Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
Dagur í lífi Úmars Smára Ármannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns:
Löggumál afgreidd
Ómar Smári Ármannsson hefur nóg að gera í forvarnardeild lögreglunn-
ar. Hann hefur þó ekki látið sig muna um að skrifa barna- og unglingabók.
DV-mynd GVA
Þegar ég kom heim undir mið-
nætti þennan dag mundi ég eftir að
ég hafði lofað að gera DV grein fyr-
ir degi í lífi mínu. Ég settist niður
við gamla tölvugarminn, setti ræs-
irofann á ON, beið og barði síöan
samkvæmt venju þrisvar í hliðina
á kassanum. Við það tók drifið við
sér. Þetta er áreiðanlega ekki góð
meðferð á tækinu en öðruvísi er
ekki hægt að fá það til samstarfs.
Mig hefur dreymt um að eignast
nýja eða notaða 486 eða pentium
með Microsoft Word 6 eða ein-
hverju sambærilegu ritvinnslufor-
riti en hef ekki haft efni á því. Mér
hefur þó tekist að skrifa á garminn
160 síðna barna- og unglingasögu
og er byrjaður á annarri. Þær bíða
hins vegar betri tima.
Ég hafði vaknað snemma eins og
jafnan á mánudögum og vakið
stelpumar fyrstu vakningu áður
en ég lagði af stað í vinnuna. Stelp-
urnar voru óvenjusyfjaðar. Um
helgina hafði sú eldri verið á for-
ingjanámskeiði hjá skátunum.
Hún hafði ásamt félögum sínum
dvalið í tjaldi og lekum skála við
leik og störf í hávaðaroki og rign-
ingu nálægt Djúpavatni. Það kom
þó ekki að sök því skátar eru aldir
upp við slík skilyrði og búa sig í
samræmi við þau. Sú yngri haföi
dvalið með okkur hjónunum á
Gistiheimilinu Geysi í Haukadal
ásamt vinafólki um helgina. Þar er
aðstaðan til mikillar fyrirmyndar
og umhverfið býður upp á fjöl-
breytilega útivistarmöguleika.
Fundur með
lögreglustjóra
Á lögreglustöðinni biðu ótal
verkefni. Eftir að hafa boðið mín-
um mönnum góðan daginn prent-
aði ég dagbók helgarinnar til að
koma hluta af henni í aðgengilegra
form. Um er að ræða útdrátt til að
gefa þeim sem hafa áhuga yfirlit
um viðburði helgarinnar. Persónu-
legum og staðbundnum upplýsing-
um er sleppt. Mörg af þeim við-
kvæmari málum sem lögreglu-
menn þurfa að fást við koma þó
sjaldnast eða aldrei fyrir augu eða
eyni almennings.
Á hverjum morgni er fundur yf-
irstjórnar meö lögreglustjóra þar
sem farið er yfir mál líðandi stund-
ar, þau reifuð og lögð drög að öðr-
um sem framundan eru. Að fundi
loknum ræddi ég við fólk sem vildi
koma athugasemdum og upplýs-
ingum á framfæri um löggæsluleg
málefni. Sumt var þó einungis
komið til að ræða um sín hugðar-
efni, s.s. varðandi umferöarmál, af-
brot ýmiss konar og útivist bama
og ungmenna. Síminn hringdi svo
til látlaust. Um var að ræða fólkið
í borginni eða sérhæft fag- og fjöl-
miölafólk að leita almennra upp-
lýsinga eöa nánari gagna vegna
málefna sem það hefur til meðferð-
ar. Bjarni Dagur var t.d. að leita að
manni sem hafði komið við sögu
máls fyrir 14 árum. Fréttakonu á
Útvarpinu vantaði staðfestingu á
orðum manns, sem hún hafði veriö
-að taka viðtal við, um afskipti lög-
reglunnar af hans málum. Hjalti
Nielsen hjá ÁTVR var að leita töl-
fræðilegra upplýsinga sem tengd-
ust afleiöingum áfengisneyslunnar
til samræmis viö hliðstæðar upp-
lýsingar annars staðar af Norður-
löndum en þær er að finna í árs-
skýrslu embættisins. Maður vUdi
vekja athygli á áfengisauglýsingu á
einni útvarpsstöðinni sem og í
bæklingi sem dreift hefur verið í
hús á höfuðborgarsvæðinu. Ragn-
hildur á MBL spurðist fyrir um
mál sem hún hafði haft spurnir af.
Maður nokkur kvartaði yflr óþol-
andi hávaða langt fram á nótt frá
bUskúrsbandi í einu hverfi borgar-
innar. Ég bauðst tU að hitta hann á
staðnum um hálfeUefú um kvöldið.
Svona mætti lengi telja. Engir
fundir voru síðdegis þennan dag
sem er óvenjulegt.
Nágrannavarsla
Vinur minn, Sveinn Björnsson,
fyrrverandi yfirlögregluþjónn í
Hafnarfirði og listmálari, hafði
samband en mér hafði verið gert
að taka viðtal við hann fyrir Lög-
reglumanninn, blað Landssam-
bands lögreglumanna. Við ákváð-
um að hittast í vinnustofu hans í
Krísuvík eftir kl. 17. Ekki vannst
tími tU hádegisverðar því ég notaði
tímann tU að verða við tilmælum
formanns Félags yfirlögregluþjóna,
Bjöms Mikaelssonar, um að nálg-
ast afmælisgjöf sem ætluð er Svani
Geirdal, yfirlögregluþjóni á Akra-
nesi, en hann varð sextugur sl.
laugardag.
Forvarnardeild lögreglunnar í
Reykjavík vinnur m.a. að al-
mannatengslum, aðstoð við áfeng-
issjúklinga, vímuefnavörnum,
bama- og unglingamálefnum, af-
brotavömum, slysavömum og hef-
ur umsjón með leyfisskyldri starf-
semi. Eitt af þeim verkefnum sem
deildin er nú að vinna að því að
koma á blað er helstu upplýsingar
um nágrannavörsluna svonefndu
en hún er þekkt forvarnaraðferð
.víða erlendis.
Frændi minn, Einar Júlíusson,
söng fyrir mig á leiðinni í Krísu-
vík. Við eigum sama afmælisdag -
hann er bara tíu árum eldri.
Bæjarmálefnin tóku við
Að taka viðtal við mann eins og
Svein Bjömsson er efni í heila bók.
Ekki vannst timi til að borða
kvöldverð né heldur að mæta á
boöaðan fund bekkjarfulltrúa í Set-
bergsskóla kl. 19.30.
Þegar ég kom heim biðu skila-
boð um að hringja í Ellert Borgar,
félaga minn í meirihluta bæjar-
stjórnar. Okkur hafði verið falið að
vinna að drögum að skipuriti
vegna fyrirhugaðra stjórnsýslu-
breytinga hjá Hafnarfjarðarbæ. Að
þessu búnu fór ég á almennan fund
tengdan störfum mínum fyrir
sveitarfélagið. Ingvar Viktorsson
bæjarstjóri hélt þar ágæta fram-
sögu.
Eftir fundinn hitti ég viðmæl-
andann sem kvartaði yfir bílskúrs-
bandinu. Eftir samtal við tvo með-
limi hljómsveitarinnar náðist sam-
komulag um að framvegis yrði
ekki æft í skúrnum að kvöld- og
næturlagi.
Þegar ég kom heim á ný biðu
skilaboð um að hringja i mann
sem ég kannaðist ekki við. í ljós
kom að hann var að biðja mi,g sem
formann félagsmálaráðs, að leggja
sér lið I tilteknu máli hjá stofnun-
inni. Ég ræddi við manninn í
stundarfjórðung og kvaðst myndu
kanna málið. Meira gat ég ekki
gert að svo komnu máli.
Finnur þú fimm breytingar? 328
Nafn:.
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugustu og
sjöttu getraun reyndust vera:
Heimili:-
1. Drífa Sigurðardóttir
Skaftahlíð 26
105 Reykjavík
2. Sigríöur S. Guömundsdóttir
Efstasundi 62
104 Reykjavík
Myndimar tvær viröast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáö kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfti sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið-
stöðinni, Síðumúia 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru i
verðlaun heita Líkþrái maöurinn og
Athvarf öreigans, úr bókaflokknum
Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790.
Bækumar eru gefnar út af Frjálsri
fjölmiðlun.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 328
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík