Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 51
^>"V LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
afmæli
Laufey Jakobsdóttir
Laufey Jakobsdóttir húsmóðir,
Grjótagötu 12, Reykjavík, verður
áttræð á mánudaginn kemur.
Starfsferill
Laufey fæddist á Bóndastöðum í
Seyðisfirði en ólst upp í Snotrunesi
í Borgaríirði eystra og síðan á
Neistastöðum. Hún naut almennrar
barnafræðslu og var síðan í vinnu-
mennsku í Reykjavík og víðar.
Laufey starfaði á vegum borgar-
innar við miðbæinn og sótti þá fjöldi
uriglinga athvarf tii hennar. Hún
hefur starfað meö Samtökum um
'kvennalista frá upphafi, starfað í
dýraverndarfélögum, sinnt málefn-
um aldraðra og er áhugasöm um
friðun gamalla húsa. Þá var hún
fyrst til að hreyfa þeirri hugmynd
opinberlega að Vigdís forseti gæfi
kost á sér til forsetakjörs 1980. Bók-
in Lífsbók Laufeyjar, samtalsbók
um ævi Laufeyjar, eftir Ragnheiði
Davíðsdóttur, kom út 1992.
Fjölskylda
MaðurLaufeyjarvarMagnús -
Björgvin Finnhogason, f. 21.7.1911,
d. 2.2.1993, húsasmíðameistari og
hugvitsmaður. Foreldrar hans voru
María Þorleifsdóttir húsfreyja og
Finnbogi Erlendsson, útgerðarmað-
ur á Eskifirði.
Börn Laufeyjar og Magnúsar eru
Edda, f. 5.5.1936, teiknari í Reykja-
vík, gift Páli Jónssyni og eignuðust
þau sex börn en fimm þeirra eru á
lífi; Inga, f. 10.3.1939, bæjarstarfs-
maður í Hafnarfirði, gift Birgi
Björnssyni og eiga þau þrjú börn;
Erlendur Finnbogi, f. 24.7.1941,
myndlistarmaður í Hveragerði,
kvæntur Sigurdísi Sveinsdóttur og
eiga þau fimm börn; Elín Björg, f.
1.8.1942, sjúkraliði í Reykjavík,
ekkja eftir Gísla Björnsson og eru
börn þeirra tvö; Sigurbjörg, f. 25.9.
1943, fangavörður í Reykjavík, og á
hún sex börn; Helga Hafdís, f. 21.12.
1948, skrifstofumaður í Hafnarfirði,
gift Hinrik Einarssyni og eiga þau
þrjú börn; Jakob Skafti, f. 22.1.1955,
þroskaþjálfi á Stokkseyri, í sambúð
með Ragnhildi Jónsdóttur og á hann
fiögur börn; Þorleifur Magnús, f.
27.9.1961, verkamaður í Reykjavík,
kvæntur Guðlaugu Steinsdóttur og
á hann þrjú börn. Afkomendur Lau-
feyjar eru nú sextíu og fimm talsins.
Alsystkini Laufeyjar: Elín Björg,
nú látin, húsmóðir í Reykjavík;-Sig-
urbjörg er lést um tvítugt; Gróa,
ekkja á Eyrarbakka; Siguröur, lát-
inn, smiður í Reykjavík; Björn
Skafti, lést um tvítugt.
Hálfsystkini Laufeyjar, samfeðra:
Anna Jakobsdóttir Cronin, ekkja, í
London; Ólafur Jakobsson, bifreiða-
stjóriíReykjavík.
Hálfsystkini Laufeyjar, sam-
mæðra: Guðrún Sæmundsdóttir,
húsmóðir á Selfossi; Vilborg Sæ-
mundsdóttir, starfsmaöur i Heilsu-
verndarstöðinni í Reykjavík; dreng-
ur, lést í frumbernsku.
Foreldrar Laufeyjar voru Jakob
Sigurðsson, f. 15.10.1885, bóndi í
Geitavík og á Seyðisfiröi, síðan bif-
reiöasfióri í Reykjavík og loks kaup-
maöur í Kaupmannahöfn, og k.h.,
ÞuríðurBjörnsdóttir, f. 21.9.1888,
húsmóðir.
Ætt
Jakob var sonur Sigurðar, b. á
Unaósi, Jakobssonar, b. í Mjóanesi,
Þórðarsonar, b. á Finnsstöðum,
Gíslasonar, b. á Finnsstöðum, Niku-
lássonar.
Móðir Jakobs í Geitavík var Elín
Björg, dóttir Arnbjörns Sigmunds-
sonar, b. á Þorvaldsstöðum í
Breiöadal, og Guðnýjar Erlends-
dóttur, b. á Þorvaldsstöðum, Þor-
steinssonar, b. á Þorvaldsstöðum,
Erlendssonar, ættfóðurÁsunnar-
staðaættarinnar, Bjarnasonar.
Þuríður var dóttir Björns, b. á
Snotrunesi, Jónssonar, b. á Bónda-
stöðum, Bjömssonar. Móðir Björns
var Þuríður Andrésdóttir, b. í Geita-
víkurhjáleigu, Jónssonar og Ingi-
bjargar Andrésdóttur.
Laufey Jakobsdóttir.
Móðir Þuríðar var Elín Björg Guð-
mundsdóttir, b. á Staffelli, Bjarna-
sonar, b. þar, Jónssonar, b. á Bessa-
stöðum, Þorsteinssonar, ættföður
Melaættarinnar, Jónssonar.
Laufey tekur á móti gestum hjá
syni sínum og tengdadóttur í Ás-
garði á Hvolsvelli á morgun, sunnu-
daginn 24.9. milli kl. 15.00 og 18.00.
Ingibjörg Þorgeirsdóttir
Ingibjörg Þorgeirsdóttir húsmóðir,
Merkurgötu 12, Hafnarfirði, verður
sextug á morgun. Auk þess eiga þau
hjónin rúbínbrúðkaup, eða fiörutíu
ára hjúskaparafmæli, sama dag.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Húri stundaði þar
barnaskólanám í Lækjarskóla og
var síðan við miðskólanám tvo vet-
ur í Flensborgarskóla.
Ingibjörg var mikið í sveit á
bernskuárunum á Mýrum og í Leir-
ársveitinni hjá móðurbræðrum sín-
um. Hún stundaði fiskbreiðslu í
Hafnarfirði á unglingsárunum og
starfaði lítils háttar í fiskvinnslu.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 24.9.1955 Þóri H.
Óskarssyni, f. 17.4.1933, bifreiða-
stjóra. Hann er sonur Óskars Árna-
sonar, bifvélavirkja í Hafnarfirði,
og k.h., Magdalenu Sigurðardóttur
húsmóður sem bæði eru látin.
Böm Ingibjargar og Þóris eru Ósk-
ar Þorgeir, f. 14.10.1953, verkamað-
ur í Hafnarfirði; Magdalena Sirrý,
f. 14.4.1955, handavinnukennari í
Keflavík, gift Jóni Birni Sigtryggs-
syni tannlækni og eiga þau tvö börn;
Hrafnhildur, f. 9.10.1956, iðnverka-
kona, búsett í Garðabæ, gift Jens
Kristinssyni verslunarmanni og
eiga þau tvö börn; Marinó, f. 9.12.
1957, verkamaður í Varmahlíð í
Skagafirði, kvæntur Steinunni Arn-
ljótsdóttur kennara og á hann eina
dóttur; Sverrir, f. 17.12.1962, verka-
maöur í Hafnarfirði, en kona hans
er Bára Hilmarsdóttir skrifstofu-
maður og eiga þau tvær dætur.
Systkini Ingibjargar: Markús Þor-
geirsson, f. 14.8.1924, d. 24.11.1984,
sjómaður og hugvitsmaður í Hafn-
arfirði; Jóhanna Þorgeirsdóttir, f.
3.7.1925, húsmóðir í Reykjavík; Alda
Þorgeirsdóttir, f. 24.10.1929, d. 26.7.
1989, húsmóðir í Hafnarfirði; Gest-
heiður Þorgeirsdóttir, f. 27.2.1931,
húsmóðir í Garðabæ; Edda Kolbrún,
f. 27.9.1942, verslunarmaður í Hafn-
arfirði.
Ingibjörg Þorgeirsdótir.
Foreldrar Ingibjargar voru Þor-
geir Sigurðsson, f. 24.6.1902, d. 8.6.
1972, sjómaður í Hafnarfirði, og k.h.,
Katrín Markúsdóttir, f. 29.3.1900,
d. 31.3.1967, húsmóðir.
Þau hjónin, Ingibjörg og Þórir,
verða heima á morgun og með heitt
á könnunni eftir kl. 16.00.
Sigurrós Gísladóttir
Sigurrós Gísladóttir húsmóðir, Fíf-
useli 16, Reykjavík, verður áttræð á
morgun.
Starfsferill
Sigurrós fæddist á Fáskrúðsfirði
og ólst þar upp. Hún stundaði nám
við Bamaskóla Fáskrúðsfiarðar og
við Húsmæðraskólann í Hallorms-
stað 1938,
Á sínum yngri árum stundaði Sig-
urrós verkamannastörf og var auk
þess vinnukona á nokkrum stöðum
á Austurlandi og í Vestmannaeyjum
áður en hún gifti sig. Sigurrós bjó
alla tíða á Fáskrúðsfirði þar til 1992
er hún flutti til Reykjavíkur með
syni sínum.
Fjölskylda
Sigurrós giftist 15.12.1940 Oddi
Stefánssyni, f. 7.8.1911, d. 1983, sjó- .
manni og verkamanni. Hann var
sonur Stefáns Péturssonar og Ingi-
gerðar Guðmundsdóttur, bænda í
Skálavík við Fáskrúðsfiörð.
Börn Sigurrósar og Odds: Steinþór
Oddsson, f. 1941, starfsmaður Pósts
og síma á Akureyri, kvæntur Grétu
Guðvarðardóttur og eiga þau fiögur
börn saman auk þess sem hún á tvö
börn frá því áður; Pétur Oddsson,
f. 1943, d. 1954; Gísli Oddsson, f. 1946,
starfsmaður hjá Goða á Kirkjusandi
í Reykjavík, kvæntur Guðnýju
Ragnarsdóttur og eiga þau eina fóst-
urdóttur og eina dóttur.
Bræður Sigurrósar: Sigurbjörn
Gíslason, f. 1904, nú látinn, bóndi í
Höfðahúsum og við Fáskrúðsfiörð;
Guðjón Gíslason, f. 1908, nú látinn,
múrari í Reykjavík; Kristinn, f. 1925,
lengst af fiskvinnslumaður á Fá-
skrúðsfirði.
Foreldrar Sigurrósar voru Gísli
Eiríksson, f. 11.11.1866, d. 26.1.1935,
Sigurrós Gísladóttir.
bóndi í Steinholti við Fáskrúðsfiörð,
og k.h., Guðrún Ólafsdóttir, f. 27.3.
1882, d. 7.11.1964, húsfreyja.
Sigurrós verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Til hamingju meo af-
mælið 24.
95 ára
Guðmundur Guðnason,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
80 ára
Sigríður Ólöf Sigurðardóttir,
Heiðargerði 21, Akranesi.
Dagmar Fanndal,
HátúnilO, Reykjavík.
Jóhanna Dagbjartsdóttir,
Ásabraut 13, Grindavík.
september
Erla B. Vignisdóttir,
Grettisgötu 6, Reykjavík.
Sigurveig Björnsdóttir,
HofilI.Fellahreppi.
Pálmi Sigurðsson,
Bjarmastig 15, Akureyri.
Öm Guðj ónsson,
Hvammstangabraut 23, Hvamms-
tanga.
Sigurlaug Jóhannesdóttir,
Tunguvegi 90, Reykjavík.
SævarG. Proppé,
Lækjarbergi 58, Hairiarfiröi.
Karen Welding,
Hamri, Þverárhliðarhreppi.
70 ára 40ára
SnorriBjarnason,
Urðarbraut 20, Blönduósi.
Skúli Theódórsson,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
ÓlöfÓlafsdóttir,
Hliöargötu32, Neskaupstað.
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Vörum II, Gerðahreppi.
60ára
Eggert J óhannsson,
Felli, Hofshreppi.
BjörnHelgason,
Hjallavegi 3, ísafirði.
Guðbjartur Pálsson,
Hagamel 36, Reykjavík.
Emilía Siguijónsdóttir,
Þinghólsbraut 16, Kópavogi.
Erling Kristjánsson,
Markarvegi 17,Reykjavík.
Reynir Kristjánsson,
löggilturendur-
skoðandi,
Mosgerðill,
Reykjavík.
Konahanser
JónaÞ.Vem-
harðsdóttir deild-
arsfiórí.
Þauverðaaö
heiman.
CarlHenrik Engelbrekt Rörbeck,
Lindarhvammi 6, Hafnarfirði.
Jóhannes Ágústsson,
Holtsgötu 41, Reykjavík.
Hlöður Freyr Waage,
Langholtsvegi 85, Reykjavík.
Jósteinn Þór Hreiðarsson,
Baughóli 23, Húsavík.
Auður Ólafsdóttir,
Vesturbergi 78, Reykjavik.
Sigríður J. Sigurðardóttir,
Þingási 38, Reykjavík
Sigríður Jóhannesdóttir,
Ásbúð84,Garðabæ.
Margeir Þorgeirsson,
Háaleiti24,Keflavík.
SigrúnEdda Knútsdóttir,
Austurtúni 3, Bessastaðahreppi.
Elín Baidursdóttir,
Skólagerði 39, Kópavogi.
Ámi Guðlaugur Jónsson,
Bollagörðum 25, Seltjarnarnesi.
Alfreð ViggóSigurjónsson,
Bæjargili 71, Garðabæ.
Andrés Hjaltason,
Njarðvík, Borgarfiarðarhreppi.
Elsa Lára Blöndal,
Bæjarholti 9, Hafnarfirði.
Óskar Haukur Óskarsson,
Ásabyggð 6, Akureyri.
Gunnar Karl Gunnlaugsson,
Kaldaseli 26, Reykjavik.
Svanfríður Ásgeirsdóttir,
Löngumýri 13, Akureyri.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRABA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
.1 á næsta sölustað I Áskriftarsími 563-2700 j