Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Page 5
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995
5
Fréttir
Golfsamband íslands úr 7. sæti í það 4. innan ÍSÍ:
Þetta er búið
að vera lygi og
aftur lygi
„Loksins komu réttar tölur í þetta.
Þetta er búið að vera lygi og aftur
lygi. Við erum og höfum aUtaf verið
með rauntölur vegna þess að það er
greitt af hverjum einasta kylfingi í
landinu til sambandsins. Hinir hafa
verið að ljúga allan tímann til þess
að reyna að ná í meiri styrki,“ segir
Frímann Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Golfsambands íslands
sem er með bestu niðurstöðuna þeg-
ar borið var saman félagatal og þjóð-
skrá. Samanburðurinn leiddi í ljós
að milh áranna 1993 og 1994 fjölgaði
félögum innan Golfsambandsins um
4 prósent úr 5.257 í 5.459. Golfsam-
bandið er nú flórða stærsta sérsam-
bandið innan ISÍ en var samkvæmt
félagaskrám árið 1993 í sjöunda sæti.
Frímann segir að þetta eigi sér þær
eðlilegu skýringar að félagaskrá
þeirra hafi aUtaf verið rétt og byggð
á einstakhngum og kennitölum
þeirra.
„Nú þegar farið er að keyra þetta
inn á kennitölum kemur sannleikur-
inn í ljós. Við erum eina sérsamband-
ið sem getur staðið á hverjum ein-
asta meöhrn og sannað hann,“ segir
Frímann.
Hannes Guðmundsson, formaður
Golfsambandsins, segir að sú breyt-
ing sem verður á félagatölunni innan
sérsambandanna, samkvæmt þeim
samanburði sem gerður hefur verið
við þjóðskrána, muni hafa mikla
þýðingu.
„Við höfum haft miUi 800 og 900
þúsund í útbreiðslustyrk. Hann gæti
nánast tvöfaldast við að fá réttar töl-
ur. Þá getur þetta haft önnur áhrif
líka. Við erum í 7.-8. sæti og ég er
sannfærður um að innan nokkurra
mánaða verðum við næststærsta sér-
sambandið. Það er stöðug fjölgun í
golfinu," segir Hannes. -rt
Félagaskrár voru ekki
sam viskusamlega unnar
- segir formaöur KSÍ
„Það er alveg á hreinu hvað knatt-
'spymuna varðar að félögin hafa,
mjög mörg, ekki gert þetta samvisku-
samlega í byrjun. Þetta er eitthvað
nýtt og menn að skrá þetta þar sem
þeir hafa einhvern frest. Menn gera
sér ekki alveg grein fyrir alvörunni
og að þetta getur þýtt minnkandi
tekjur fyrir félögin," segir Eggert
Magnússon, formaður Knattspymu-
sambands íslands sem samkvæmt
samanburði á félagataU og þjóðskrá
missir um 40 prósent félagsmanna
sinna.
Samanburðurinn er gerður sam-
kvæmt samþykkt þings íþróttasam-
bands íslands og byggður á félaga-
Ustum sem einstök félög innan sér-
sambandanna hafa sent ÍSÍ. Fyrstu
niðurstöður benda til þess að mikil
röskun verði meðal félaga og sérsam-
banda hvað varðar tekjur af lottói
og styrki frá ríki og sveitarfélögum.
Þá blasir einnig við að röskunverður
á valdahilutfóUum innan ÍSÍ verði
þessar niðurstöður endanlegar. Eg-
gert segir að samband hans hafi þeg-
ar sent út bréf tíl aðUdarfélaga sinna
þar sem lagt er að þeim að senda
endurbættar félagaskrár.
„Það var fundur hjá ÍSÍ sl. mánu-
Eggert Magnússon, formaður KSÍ.
dagskvöld þar sem framkvæmda-
stjórinn okkar var mættur. Þar voru
þessar tölur lagðar fram og við sjáum
strax að þetta eru aUs ekki réttar
tölur. Ég get ímyndað mér að rétt
tala hjá okkur verði um 16 þúsund
manns. Viö gerðum okkur grein fyr-
ir því strax þegar þetta var ákveðið
að okkar tölur myndu lækka, sem
og annarra. Það er þó ljóst að það á
eftir að lagfæra okkar tölur mjög
mikið. Það vUl verða þar sem stærsta
hreyfmgin á í hlut, þar verður mesta
lagfæringin,“ segir Eggert. -rt
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur:
Á annað þúsund manns „týndir"
„Ég reikna með aö við kippum
þessu í Uðinn, hvenær sem það verð-
ur, en við hlaupum ekkert upp tíl
handa og fóta að leita að kenni-
tölum,“ segir Sigfús Ægir Ámason,
framkvæmdastjóri Tennis- og bad-
mintonfélags Reykjavíkur sem fékk
endursenda hluta af félagaskrá frá
ÍSÍ þar sem á annað þúsund nöfn
voru með óljósan uppruna.
„Skýringin liggur í því að það þarf
að handkeyra kennitölumar. Við
skUum inn nafnahstum með heinúl-
isfóngum og símanúmerum. Þetta fer
í tölvukeyrslu hjá ÍSÍ og þau nöfn
sem finnast þar verða skráðir félagar
en þau sem ekki finnast em send til
okkar aftur," segir Sigfús Ægir.
Hann segir að varla svari kostnaði
að vinna upp félagaskrána.
„Það er spumingin hvers virði það
er að vinna þetta upp. Það er einskis
virði fyrir félagið. Þetta er spurning
um 10-20 þúsund krónur í styrk og
varla þess virði að eltast við það.
Þetta leiðréttist smám saman með
árunum. Það er mjög erfitt að vinna
þetta upp og ég get nefnt sem dæmi
að bam, sem er 10 til 12 ára og er í
einhverri íþróttagrein, veit ekki
kennitölu sína. Það þýðir að menn
verða að fara að fletta þessu upp.
Þetta er því spurning um handa-
vinnu," segir Sigfús Ægir.
Samkvæmt samanburði ÍSÍ fækkar
þeim sem iðka badminton úr því að
vera 7.334 í það að vera 4.501 eða um
38,6 prósent. Sigríður María Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Badmin-
tonsambands íslands segist vita af
fækkun en tölur ÍSÍ sýndu þó aðeins
of mikla fækkun innan sambandsins.
„Það vantar þarna inn í þrjú félög
sem em með þjálfara og mikla starf-
semi. Þá eigum við eftir að fá inn
fleiri frá Tennis- og badmintonfélagi
Reykjavíkur. Það eiga eftir að tínast
inn félagar sem laga þessa stöðu að-
eins. Ég gæti trúað að fækkunin yrði
um 30 prósent," segir Sigríður María.
-rt
Leikur nr. 25 í Lengjunni: ÍR - Grindavík
líkiirnar!
flæsti stuðulliníi táknar
ólíklegustu tirslitin
STUÐLAR
Lægsti stuðullinn 1,60 táknar líklegustu úrslitin og eftir því
sem stuðullinn hækkar þykja úrslitin óhklegri. En nú getur
það margborgað sig að taka séns! Einfaldlega vegna þess að
1, X og 2 tákna alltaf úrslit eftir venjulegan leiktíma, ekki
framlengingu -og stuðlamir margfalda vinninginn ef spá
þín reynist rétt!
Þú velur hvaða úrslitum þú
spáir í þessum leik.
Stuðlarnir sýna möguleikann á
hverjum úrshtum (1, X eða 2)
á tölfræðilegan hátt.
1,30
1,60
•‘Sfsfr
9,40
8,10
TfT
2,70
2,00
’tm*
Karfa
Karfa
*T<natt.
24 Fim. 26/10 19:30 Tindastóll - Þór
25 Fim. 26/10 19:30 ÍR - Grindavík
26 Fðs. 27/10 18:30 Cannes - Monaco