Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Síða 22
34 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 Fólk í fréttum Pálmi Matthíasson Pálmi Matthíasson, sóknar- prestur í Bústaðaprestakalli, Kjal- arlandi 8, Reykjavik, fékk mest fylgi sem hugsanlegur forseta- frambjóðandi í skoðanankönnun DV er spyrjendur voru beðnir um að gera upp á mllli tíu einstak- linga. Starfsferill Pálmi fæddist á Akureyri 21.8. 1951. Hann varð stúdent frá MA 1971 og lauk embættisprófl í guð- fræði frá Háskóla íslands 1977. Pálmi starfaði hjá Rannsóknar- lögreglunni í Reykjavík og RLR sumrin 1974-77, var sóknarprest- ur í Melstaðarprestakalli 1977-81, sóknarprestur í Glerárprestakalli á Akureyri 1982-89 og er sóknar- prestur í Bústaðaprestakalli frá 1989. Þá stundaði hann dagskrár- gerð og fréttamerinsku hjá Ríkis- útvarpinu 1982-89. Pálmi sat í stjómum Æskulýðs- félags Akureyrarkirkju, Ung- templarafélagsins Fannar á Akur- eyri, ÍBA 1967-70 og var formaður um skeið, Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti 1979-89, í kjaranefrid Prestafélags íslands 1979-82, var formaður Fijálsí- þróttaráðs Akureyrar, formaður íþróttabandalags Akureyrar 1989, í dómaranefnd og nú í lands- liðsnefnd HSÍ, í héraðsnefrid Reykjavíkurprófastsdæmis frá 1991. Fjölskylda Pálmi kvæntist 12.10. 1974 Unni Ólafsdóttur, f. 9.6. 1954, kennara og skrifstofumanni. Foreldrar hennar eru Ólafur Jóhannesson, framkvæmdastjóri Happdrættis SÍBS, og Borghildur Kjartansdótt- ir kjólameistari. Dóttir Pálma og Unnar er Hanna María, f. 25.9. 1975, við- skiptafræðinemi við HÍ. Bræður Pálma eru Stefán Ein- ar, f. 4.5. 1958, doktor í æðaskurð- lækningum í Hálsingborg í Sví- þjóð; Gunnar Rúnar, f. 4.4. 1961, sjúkrahúsprestur og háskólakenn- ari í Chicago í Bandaríkjunum. Foreldrar Pálma: Mattiiías Ein- arsson, f. 10.6. 1926, lögregluvarð- stjóri á Akureyri, og k.h., Jó- hanna María Pálmadóttir, f. 28.8. 1927, fúlltrúi. Ætt Matthías er sonur Einars, vél- stjóra í Grenivík, bróðrn- Jak- obínu, ömmu prestanna Jóns Helga á Dalvik og Péturs í Lauf- ási Þórarinssona. Önnur systir Einars var Anna, amma séra Kristjáns Vals, rektors í Skálholti, og Björns, skólastjóra á Grenivík, Ingólfssona. Einar var sonur Guð- bjarts í Sælandi á Grenivík Bjarnasonar og Sigríðar Bjarnar- dóttur. Móðir Matthíasar var Guðrún, systir Hermanns menntaskóla- kennara, föður Stefáns borgar- verkfræðings. Guðrún var dóttir Stefáns, útvegsb. í Miðgörðum í Grenivík, Stefánssonar, og Frið- riku, systur Jóhanns, afa Jóhanns Konráðssonar söngvara, foður Kristjáns óperusöngvarar. Frið- rika var einnig systir Aðalheiðar, móður Fanneyjar, móður Krist- jáns Jóhannssonar. Bróðir Fann- eyjar er Hákon Oddgeirsson óp- erusöngvari en systir Fanneyjar er Agnes, móðir Magnúsar Jóns- sonar óperusöngvara. Friðrika var dóttir Kristjáns, b. á Végeirs- stöðum í Fnjóskadal, Guðmunds- sonar, og Lísibetar Bessadóttur, b. í Skógum, Eiríkssonar, bróður Guðlaugs, langafa Halldórs, foður Kristínar alþm. Jóharina María er dóttir Pálma, útgerðarm. á Akureyri, bróður Sigríðar, ömmu Ólafs Magnússon- ar læknis. Pálmi var sonur Frið- riks, b. i Arnarnesi, Guðmunds- sonar, b. á Jódísarstöðum, Guð- mundssonar, bróður Halldórs, langafa Sigurðar Guðmundssonar vigslubiskups. Annar bróðir Guð- mundar var Helgi, langafi séra Birgis Snæbjörnssonar. Móðir Guðmundar var Helga Jónsdóttir, systir Guðlaugar, ömmu Jónasar Jónassonar á Hrafnagili. Móðir Friðriks var Sigríöur, systir Guð- rúnar, langömmu Sigurgeirs, bæj- arstjóra á Seltjamarnesi. Móðir Jóhönnu Maríu er Guð- rún, systir Friðriku, móður Þor- kels og Friðriks Guðbrandssona lækna og systir Guðjóns, föður Hermanns vitamálastjóra. Guðrún er dóttir Jóhannesar, smiðs í Pálmi Matthíasson. Litla-Laugardal í Fáskrúðsfirði, Friðrikssonar, og Guðbjargar Vagnsdóttur. Móðir Guðbjargar var Þorbjörg Kristjánsdóttir. Móð- ir Þorbjargar var Guðbjörg, systir Matthíasar, afa Ásgeirs Ásgeirs- sonar forseta. Guðbjörg var dóttir Markúsar, prests á Álftamýri, Þórðarsonar, ættfoður Vigurætt- arinnar, Ólafssonar, ættföður Eyr- arættarinnar, Jónssonar. Afmæli H1 hamingju meö afmælið 19. október 75 ára Gunnlaug Hannesdóttir, Langholtsvegi 92, Reykjavík. Valgerður Jónsdóttir, Garðaflöt 5, Garðabæ. Ragnheiður Eiríksdóttir, Stangarholti 22, Reykjavík. 70 ára Sigríður Guðjónsdóttir, Lyngbergi 2, Þorlákshöfri. Elí Jóhannesson, Álfhólsvegi 151, Kópavogi. Elí verður að heiman. Torfi Kristinn Jónsson, Mosabarði 6, Hafnarfirði. Urður Ólafsdóttir, Fellsmúla 13, Reykjavík. Gunnar Frímannsson, Lerkilundi 31, Akureyri. Sigurður Jónsson, Borgarheiði 27, Hveragerði. Hallbjörn Björnsson, Hólabraut 17, Skagaströnd. Karl Magnússon, Kleppsvegi 54, Reykjavík. Sigriður Jóhannsdóttir, Raftahlíð 45, Sauðárkróki. Guðmundur Kjalar Jónsson, Ásbúð 19, Garðabæ. Steinunn Pálsdóttir, Valhúsabraut 33, Seltjamamesi. 40 ára 60 ára Guðrún Bjamadóttir, Hrauni, Mýrahreppi. Gísli M. Indriðason, Sundstræti 31, ísafirði. 50 ára Geirlaug Guðmundsdóttir, Fagrabergi 54, Hafharfirði. Geirlaug tekur á móti gestum á heimili sínu laugardaginn 21.10., milli kl. 17 og 21. Sigurður Teitur Halldórsson, Hverfisgötu 104 C, Reykjavík. Árni Grétar Gunnarsson, Baughóli 54, Húsavík. Þorsteinn I. Sigurösson, Tunguseli 8, Reykjavik. Aðalheiður S. Valgeirsdóttir, Norðurtúni 4, Keflavík. Guðrún Árnadóttir, Hvassaleiti 30, Reykjavík. Lovlsa Guðrún Viðarsdóttir, Klettahrauni 19, Hafriarfirði. Ragna Sigrún Sigfinnsdóttir, Lónsá, Glæsibæjarhreppi. Ari Már Torfason, Norðurgötu 19, Akureyri. Ámi Kristjánsson, Karfavogi 33, Reykjavík. Guðbjörn Kristmannsson Guðbjöm Kristmannsson út- gerðarmaður, Eyrargötu 4, Suður- eyri, er sextugur i dag. Starfsferill Guðbjöm fæddist á Isafirði og ólst þar upp. Hann fór ungur til sjós og stundaði sjómennsku, m.a. sem skipstjóri um árabil. Hann kom síðan í land og var verkstjóri hjá Fiskiðjunni Freyju í tólf ár. Þá starfaði hann við trésmíðar og beitningu um skeið en hefur gert út krókaleyfísbátinn Berta frá 1989, auk þess sem hann stundar enn beitningar. Fjölskylda Eiginkona Guðbjöms er Ingi- björg Friðbertsdóttir, f. 22.10. 1937, húsmóðir og fískvinnslukona, en þau hófu sambúð 1957 og giftu sig 22.10.1960. Hún er dóttir Friðberts G. Guðmundssonar og Jónu Magn- úsdóttur sem bæði eru látin. Börn Guðbjörns og Ingibjargar eru Hjördís Hávarðsdóttir, f. 1955, gift Ragnari Guðleifssyni, og eru böm hennar Hörður Ingi Gunn- arsson, Magnús Ástþór Ragnars- son, Guðrún Ingibjörg Ragnars- dóttir og Jóna Guðleifsdóttir; Þor- steinn Hörður Guðbjömsson, f. 1957; Guðbjörg Guöbjömsdóttir, f. 1959, gift Sigurði Þórissyni, og em börn hennar Guðbjöm Helgi Sveinsson, Elísabet Rún Sigurðar- dóttir og Þórir Siguijón Sigurðs- son; Kristbjörg María Guðbjöms- dótttir, f. 1964, gift Steingrími Á. Guðmundssyni, og era börn þeirra Hjörtur Steingrimsson og Þorgeir Steingrímsson; Lilja Guðmunda Guðbjömsdóttir, f. 1974. Systkini: Jón Kristmannsson, verkstjóri á ísafirði; Jens Krist- mannsson, skrifstofúmaður á ísa- firði; Kristmann Kristmannsson, Guðbjöm Kristmannsson. póstmeistari á Isafirði Foreldrar Guðbjöms: Kristmann Jónsson og Björg Sigríður Jóns- dóttir sem lést 1995. Guðbjörn er að heiman á afmæl- isdaginn. Héðinn Fífill Valdimarsson Héðinn Fífill Valdimarsson verkamaður, Laufásvegi 5, Stykk- ishólmi, er sextugur í dag. Starfsferill Héðinn fæddist í Rúfeyjum á Breiðafirði og ólst þar upp til átta ára aldurs en síðan hjá hjónunum Kristjáni Haraldssyni og Ástu Sturlaugsdóttur að Nýp á Skarðs- strönd. Hann fór sextán ára vinnumað- ur að Ytri-Fagradal á Skarðs- strönd á þar sem hann starfaði fram yfir fertugsaldur. Hann flutti í Stykkishólm 1981 og hefúr verið þar verkamaður síðan, lengst af í Þórsnesi hf. Fjölskylda Systkini Héðins: Guðlaug Þór- unn Valdimarsdóttir, f. 14.11. 1919; Karítas Valdimarsdóttir, f. 30.3. 1924; Ingibjörg Valdimarsdóttir, f. 29.6.1925; Gunnlaugur Valdimars- son, f. 20.5. 1927; Gunnar Hafsteinn Valdimarsson, f. 21.6. 1928; Jón Þorberg Valdimarsson, f. 16.11. 1929; Sigurður Óli Valdimarsson, f. 11.1.1931; Kristinn Sigvaldi Valdi- marsson, f. 2.6.1932; Ingvar Einar Valdimarsson, f. 21.12.1933; Svan- hildur Theódóra Valdimarsdóttir, f. 4.9.1937; Guðbrandur Valdi- marsson, f. 5.12. 1940; Kristrún Inga Valdimarsdóttir, f. 16.5.1942; Kristín Jóhanna Valdimarsdóttir, f. 5.8. 1943. Foreldrar Héðins vom Valdimar Sigurðsson, f. 25.6. 1898, d. 26.9. 1970, bóndi í Rúfeyjum og síðar verkamaður í Reykjavík, og k.h., Héðinn Fífill Valdimarsson. Ingigerður Sigurbrandsdóttir, f. 22.8. 1901, d. 26.1. 1994, húsfreyja. Margrét Matthildur Björnsdóttir Margrét Matthildur Bjömsdóttir húsmóðir, Hlíðarhjalla 53, Kópavgi, er fimmtug í dag. Fjölskylda Margrét fæddist í Drangavík en ólst upp á Svarthamri í Álftafirði. Hún giftist 31.12.1965 Kristjáni Einarssyni, f. 14.1.1940, starfs- manni hjá Pósti og síma. Hann er sonur Guðmundar Einars Krist- inssonar og Guðrúnar Guðmunds- dóttur á ísafirði. Böm Margrétar og Kristjáns era Guðmundur Einar, f. 16.9. 1965, birgðavörður hjá vamarlið- inu á Keflavíkurflugvelli, búsettur í Kópavogi, var kvæntur Ölmu U. Paran en þau slitu samvistum og er dóttir þeirra Aðalheiður Rós, f. 26.4. 1990; Björn Ingi, f. 16.9. 1965, kvæntur Amelitu Ýr Caparidu og er dóttir þeirra Katfín Marie, f. 3.4.1991; Róbert, f. 2.6. 1969, inn- kaupafulltrúi við matvöruverslun vamarliösins en sambýliskona hans er Þórlaug Svava Amardótt- ir en dóttir hans frá fýrra hjóna- bandi er Embla Isabella Pearl Ró- bertsdóttir, f. 4.8. 1993; Friðrik, f. 1.3.1972, starfsmaður Kópavogs- bæjar; Kristinn Rúnar, f. 2.8.1984. Systkini Margrétar: Guðbjörg, f. 27.2. 1943, d. 4.100. 1993; Jón Guð- mundur, f. 6.12.1946, búsettur á ísafirði; Jónbjöm, f. 18.2. 1948, bú- settur í Súðavík; Kristín, f. 1.9. 1949, búsett á ísafirði; Guðrún Sig- ríður, f. 18.3. 1952, búsett á Djúpa- vogi; Hafsteinn, f. 9.7. 1954, d. 16.1. 1995; Steinunn, f. 9.10.1955, búsett í Reykjavík. Foreldrar Margrétar: Bjöm Jónsson, f. 21.8. 1912, d. 12.12. 1993, bóndi í Dalbæ í Súðavík, og Stella Guðmundsdóttir, f. 7.5. 1923. Margrét verður að heiman á af- mælisdaginn. Margrét Matthildur Björnsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.