Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 38
46 ipiðsljós LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 Sean Penn: Hefur búið tvö ár í húsbíl Meryl Streep: Stundum ástfangin af mótleikurum Meryl Streep kveðst hafa orðið ástfangin af mótleikurum sínum en það hafi aldrei gengið svo langt að hún hafi verið að hugsa um að yfirgefa eigin- manninn. kom að sú fyrrverandi og John höfðu gert einhvern samning fimm árum áður þó að þau hefðu aldrei búið saman. Þar með var Meryl á götunni, þremur vikum eftir andlát Johns. Það var þá sem Don Gummer kom inn í lif Meryl. Hann var vinur bróður hennar. Á meðan Don var á ferðalagi erlendis fékk hún að búa í íbúð hans. Og þegar hann kom til baka urðu þau ástfangin. Meryl er fædd í New Jersey og er elst þriggja systkina. Faðir hennar var apótekari og móðir hennar lista- kona. Henni var gefið nafnið Mary Louise en móðir hennar kallaði hana Meryl. Streep nafnið er komið frá forfeðrum hennar sem voru spænskir gyðingar er fluttu til Hollands á sautjándu öld. Þegar Meryl var barn datt engum í hug að hún yrði leikkona. Sjálf kveðst Meryl hafa verið hrokafull og litið út fyrir að vera miðaldra. Hin börnin héldu að hún væri einn af kennurunum. Hún var tólf ára þegar hún uppgötvaði að hún var með góða söngrödd. Hún söng ein- söng á skólaskemmtun og þar með varð kúvending í lífi hennar. Meryl ákvað að fara á leiklistarbraut og fékk alltaf stjörnuhlutverkin í skóla- sýningum. Þegar hún útskrifaðist rigndi tilboðunum yfir hana. Fyrri sambýlismaður Meryl Streep, John Cazale, lést úr krabbameini 1978. Don Gummer, eiginmaður Meryl Streep, brosir aldrei til Ijósmynd- ara. Eiginmaður Meryl Streep, Don Gummer, sem er myndhöggvari, er ekki hrifinn af því samkvæmislífi sem fylgir því að vera kvæntur kvikmyndastjörnu. Þau hjónin eiga flögur börn og eins og svo margar aðrar leikaraíjölskyldur hafa þau yf- irgefið Los Angeles og flust út á landsbyggðina, á búgarð í Connect- icut. Meryl, sem er orðin 46 ára, kom öllum í Hollywood á óvart þegar hún giftist Don Gummer fyrir sautján árum, aðeins hálfu ári eftir að sambýlismaður hennar, John Cazale, lést úr krabbameini. Meryl var nýútskrifuð úr leiklist- arskóla þegar hún hitti John í leik- húsi um miöjan áttunda áratuginn. John, sem var þrettán árum eldri en hún, lék yngsta bróðurinn í Guðfoð- ur-myndunum. Meryl og John unnu mikið saman á sviði. Þau léku einnig saman í kvikmyndinni Deer- hunter en það var í henni sem Meryl sló í gegn og var fyrst útnefnd til óskarsverðlauna. John og Meryl höfðu aðeins verið saman í skamman tíma þegar það uppgötvaðist að hann væri með beinkrabba. Þegar John varð rúm- liggjandi ákvað Meryl að hætta að vinna til að geta hjúkrað honum. Síðustu vikurnar sem hann lifði bjó hún hjá honum á sjúkrahúsinu. Meryl var sannfærð um að John myndi batna. Hún segist hafa verið svo nálægt honum síðasta árið að hún hafi ekki tekið eftir því hvernig honum hrakaði smám saman. Hún segir sársaukann vegna andláts hans alftaf vera til staðar og hafa áhrif á gerðir sínar. Þegar John dó missti hún ekki bara ástvin heldur einnig húsnæði. Fyrrverandi kærasta Johns birtist aílt í einu og vildi fá íbúðina sem hann hafði búið með Meryl í. í ljós Clint Eastwood og Meryl Streep í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Brýrnar í Madisonsýslu. Samkvæmt frásögnum kvikmyndatökuliðsins héldust þau í hendur í vinnuhléum, dönsuðu og kysstust. Meryl er sögð lifa sig inn í hlut- verk sín! Olyginn sagði... . . . að rokkstjarnan Sting, sem er orðinn 43 ára, ætti von á sjötta barni sínu. Hann á þrjú börn með eiginkonunni Trudi og tvö frá fyrra hjónabandi. „Foreldrahlutverkið er stærsta hlutverk okkar Trudi í lífinu," er haft eftir Sting. . . . . að trúlofun Beverly Hills stjarnanna Tiffany-Amber I Thiessen og Brian Austin Green hefði bara varað í hálft ár. Þau eru sögð mjög ólík, hún vill snemma í háttinn með bók en hann var á skemmtistöðum, kom seint heim og spilaði mús- ík á fullu. . . . að Lisa Marie og Michael Jackson væru líklega búin að kyssa hvort annað í síðasta sinn. Michael á að hafa farið með tveimur ungum drengjum í frí til Parísar í sumar en Lisa fór á fund fyrrum eiginmanns með börn sín. . . . að Christopher Lambert hefði verið þreytulegur þegar hann kom í frt til Los Angeles á dögunum með þriggja ára dótt- ur sína. Christopher er nú önn- um kafinn við tökur á tveimur nýjum myndum. . . . að meðlimirnir í sænsku hljómsveitinni Ace of Base hefðu fengið hálfan milljarð hver í tekjur af plötunni Happy Nation. Einn þeirra, Ulf Ekberg, hefur sett á laggirnar eigið plötufyrirtæki, byggt sér hús á Spáni og keypt snekkju. Hann hefur jafnframt f hyggju að opna veitingastað í New York. Sean með dótturina Dylan Frances. Sean Penn er einn margra leikara sem misstu heimili sin í brunanum i Kaliforníu fyrir tveimur árum. Sean flutti þá inn i húsbíl og býr þar enn. Húsgögnin sem kvikmynda- stjarnan vill hafa í kringum sig komast greinilega ekki öll fyrir í húsbílnum því utandyra virðist nán- ast vera húsgagnalager. Samband Seans og Robin Wright hefur verið upp og niður. Hún hefur kosið að búa í Santa Monica með tveimur börnum þeirra. Robin ákvað að yfirgefa Sean þegar hann hélt fram hjá henni síðastliðinn vet- ur. Hann bað hins vegar um fyrir- gefningu og sættir tókust, í bili að minnsta kosti. Robin var þá að leika í kvikmynd á írlandi og Sean keypti þar hús á fjörutíu milljónir til þess að eiga athvarf frá stressinu í Hollywood. Robin lætur Sean gæta Dylan þegar hún er við kvikmyndaleik. Húsbíllinn sem fyrrum eiginmaður Madonnu hefur búið í í tvö ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.