Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Side 30
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
sviðsljós
*■ “
Ensk börn á hafnarbakkanum f Freemantle í Astralíu skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar.
am#* . 'í ■
& TT fgjfílr ^ T mm| - Æ i s L
Þúsundir barna fluttar frá Englandi til breskra nýlendna:
Látin þræla og beitt
kynferðislegu ofbeldi
- ætla í mál gegn yfirvöldum
Þúsundir breskra barna voru 1
lok seinni heimsstyrjaldarinnar og
allt til ársins 1967 fluttar til ystu af-
kima breska heimsveldisins til þess
að auka við hvíta kynstofninn í ný-
lendunum. Um var að ræða börn
sem komið hafði verið fyrir á stofn-
unum í Bretlandi. Sum barnanna
voru á stofnunum vegna þess að þau
voru munaðarlaus. Öðrum hafði
verið komið fyrir þar í tímabundið
fóstur vegna fátæktar foreldranna.
Foreldrunum var síðan tjáð að börn-
in hefðu verið ættleidd og að þau
væru í góðum höndum.
Sannleikurinn var hins vegar sá
að fjöldi þessara barna hafnaði í
klóm svokallaðra kristilegra sam-
taka. Bömin voru látin þræla og
beitt alls kyns ofbeldi, meðal annars
kynferðislegu.
900 börn í skipi
Flutningarnir á börnunum náðu
hámarki skömmu eftir heimsstyrj-
öldina síðari. Fjöldi skipa, með allt
að níu hundruð böm um borð, sigldi
þá tii Ástralíu. Á hafnarbakkanum
voru tekin fingraför af börnunum
en fæðingar- og skímarvottorð tekin
af þeim. Þau áttu ekkert eftir nema
minningar. Sumum barnanna var
komið fyrir á einkaheimilum, öðr-
um á stórbýlum og stofnunum.
Æskuár flestra þeirra urðu
hörmuleg, sérstaklega þeirra sem
voru send til Kristnu bræðranna,
samtaka kaþólskra munka sem sáu
um rekstur fjölda stofnana í Ástral-
íu. Stærsta stofnunin, í Bindoon ná-
lægt Perth, var stolt héraðsins þar
til sannleikurinn kom í ljós fyrir
nokkrum árum.
Fárnarlömb munka
I Bindoon voru þrælabúðir fyrir
bömin. Þau voru varnarlaus fórnar-
lömb munkanna sem misnotuðu
þau kynferðislega. „Við vorum bara
litlir saklausir drengir. Nokkrir
voru ekki eldri en fjögurra, fimm
ára. Við byggðum Bindoon. Við
blönduðum svo mikið sement að
rykið brenndi fætur okkar. Þaö sett-
ist einnig í sárin á hnjánum á okk-
ur og höndum," hefur eitt fórnar-
lambanna sagt við félagsráðgjafann
Margaret Humphrey í Nottingham í
Englandi. Það var hún sem fletti
ofan af þessu hneykslismáli eftir níu
ára rannsóknir.
í mál gegn yfirvöldum
Nú hefur hópur barnanna frá
Bindoon farið fram á bætur. Hópur-
inn hefur í nokkur ár rekið mál sitt
í ástralska réttarkerfinu. Á næsta
ári munu 200 þeirra vera reiðubúin
að höfða mál í London gegn bresk-
um yfirvöldum, kaþólsku kirkjunni
og nokkrum af stærstu líknarstofn-
unum Bretlands.
Það var skoðun yfirvalda og líkn-
arstofnana að barnanna biði betri
framtíð í nýlendunum en á barna-
heimilum í stríðshijáðu heimaland-
inu. Auk þess var það skoðun kaþ-
ólskra leiðtoga í Ástralíu að nauð-
synlegt væri að fjölga hvitum inn-
flytjendum þar til þess að ekki staf-
aði ógn af milljónum Asíubúa. Þess
vegna greiddu bresk yfirvöld líknar-
stofhunum ákveðna upphæð fyrir
hvert bam sem flutt var úr landi.
Börnin í Bindoon bjuggu við
ómannúðlegar aðstæður. Drengirnir
voru skelfingu lostnir. Þeir óttuðust
barsmíðar munkanna og enn meir
heimsóknir þeirra að næturlagi þeg-
ar staðnæmst var við rúm einhvers
drengjanna og hann borinn afsíðis.
Hótað lífláti
í fyrstu var Margaret Humphrey
hótað lífláti vegna uppljóstrananna.
Nú er hún taiin hetja í Ástralíu og
hefur fengið viðurkenningu yfir-
valda. Samtökin Kristnu bræðurnir
hafa játað að misþyrmingár hafi átt
sér stað í stórum stil. Risastór stytta
af yfirmanni Bindoon, Francis Kea-
ney, þar sem hann heldur utan um
lítinn dreng, hefur verið tekin nið-
ur. Eftir uppljóstranirnar var litið á
styttuna sem háð í garð fórnarlamba
hans. Kaþólska kirkjan i Ástralíu
hefur nú aðstoðað við að koma á
laggirnar hjálparstofnun sem er
systurstofnun þeirrar sem Margaret
rekur í Nottingham.
Þögn í Bretlandi
Margaret hefur tekist að sameina
hundruð útfluttra miðaldra manna
og mæður þeirra eða ættingja í Bret-
landi. Þörfin fyrir aðstoð er gífurleg
því hinir útfluttu þrá að fá að vita
um uppruna sinn. Margir vita hins
vegar hvorki hvaða nöfn þeim voru
gefin í bernsku né heldur hvenær
þeir eru fæddir.
í Bretlandi ríkir enn þögn um
þessi mál. Bresk yfirvöld fullyrða að
gögn um útfluttu börnin hafi verið
eyðilögð. Hjálparstofnanirnar reyna
Hjónaband Liz Taylor út um þúfur:
Larry Fortensky, sem er nýskil-
inn við Liz Taylor eftir fjögurra ára
hjónaband, er ekki á flæðiskeri
staddur. Sagt er að honum hafi ver-
ið boðnar yfir 800 milljónir ís-
lenskra króna við skilnaðinn gegn
því skilyrði að greina ekki fjölmiðl-
um frá einkalífi þeirra hjóna, að því
er segir í Sunday Times. Það þykir
dágóð upphæð miðað við þá upphæð
sem Liz og Larry eru sögð hafa
samið um í upphafi sambúðarinnar,
nefnilega 50 milljónir.
Taliö er að Larry, sem er fyrrver-
andi byggingaverkamaður og tutt-
ugu árum yngri en Liz, hafi fengið
boð um sjóð upp á 400 milljónir sem
gefur af sér 40 milljónir í vexti á ári,
hús á Malibu-ströndinni sem metiö
er á 130 milljónir, hlutabréf og verð-
bréf upp á 130 milljónir, 15 milljónir
í ferðapeninga, tvö Harley-Davidson
hjól og skartgripi og fatnað fyrir 50
milljónir.
Það eru þó ýmsir sem hafa hagn-
ast betur á hjónaböndum sínum en
Larry. Einn þeirra er Thierry Rous-
sel sem varð 5 milljörðum króna
ríkari þegar hann skildi við Christ-
inu Onassis 1987 eftir þriggja ára
hjónaband. Fyrir ári greindi Thi-
erry vinum sínum frá því að hann
hefði tapað hundruðum milljóna á
viðskiptum í Portúgal en að hann
munaði varla um þá upphæð. Thi-
erry, sem er nú giftur Gaby Land-
hage, konunni sem hann hélt við all-
an tímann meðan hann var kvæntur
Christinu, lifir nú sældarlífi. Þegar
Christina lést arfleiddi hún hann að
einkaþotu. í erfðaskránni var jafn-
framt ákvæði um að hann skyldi fá
80 milljónir króna á ári til dauða-
dags. Hann á skemmtisnekkju á
Miðjarðarhafi, tvö hús í Sviss, þrjár
íbúðir í París og stórt hús utan við
borgina. Hann á auk þess stóra hús-
eign í Marbella.
Danny Keough, fyrrum eiginmað-
ur Lisu Marie Presley, viidi að dóm-
stólar í Kaliforníu færu með skiln-
aðarmál hans og Lisu. Samkvæmt
kalifornískum lögum á að skipta
eignum jafnt án tiilits til þess hvort
að þegja
ijónanna fer fram á skilnað. Lisa
Marie, sem fær yfir 11 milljarða í
arf þegar hún verður þrítug í janúar
1999, vildi hins vegar að gengið yrði
frá skilnaðinum í Flórída. Fúllyrt er
að Danny hafi krafist 5 milljarða.
Skilnaðarpappírarnir voru skrifaðir
í Dómíníska lýðveldinu þar sem
dómstólar þurfa ekki að greina frá
því hvort fékk hvað. En samkvæmt
orðrómi er Keough ríkur maður.
Fyrsti eiginmaður Roseanne, Bill
Pentland, fékk 325 milijónir þegar
hjónaband þeirra fór út um þúfur.
„Hann ætti að borga mér helming-
inn af sínum launum en hvað hef ég
að gera með 40 dollara," sagði Ros-
eanne sem lenti í annarri rimmu er
hún skildi við eiginmann sinn núm-
er tvö, Tom Arnold. Hann fór fram á
7 milijónir króna í lífeyri á mánuði.
En dómstólar komust að því að eig-
inkonan hafði einungis 40 miUjónir
króna í reiðufé. Málinu er sagt ólok-
ið.
Frá brúðkaupi Liz og Larrys fyrir fjórum árum. Hjónabandinu er nú lokið.