Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995
Fréttir
Víðtækar björgunaraðgerðir vegna snjóflóðsins á Flateyri:
Hátt í400 manns
kallaðir til
fyrsti björgunarhópur kom til Flateyrar um tíuleytið
Stjórnstöð Almannavama ríkisins
við Hverflsgötu í Reykjavík var sett
í gang í morgun strax og fréttist af
snjóflóðinu á Flateyri. Almanna-
vamaráð kom saman ásamt tveimur
ráðherrum, Þorsteini Pálssyni dóms-
málaráðherra og Páh Péturssyni fé-
lagsmálaráöherra. AUt tiltækt björg-
unarhð var kallað út. Fyrsti hópur
lagði af staö akandi frá ísaflrði um
sexleytið í morgun með björgunar-
sveitarmenn, lækna, hjúknmarfólk
og leitarhunda frá ísafirði og Bolung-
arvík. Farið var um Vestfjarðagöng-
in og hópurinn sóttur frá Holti í
Önundarfirði og komið meö hann tíl
Flateyrar um tíuleytið.
Varðskipin Óðinn og Ægir eru á
leiðinni til Flateyrar með björgunar-
sveitarmenn, neyðarsveit slökkvi-
hðsins, tækjabúnað og leitarhunda.
Þá vom björgunarsveitarmenn og
leitarhundar væntanlegir frá Pat-
reksfirði sjóleiðina og leitarhunda-
flokkur frá Sauðárkróki landleiðina.
Björgunarsveitarmenn víðar af land-
inu em í viðbragsstöðu en vonsku-
veður hefur víða hamlað for þeirra.
Sömu sögu er að segja um þyrlur
Landhelgisgæslunnar og Vamarhös-
ins nema hvað Gæsluþyrlurnar fóru
til ’Grundarfjarðar til móts við Óðin.
Ekki var flugfært til Vestfjarða vegna
ókyrrðar í lofti en fara átti í loftið
um leið og slotaði. Ahs má reikna
með að hátt í 400 manns komi nálægt
björgun á einn eða annan hátt vegna
flóðsins.
Óðinn var staddur úti fyrir Breiða-
firði þegar kalhð kom. Skipið hélt af
* ^ n ' k * >< /
Varnirnar
héldu ekki
Snjóflóðið, sem féh úr Skolla-
hvilft að talið er, fyrir ofan Flateyri
um flögurleytið í nótt féll yfir tals-
verða byggð húsa alla leið að
heilsugæslustööinni og kirkjunni á
Flateyri. Snjóflóðavarnirnar á
svæðinu virtust hafa lítið að segja
því að flóöið fór langt yfir þær og
fór reyndar yfir miklu stærra
svæöi en talist hefur til hættusvæð-
is í þorpinu fram að þessu.
Snióflóðahætta hefur verið á
hverjum einasta vetri á Flateyri í
manna minnum og hafa snjóflóð
falhð á svo tíl hverjum vetri. I fyrra
var viövarandi snjóflóðahætta á
Flateyri eíns og annars staðar á
Vestflörðum um langan tima eftir
aö snjóflóð féll á Súðavík í janúar.
Hátt i tíu snjóflóð féllu á Flateyri í
fyrra, þar af eitt á norðanverða
eyrina. Það flóð hreif tvö hús með
sér og olli milljóna króna tjóni á
öðru þeirra.
Eftir stóra flóðið i fyrra lýstu
forráöamenn Flateyrar því yfir að
snjóflóöavamimar á svæðinu, það
er hólar og vamargarðar fyrir ofan
byggðina, hefðu forðaö byggðinni
við Olafstún og Hjallaveg á Flateyri
frá stórtjóni og er talaö um að varn-
imar á Flateyri séu með þeim
öflugustu.
Snjóflóðavamirnar höfðu þó htiö
að segja að þessu sinni. Fióðið í
nótt fór Iangt yfir vamimar út á
svokahað öruggt svæði, eins og
áður sagði, og hreif Qölda íbúðar-
húsa með sér.
-GHS/rt
Festar Ægis leystar snemma í morgun. Oðinn fer einnig til Flateyrar með
björgunarsveltarmenn frá Grundarfirði. Alls má reikna meö að hátt í 400
manns komi nálægt björgun á einn eða annan hátt vegna flóðsins.
DV-mynd Sveinn
Tíu rafmagnsstaurar
brotnir í Fljótum
stað th Grundarflarðar þar sem 80
manna björgunarsveitarhði og
tækjabúnaði hafði verið safnað sam-
an. Ægir lagði upp frá Reykjavíkur-
höfn um áttaleytið í morgun og er
væntanlegur th Flateyrar í kvöld,
auk Óðins. Reiknaö var með 10 tíma
siglingu hjá Óðni og 15 tíma hjá Ægi.
„Hér er gert aht sem mögulegt er.
Hér er safnað saman öllum möguleg-
um upplýsingum og staðan metin
eftir því,“ sagði Ingvar Valdimars-
son, upplýsingafuhtrúi Almanna-
varna, viö DV í morgun.
-bjb
Öm Þórarmsson, DV, Fljótum;
Mikið krapa- og ísingarveöur gerði
í Fljótum á þriðjudagskvöld og um
miðnætti fór rafmagn af ahri sveit-
inni. Við athugun kom í ljós að 10
staurar höfðu brotnað í háspennu-
línunni frá Skeiðsfossvirkjun í vest-
anverðum Austur-Fljótum. í gær átti
aö reyna að koma nýjum staurum
áleiðis að bhunarsvæðinu. Þá fór
veghefíll, sem moka átti veginn, út
af enda veður afleitt. Var því horfið
frá því aö reyna viðgerð í gær.
Nokkrir bæir í Flókadal misstu
rafmagn kl. 17 á þriðjudag en fengu
straum í 2 stundir um kvöldið þar til
öll sveitin fór út. Fljótamenn muna
vart jafn vont veður á þessum árs-
tíma og það sem nú gengur yfir.
I dag mælir Dagfari
Borgarsjóður hefur greitt samtals
tuttugu og eitt þúsund krónur fyrir
snyrtivörur handa borgarstjóran-
um. Þetta er nýjasti skandallinn
hjá borginni og alveg með ólíkind-
um hvernig meirihlutanum dettur
í hug að leyfa sér það bruðl að
kaupa snyrtivörur handa Ingi-
björgu Sólrúnu. Maður heíði svos-
um skhið þaö ef borgarsjóður hefði
verið látinn borga fyrir fót á borg-
arstjórann og reyndar hefur borg-
arsjóður séö um hreinsun á fatnaði
fyrri borgarstjóra meðan það var
karlmaður sem var borgarstjóri.
En að kaupa hreinlætisvörur og
snyrtivörur, svo sem hárblásara
og púður, það er fyrir neðan öh
velsæmismörk.
Hvenær hafa Reykvíkingar sam-
þykkt að þeir þyrftu að blása hárið
á Ingibjörgu? Eða púöra á henni
nefið? Var ekki Ingibjörg kosin
óblásin og ópúðruð og hver segir
að hún sé betri púðruð en ópúðruð?
Ekki við sem kusum hana. Og ekki
minnihluti sjálfstæðismanna, sem
segir að Ingibjörg sé ómöguleg
hvort sem hún er púðruð eða óp-
úðruö.
Þessi skandah komst upp þegar í
leitirnar kom reikningur dagsettur
í ágúst frá snyrtivöruversluninni
Borgarstjóri púðrar sig
Hygeu. Slíkan reikning hefur borg-
in aldrei greitt áður, segir DV í frétt
sinni um þennan skandal og hefur
það eftir endurskoðanda borgar-
innar að engar reglur ghdi um shk
innkaup. „Ef shkt á að gera tel ég
að það verði að setja skriflegar regl-
ur þar um.“
Þetta segir hinn skhvísi og ná-
kvæmi borgarendurskoðandi, sem
hefur sjálfsagt ekki áttað sig á því
að borgarstjórinn er kona, eða þá
að hann hefur áttað sig á því að
karlamir sem hafa verið borgar-
stjórar púðra sig ekki með púðri frá
Hygeu. Glöggur maður, borgarend-
urskoðandi, sem vhl hafa reglu á
hlutunum og ef borgarstjóri vih
blása á sér hárið til að hta betur
út þarf það að vera samkvæmt
skriflegri reglugerð.
Auk hárblásarans og púðursins
hefur komiö í ljós að enn fremur
hafa verið keyptar hreinlætisvörur
til brúks fyrir borgarstjórann Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur. Hvað
er eiginlega að gerast hjá borginni?
Hvert stefnir þetta? Vhl borgar-
stjóri virkhega ganga hreinn th
fara í starfi sínu, rétt eins og það
sé einhver skylda að vera hreinn í
móttökunum hjá borginni?
Hreinlæti er afstætt hugtak og
menn geta verið hreinir þótt þeir
séu ekki ahtaf að snyrta sig eða
baða sig eða þvo sér og er það th
of mikils mælst þótt borgarstjóri
ástundi hreinlæti án þess að borg-
arbúar annist kostnaðinn af því?
Atkvæðin sem Ingibjörg Sólrún
fékk í síöustu kosningum voru
greidd algjörlega án tihits til þess
hvort Ingibjörg væri þvegin eða
ekki. Hún hefur ekkert leyfi til að
kaupa hreinlætisvörur fyrir tutt-
ugu og eitt þúsund krónur, enda
þótt Markús Örn hafi látið borgina
hreinsa fyrir sig fötin eftir veisl-
urnar. Markús var ekki að láta
hreinsa fótin fyrirfram. Hann lét
því aðeins borgina hreinsa fótin
eftir á þegar blettir féllu á flibbann
hjá honum. Og sama má segja um
Ingibjörgu Hún getur svo sem
þvegið sér eftir á, ef hún subbar sig
út í veislunum, en það er lágmarks-
krafa að hún gangi hrein th fara á
eigin kostnað þegar hún mætir til
móttöku eða veislu í nafni borgar-
innar.
Nei, það er alveg sama hvernig á
mál þetta er htið. Meðan engar
skriílegar reglur ghda um hreinlæ-
tiskröfur eða hárgreiðslu borgar-
stjóra hlýtur borgarendurskoðandi
að gera athugasemdir við þaö bruðl
að kaupa snytirvörur frá Hygea.
Hann hefur stuðning okkar kjós-
enda við þá skoðun sína og það
kemur ekki th greina að borga
þennan reikning meðan reglugerð
er ekki fyrir hendi. Hvað þá þegar
engin reglugerð er heldur í gildi
um það hvort Ingibjörg þurfi yfir-
leitt að vera hrein th fara eða púðr-
uð á nefinu.
Um það var ahs ekki kosið.
Dagfari
■ö. Opel, vinsælasti bíll Evrópu
V_y □PEL Opel mest seldi bíll Evrópu 5 ár í röö