Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 Neytendur Bjarnl Þór Ólafsson verslunar- stjóri, Sigrún Hálldánardóttir og Ema Vígdfs Ingólfsdóttir, Föstudagirm 20. þessa mánaðar opnaði Osta- og smjörsalan nýja sérverslun með íslenska og er- lenda osta að Skólavörðustíg 8. Þar gefst fólki kostur á að kaupa ýmsa osta sem ekki eru fáanlegir í venjulegum maivöruverslunum og fá ítarlegri upplýsingar um meðferð þeirra en txðkast víðast annars staðar, Sérhæft starfsfólk leiðbeinir og sker osta að óskum kaupenda og gjarnan er bragðað á ostinum eða sýnishomi áður en gengið er frá kaupum. Jógastöðin Heimsljós, Ánnúla 15, býður ókeypis morgunjóga kl. 7.30 frá 1.-10. nóvember. Morgun- tímarnir búa fólk undir daginn með því að hita upp líkamann, mýkja hann og vekja upp orkuna í honum. Kripalujóga er leikfimi líkama, hugar og sálar og hentar fólki á öllum aldri óháð lífsskoð- unum. Þessar æfingar henta vel til þess að losa um streitu sem svo margir eru að glíma við í nútíma þjóðfélagi. Morgunjóga er alla daga riema sunnudaga. Reynsla af jóga er ekki nauðsynleg. Sjúkdómatrygging: Nýper- trygging Alþjóða liftryggingarfélagiö býður nú upp á nýja tegund per- sónutryggingar, svokallaöa sjúk- dómatryggingu. Greiðirhún bæt- ur, samkvæmt skdgreiningum skilmála tryggingarinnar, til þess sem er tryggður við greiningu á einhverjum eftirtalinna sjúk- dóma eða aögerða: Alzheimer- sjúkdómi, góðkynja heilaæxli, hjartaáfalli (kransæðastíflu), hjartaskurðaðgerð, illkynja miö- taugakerfissjúkdómi (MND), krabbameini, kransæðaupp- skurði, meginslagæðar-/ósæða- raðgerð, meiri háttar líffæra- flutningi, mænuvisnu (MS), nýrnabilun og riðulömun (park- insonsveiki), Fóik metur bótaþörfina, velur hvort líftrygging er innifalin eða ekki og greiðir iðgjöld sem bygg- ist á aldri þess. Böm á aldrinum 3-18 ára eru einnig tryggð vegna sömu sjúkdóma og aðgerða í sjúkdómatryggingu foreldra sinna. Fyrlr það þarf ekki að greiðasérstaklega. -sv Dilkakjötsútsalan hólst í verslunum í gær. Stefnt er að því að selja um 600 tonn á útsölunni en af viðbrögðum forsvarsmanna svína-, nauta- og kjúklingabænda má ráða að ekki verði lækkað verð á kjöti frá þeim. DV-mynd S Forsvarsmenn svína-, nauta- og kúabænda: Verðlækkun á dilkakjöti hef ur ekki áhrif víðar - útsalan verst fyrir sauðflárbændur sjálfa „Þaö stendur ekki td að svína- bændur fari að lækka verð frá sér. Sæmilegt jafnvægi hefur verið á markaðnum og fram undan er tími mikdlar neyslu á svínakjöti. Við höf- um adtaf selt mikið af svínakjöti á jólamarkaðnum, á hlaðborðin og þaö allt. Auðvitað er ekki útilokað að aðrir á sölukeðjunni muni bjóða ein- hver tilboð eða lækka verð tíma- bundið hjá sér en að ödu óbreyttu munum við ekki gera það,“ sagði Kristinn Gylfl Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands. Sem kunnugt er hófst útsala á ársgömlu dilkakjöti í gær og verða adt að sex hundruö tonn seld í hálfum skrokk- um. Hámarkssmásöluverð er 349 krónur fyrir kílóið. Kristinn Gylfl sagði menn auðvitað hafa áhyggjur af þessari miklu lækk- un á dilkakjötinu og að svínabændur hefðu búið við það í gegnum árin að hið opinbera greiddi niður miklar útsölur á dilkakjöti. „Við erum mjög ósáttir við þá sam- keppni sem við eigum í við stjórn- völd og finnst freklega að okkur veg- ið,“ sagði Kristinn Gylfi. Ekkert útsölugóss „Við erum ekki með neitt útsölu- góss og tökum því ekki þátt í þessum leik. Við erum að keppa á gæða- grundvelli og lítum svo á að vara sem sífellt er á útsölu hljóti að hrapa í áliti hjá neytendum," sagði Guð- mundur Lárusson, formaður Lands- sambands kúabænda, aðspurður hvort þeir myndu lækka verð á nautakjöti. Hann sagði þetta ddka- kjöt varla höföa td nútímaneytenda og því þyrftu sauðfjárbændur að leita nýrra leiða td að markaðssetja vöru sína. Bjami Ásgeir Jónsson, formaður Félags kjxxklingabænda, sagði að þar á bæ ætluðu menn að bíða átekta og sjá hvað gerðist í kjölfar lækkunar á dilkakjötinu. „Eflaust verða einhveijar lækkan- ir hjá einstökum verslunum en ég vona að nýhafin fersksala muni auka söluna á kjúklingunum. Þetta mun standa yflr í stuttan tíma og ég hugsa að þetta hafi engar kúvendingar á markaðnum í för með sér, tel reynd- ar að lækkunin muni koma verst niður á kindakjötinu sjálfu," sagði BjarniísamtaliviðDVígær. -sv Uppskriftasamkeppni lesenda DV: Fjölmargir ódýrir réttir borist - tekiö á móti naglasúpum til mánaðamóta Eins og fram kom í naglasúpufrétt Tilverannar þriðjudaginn 17. októb- er hefur skdafrestur uppskrifta að ódýrum réttum verið fremlengdur til næstu mánaðamóta. ítrekað er við þá sem ætla sér að vera með að senda inn uppskriftir fyrir mánaðamótin og bent skal á að póststimpdl gddir fyrir þá sem setja uppskriftimar í póst. Víst er að verðlaunin eru veg- leg, fimm matarkörfur frá Nóatúni, hver að verðmæti 10 þúsund krónur. Uppskriftir sendist td: „Naglasúpa DV“, Þverholti 11,105 Reykjavík. Lesendur hafa greindega áhuga á því að miðla öðrum af því sem hægt er að matbúa á ódýran hátt og hafa fjölmargar mjög skemmtdegar og ódýrar uppskriftir borist. Iifrarrétt- ir eru vinsælir og er greinilega hægt að gera eitt og annað bragðgott úr þeim. Pastaréttimir eru orðnir fjöl- margir og grænmeti og kál er mikið notaö með einhvers konar sósu. Súp- umar em orðnar þónokkrar. Athygli lesenda er vakin á því að uppskriftimar eiga að vera ódýrar og má hráefniskostnaður á mann ekki fara upp fyrir 150 krónur. Hér birtum við tvö sýnishorn af því sem hefur borist. Lifrarbuff fyrir 6 1 kg lifur (267 kr. kg).267 kr. 200 g hveiti (34 kr. kg)..6,80 kr. 2 egg (374 kr. kg).......45,34 kr. 1/2 dl mjólk (65 kr. 1)...3,25 kr. 200 g laukur (96 kr. kg).19,20 kr. 20 g (15 ml) sósuþykknir (125 kr. 250 g)................10 kr. Salt og pipar 1 kg kartöflur (84,50 kr. kg) ....84,50 kr, 25 g smjörvi (122 kr. 300 g).10,17 kr. 1 dl mjólk (65 kr. 1)........6,50 kr. Heddarkostnaður............452,76 kr. Kostnaður á mann............75,46 kr. Þessi uppskrift er frá Jóhönnu Guðmann frá Akureyri og aðferð hennar er að hakka lifrina með lauknum, hræra egg og hveiti og þynna með mjólkinn ef þarf og krydda. Búnar eru td kökur á stærð við lummur, steiktar á pönnu, settar síðan í pott með vatni og látið rétt fljóta yfir. Suðan er látin koma upp og síðan er sósuþykkni notað td að þykkja. Kartöflumar era soðnar og kartöflumús búin td með smjörvan- um og mjólkinni. Veisla fátæka mannsins Frá Margréti Þórðardóttur úr Reykjavík kemur veisla fátæka mannsins, veisluborð úr þindum og gráðosti fyrir fimm menn, 105 krónxir á manninn. í bollurnar þarf eftirfar- andi: 750 g þindar, hreinsaðar og hakkaðar .............................200 kr. 50 g gráðostur...................59 kr. 1/4 tsk. salt..................2kr. l/4tsk.pipar...................lkr. l/2dlmjólk.......................10 kr. 1 lítill laukur..................15 kr. olía til steikingar...............15 kr. Hreinsið þindamar, klippið himn- urnar frá og hakkið. Raspið niður gráðostinn. Blandið ödu saman og búiö til bollur. Steikið. í gráðostasósu þarf: 11/2 bolli vatn l/2bollinýnyólk...............lOkr. 2 msk. maisenamjöl.................4 kr. 50ggráðostur.....................50 kr. 1 tsk. rifsbeijahlaup.............5 kr. Þessu er öllu blandað saman og soðið í 3-5 mínútur. Að auki þarf: Kartöflur, 6-8 stk................60 kr. Kínakál, skorið í ræmur......120 kr. Sítrónusafa....................5kr. Mögulegt er að gera mjög smáar bodur og nota sem pinnamat á hlað- borði. -sv VÍS ogLinsan: Gleraug- un tryggð Gleraugnaverslunin Linsan og Vátryggingafélag íslands hafa undirritað samning þar sem VÍS tryggir gleraugu sem keypt eru í Linsunni. Gengið er frá trygging- unni í versluninni og því þurfa viðskiptavinimir ekki annað að gera en að borga níu hundruð krónur fyrir eins árs tryggingu. Linsan sér um uppgjör á tjónum, með viðgerðum eða nýjum gler- augum. Þetta er í fyrsta skipti sem svona trygging stendur not- endum gleraugna td boða og í fréttatilkynningu frá Linsunni kemur fram að sjálfsábyrgðin sé lægri en í heimilistryggingum. Nautakjöt: Fólk vill eimngar Kjöthöllin hefur verið að bjóða svokadaðan Nauta sparikassa á 9.900 krónur og hefur lagt það út sem 21 máltíð handa fjögurra manna fjölskyldu. Um er að ræða 12,3 kg af nautakjöti og máltíðin fyrir manninn kostar um 117 krónur. Að sögn Björns Kristins- en hjá KjöthöUinni viU fólk nú síður stórar einingar og því er líka boöið upp á miniii kassa, á 6.600 kr. Þar miðast kostnaðurinn við 105 krónur á manninn, miðað við 21 máltíð handa þremur. Kjöt- inu er pakkað og þvi skipt í hakk, hamborgara, gúllas og fillet. Með- alverð er 775 kr. kg. Höldur á mjólkurfemur: Líka hundfúll - segir eigandi Skagavers Viðskiptavinur Skagavers á Akranesi hringdi, kvaðst fúll og vddi kvarta undan því að versl- unin væri að selja höldur fyrir mjólkurfernur á 98 kr. þegar Mjólkursamsalan dreiföi þeim td verslana til þess að gefa við- skiptavinunum. Sveinn Knúts- son er eigandi Skagavers. „Á þessu er eðldeg skýring því nokkru áður en MS fór að dreifa þessum höldum keyptum við nokkurt magn af Mjólkursamlag- inu í Borgamesi. Það seldum við í góðri trú en hættum þvi vita- skuld þegar sendingin frá MS barst okkur. Ég er líka hundfúd og býð þeim sem keyptu þessa vöru hjá okkur að koma og skila henni,“ sagði Sveinn við DV. Farmiðar hjá SVR: Samið við Eurocard Á næstunni geta viðskiptavinir SVR greitt fyrir farmiðakort í strætisvagna fyrirtækisins með debet- og kreditkortum í skipti- stöðvum þess í Lækjargötu, við Hlemm og í Mjódd. Samið hefur verið við Eurocard og með þess- um samningi bætir SVR þjónustu við viðskiptavini sína. Bókaversl- anir, sundstaðir og fleiri annast einnig sölu farmiðakorta fyrir SVR og er þá eftir atvikum hægt að greiða þau með greiðslukort- um. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.