Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Side 4
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 * * fréttir Landeigendur og Landsvirkjun einhuga um hækkun á stíflu Laxárvirkj unar: Rykið dustað af sam- komulagi frá 1990 - sumir vilja að stíflan verði tólf metrar í stað átta Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Landeigendur og forsvarsmenn Landsvirkjunar eru mjög einhuga um aö stöðva þurfi sandburðinn í ánni sem er að gera út af við allt líf- ríki Laxár neöan virkjunarinnar og veldur auk þess stórtjóni á vélum virkjunarinnar," segir Stefán Skafta- son, formaður Gróðurverndarnefnd- ar S-Þingeyjarsýslu, en nú bendir ýmislegt til þess aö fljótlega, jafnvel strax á næsta ári, verði hafist handa viö aö hækka stíflugarð Laxárvirkj- unar í Brúargljúfrum í Laxá í S- Þingeyjarsýslu. Geysilegur sandburður í ánni nær nú alveg niður í ós hennar neðan Æöarfossa og enginn ágreiningur er um að sandburðurinn hefur valdið stórtjóni á lífríkinu í ánni, sérstak- lega í Aðaldal, neðan virkjunarinnar. Sandurinn veldur minna tjóni á líf- ríkinu ofan virkjunar vegna þess að straumþungi er þar víðast meiri en í Aðaldal og áin hreinsar sig betur þar. Þá hefur sandurinn stórskemmt vélar Laxárvirkjunar og hefur þurft Fréttaljós Hagsmunir Landsvirkjunar Það er geysilegt hagsmunamál fyr- ir Landsvirkjun að í hækkun stífl- unnar verði ráðist. Sem fyrr sagöi veldur sandurinn sífelldum skemmdum á vélum virkjunarinnar og fyrir skömmu lauk t.d. viðgerð á vélum fyrir um 40 milljónir króna en það tjón má rekja beint til sand- burðar í ánni. Vélar og önnur mann- virki virkjunarinnar voru á sínum tíma miðuð við 50 metra háan stíflu- garð og því mun meiri fallhæð vatns- ins en nú er. Hækkun stíflunnar í 12 metra myndi þýöa 5 megavatta fram- leiðsluaukningu. Sem dæmi um hversu mikið það er má nefna að 5 megavött nægja til að anna allri raf- orkuþörf bæði Blönduóss og Húsa- víkur. Hagsmunir bændanna Hagsmunir bændanna í Aðaldal eru varla minni. Mjög hefur dregið úr laxveiði í ánni undanfarin ár og menn velkjast ekki í vafa um að sandurinn á þar sökina. Að vísu hafa sveiflur í veiði í Laxá í Aðaldal ávallt verið nokkrar en ekki nærri eins miklar og sú niðursveifla sem verið hefur undanfarin ár. Sem dæmi má nefna að hlutfall örmerktra laxa í veiöinni í sumar hefur vaxið geysi- lega frá fyrri árum en þeir laxar eru komnir úr seiðasleppingum bænda í ána og undirstrika að áin sjálf „fram- leiðir" mun minna af seiðum sem komast upp. „Þar sem áður voru djúpir hyljir neðan virkjunarinnar er víða varla fært á bátum í dag. Fyrir utan það að sandurinn leggst yfir riðstöðvar eyðileggur hann allt skjól í ánni og gróðurinn á bökkum árinnar hefur látið mjög á sjá,“ segir Stefán Skafta- son. Loftmynd af svæðinu efst í Brúargljúfrum. Höndin bendir á þann staö þar sem efri mörk uppistöðulónsins verða eftir aö stiflugarðurinn hefur verið hækkaður um 8 metra. DV-mynd gk Átta eða tólf metrar Svo er að sjá sem eina ágreinings- efni landeigenda og Landsvirkjunar nú gæti verið hæö stíflunnar. í sam- komulaginu frá 1990 var gert ráð fyr- ir hækkun stíflunnar um 8 metra og landeigendur vilja ekki breytingu á því. „Þetta var það sem samið var um og það er engin eining um það nú a.m.k. að á því verði breyting," segir Stefán Skaftason. „Ég er per- sónulega þeirrar skoöunar að stíflu- garðurinn eigi að vera 12 metrar. Með því vinnst margt, við fáum betri nýtingu fyrir vélar virkjunarinnar, það þarf ekki að dæla sandinum úr lóninu nærri eins oft og þetta hefur sáralítið að segja varðandi stærð lónsins," segir Bjarni Már Júlíusson, stöðvarstjóri Laxárvirkjunar. Ráðherra jákvæður „Þama er greinilega á ferðinni al- varlegt umhverflsvandamál og á því þarf að skoða allar hliðar til lausnar. Ef hækkun stíflunnar er slík lausn er sjálfsagt að skoða þá leið,“ segir Guðmundur Bjarnason umhverfis- ráðherra sem hefur haft þetta mál til skoðunar að undanförnu. Guðmundur segir að málið horfi öðruvísi við nú en 1991 því nú sé um tvö aðskilin mál að ræða, hækkun stíflunnar annars vegar og „laxamál- iö“ hins vegar og sjálfur segist hann ekki hlynntur því að breyting verði á þeirri niðurstöðu frá 1991 að lax verði ekki fluttur upp í ána ofan virkjunar. „Sandburðurinn er hins vegar greinilega stóralvarlegt um- hverflsmál sem flnna verður bestu lausn á,“ segir ráðherra. aö gera við og endurbæta tækjakost fyrir tugi milljóna króna vegna sands sem í vélarnar hefur borist. Uppistöðulón sem myndast viö hækkun stiflumíar um 8 metra mun verða um 1 km langt. Gljúfrið ofan virkjunarinnar tæki að mestu við því vatnsmagni sem safnast myndi sam- an og ekki færi mikið land undir vatn. Lónið myndi t.d. ekki ná upp að veginum inn Laxárdal þar sem hann er næst ánni. Sandurinn úr Kráká Sandurinn í Laxá kemur ofan af hálendinu og berst með Kráká niður í Laxá skammt neðan Mývatns. Mik- ið starf hefur verið unnið við að freista þess að hefta sandburðinn í Kráká með uppgræðslu og menn sjá vissulega árangur af því starfi. Þó þykir ljóst að ekki verði hægt að koma algjörlega í veg fyrir sandburð- inn með þeim ráðum einum. Menn virðast á einu máli um aö hækkun stíflunnar sé það sem helst komi aö gagni í baráttunni við sandinn sem myndi safnast fyrir í Bjarni Már Júlíusson, stöðvarstjóri Laxárvirkjunar, á stíflugarði virkjunarinnar sem ætlunin er að hækka um 8 metra. Eftir þá hækkun verður stíflugarður- inn aðeins lægri en mastrið sem er hægra megin við Bjarna á myndinni. DV-mynd gk Hvað gerir Náttúru- verndarráð? Arnþór Garðarsson, formaður Náttúruverndarráðs, segir ráðið ekkert hafa fengið.í hendur um fyrir- hugaðar framkvæmdir nú og hafi því ekki tekið neina afstöðu til hækkun- ar stíflunnar og lónsins sem myndast við þá framkvæmd. En er einhver ástæða til að hafa af því áhyggjur að ráðiö muni leggjast gegn málinu nú þar sem flutningur laxa upp fyrir stíflu er ekki á dagskrá? „Ég veit svo sem ekki upp á hveiju þeir ágætu menn taka, þeir eru óút- reiknanlegir. Þeir hafa ekki viljað koma að neinu máli sem varðar verndun þessa svæðis. Það hafa e.t.v. verið mistök að biöja um verndun ráðsins á sínum tíma því sú verndun viröist hafa snúist upp í andhverfu sína,“ segir Stofán Skaftason. lóni ofan stíflunnar þaðan sem hon- um yrði dælt upp reglulega. Því hef- ur rykið veriö dustaö af samkomu- lagi landeigenda og Landsvirkjunar frá 1990 um hækkun stíflunnar við virkjunina. Náttúruverndarráð neitaði Það samkomulag komst raunar aldrei til framkvæmda vegna afstöðu Náttúruverndarráðs sem hefur neit- unarvald þegar málefni Laxár og Mývatns eru annars vegar. Andstaöa ráðsins var þó ekki við stíflugerðina. sjálfa og það lón sem myndi myndast heldur fyrst og fremst það að taka átti laxa í gildrur neðan stíflunnar og flytja þá upp á urriðasvæöin í efri ánni. Þessu neitaði ráðið alfarið og Eiður Guðnason umhverfisráðherra staðfesti þann úrskurð. í enn eldra samkomulagi landeig- enda og yfirvalda frá 8. áratugnum hafði verið gert ráð fyrir laxagengd ofan stíflunnar og í því skyni voru byggðir veglegir laxastigar í gljúfr- inu við virkjunina. Lax fór þó aldrei um þá stiga sem síðar var lokað. Landeigendur héldu því fram að ríkið væri bótaskylt þar sem ráð- herra hafnaði algjörlega þeirri hug- mynd 1991 að lax yrði fluttur upp fyrir virkjun. Því neitaöi ríkislög- maður og má segja að þetta hafi orð- ið til þess að áform um hækkun stífl- unnar við virkjunj^ia voru lögð á hilluna. Nú eru þessi mál hins vegar aðskilin - annars vegar hækkun stífl- unnar en hins vegar „laxamálið" sem væntanlega verður útkljáð fyrir dómstólum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.