Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
17
. *
* ■*
idge
Bikarkeppni Brídgesambands íslands:
Sveit Plús-Fiím
sigraði sannfærandi
Sveit Plús-Film sigraði sveit
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka í
spennandi úrslitaleik í bikarkeppni
Bridgesambands íslands.
í undanúrslitaleikjunum, sem
spilaðir voru sl. laugardag, bar sveit
VÍB sigurorð af sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar meðan sveit Plús-
Film sigraði sveit Hjólbarðahallar-
innar naumlega eftir að hafa verið
undir mestallan tímann.
í úrslitaleiknum var sveit Plús-
Film hins vegar sterkari aðilinn og
þegar upp var staðið skildu 15 imp-
ar sveitirnar að. Leikurinn þróaðist
þannig að í fyrstu lotu fóru leikar
svo að Plús-Film skoraði 40 impa
gegn 35. í næstu lotu bættu þeir 18
impum við, 40-22, en í þeirri þriðju
bitu VÍB-verjar frá sér og unnu 21
impa til baka, 55-34. Síðustu lotuna
vann hins vegar Plús-Film, 33-20, og
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
var þar með bikarmeistari BSÍ 1995.
Nýju bikarmeistararnir eru feðgarn-
ir Vilhjálmur Sigurðsson og Sigurð-
ur Vilhjálmsson, Valur Sigurðsson,
Guðmundur Sveinsson, Jakob Krist-
insson og Rúnar Magnússon.
Við skulum skoða eitt skemmti-
legt spil úr síðustu lotu úrslitaleiks-
ins en sveit Plús-Film vann raunar
lotuna í því.
V/N-S
* 854
D9754
♦ -
* ÁD983
* G2
ÁK2
* 1098752
* 65
N
V A
S
4 K10
•f 863
♦ ÁKDG6
* 1074
♦ AD9763
V G10
♦ 43
♦ KG2
Vestur Norður Austur Suður
2 tíglar pass 5 tíglar pass
pass pass
í opna salnum sátu n-s fyrrver-
andi heimsmeistarar, Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson, en
a-v Sigurður Vilhjálmsson og Jakob
Kristinsson. Jakob og Sigurður
hreinlega ,,stálu“ geiminu af heims-
meisturunum og raunar er vandséð
hvernig þeir áttu að komast inn í
sagnirnar.
Vörnin bilaði hins vegar ekki en
þrír niður utan hættu voru lítil
Schwarzkqif
Hárlakk - Froður - Gel
Gæðiágóðu
verði - JD
Fœst ínæstu JLJ lletur | f
verslun ILetursson hl
sárabót fyrir geim á hættunni.
Á hinu borðinu sátu n-s Valur
Sigurðsson og Guðmundur Sveins-
son en a-v Ásmundur Pálsson og
Karl Sigurhjartarson. Nú tók ekki
betra við:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass 1 tígull 1 spaði
2 spaðar 3 lauf 3 tíglar 3 spaðar
4 tíglar 4 spaöar 5 tíglar
pass 5 spaðar pass
dobl pass pass
pass
pass
pass
Karl tók hjartaslagina en Guð-
mundur svínaði spaðadrottningu og
skrifaði 850 í sinn dálk. Ég sé Val í
anda þegar hann snýr sér að Karli:
„Nei, Karl, þessa stöðu kann ég.“
Stefán Guðjohnsen
Langar þig
að lyfta þér upp eitt kvöld í viku?
■ Langar þig í skemmtilegt og upplífgandk nám eitt kvöld í viku
fyrir hófleg skólagjöld þar sem reynt er af fagmennsku og metnaði
að svara spurninguni á borð við hvar látnir ástvinir okkar séu og
hvers konar heimur þar virðist vera að mati miðilupplýsinga og
vísindamanna og hver sé reynsla almennings um allan heim af
þessu merkilega sambandi?
Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur. Nokkur pláss eru enn þá laus / síð-
asta bekk fyrir áramót. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar í síma 561-9015 &
588-6050.
Yfir skráningardagana er að jafnaði svarað í síma Sálarrannsóknarskólans alln
dagn vikunnar kl. 14.00 til 19.00.
Skrifstofa skólans er hins vegar opin nlla virka daga kl. 17.00 til 19.00.
.^Sálarrannsóknarskólinn
JEl. ' - Skemmtilegur skóli -
Vegmúla 2, '
S. 5-619015 og 5-886050.
Frumsýnum
Nissan Maxima QX
Um helgina frumsýnum við einn giæsilegasta lúxusbíl
sem Nissan verksmiðjurnar hafa sent frá sér.
Hinn glænýi Nissan Maxima QX hefur hlotið fádæma góðar viðtökur hvarvetna.
Nýja Nissan Maxima QX vélin er ein sú tæknivæddasta og léttbyggðasta V6 vél sem framleidd er í dag.
Komdu á bílasýninguna hjá okkur um helgina og kynntu þér þetta
magnaða og glæsilega fLaggskip Nissan flotans.
Nissan Maxima - Magnaðir eiginleikar.
Léttar
veítingar:
aisi
BKI
J^FFI
Bflasýning:
laugard. 14-17
sunnud. 14-17
NISSAIM
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000