Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1995, Qupperneq 24
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 34 rtjm^önn '__________ Sverrir Hermannsson sendir Finni Ingólfssyni af og til skot. Er Sverri illa við Finn? „Einhverra hluta vegna hefur Sverrir fundið þörf hjá sér til að senda mér einhver skot öðru hverju.“ Finnur Ingólfsson, í DV. Hættulegt að lækka þá hæstlaunuðu „Það er hættulegt að lækka þá hæstlaunuðu, þeir gætu einfald- lega horfið úr landi. Friðrik Sophusson, í Tímanum. Ummæli Ófingraliprir karlar „Konurnar sem vinna allt árið við þessar flæðilínur vilja ekki óvana og ófingralipra karla að flæðilínunum." Þórunn Kristinsdóttir, í DV. Harðlífi í umræðu um menningu „Kynningin í Odda var því eins konar himnasending í harð- lífinu sem einkennt hefur inn- lenda umræðu um listir og menningu." Halldór Björn Runólfsson, í Alþýðu- blaðinu. Uppboð á lóð „Ætli við verðum ekki að hafa uppboð á lóðinni, svo vinsæl er hún.“ Guðmundur J. Guðmundsson um lóð sem Dagsbrún á, í Viðskiptablaðinu. Kvennakór Reykjavíkur verður með ferna fimmtudagstónleika. Tónleikar og skemmtikvöld Kvennkór Reykjavíkur er að hefja vetrarstarf sitt og er fyrsta söngskemmtunin í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld, en þá er um að ræða styrktartónleika sem hefjast kl. 20.30. Á eftir verður skemmtikvöld með góðum lista- mönnum að Ægisgötu 7. Tónleikar þessir eru fyrstir af fernum á vegum Kvennakórsins sem verða næstu fimmtudaga, 2. nóvember verða tónleikar með Vox feminae í Kristskirkju og þarnæstu tvo fimmtudaga eru söngkvöld í félagsheimilinu, Æg- isgötu 7. Öll kvöldin verður boð- ið upp á kaffiveitingar og skemmtiatriði í félagsheimilinu. í Kvennakór Reykjavíkur eru um 120 konur. Aukabúgreinar kórsins eru Léttsveit Kvenna- Tónleikar kórs Reykjavíkur með um 70 konur, kórskólinn þar sem 35 konur læra undirstöðutækni söngs svo og tónmenntun, „Senjorítukór" þar sem um 20 sí- ungar eldri konur syngja saman, Vox feminae þar sem 35 konur syngja kirkjutónlist og nú- tímatónlist og söngskólinn Hjart- ans mál þar sem margar af okk- ar bestu óperusöngkonum kenna kórkonum sem og öðrum nem- endum. Lægir lítið eitt vestanlands Norðaustan- og norðanstormur eða rok um norðan- og vestanvert landið og fárviðri eða ofsaveður á stöku stað. Snjókoma verður mikil um allt norðvestanvert landið í fyrstu en á Suðaustur- og Austur- landi verður vindur mun hægari og úrkomulítið. Suðvestanlands verða Veðrið í dag smáél. í dag lægir litið eitt vestan- lands og dregur smám saman úr úr- komu norðanlands. Frost á bilinu 0 til 5 stig verður norðan- og vestan- lands en eins til þriggja stiga hiti sunnanlands. Á höfuðborgarsvæð- inu er norðan stormur eða rok vest- an til en austan til er hvassviðri. Norðan- og norðvestan hvassviðri í kvöld en allhvasst i nótt. Dálítil él. Hiti um frosmark. Sólarlag í Reykjavík: 17.32 Sólarupprás á morgun: 8.02 Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.44 Árdegisflóð á morgun: 8.07 (Stórstreymi) Heimild: Almanak Háskólans Veörið kl. 6 í morgun: Akureyri snjókoma 0 Akurnes alskýjað 3 Bergsstaöir snjókoma -2 Bolungarvík snjókoma -5 Egilsstaöir skýjaö 2 Grímsey snjókoma -1 Keflavíkurflugvöllur skafrenningur -2 Kirkjubœjarklaustur alskýjaö 2 Raufarhöfn alskýjað 4 Reykjavlk úrk. í grennd -2 Stórhöföi skýjað -1 Helsinki þokumóöa 9 Kaupmannahöfn skýjaó 9 Ósló hálfskýjaö 9 Stokkhólmur léttskýjaö 8 Þórshöfn léttskýjað 7 Amsterdam skýjaö 10 Barcelona þokumóöa 16 Chicago léttskýjaö 10 Frankfurt þoka á síö.klst. 8 Glasgow rigning 11 Hamborg þokumóóa 6 London skýjaö 13 Los Angeles heiöskírt 16 Lúxemborg þoka 9 Madríd skýjað 12 Mallorca þokumóöa 14 New York heiðskírt 10 Nice léttskýjaö 14 Nuuk hálfskýjaó -1 Orlando hálfskýjaö 21 Valencia skýjaó 16 Vín þokumóóa 1 Winnipeg léttskýjaó 0 Kristján Jóhannsson, formaður Hundavina: Viljum bætta hundamenningu Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum: „Viö erum með þrælskemmti- legt og mjög stórt svæði í Litla- Hólma í Leiru og þangað geta allir komið með hundana sína til að viðra þá Þetta er afgirt svæði, fjarri veginum. Þá erum við með gott húsnæði á staðnum og þar er hægt að njóta góðs félagsskapar,“ sagði Kristján Jóhannsson sem var Maður dagsins nýlega kosinn formaður Hunda- vina sem er félag áhugafólks um bætta hundamenningu á Suður- nesjum. Félagið var óformlega stofnað fyrir tveimur árum en nú var það gert formlega. Kristján segir að stefnan sé að gera félagið öflugt. Mikill áhugi er á starfsemi félagsins meðal hunda- eiganda sem eru íjölmargir á svæð- inu. Hann segir að félagið sé opið Kristján Jóhannsson. öllum og skorar á fólk að láta sjá sig með hunda sína. Á döfinni er fjölbreytt starf og segir Kristján að félagsskapurinn sé mjög skemmti- legur. „Tilgangur félagsins er að bæta og kynna hundamenningu og sýna fram á kosti hundsins." Sjálf- ur á Kristján einn hund, Kötlu, sem hann fékk í maí. Kristján starfar sem blaðamaður og er jafnframt einn af útgefendum vikublaðsins Suðurnesjafrétta: „Mér líkar starfið mjög vel en það er erilsamt á köflum. Við dreifum blaðinu ókeypis í 6500 eintökum í hverri viku frítt inn á öll heimili á Suðurnesjum." Áhugamál Kristjáns eru útiver- an og hundurinn. Þá er körfubolt- inn mjög ofarlega og lestur góðra bóka. Unnusta Kristjáns er Svan- hildur Eiríksdóttir, nemi í bók- menntafræði í Háskólanum. Hún starfar einnig hjá Suðurnesjafrétt- um. Myndgátan <fV0íVA VERÐUP. HANN ALLTAP ÞB&AR- HANN SOFHAR.., • pARF AlpBEÍ AB KAVpA sép. V/N..S 9 ' 1 /35Z. \ /"V' CVbnO__A- Fílapenslar Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði. Körfubolti og handbolti í kvöld er körfubolti og hand- bolti á dagskrá. Heil umferö verður leikin í úrvalsdeildinni í körfubolta og tveir leikir fara fram í 1. deild kvenna í handbolt- anum en það eru viðureignir Víkings og Hauka í Vikinni og KR og Vals í Laugardalshöll. í körfúnni taka Keflvíkingar á íþróttir móti Skallagrími, Njarðvíkingar leika á heimavelli gegn Val, norðanliðin Tindastóll og Þór leika á Sauðárkróki, ÍR leikur gegn Grindvíkingum í Reykja- vík, Haukar gegn ÍA í Hafn- arfirði og Breiðablik leikur við KR í Kópavogi. Skák Þessi staða er frá alþjóðlegu móti í Viernheim í Þýskalandi fyrir skömmu. Lettneski alþjóðameistar- inn Sokolovs hafði svart og átti leik gegn Þjóðverjanum Siegel. Svörtum tókst að knýja andstæðing sinn til uppgjafar í fáum leikjum: 8 7 6 5 4 3 2 1 ABCDEFGH 31. - Hxg2+! 32. Kxg2 Be4+ 33. Kh2 Ef 33. Kgl Dh3 og mát í næsta leik. 33. - Df7! 34. Hxe3 Engu breytir 34. Dxe3 Dh3+ 35. Kgl Dhl+ 36. Kf2 Dg2 mát. 34. - Df2+ og hvítur gaf, því að 35. Kh3 Dfl+ 36. Kg4 Df5+ 37. Kh5 Dh3 er mát. Jón L. Árnason Bridge Jón Baldursson og Sævar Þorbjörns- son sigruðu á hinu áriega Minningarmóti Einars Þorfmnssonar á Selfossi um síð- ustu helgi. Sigur þeirra var þó naumur þar sem aðeins munaði tveimur stigum á þeim og stigafjölda Einars Jónssonar og Ragnars Hermannsonar í lokin. Spilaður var að venju barómeterkeppni með þátt- töku 38 para, allir við alla, tvö spil. Hér er spil 52 í keppninni þar sem skipting spilanna var æði skrautleg. Hægt er að standa 5 hjörtu á NS-hendurnar og 5 spaða á AV-hendurnar en þaö er einnig auðvelt að gefa samningana upp í sex. AV mega ekki spila út spaða í tvöfalda eyðu og NS verða að gæta sín á að taka hjartaslag ef útspilið er tígulkóngur. Skrautlegasta niðurstaðan í spilinu var sennilega á borði 19 en þar sátu Sigurður B. Þorsteinsson og Gylfi Baldursson í NS. Vestur var gjafari í spilinu og tók örlaga- rika ákvörðun í upphafiVestur Norður * ÁKG105432 «» 2 Á * 853 Suöur Sigurður - - Gylfi 2-f pass 2G 4«* pass pass Dobl p/h Vestur ákvað að opna á „multi“ tveim- ur tíglum sem alla jafna lýsir veikum spilum með 6 spil í öðrum hvorum hálit- anna. Austur gaf spurnarsögnina tvö grönd og Gylfi stökk eðlilega í 4 hjörtu. Þau voru pössuð yfir til austurs sem taldi sig nú sjá það óvéfengjanlega á spilum sínum að vestur ætti 6 spil i hjarta. Varla gat hann átt spaða úr því austur átti 8 spil í litnum. Austur doblaði því til refs- ingar og þar við sat. Sigurður lagði upp spilin með þeim orðum að þeir væru sennilega eina parið í NS sem væri ekki í slemmu. Fjögur hjörtu dobluð, með tveimur yfirslögum, reyndist að vonum vera góð skor. ísak Örn Sigurðsson 4 D9876 «* 8 ♦ 832 * KG109 * 7 — V A106E * G109< 4 Á764 Austur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.