Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Page 22
34
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
Fólk í fréttum
Pálmi Matthíasson
Pálmi Matthíasson, sóknar-
prestur í Bústaðaprestakalli, Kjal-
arlandi 8, Reykjavik, fékk mest
fylgi sem hugsanlegur forseta-
frambjóðandi í skoðanankönnun
DV er spyrjendur voru beðnir um
að gera upp á mllli tíu einstak-
linga.
Starfsferill
Pálmi fæddist á Akureyri 21.8.
1951. Hann varð stúdent frá MA
1971 og lauk embættisprófl í guð-
fræði frá Háskóla íslands 1977.
Pálmi starfaði hjá Rannsóknar-
lögreglunni í Reykjavík og RLR
sumrin 1974-77, var sóknarprest-
ur í Melstaðarprestakalli 1977-81,
sóknarprestur í Glerárprestakalli
á Akureyri 1982-89 og er sóknar-
prestur í Bústaðaprestakalli frá
1989. Þá stundaði hann dagskrár-
gerð og fréttamerinsku hjá Ríkis-
útvarpinu 1982-89.
Pálmi sat í stjómum Æskulýðs-
félags Akureyrarkirkju, Ung-
templarafélagsins Fannar á Akur-
eyri, ÍBA 1967-70 og var formaður
um skeið, Æskulýðssambands
kirkjunnar í Hólastifti 1979-89, í
kjaranefrid Prestafélags íslands
1979-82, var formaður Fijálsí-
þróttaráðs Akureyrar, formaður
íþróttabandalags Akureyrar 1989,
í dómaranefnd og nú í lands-
liðsnefnd HSÍ, í héraðsnefrid
Reykjavíkurprófastsdæmis frá
1991.
Fjölskylda
Pálmi kvæntist 12.10. 1974 Unni
Ólafsdóttur, f. 9.6. 1954, kennara
og skrifstofumanni. Foreldrar
hennar eru Ólafur Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Happdrættis
SÍBS, og Borghildur Kjartansdótt-
ir kjólameistari.
Dóttir Pálma og Unnar er
Hanna María, f. 25.9. 1975, við-
skiptafræðinemi við HÍ.
Bræður Pálma eru Stefán Ein-
ar, f. 4.5. 1958, doktor í æðaskurð-
lækningum í Hálsingborg í Sví-
þjóð; Gunnar Rúnar, f. 4.4. 1961,
sjúkrahúsprestur og háskólakenn-
ari í Chicago í Bandaríkjunum.
Foreldrar Pálma: Mattiiías Ein-
arsson, f. 10.6. 1926, lögregluvarð-
stjóri á Akureyri, og k.h., Jó-
hanna María Pálmadóttir, f. 28.8.
1927, fúlltrúi.
Ætt
Matthías er sonur Einars, vél-
stjóra í Grenivík, bróðrn- Jak-
obínu, ömmu prestanna Jóns
Helga á Dalvik og Péturs í Lauf-
ási Þórarinssona. Önnur systir
Einars var Anna, amma séra
Kristjáns Vals, rektors í Skálholti,
og Björns, skólastjóra á Grenivík,
Ingólfssona. Einar var sonur Guð-
bjarts í Sælandi á Grenivík
Bjarnasonar og Sigríðar Bjarnar-
dóttur.
Móðir Matthíasar var Guðrún,
systir Hermanns menntaskóla-
kennara, föður Stefáns borgar-
verkfræðings. Guðrún var dóttir
Stefáns, útvegsb. í Miðgörðum í
Grenivík, Stefánssonar, og Frið-
riku, systur Jóhanns, afa Jóhanns
Konráðssonar söngvara, foður
Kristjáns óperusöngvarar. Frið-
rika var einnig systir Aðalheiðar,
móður Fanneyjar, móður Krist-
jáns Jóhannssonar. Bróðir Fann-
eyjar er Hákon Oddgeirsson óp-
erusöngvari en systir Fanneyjar
er Agnes, móðir Magnúsar Jóns-
sonar óperusöngvara. Friðrika
var dóttir Kristjáns, b. á Végeirs-
stöðum í Fnjóskadal, Guðmunds-
sonar, og Lísibetar Bessadóttur, b.
í Skógum, Eiríkssonar, bróður
Guðlaugs, langafa Halldórs, foður
Kristínar alþm.
Jóharina María er dóttir Pálma,
útgerðarm. á Akureyri, bróður
Sigríðar, ömmu Ólafs Magnússon-
ar læknis. Pálmi var sonur Frið-
riks, b. i Arnarnesi, Guðmunds-
sonar, b. á Jódísarstöðum, Guð-
mundssonar, bróður Halldórs,
langafa Sigurðar Guðmundssonar
vigslubiskups. Annar bróðir Guð-
mundar var Helgi, langafi séra
Birgis Snæbjörnssonar. Móðir
Guðmundar var Helga Jónsdóttir,
systir Guðlaugar, ömmu Jónasar
Jónassonar á Hrafnagili. Móðir
Friðriks var Sigríöur, systir Guð-
rúnar, langömmu Sigurgeirs, bæj-
arstjóra á Seltjamarnesi.
Móðir Jóhönnu Maríu er Guð-
rún, systir Friðriku, móður Þor-
kels og Friðriks Guðbrandssona
lækna og systir Guðjóns, föður
Hermanns vitamálastjóra. Guðrún
er dóttir Jóhannesar, smiðs í
Pálmi Matthíasson.
Litla-Laugardal í Fáskrúðsfirði,
Friðrikssonar, og Guðbjargar
Vagnsdóttur. Móðir Guðbjargar
var Þorbjörg Kristjánsdóttir. Móð-
ir Þorbjargar var Guðbjörg, systir
Matthíasar, afa Ásgeirs Ásgeirs-
sonar forseta. Guðbjörg var dóttir
Markúsar, prests á Álftamýri,
Þórðarsonar, ættfoður Vigurætt-
arinnar, Ólafssonar, ættföður Eyr-
arættarinnar, Jónssonar.
Afmæli
H1 hamingju
meö afmælið
19. október
75 ára
Gunnlaug Hannesdóttir,
Langholtsvegi 92, Reykjavík.
Valgerður Jónsdóttir,
Garðaflöt 5, Garðabæ.
Ragnheiður Eiríksdóttir,
Stangarholti 22, Reykjavík.
70 ára
Sigríður Guðjónsdóttir,
Lyngbergi 2, Þorlákshöfri.
Elí Jóhannesson,
Álfhólsvegi 151, Kópavogi.
Elí verður að heiman.
Torfi Kristinn Jónsson,
Mosabarði 6, Hafnarfirði.
Urður Ólafsdóttir,
Fellsmúla 13, Reykjavík.
Gunnar Frímannsson,
Lerkilundi 31, Akureyri.
Sigurður Jónsson,
Borgarheiði 27, Hveragerði.
Hallbjörn Björnsson,
Hólabraut 17, Skagaströnd.
Karl Magnússon,
Kleppsvegi 54, Reykjavík.
Sigriður Jóhannsdóttir,
Raftahlíð 45, Sauðárkróki.
Guðmundur Kjalar Jónsson,
Ásbúð 19, Garðabæ.
Steinunn Pálsdóttir,
Valhúsabraut 33, Seltjamamesi.
40 ára
60 ára
Guðrún Bjamadóttir,
Hrauni, Mýrahreppi.
Gísli M. Indriðason,
Sundstræti 31, ísafirði.
50 ára
Geirlaug Guðmundsdóttir,
Fagrabergi 54, Hafharfirði.
Geirlaug tekur á móti gestum á
heimili sínu laugardaginn 21.10.,
milli kl. 17 og 21.
Sigurður Teitur Halldórsson,
Hverfisgötu 104 C, Reykjavík.
Árni Grétar Gunnarsson,
Baughóli 54, Húsavík.
Þorsteinn I. Sigurösson,
Tunguseli 8, Reykjavik.
Aðalheiður S. Valgeirsdóttir,
Norðurtúni 4, Keflavík.
Guðrún Árnadóttir,
Hvassaleiti 30, Reykjavík.
Lovlsa Guðrún Viðarsdóttir,
Klettahrauni 19, Hafriarfirði.
Ragna Sigrún Sigfinnsdóttir,
Lónsá, Glæsibæjarhreppi.
Ari Már Torfason,
Norðurgötu 19, Akureyri.
Ámi Kristjánsson,
Karfavogi 33, Reykjavík.
Guðbjörn Kristmannsson
Guðbjöm Kristmannsson út-
gerðarmaður, Eyrargötu 4, Suður-
eyri, er sextugur i dag.
Starfsferill
Guðbjöm fæddist á Isafirði og
ólst þar upp. Hann fór ungur til
sjós og stundaði sjómennsku, m.a.
sem skipstjóri um árabil. Hann
kom síðan í land og var verkstjóri
hjá Fiskiðjunni Freyju í tólf ár. Þá
starfaði hann við trésmíðar og
beitningu um skeið en hefur gert
út krókaleyfísbátinn Berta frá
1989, auk þess sem hann stundar
enn beitningar.
Fjölskylda
Eiginkona Guðbjöms er Ingi-
björg Friðbertsdóttir, f. 22.10. 1937,
húsmóðir og fískvinnslukona, en
þau hófu sambúð 1957 og giftu sig
22.10.1960. Hún er dóttir Friðberts
G. Guðmundssonar og Jónu Magn-
úsdóttur sem bæði eru látin.
Börn Guðbjörns og Ingibjargar
eru Hjördís Hávarðsdóttir, f. 1955,
gift Ragnari Guðleifssyni, og eru
böm hennar Hörður Ingi Gunn-
arsson, Magnús Ástþór Ragnars-
son, Guðrún Ingibjörg Ragnars-
dóttir og Jóna Guðleifsdóttir; Þor-
steinn Hörður Guðbjömsson, f.
1957; Guðbjörg Guöbjömsdóttir, f.
1959, gift Sigurði Þórissyni, og em
börn hennar Guðbjöm Helgi
Sveinsson, Elísabet Rún Sigurðar-
dóttir og Þórir Siguijón Sigurðs-
son; Kristbjörg María Guðbjöms-
dótttir, f. 1964, gift Steingrími Á.
Guðmundssyni, og era börn þeirra
Hjörtur Steingrimsson og Þorgeir
Steingrímsson; Lilja Guðmunda
Guðbjömsdóttir, f. 1974.
Systkini: Jón Kristmannsson,
verkstjóri á ísafirði; Jens Krist-
mannsson, skrifstofúmaður á ísa-
firði; Kristmann Kristmannsson,
Guðbjöm Kristmannsson.
póstmeistari á Isafirði
Foreldrar Guðbjöms: Kristmann
Jónsson og Björg Sigríður Jóns-
dóttir sem lést 1995.
Guðbjörn er að heiman á afmæl-
isdaginn.
Héðinn Fífill Valdimarsson
Héðinn Fífill Valdimarsson
verkamaður, Laufásvegi 5, Stykk-
ishólmi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Héðinn fæddist í Rúfeyjum á
Breiðafirði og ólst þar upp til átta
ára aldurs en síðan hjá hjónunum
Kristjáni Haraldssyni og Ástu
Sturlaugsdóttur að Nýp á Skarðs-
strönd.
Hann fór sextán ára vinnumað-
ur að Ytri-Fagradal á Skarðs-
strönd á þar sem hann starfaði
fram yfir fertugsaldur. Hann flutti
í Stykkishólm 1981 og hefúr verið
þar verkamaður síðan, lengst af í
Þórsnesi hf.
Fjölskylda
Systkini Héðins: Guðlaug Þór-
unn Valdimarsdóttir, f. 14.11. 1919;
Karítas Valdimarsdóttir, f. 30.3.
1924; Ingibjörg Valdimarsdóttir, f.
29.6.1925; Gunnlaugur Valdimars-
son, f. 20.5. 1927; Gunnar Hafsteinn
Valdimarsson, f. 21.6. 1928; Jón
Þorberg Valdimarsson, f. 16.11.
1929; Sigurður Óli Valdimarsson, f.
11.1.1931; Kristinn Sigvaldi Valdi-
marsson, f. 2.6.1932; Ingvar Einar
Valdimarsson, f. 21.12.1933; Svan-
hildur Theódóra Valdimarsdóttir,
f. 4.9.1937; Guðbrandur Valdi-
marsson, f. 5.12. 1940; Kristrún
Inga Valdimarsdóttir, f. 16.5.1942;
Kristín Jóhanna Valdimarsdóttir,
f. 5.8. 1943.
Foreldrar Héðins vom Valdimar
Sigurðsson, f. 25.6. 1898, d. 26.9.
1970, bóndi í Rúfeyjum og síðar
verkamaður í Reykjavík, og k.h.,
Héðinn Fífill Valdimarsson.
Ingigerður Sigurbrandsdóttir, f.
22.8. 1901, d. 26.1. 1994, húsfreyja.
Margrét Matthildur Björnsdóttir
Margrét Matthildur Bjömsdóttir
húsmóðir, Hlíðarhjalla 53,
Kópavgi, er fimmtug í dag.
Fjölskylda
Margrét fæddist í Drangavík en
ólst upp á Svarthamri í Álftafirði.
Hún giftist 31.12.1965 Kristjáni
Einarssyni, f. 14.1.1940, starfs-
manni hjá Pósti og síma. Hann er
sonur Guðmundar Einars Krist-
inssonar og Guðrúnar Guðmunds-
dóttur á ísafirði.
Böm Margrétar og Kristjáns
era Guðmundur Einar, f. 16.9.
1965, birgðavörður hjá vamarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli, búsettur
í Kópavogi, var kvæntur Ölmu U.
Paran en þau slitu samvistum og
er dóttir þeirra Aðalheiður Rós, f.
26.4. 1990; Björn Ingi, f. 16.9. 1965,
kvæntur Amelitu Ýr Caparidu og
er dóttir þeirra Katfín Marie, f.
3.4.1991; Róbert, f. 2.6. 1969, inn-
kaupafulltrúi við matvöruverslun
vamarliösins en sambýliskona
hans er Þórlaug Svava Amardótt-
ir en dóttir hans frá fýrra hjóna-
bandi er Embla Isabella Pearl Ró-
bertsdóttir, f. 4.8. 1993; Friðrik, f.
1.3.1972, starfsmaður Kópavogs-
bæjar; Kristinn Rúnar, f. 2.8.1984.
Systkini Margrétar: Guðbjörg, f.
27.2. 1943, d. 4.100. 1993; Jón Guð-
mundur, f. 6.12.1946, búsettur á
ísafirði; Jónbjöm, f. 18.2. 1948, bú-
settur í Súðavík; Kristín, f. 1.9.
1949, búsett á ísafirði; Guðrún Sig-
ríður, f. 18.3. 1952, búsett á Djúpa-
vogi; Hafsteinn, f. 9.7. 1954, d. 16.1.
1995; Steinunn, f. 9.10.1955, búsett
í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar: Bjöm
Jónsson, f. 21.8. 1912, d. 12.12. 1993,
bóndi í Dalbæ í Súðavík, og Stella
Guðmundsdóttir, f. 7.5. 1923.
Margrét verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Margrét Matthildur Björnsdóttir.