Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 5 Fréttir Golfsamband íslands úr 7. sæti í það 4. innan ÍSÍ: Þetta er búið að vera lygi og aftur lygi „Loksins komu réttar tölur í þetta. Þetta er búið að vera lygi og aftur lygi. Við erum og höfum aUtaf verið með rauntölur vegna þess að það er greitt af hverjum einasta kylfingi í landinu til sambandsins. Hinir hafa verið að ljúga allan tímann til þess að reyna að ná í meiri styrki,“ segir Frímann Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Golfsambands íslands sem er með bestu niðurstöðuna þeg- ar borið var saman félagatal og þjóð- skrá. Samanburðurinn leiddi í ljós að milh áranna 1993 og 1994 fjölgaði félögum innan Golfsambandsins um 4 prósent úr 5.257 í 5.459. Golfsam- bandið er nú flórða stærsta sérsam- bandið innan ISÍ en var samkvæmt félagaskrám árið 1993 í sjöunda sæti. Frímann segir að þetta eigi sér þær eðlilegu skýringar að félagaskrá þeirra hafi aUtaf verið rétt og byggð á einstakhngum og kennitölum þeirra. „Nú þegar farið er að keyra þetta inn á kennitölum kemur sannleikur- inn í ljós. Við erum eina sérsamband- ið sem getur staðið á hverjum ein- asta meöhrn og sannað hann,“ segir Frímann. Hannes Guðmundsson, formaður Golfsambandsins, segir að sú breyt- ing sem verður á félagatölunni innan sérsambandanna, samkvæmt þeim samanburði sem gerður hefur verið við þjóðskrána, muni hafa mikla þýðingu. „Við höfum haft miUi 800 og 900 þúsund í útbreiðslustyrk. Hann gæti nánast tvöfaldast við að fá réttar töl- ur. Þá getur þetta haft önnur áhrif líka. Við erum í 7.-8. sæti og ég er sannfærður um að innan nokkurra mánaða verðum við næststærsta sér- sambandið. Það er stöðug fjölgun í golfinu," segir Hannes. -rt Félagaskrár voru ekki sam viskusamlega unnar - segir formaöur KSÍ „Það er alveg á hreinu hvað knatt- 'spymuna varðar að félögin hafa, mjög mörg, ekki gert þetta samvisku- samlega í byrjun. Þetta er eitthvað nýtt og menn að skrá þetta þar sem þeir hafa einhvern frest. Menn gera sér ekki alveg grein fyrir alvörunni og að þetta getur þýtt minnkandi tekjur fyrir félögin," segir Eggert Magnússon, formaður Knattspymu- sambands íslands sem samkvæmt samanburði á félagataU og þjóðskrá missir um 40 prósent félagsmanna sinna. Samanburðurinn er gerður sam- kvæmt samþykkt þings íþróttasam- bands íslands og byggður á félaga- Ustum sem einstök félög innan sér- sambandanna hafa sent ÍSÍ. Fyrstu niðurstöður benda til þess að mikil röskun verði meðal félaga og sérsam- banda hvað varðar tekjur af lottói og styrki frá ríki og sveitarfélögum. Þá blasir einnig við að röskunverður á valdahilutfóUum innan ÍSÍ verði þessar niðurstöður endanlegar. Eg- gert segir að samband hans hafi þeg- ar sent út bréf tíl aðUdarfélaga sinna þar sem lagt er að þeim að senda endurbættar félagaskrár. „Það var fundur hjá ÍSÍ sl. mánu- Eggert Magnússon, formaður KSÍ. dagskvöld þar sem framkvæmda- stjórinn okkar var mættur. Þar voru þessar tölur lagðar fram og við sjáum strax að þetta eru aUs ekki réttar tölur. Ég get ímyndað mér að rétt tala hjá okkur verði um 16 þúsund manns. Viö gerðum okkur grein fyr- ir því strax þegar þetta var ákveðið að okkar tölur myndu lækka, sem og annarra. Það er þó ljóst að það á eftir að lagfæra okkar tölur mjög mikið. Það vUl verða þar sem stærsta hreyfmgin á í hlut, þar verður mesta lagfæringin,“ segir Eggert. -rt Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur: Á annað þúsund manns „týndir" „Ég reikna með aö við kippum þessu í Uðinn, hvenær sem það verð- ur, en við hlaupum ekkert upp tíl handa og fóta að leita að kenni- tölum,“ segir Sigfús Ægir Ámason, framkvæmdastjóri Tennis- og bad- mintonfélags Reykjavíkur sem fékk endursenda hluta af félagaskrá frá ÍSÍ þar sem á annað þúsund nöfn voru með óljósan uppruna. „Skýringin liggur í því að það þarf að handkeyra kennitölumar. Við skUum inn nafnahstum með heinúl- isfóngum og símanúmerum. Þetta fer í tölvukeyrslu hjá ÍSÍ og þau nöfn sem finnast þar verða skráðir félagar en þau sem ekki finnast em send til okkar aftur," segir Sigfús Ægir. Hann segir að varla svari kostnaði að vinna upp félagaskrána. „Það er spumingin hvers virði það er að vinna þetta upp. Það er einskis virði fyrir félagið. Þetta er spurning um 10-20 þúsund krónur í styrk og varla þess virði að eltast við það. Þetta leiðréttist smám saman með árunum. Það er mjög erfitt að vinna þetta upp og ég get nefnt sem dæmi að bam, sem er 10 til 12 ára og er í einhverri íþróttagrein, veit ekki kennitölu sína. Það þýðir að menn verða að fara að fletta þessu upp. Þetta er því spurning um handa- vinnu," segir Sigfús Ægir. Samkvæmt samanburði ÍSÍ fækkar þeim sem iðka badminton úr því að vera 7.334 í það að vera 4.501 eða um 38,6 prósent. Sigríður María Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Badmin- tonsambands íslands segist vita af fækkun en tölur ÍSÍ sýndu þó aðeins of mikla fækkun innan sambandsins. „Það vantar þarna inn í þrjú félög sem em með þjálfara og mikla starf- semi. Þá eigum við eftir að fá inn fleiri frá Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. Það eiga eftir að tínast inn félagar sem laga þessa stöðu að- eins. Ég gæti trúað að fækkunin yrði um 30 prósent," segir Sigríður María. -rt Leikur nr. 25 í Lengjunni: ÍR - Grindavík líkiirnar! flæsti stuðulliníi táknar ólíklegustu tirslitin STUÐLAR Lægsti stuðullinn 1,60 táknar líklegustu úrslitin og eftir því sem stuðullinn hækkar þykja úrslitin óhklegri. En nú getur það margborgað sig að taka séns! Einfaldlega vegna þess að 1, X og 2 tákna alltaf úrslit eftir venjulegan leiktíma, ekki framlengingu -og stuðlamir margfalda vinninginn ef spá þín reynist rétt! Þú velur hvaða úrslitum þú spáir í þessum leik. Stuðlarnir sýna möguleikann á hverjum úrshtum (1, X eða 2) á tölfræðilegan hátt. 1,30 1,60 •‘Sfsfr 9,40 8,10 TfT 2,70 2,00 ’tm* Karfa Karfa *T<natt. 24 Fim. 26/10 19:30 Tindastóll - Þór 25 Fim. 26/10 19:30 ÍR - Grindavík 26 Fðs. 27/10 18:30 Cannes - Monaco

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.