Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Qupperneq 12
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1994
, 0'lend bóksjá
Metsölukilju r
Bretiand
i Skáldsögur:
í S- Tom Clancy:
Debt of Honour.
2. Barbara Taylor Bradford:
’ Everythlng to Galn.
i 3. Maeve Blnchy:
The Glass Lake.
i 4. John Irvlng:
A Son of the Clrcus.
5. Danlelle Steel:
Accldent.
6. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
: 7. Patrlcia D. Cornwell:
The Body Farm.
i 8. John Grlsham:
The Chamber.
9. Jakcle Collings:
Hollywood Klds.
, 10. Jeffrey Archer:
Twelve Red Herrings.
Rlt almenns eölis:
; 1. Rlchard Preston:
The Hot Zone.
> 2. lan Botham:
Botham: My Autoblography.
i 3. Blli Bryson:
Made In America.
4. Peter de la Bllllére:
Looklng for Trouble.
5. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
> 6. Jung Chang:
Wlld Swans.
t 7. John Mortlmer:
Murderers and Other Friends.
> 8. Stephen Hawklng:
í A Brlef Hlstory of Tlme.
9. J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
j 10. Michael Barrymore:
i Back In Buslness.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1 Use Nrgaard:
Kun en plge.
. 2. Jung Chang:
Vllde svaner.
: 3. Joanna Trollope:
Den spanske elsker.
4. Josteln Gaarder:
Sofies verden.
i 5. Bao Nlnh:
Krigens sorg.
: 6. Barbara Vine:
Astas bog.
' 7. Francesco Alberonl:
Erotlk.
(Byggt á Polltiken Sndag)
vísindi_________________
Brúnir dvergar
í geimnum
Spænskir stjamvísindamenn
hafa orðiö fyrstir til að finna
: svokallaðan brúnan dverg uppi í
himingeimnum. Þar er um að
ræða fyrirbæri sem er einhvers
staðar á milli stjömu og risa-
plánetu, að sögn tímaritsins Nat-
: ure.
Brúni dvergur þessi hefur
fengið nafnið Teide 1 en hann er
að fmna í stjörnuþyrpingunni
: Sjöstirninu, um 400 ljósár í
burtu. Talið er að brúni dverg-
urinn sé 100 milljón ára gamall.
Stjarnfræðingar höfðu spáð
fyrir tilvist brúnu dverganna en
vegna eðlislægs ljósskorts þeirra
var erfltt aö koma auga á þá.
Efasemdir um
eðluegg
Vísindamenn í Frakklandi
hafa fundið 70 milljón ára gaml-
ar steíngervðar leifar fugls sem
kann að hafa verið á stærð við
strútinn.
Sömu menn segja að egg sem
fundust í Pýreneafjöllum og
talið er aö hafi verið risaeðluegg
gætu í raun verið fuglsegg.
í bréfi til vísindaritsins Nat-
ure segja frönsku vísindamenn-
irnir að steingervðu leifarnar,
sem þeir fundu, séu hluti
mjaðmargrindar fugls. Erfltt sé
að segja nákvæmlega til um
stærðarhlutíollin en ljóst sé að
hann var stór.
Umsjón
j Guðlaugur Bergmundsson
|,i......................
Endurminningar
hershöfðingjans
Sjaldan hefur jafn miklu verið
kostað til vegna söluherferðar á
ævisögu eins og þessa dagana vest-
ur i Bandaríkjunum. Þar er um að
ræða ævisögu hershöföingja sem að
sögn kunnugra stefnir beinustu leið
í Hvita húsið.
Herforinginn heitir Colin Powell.
Hann er fyrsti blökkumaðurinn sem
náði þeim metorðum að skipa for-
sæti í herráði Bandaríkjanna - og
varð heimsfrægur fyrir vikið vegna
þess að hann gegndi þessu mikil-
væga embætti á tímum Persaflóa-
stríðsins.
Áhrifamiklir aðilar í stjórnmála-
flokki repúblíkana þar vestra ætla
að sjá til þess að Powell fari sömu
pólitísku braut og annar vinsæll
hershöfðingi, Dwight D. Eisen-
hower, sem var forseti Bandaríkj-
anna í tvö kjörtímabil á sjötta ára-
tugnum.
Fyrsta upplagið
um milljón eintaka
Sjálfsævisagan, sem Powell hefur
unnið við síðustu tvö árin í sam-
vinnu við kunnan ævisagnahöfund,
Joseph E. Persico að nafni, heitir
„My American Journey" og er gefin
út af stórfyrirtækinu Random Hou-
se. Fullyrt er að forlagið hafi greitt
Powell um 6,5 milljónir Bandaríkja-
dala (um 430 milljónir íslenskra
króna) fyrir útgáfuréttinn. Fyrsta
upplagið er 950 þúsund eintök og
COLIN
POWELL
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
söluverðið 25,95 dalir.
Sérfræðingar segja að forlagið
verði að selja að minnsta kosti hálfa
aðra milljón eintaka á þessu verði
til að hafa hagnað af útgáfunni. Má
í því sambandi nefna að ævisaga
annars Persaflóastríðsforingja,
Normans Schwarzkopfs, seldist í
um einni milljón eintaka.
Forlagið hefur þegar náð inn
nokkru af þessari fjárhæð með sölu
á bókinni til útgefenda í öðrum
löndum og til bandarísks bóks-
klúbbs. Og hafin er rándýr áróðurs-
herferð sem áróðursmeistari fyrir-
tækisins kallar draumaferð. Powell
mun m.a. koma fram í öllum helstu
viðtalsþáttum bandarískra sjón-
varpsstöðva og ferðast á milli tutt-
ugu stórborga þar sem hann veitir
viðtöl og áritar bók sína í helstu
bókaverslunum. Þá verður auglýst
grimmt í dagblöðum og tímaritum
um allt landið.
Reis úr fátækt
til æðstu metorða
En hvað þá um bókina sjálfa?
Að sögn gagnrýnenda lýsir hún í
fyrsta lagi æviferli sem er eins kon-
ar staðfesting á ameríska draumn-
um. Powell er blökkumaður sem
reis úr fátækt til æðstu metorða í
bandaríska hemum.
Þá fjallar Powell itarlega í bók-
inni um þátt sinn í Persaflóastríð-
inu og samskiptin við forseta
Bandaríkjanna, fyrst George Bush
og síðan Bill Clinton sem reyndi að
fá hann til að gegna toppembætti í
ríkisstjórn sinni.
Hins vegar þykir Powell oft frek-
ar orðvar í frásögn sinni, enda er
varkárni sagt eitt helsta skapgerðar-
einkenni mannsins. Að sögn kunn-
ugra kemur því ekki margt á óvart
í nýju ævisögunni.
Málamiðlun um nýjan margmiðlunargeisladisk:
Níu mánaða baráttu
risafyrirtækja
„Þetta er sigur fyrir neytandann,"
sagði Henk Bott, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Philips rafeinda
fyrirtækisins, þegar hann til
kynnti að málamiðlun hefði
náðst í stríðinu um staðal-
inn fyrir nýja geisla-
diskatækni framtiðar-
innar.
Samkeppnin um
hina nýju tækni stóð
milli Philips og Sony
annars vegar og
hóps fyrirtækja und-
ir forustu hins jap-
anska Toshiba og
ameríska íjölmiðl-
arisans Time Warner
hins vegar.
Það voru Philips og
Sony sem lögðu fram til
löguna um málamiðlunina
eftir níu mánaða baráttu um
hvor fylkingin yrði ofan á og
þannig var komið í veg fyrir sams
konar strið og geisaði á myndbanda-
spólumarkaðinum fyrir fimmtán
árum þegar Betamax og VHS spólur
kepptu um hylli neytenda. Mjög
hart var lagt að fylkingunum að
slíðra sverðin og vinna saman.
Nýi geisladiskurinn, sem hefur
ensku skammstöfunina DVD (Digi-
tal Video Disk), hefur verið í þróun
frá því um miðjan niunda áratug-
inn. Hann verður sömu stærðar og
hljómdiskar eru nú. Með honum
Ekki er reiknað með að hinir nýju
diskar komi á markaðinn fyrr en
undir árslok 1996 eða í ársbyrjun
1997.
verður kleift að leika margmiðlun-
arefni hvers konar, tónlist, kvik-
myndir og gögn, og tengja spilarann
við tölvur eða sjónvarp.
Helsti þáttur málamiðlunarinnar,
sem fyrirtækin komust að, felst í þvi
að diskurinn, hvort sem er fyrir
tölvur eða myndsýningartæki, bygg-
ir á grunnhönnun frá Toshiba en
tækni frá Philips og Sony verð-
ur notuð til að lesa gögnin á
diskinum og tlytja þau.
Hægt verður að geyma
135 mínútur af
myndefni, af sömu
gæðum og sést í kvik-
myndahúsum, ef not-
aður er diskur þar
sem aðeins er efni á
annarri hliðinni. Ef
tveggja hliða diskar
eru notaðir, verður
hægt að geyma 270
mínútur af kvikmynd-
um og öðru efni. Það
mundi duga undir stór-
mynd á borð Á hverfanda
hveli.
Samkomulagið felur einnig í
sér að DVD-spilararnir, sem
verða framleiddir, munu geta leikið
hljómdiska eins og þeir eru nú og
enn fremur frekari útgáfur af DVD-
diskunum. Einnig eiga CD-ROM
diskar fyrir tölvur að passa í spilar-
ann, núverandi myndgeisladiskar
og íleira.
„Hinn nýi staðall er lifandi dæmi
um það hvernig stórfyrirtæki um
allan heim geta unnið saman til
hagsbóta fyrir neytandann," sagði
Warren Lieberfarb hjá Time Warn-
er.
Metsölukiljur
: Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Sidney Sheldon:
Nothlng Lasts Forever.
2. Patricla Cornwell:
The Body Farm.
3. Stephen Klng: Insomnla.
4. Celeb Carr:
The Allenist.
5. Carol Shields: The Stone Dlaries.
6. Tom Clancy:
Debt of Honor.
i 7. Phllllp Margolin:
The Last Innocent Man.
8. John Grlsham:
The Chamber.
9. Sandra Brown:
Prlme Tlme.
10. Ellzabeth George:
Playlng for the Ashes.
: 11. Barbara Taylor Bradford:
1 Everything to Galn.
: 12. John T. Lescroart:
; The 13th Juror.
J 13. Jayne Ann Krentz: Trust Me.
: 14. K. E. Woodlwiss og fieiri:
Three Weddlngs and a Kiss.
15. Anne Rice: Lasher.
Rit almenns eðlls:
1. Richard Preston:
The Hot Zone.
2. Tim Allen:
Don’t Stand to Close
To a Naked Man.
3. J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
4. Mary Pipher:
Reviving Ophella.
5. B.J. Eadle & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
6. Thomas Moore:
Care of the Soul.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
i 8. Maya Angelou:
l I Know why the Caged Blrd Slngs.
9. Delany, Delany & Hearth:
Havlng Our Say.
10. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
: 11. Lao Tzu:
: Tao Te Chlng.
12. Balley White:
Mama Makes up Her Mlnd.
. 13. Thomas Moore:
Soul Mates.
> 14. LouAnne Johnson:
Dangerous Minds.
15. Laurence Leamer:
The Kennedy Women.
(Byggt á New York Times Book Review)
Nýir vinir
bændanna
Plöntur sem senda frá sér
ljós þegar sjúkdómar herja á
: þær gætu komið bændum fram-
; tíðarinnar aö miklu liði í við-
leitni þeirra að útrýma ýmsum
óþverra sem getur skaðað upp-
skeru þeirra.
Breski líffræðingurinn Tony
Trewavas segir að einnig megi
hugsa sér stofuplöntur sem gefi
frá sér ljós þegar þarf að vökva
þær og jafnvel rós sem glóir
þegar ástfangiö par andar á
hana.
Það sem vísindamennirnir
j gera er að flytja erfðaefni úr
lýsandi prótíni ákveðinna teg-
unda marglyttna yfir i plönt-
urnar. Fram til þessa hefur að-
eins tekist að flytja hið lýsandi
gen yfir í tóbaksplöntur. Þær
lýsa þó ekki nægilega til að það
greinist með berum augum.
: Trewavas telur innan þriggja
ára verði búiö að þróa plöntu
sem gefur frá sér sýnilegt ljós.
Nýtt eldsneyti
á strætó
Danskt fyrirtæki hefur sótt
: um að fá að reyna nýja tegund
eldsneytis í sex almennings-
i vögnum í Danmörku í tvö og
; hálft ár. Eldsneyti þetta, DME,
j er sagt geta komið í staðinn fyr-
ir dísilolíu og það mengar nán-
: ast ekki neitt.
„Við teljum það vera til hags-
bóta fyrir samfélagið að fá að
prófa hvort DME er jafn gott
fyrir umhverfið og við höld-
: um,“ segir John Bögild, deild-
: arstjóri fyrirtækisins. Haldor
Topsöe sem hefur þró'að þetta
j nýja eldsneyti.