Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 15
X> V LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 15 Betri helmingur minn hefur mjög sóst eftir utanlandsferðum alla okkar sambúð með þokkaleg- um árangri. Heldur hefur pistil- skrifari þó verið á handbremsunni 'og borið við bágum efnahag lands- manna og versnandi lífskjörum til sjávar og sveita. Það eru því merki um aukna linkind mína og minna aðhald í efnahagsmálum að ég stakk upp á utanlandsferð þetta árið og lét drýgindalega. Konan hefur nefnilega lengi alið með sér þann draum að komast tii Rómar, borgarinnar eilífu. Ég þóttist því góður þegar ég stakk upp á mikilli Evrópiu-eisu í sum- arleyfinu með Róm sem enda- punkt. Ég sagði konunni að mán- aðarlöng ferð hæfist í Lúxemborg og siðan yrði ekið um fjölmörg lönd. Endað yrði í annarri heims- borg, París, og í nokkurra daga slökun í Holiandi í restina. Til sannindamerkis um fyrirhugaða ferð lagði ég fram flugfarseðla og tillögu um að í aftursæti væntan- legs bílaleigubíls yrðu með í för dætur okkar hjóna, fjórtán og sex ára gamlar. Úvæntar efasemdir Þetta kom svo flatt upp á frúna að í fyrsta skipti í sambúðinni setti hún fram efasemdir um utan- landsferð. Hún benti á það, sem ég þegar vissi, að þetta væri dýrt. Þá bætti hún við að ferðalag á bíl með nýjum gististað á hverri nóttu væri erfitt. Að lokum spurði hún mig hvort ég héldi að stelp- urnar yrðu til friðs í aftursætinu, þeysandi þúsundir kílómetra á hraðbrautum í hitamollu. Konan taldi í fáum orðum sagt að eigi- maðurinn væri orðinn galinn. Ég vissi þó að ekki þyrfti mikl- ar fortölur til þess að fá eiginkon- una með enda var rúsína í pylsu- endanum, Róm. Hún var tilbúin geldátómat og stakk inn kortinu. Stelpan stimplaði inn leyninúmer- ið. Hún þurfti helst að gera það með mörgum fingrum eins og gjaldkerar í banka. Þessi leikni varð ítalska átómatinu hins vegar ofraun. Það spýtti kortinu mínu út úr sér og sagði númerið rangt. Áður en ég náði að góma plastið ýtti stelpan því inn á ný og þannig stóð það i vélinni. Fór hvorki inn né út. Voru nú góð ráð dýr enda kortið undirstaða ferðalagsins. Án þess varð hvorki keyptur matur, hótel né bensín á bílinn, svo ekki sé nú minnst á bjór handa pabba, hvítvín handa mömmu og ís fyrir stelpur í aftursæti. Ég hugðist grípa til neyðarað- gerða til þess að toga kortið út úr maskínunni en þá heyrðist blúbb og martröðin fullkomnaðist.'Vélin át kortið mitt og ropaði ekki einu sinni. Á skjáinn kom ein setning: Hafðu samband við bankann þinn! Ekki veit ég um landafræðikunn- áttu þessa tóls í San Remo en dreg þó í efa að það hafa heyrt Kópavog nefndan. Með þessu er alls ekki verið að gera lítið úr nefndu sveit- arfélagi. Það lá hins vegar ljóst fyrir að tækið taldi mig fjár- glæframann og stöðvaði umsvif mín því tafarlaust. Breitt bak á ferð Það var komið kvöld og ítalskir bankastarfsmenn sátu heima í pasta og rauðvíni. Það vildi til að við hjónakornin áttum fyrir kvöldmat og ítölsku simmerfræi. Draumfarir mínar voru ekki góð- ar enda átti ég þá nótt við gráðug átömöt og fór flatt í þeim viðskipt- um. Ég var fyrsti viðskiptavinur ítalska bankans morguninn eftir og blandaði saman ýmsum timgu- málum þegar ég skýrði tortryggn- um bankamanni frá því að fyrir framan hann stæði einstakt séntil- I leit að simmerfræi til þess að leggja á sig akstur suð- ur alla Evrópu til þess að komast þangað og þá líka til baka. Hún hugsaði líka um stúlkurnar i aft- ursætinu sem gera raunar margt skémmtilegra en að sitja lengi í bfl. Ferðalagið var því undirbúið af kostgæfni, sérstaklega með til- liti tfl þeirra. Emil gerist óþolandi Þegar við lögðum af stað í liðn- um mánuði fylgdi okkur því tals- verður farangur. Ég á því að venj- ast að fara með léttar töskur utan en þungklyfjaður heim. í þetta skipti var það öfugt. í farteskinu voru ótal dúkkur fyrir yngri skvísuna, dúkkuföt til skiptanna, bangsar og mjúkir birnir. Sú eldri tók með sér stafla af ástar- og ör- lagasögum. Með í för voru líka tvær leikjatölvur og mikið af leikj- um. Koma átti í veg fyrir rifrildi með því að hafa tvö apparöt alveg eins. Það sem mestu máli skipti var síðan segulbandasafn heimU- isins og nálægra heimUa. Þar gat að líta valin lög úr söngleikjum og poppívaf fyrir stóru stelpuna og nánast endalausar sögur fyrir þá litlu. Þar bar hæst sjálfan EmU í Kattholti en önnur stórmenni æv- intýranna voru þar, svo sem dát- inn í Eldfærunum, Þumalína, Svínahirðirinn, sagan af skild- ingnum, Penninn og blekbyttan og svo má lengi telja. Það var því ekkert til fyrirstöðu þegar haldið var suður þýskar hraðbrautir frá Lúxemborg, sól- ríkan dag á glansandi Ford. EmU í Kattholti söng sinn fyrsta tón í bU- tækjnu og var vel þolanlegur. Af- staða mín tU Emils átti þó eftir breytast því yngri dóttirin vildi hlusta á hann í heUd sinni ekki sjaldnar en tvisvar á dag næsta mánuðinn. Undir það síðasta var EmU trauðla í mínum vinahópi. Sama er að segja um svínahirðinn og prinsessuna. Hún söng með hirðmeyjum sínum um sinn kæra Ágústín og var aUt horfið burt. Þegar liðnar voru þrjár vikur af ferðalaginu lagði ég fæð á hyskið allt í keisarahöUinni. Lokavikuna mátti ég ekki til þess hugsa að heyra enn einu sinn um næturgal- ann og fleiri góðar gjafir sem hinn ungi konungsson færði hortugri prinsessunni. En hvað gerir maður ekki tU þess að halda friðinn og barninu ánægðu í aftursætinu? Það verður jú að viðurkennast að sex ára barn hefur takmarkaða ánægju af því að þjóta á hraða kappaksturs- bUa á breiðum átóbönum. Simmerfræ Konan sagði mér fyrirfram að hún kviði því mest að leita að hót- eli á nánast hverjum degi. Ég var því skipaður í þá nefnd og voru nefndarmenn ekki fleiri. Leitin að húsum merktum „Zimmer frei“ varð oft skrautleg og tímafrek enda vorum við í fríi á sama tima og heimamenn. Þessi simmerfræ eru víða i Þýskalandi og yfirleitt ágæt. Þau hafa og þá kosti að vera Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri viðráðanleg fyrir íjölskyldufólk á ferð, mun ódýrari en stærri hótel. Þar sem við vorum með stelpurn- ar með okkur þurfti stærri her- bergi og fleiri rúm. Það reyndi því verulega á gömlu menntaskóla- þýskuna og frönskuna en brátt urðu orðin „Zimmer" og „cham- bre“ mitt uppáhald og ég bræddi hikstalaust hjörtu margra þétt- holda húsfreyja. Ég fór fögrum orðum úm þær, hús þeirra og her- bergi um leiö og ég lagði áherslu á flekklausan feril íslenskra ferða- manna. Toppnum náði ég samt þegar ég beitti sömu aðferö við ítalskar senjórur og bað um „camera" á tungumáli sem ég hef aldrei lært. Á meðan á þessu skjalli öllu stóð var frúin í bílnum og beið þess að eiginmaðurinn hefði herbergislykil upp úr krafs- inu. Vélræn martröð Ferðin gekk raunar eins og í sögu, í bókstaflegri merkingu, með Emil og dátann og það lið allt í eyrunum. En það vita þeir sem ferðast, hvort sem það er innan- lands eða utan, að ekkert gerist án peninga. Þar treysti ég á mitt plastkort og tók út feita bankóseðla hvar sem ég sá hrað- banka eða Geldautomat eins og þeir kalla þetta fyrirbrigði í út- landinu. Ég hef rótgróna vantrú á alls konar átómötum, hvort sem það eru sjálfsalar á bensínstöðv- um, bílastæðum eða hvað sem þetta heitir allt saman. í reisunni löngu komst ég þó ekki hjá því að brúka þennan sjálfvirka búnað og fyrst í stað gekk það farsællega. Ég rak greiðslukortið í rauf á bankavélum þessum, stimplaði inn mitt leyninúmer og úr átómat- inu gubbuðust peningarnir. Skuldadagarnir koma síðar. Ég get þó ekki neitað því að al- laf var ég fremur kvíðinn í viður- eign minni við tólin. Eldri dóttirin hafði hins vegar gaman af því að spila á lyklaborðið og ræða vél- rænt við það. En ótti minn reynd- ist ekki ástæðulaus. Þegar við á bakaleið komum við í ítölsku gleðiborginni San Remo vildi ég enn ná mér í lírur. Ég fann mér menni. Heiðarlegri maður væri vart finnanlegur í Kópavogi og nærsveitum. Bankamaðurinn hafði ekki heyrt Kópavog nefndan. Hann opnaði vélina og fann kortið í meltingarfærum hennar. Starfsmaðurinn hringdi út um víðan völl og hélt á kortinu mínu. Þótt ég sé sleipur í samningum víð ítalskar frúr um kamerur skildi ég ekki orð en vissi í hjarta mínu að ég var saklaus. Það kom líka á daginn. Viðmót bankamannsins var allt annað eftir hringingarnar. Þar kom í ljós að hér var á ferð eitt af breiðari bökum Kópavogs- kaupstaðar, maður sem mátti ekki vamm sitt vita. Bankinn bauð mér milljónir líra. „Hvað viltu mikið?“ spurði þjónn bankans auðmjúkur. Um leið og ég fékk kortið í hendur fylltist ég fyrra sjálfstrausti og neitaði fyrirgreiðslu þessarar stofnunar eins kuldalega og unnt var. Sagðist fara þegar í stað tfl Frakklands í von um betri þjón- ustu. Hótunin virtist ekki hafa teljandi áhrif á manninn. Fjölskyldunnar beið því ljúfur tími það sem eftir var ferðar með kortið góða á öruggum stað. Var- lega var farið að átömötum það sem eftir lifði reisunnar en þau gerðu samt það sem fyrir var lagt. Eftir að heim var komið sá ég að álögin voru horfin af eiginkon- unni því hún ámálgaði aðra utan- landsferð nákvæmlega tveimur dögum eftir að við lentum í í Leifs- stöð. Þá þekkti ég aftur mitt heimafólk. Jónas Haraldsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.