Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Side 28
iltfPfPOTTL
Námsmai
lírsan fv
hugsandi
náms
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIfi NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995.
Halldór Blöndal:
Ekki sviknir
í minni ráð-
herratíð
„Þetta fólk var ekki svikiö á meðan
ég var ráðherra í landbúnaðarráðu-
neytinu. Ég þekki ekki til þess. Loð-
dýrabændur lentu hins vegar margir
hverjir í mjög miklum fjárhagslegum
erfiðleikum. Sumir misstu eigur sín-
ar. Ríkið gekk hins vegar ekki al-
mennt inn í skuldamál bænda og
greiddi upp fyrir þá skuldir," sagði
Halldór Blöndal, fyrrverandi land-
búnaðarráðherra, í samtah viö DV í
morgun aðspurður um málefni ábú-
enda að Kvistum og Hvoli I í Ölfusi.
Ríkið hefur höfðað útburðarmál á
hendur ábúendum beggja býlanna
en þeir segja landbúnaðarráðuneytið
hafa svikið loforð um lausn á vanda
þeirra.
„Spumingin sem eftir stendur í dag
er hvort ríkið sé reiðubúið til að
ganga lengra í því að greiða upp þær
skuldir sem stofnað var til vegna loð-
dýrabúa. Á meðan ég var landbúnað-
arráðherra var stigið stórt skref í þá
átt en það dugði ekki öllum,“ sagði
HalldórBlöndal. -Ótt
-sjáviðtölbls.2
Kartöflustríðið:
Lægsta verð
25 krónur
Kartöfluverðstríðið mun halda
áfram í verslunum í höfuðborginni í
dag.
Kári Ingólfsson í Álfheimabúðinni,
sem er ný verslun, reið á vaðið í gær
og bauð kílóið á 49 krónur. Bónus
og Hagkaup svöruðu um hæl. Bónus
bauð 2 kg poka á 59 krónur og kart-
öflur í lausu á 25 krónur kílóið. Hag-
kaup bauð kílóið á 38,50 krónur.
Kári sagði við DV í morgun að lík-
lega yrði opnað í dag á sama verði.
Forráðamenn Bónuss og Hagkaups
sögðu slíkt hið sama.
„Þetta er hrein og klár skemmdar-'
starfsemi hjá þessari verslun og við
lækkuðum verðið eingöngu vegna
þess að það var lækkað í Hagkaupi.
Við bjóðum alltaf betur,“ sagði Guð-
mundur Marteinsson, rekstrarstjóri
hjá Bónusi, í samtali við DV.
„Ég tel það víst að menn munu
ekki láta svona rugl yfir sig ganga
einu sinni enn. Menn hætta að af-
henda vöruna upp á svona vitleysu.
Það verður að stöðva þetta í fæð-
ingu,“ sagöi Sigurbjartur Pálsson,
fráfarandi formaður kartöflubænda.
-bjb/sv
LOKI
i Svíþjóð ganga þessi ríkis-
greiðslukort undir nafninu
Bleiukortin!
„Umtíu
u
CnM4V PAmIhV ■ IMM
cnQðv regiiii mii
notkun kortanna
„Útgáfa þessara ríkisgreiðslu-
korta er á vegum hvers ráðuneytis
fyrir sig. Fjármálaráðuneytið hefur
enga heildaryfirsýn yfir útgáfu
þeirra. í Qármálaráðuneytinu hef
ég greiðslukort til að greiða það
sem ráöuneytið á að greiða fyrir
ráðherrann. Þetta greiðslukort er
mjög lítið notað nema erlendis,"
sagði Friðrik Sophusson fjárraála-
ráðherra \dð DV um ríkisgreiðslu-
kort sem eru í notkun.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um hefur núkið fjaörafok verið i
Svíþjóð vegna misnotkunar Mon-
iku Salin, aðstoðarforsætisráð-
herra þar í landi, á ríkisgreiðslu-
korti sem hún er með.
Gunnar HaU ríkisbókari staðfesti
að þessi kort hér á landi væru „um
tiu“ eins og hann orðaði það. Hann
vildi ekki gefa upp nákvæma tölu
né heldur hverjir bæru þessi kort.
Ríkísendurskoðandi hefur sagt op-
inberlega að kortin væru „teljandi
á fingrum beggja handa" eins og
hann tók til orða.
Það hefur hins vegar komið i Ijós
við eftirgrennslan DV að enginn
einn aöili hefur umsjón meö útgáfu
kortanna. Engar reglur ent heldur
til um notkun þeirra. Friörik Sop-
husson sagðist telja að um þau gUtu
bara sömu reglur og þegar um það
er að ræða að ráðherra eða aðrir
skuldbínda rikissjóð.
„Korthafar eiga ekki með
greiðslukortinu né með öðrum
hætti að taka út í nafni ríkisins
verðmæti eða annað til einka-
nota," sagði Friðrik Sophusson.
Tveir ráðherrar, sem DV hefur
rætt við, eru með ríkisgreiðslukort.
Það eru þeir Friðrik Sophusson og
Guðmundur Bjarnason landbún-
aöarráðherra.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagöi að sín hefði beðið
ríkisgreiðslukort þegar hún kom í
ráðuneytið. Hún sagðist hafa skilað
því vegna þess aö hún hefði ekkert
við það að gera.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra og Bjöm Bjarnason mennta-
málaráðherra, Halldór Blöndal
samgönguráðherra og Halldór Ás-
grímss'on eru ekki með þessi kort.
Páll sagðist bara vera með bensín-
kort frá ráðuneýtinu, annað ekki.
Gróf viðumefrii nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík:
4
Símaskrá fyrir t
skólastjórnina %
4
Ákaft hefur verið rýnt i nýja símaskrá nemenda i Menntaskólanum i Reykja-
vík. Eru nemendum þar gefin hin furðulegustu viðurnefni.
DV-mynd GVA
Skólafélag Menntaskólans
Reykjavík, MR, hefur gefið út síma-
skrá þar sem nafngreindum nemend-
um eru valin hin grófustu viður-
nefni.
„Ég vil ekkert segja um þetta mál.
Það er nýtt hér og hefur ekki verið
rætt,“ segir Ragnheiður Torfadóttir,
rektor MR.
Skólastjórn MR kemur saman nú í
vikunni þar sem símaskrármálið
verður tekið fyrir. Kalla átti skóla-
stjómina saman í gær en ekki náðist
þá í alla stjórnarmenn og var fundi
frestað.
Mikil óánægja hefur verið með
símaskrána frá því hún kom út á
mánudaginn og eru bæði kennarar
og margir nemendur ósáttir við
hvernig að málum var staðið. Áður
hafa verið gefnar út símaskrár af
þessú tagi en aldrei áður mun þó
hafa verið seilst svo langt í uppnefn-
um á nemendum.
Meðal nafna sem nemendum hafa
verið valin eru Brjóstapesetinn,
Kennarasleikja, Dráttarvél, Veiði-
maður, Reif í rifu, Nuddbudda, Göb-
bels, Inspektor túttus, Fann höfuð
af hrúti, Fullnæging, Skeit í skóginn,
Gredda, Stinna, Buxnabeib, Bitch,
Æði bora, Gelgja er alltaf full, Brjóst,
Marblettur, Phobic sex, Kunta,
Gaddagella, Dó á árshátíðinni og
fleira í þessum dúr.
Skólafélagið gefur símaskrána út
og er ábyrgt fyrir henni. Nefnist
skráin í ár Sveinbjörg Þórhndsdóttir
eftir Inspector scholae, Þórlindi
Kjartanssyni. Hann vildi fátt eitt um
útgáfuna segja í gær annað en að
„húmorinn" í bókinni væri óskiljan-
legur öðrum en þeim sem til þekktu
í skólanum og ætti ekkert erindi út
fyrir hann.
„Þetta hefur oft verið gert áður og
ekkert meira mál nú enda ekki ætl-
unin að særa nokkurn mann,“ sagði
Þórlindur.
-GK
Veðriðámorgun:
Veður 1 er
hlýnandi
A morgun verður hægviðri,
þurrt og bjart og nokkurt frost í
innsveitum á Norður- og Austur-
landi í fyrstu en snýst síðan í
sunnankalda og þykknar upp,
fyrst vestan til. Veður fer hlýn-
andi eftir því sem líður á daginn
og fer að rigna vestanlands síð-
degis.
Veðrið í dag er á bls. 36
bfother
tölvu
límmiða
prentari
IrrlVsl i
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443