Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Side 24
24 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 Heldíir upp á fjörutíu ára leiklistarafmæli á frumsýningu nýs verks í Borgarleikhúsinu: Ætlaði mér alltaf að verða leikkona - segir Guðrún Ásmundsdóttir „Ég man ekki eftir öðru en að hafa ætlað mér að verða leikkona. Þetta var einhver bernskuþrá sem varð til þess að ég svindlaði mér komung í leiklistarskóla hjá Lárusi Pálssyni. Ég var ekki nema 15 ára en laug því að ég væri 17 því hann kærði sig ekki um svona unga nem- endur. Ég var í þrjú ár hjá Lárusi og var í síðasta hópnum sem hann kenndi. Þegar égTít til baka finnst mér óborganlegt að hafa numið hjá þessum snillingi,“ segir Guðrún Ás- mundsdóttir leikkona. Fallegt, átakanlegt og spennandi Á morgun heldur Guðrún upp á 40 ára leiklistarafmæli þegar frum- sýnt verður í Borgarleikhúsinu leik- ritið Hvað dreymdi þig, Valentína? eftir Ljúdmílu Razumovskaju og fer Guðrún með eitt aðalhlutverkanna í þeirri sýningu, auk Sigrúnar Eddu Björnsdóttur og Ástu Amardóttur. Ljúdmila er einnig höfundur Kæru Jelenu sem sem sýnt var fyrir fullu húsi á Litla sviði Þjóðleikhúsins fyr- ir nokkru. í fáum orðum er Hvað dreymdi þig, Valentína? fallegt, átakanlegt og spennandi leikrit um mæður, dætur, ástina, hamingjuna, draumana og árekstra þeirra við veruleikann. Átti öðruvísi æsku Guðrún er borinn og bamfæddur Reykvíkingur, dóttir Ásmundar Gestssonar, kennara og skólastjóra. Faðir hennar var á sjötugsaldri þeg- ar hún fæddist en móðir hennar, Sigurlaug Pálsdóttir, var um fertugt en lést þegar Guðrún var aðeins þriggja ára. „Pabbi, gamli maðurinn, lenti í því hlutverki að ala upp tvo vill- inga, mig og bróður minn, Pál Ás- mundsson lækni. Þegar ég hugsa um það núna finnst mér þetta hafa verið skemmtilegt heimilislíf og ég tel mig heppna að hafa átt æsku sem var allt öðruvísi heldur en allra hinna. Mér finnst þó aUJaf þegar ég tala um ætt mína að það vanti einn ættlið í hana þvi faðir minn var svo gamall þegar ég fæddist. Hann var kominn á eftirlaun og mér þótti það afskaplega leiðinlegt. Ég man að þegar ég var í skóla átti ég til að búa til hinar furðulegustu sögur því mér þótti ómögulegt að segja að pabbi minn gerði ekki neitt,“ segir Guð- rún. Hún segist hafa lært mikið af því að eiga svo fullorðinn föður. Honum hafi þótt það sjálfsagt mál að hún yrði leikkona þegar hún fékk hug- myndina, aðeins 8 ára gömul. Þau hafi oft rætt þetta og þegar hún lék í uppfærslu Þjóðleikhússins á Tyrkja-Guddu, og fékk hlutverk þar sem hún sagði eina setningu, þá keypti faðir hennar dýrustu sæti á frumsýningu til að horfa á dóttur sína segja setninguna. Það var í eina skiptið sem hann sá hana á leiksviði því stuttu síðar lést hann. í deiglunni fyrsta hlutverkið Aö námi loknu hjá Lárusi fór Guðrún í Þjóðleikhússkólann. í kjöl- farið lék hún tvö hlutverk en fór síð- an utan til Englands til frekara náms. Annað þessara verka var í deiglunni eftir Arthur Miller. Eg lék eina af galdrastelpunum, Bettý, en þetta var lítið hlutverk. Ég hafði eiginlega alist upp í Þjóðleik- húsinu því að við sem námum í Þjóðleikhússkólanum lékum oftast aukahlutverk í sýningum á meðan á náminu stóð.“ Þegar Guðrún kom að utan tók leikhúslífið við. Fyrsta hlutverkið var túlkun Önju í Kirsuberjagarði Tsjekhovs. Guðrún segir að sér líði miklu betur í dag en nokkurn tíma áður á ferlinum. Nú sé horfin sú tilfinning sem blundi í flestu ungu fólki að það verði að „meika það“. Ef hún sé með gott hlutverk í höndunum þá leiki hún það eins og hún sé að leika í síðasta skipti. Hvorki þurfi að hugsa um framtíðina né fortíðina. DV-mynd Brynjar Gauti „Þessi „success" Jökuls lyfti mér upp í það að allt í einu varð maður viður- kenndur leikari," segir Guðrún um leikrit Jökuls Jakobssonar, Hart í bak. Hér er hún á æfingu með Birgi Brynjólfssyni, Helgu Valtýsdóttur og Brynjólfi Jóhannessyni. Tvíeggjað hrós „Ég var svo heppin mörgum árum seinna að fá að leika móður Önju, Ljúpu, hjá Leikfélaginu. Þá var ég komin á þann aldur sem hæfði hlutverki móður Önju. Það blundaði alltaf í mér sá draumur að fá að leika niðri í íðnó. Mér fannst afar heillandi að fá að leika í þessu litla leikhúsi. Eftir að ég eignaðist dóttur mína, Sigrúnu Eddu Björns- dóttur, var hringt í mig og Helgi Skúlason bauð mér hlutverk. Ég var alsæl en það var hik á mér þvi ég Lafði fitnað eftir barnsburðinn. Ég ætlaði varla að þora á samlesturinn því ég var svo hrædd um að þeir myndu segja: „Heyrðu, vina, þetta eru fullmörg kíló. Farðu bara heim.“ En þegar ég kom niðureftir sagði leikstjórinn: „Fínt! Hún á einmitt að vera svona. Þetta var í leikritinu Þegar nóttin kemur og ég fór með hlutverk vinnukonunnar Dóru. Gísli Halldórsson fór með hlutverk morðingjans og Áróra Halldórsdóttir fórnarlambsins. Ég var vinnukona Róru og var svo heimsk og löt að það var sagt um Dóru að hún myndi fyrr skera af sér nefið en finna lyktina úr ruslafót- unni. Þetta gekk mjög vel og ég fékk vægast sagt undarlega dóma sem bróðir minn var svo „elskulegur" að klippa út og setja upp á vegg. Ein- hver sagði að ég hefði leikið Dóru frábærlega vel: „Það var eins og heimskan og einfeldnin væri henni í blóð borin.“ Þetta átti að vera hrós en það getur orðið tvíeggjað - sér- staklega þegar bræður komast í spil- ið.“ Hart í bak tímamót Guðrún segir að það hafi fyrst verið í leikritinu Hart í bak, eftir Jökul Jakobsson, sem hún hafi orð- ið viðurkenndur leikari. Þar lék hún Árdísi. Hún segir ástæðu þessa ekki hafa verið þá að hún hafi leik- ið hlutverkið einstaklega vel eða neitt þvíumlíkt. Heldur vegna þess hversu vinsælt leikritið var en þetta var undir lok sjöunda áratugarins. Ferðast var með leikritið víða um land og reyndar var hlutverk Guð- rúnar skrifað með hana í huga. „Ég man að þetta leikrit kom fram þegar íslensk leikritun var í al- gjöru lágmarki. Leikhúsin vildu helst ekki íslensk leikrit og áhorf- endur fóru sjaldnast á þau. Eftir fyrsta samlestur fórum við í kaffi á Hótel Borg og vorum öll mjög lukku- leg með hlutverkin okkar og vorum að ræða það okkar á milli að leikrit- ið væri svo gott að það hlyti að ganga svona 10 sýningar. Þegar upp var staðið urðu sýningarnar 205. Þessi „success" Jökuls lyfti mér upp í það að allt í einu varð maður við- urkenndur leikari." Guðrún hefur enga tölu á hversu mörg leikritin eru orðin sem hún hefur leikið í. Því síður hefur hún tölu á öllum leiksýningunum. Segist engan tíma hafa til að telja þær Sam- an nú því allt of mikið sé að gera og ófáanleg er hún til að gefa upp sitt eftirlætishlutverk, segir það ekki hægt. „Þau eru mörg hlutverkin sem eru mér dýrmæt: Nóra í Brúðuheim- ilinu, sem ég lék í Þjóðleikhúsinu, frú Heidberg úr Lífi ánamaðkanna. Eitt hlutverk elskaði ég mikið. Það var Vesla í Múmínálfunum. Fyrir utan það hef ég verið svo lánsöm að fá að leika I þremur leikritum eftir Tsjekhov. Þaö er eitt mesta ævintýri sem leikari getur komist í. Tvö hlut- verk í Kirsuberjagarðinum, sem fyrr eru nefnd, Mösju í Mávinum og Élenu í Vanja frænda. Á sviði með dótturinni á ný „Hvað dreymdi þig, Valentína? er yndislegt verk. Ég hugsa að ef ég hefði vitað í gamla daga, í fyrsta baksinu, að ég ætti eftir að fá að halda upp á 40 ára leikafmæli mitt með hlutverki eins og þessu hefði ég verið nokkuð hress og óhrædd að stefna fram á við. Það var líka dálít- ið gaman hvernig þetta kom til. Ég hafði veriö að ræða við Árna Berg- mann um að ég ætti 40 ára leikaf- mæli á þessu ári og hann spurði hvað ég myndi leika og ég svaraði að ég vissi það ekki. Hann vissi af þessu leikriti og tók upp á því að þýða það og kom svo með það til mín og spurði hvernig mér litist á það. Mér fannst það stórkostlegt. Ég hef sjaldan átt eins ánægjulega und- irbúningsvinnu fyrir hlutverk og einmitt nú. Sú sem leikur aðalhlut- verkið er dóttir mín og það er eitt-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.