, já! Auðvitað verða
börn að leika sér. En þau
ættu nú ekki að vera lengi úti
á kvöldin fyrr en skólinn er
búinn.
- Ég fékk að vera lengi úti
um daginn. Ég fór með
mömmu og pabba á rokk-
konsert Rauða krossins. Við
komum ekki heim fyrr en að
verða hálftólf. Fórst þú ekki?
- Ekki nema óbeint. Ég
var í heimsókn hjá vinkonu
minni í Þingholtunum og við
heyrðum óminn af honum allt
kvöldið.
- En ætlar þú að gefa í
söfnunina?
- Já, Óli minn. Ég held ég
verði að láta eitthvað af hendi
rakna. Þótt ekki sé til annars
en friða samviskuna.
- Pabbi segir líka, að
maður gefi bara til að friða
samviskuna. En mamma
segir að peningarnir hjálpi
fullt af fólki. Hjálpa þeir fólki?
- Já, Óli. Þeir hjálpa fólki.
Eitthvað svolitið hjálpa þeir
nú fólki. En mesta hjálpin
væri samt fólgin í því að setja
minni peninga í vopn og meiri
í að koma í veg fyrir stríð og
hungursneyðir.
- Af hverju er það ekki
gert?
- Það má nú kannski
segja, að það sé líka gert. Á
meðan veröldin logar ekki öll
í stríði. Og þó að manni finn-
ist stundum að mennirnir séu
alveg óttalega vondir og vit-
lausir, þá geta þeir líka verið
góðir og skynsamir. Menn
eru ýmist vinir eða óvinir.
- Gummi er vinur minn.
En helvítið hann Sísi er sko
ekki vinur okkar. Hann var að
reyna að spilla Ronju og
Öldu Sif í gær.
- Já, svona gengur þetta.
- En nú erum við að fara í
brennó. Bless.
Úr Ijóðabók barnanna
Daglegt líf í febrúar
Ég sit við giuggann
sem nötrarafofsa í
veðrinu.
Vindurinn er í ham
húsin fjúka út í loftið
þau tætast í sundur.
Ljósið er farið
það er dimmt
það er kalt.
En fólkið fauk ekki burt.
Þetta eru náttúruöfl segir
fullorðna fólkið.
Úti í heimi
eru líka hús að splundrast
af sprengjum og byssu
skotum.
Mennirnir eru I ham
mannslífin fjúka burt.
Þetta er stríð segir
fullorðna fólkið.
Kristín Jóhannsdóttir
12 ára
Jórdanía
Jórdanía heitir land, sem tekur á móti fleiri flótta-
mönnum en nokkurt annað land í heiminum af svip-
aðri stærð. Þar hafa bæði Rauði krossinn og Rauði
hálfmáninn reist tjaldbúðir fyrir fólk á
flótta frá mörgum löndum. Og þangað flúðu
margir undan persaflóastríðinu.
Það er ekki mikið við að vera fyrir börnin í eyði-
mörkinni. Enginn skóli, engir leikvellir, ekki sting-
andi strá, ekki stakt tré. Samt reyna börn alls stað-
arað leika sér. Þau eignast nýja vini og þau láta sig
dreyma um að komast aftur heim. Að minnsta kosti
vonast þau til að geta einhvers staðar byrjað nýtt
og eðlilegt líf.
Og þó að vonska heimsins hafi bitnað sárt á
þessum börnum, þá geta þau samt brosað og ver-
ið glöð, bara ef við gleymum þeim ekki. Það er
þeim huggun, ef íslensk börn yrkja til þeirra Ijóð,
eða fá foreldra sína til að setja peninga í söfnun
Rauða krossins.
Kveðja
?*ÚÐ'%
o
o
Innritun hafin
1. námskeið 27. maí-7. júní
2. námskeið 10. júní-21. júní
3. námskeið 24. júní-5. júlí
4. námskeið 8. júlí-19. júlí
5. námskeið 22. júlí-2. ágúst
7991
★ Fjölbreytt íþróttanámskeið fyrir stráka og stelpur
★ Samfelld dagskrá frá kl. 9-16
★ Gæsla frá kl. 8-9 og 16-17
★ Heitur matur innifalinn í verði
★ Góðir leiðbeinendur
★ Systkinaafsláttur
★ Afsláttur ef farið er á fleiri en eitt námskeið
★ Allir fá sumarbúðaboli
★ Verð kr. 9.800,- fyrir námskeið 1,3,4 og 5
★ Verð kr. 8.800,- fyrir námskeið 2
★ Visa - Eurocard
Innritun og upplýsingar á skrifstofu Vals á
Hlídarenda alla daga kl. 9-12 og 13-16.
SÍMAR12187 OG 623730.
Laugardagur 11. maí 1991 NÝTT- HELGARBLAÐ — SÍÐA 17
" ....." 1 11 i-'iSl-««;«! »íAT.jyí*A?yjyi.J*
rw'A1?
VRt