Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Side 23
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
31
- hlaða lagðist saman
Fjögur hross drápust og hlaða
lagðist saman þegar stórt snjóílóö
féll úr Hnjúkum í Kolbeinsdal í
Skagafirði í fyrrinótt. Hlaðan var
við bæinn Smiðsgerði en hrossin
voru i eigu Sigurður Sigurðsson-
ar á Sleitustöðum þar skammt
frá.
Sigurður sagði i samtali viö DV
að flóðið hefði fariö yfir 10 hross
og nokkur önnur heföi rétt slopp-
ið. Sex hrossum tókst að bjarga
úr flóðinu en fjögur drápust, eins
og áöur sagði. Að sögn Sigurðar
hefur snjóflóð ekki fallið á þess-
um stað svo lengi sem elstu menn
muna. -bjb
BákkaQörður:
Tugmilljóna-
tjón á höfninni
Tugmilljóna króna 1jón varð á
Bakkafjaröarhöfn eftir vonsku-
veður í fyrradag. Stórt gat kom á
brimvamargarö auk þess sem
flotbryggja losnaði frá landi. Tólf
bátar voru bundnir viö bryggj-
una en þeim tókst aö bjarga áður
enstórskemmdirhlutustaf. -bjb
Snj óflóðasérfræðingur:
Varaðivið
stórflóði á
mmm_* __.■
„Við verstu hugsanlegar að-
stæður getur skapast veruleg
hætta á flóðum á fjölmörgum
þekktum snjóflóöasvæðum og
þau jafhvel gengið yfir byggð,“
sagði Hafliði Helgi Jónsson snjó-
flóðasérfræðingur þegar hann
dró saman niðurstöður sínar af
athugunum á snjóflóðahættu á
íslandi á árunum 1979 til 1984.
í þessu mati voru bæði Flateyri
og Súöavik nefndar sérstaklega
og miðaö við svartsýnustu spá
var hættan á þessum stöðum
mun meiri en gert er ráö fyrir í
gildandi hættumati. Hættan mun
og vera mikil og meiri en nú er
viðurkennt á Isafirði, Patreks-
firði, Siglufirði, í Bolungarvik og
í Hnífsdal.
Hafliði var snjóflóöasérfræð-
ingur Veðurstofunnar þegar
hann komst að þessum niður-
stöðum en hann hefur síðan unn-
ið í Bandaríkjunum og er nú á
Hawaii við jarðfræðirannsóknir.
-GK
Um 100 ær
týndar eftir
fárviðri
„Það eru niestar líkur á að þess-
ar 100 kindur hafi hrakist undan
veðri í sjóinn og þá þarf ekkert
um að binda. Þær gætu líka hafa
grafist í fónn og verið er að leita
i snjónum. En hann er orðinn svo
harður eftir áhlaupið að litlar
sem engar líkur eru til þess að
flnna féð lifandi sé það undir
fónn. Féð var í Glerárskógalandi
og við komum því ekki á móti
veörinu í fyrradag og töldum því
óhætt en svo var ekki,“ sagði
Guðrún Guðmundsdóttir, hús-
freyja á Magnússkógum, sem eru
rétt vestan við Búðardal.
Hún sagðist ekki vita hvort
tryggingar þeirra á Magnússkóg-
um ná yfir skaða sem þennan.
Fréttir
Leitarhundur
skarst á kvið
- og missti mikiö blóð - flestir himdamir skárust á þófum
„Mikki er svolítiö slasaður. Hann
greip lykt, fór inn um brotna rúðu
og skarst dálítið illa á kvið. Þaö var
læknir af Borgarspítalanum sem
deyfði hann og saumaði. Ég hvíldi
hann og tók hann svo aftur í leitina.
Honum versnaði svolítið eftir það og
missti mikið blóð. Nú er hann bara
í góðu yfirlæti eins og allir aðrir
hundar héma,“ sagði Hermann Þor-
steinsson, eigandi leitarhundanna
Mikka og Trópí og félagi í Hjálpar-
sveit skáta á ísafirði, en hann var
við störf í stjómstöðinni i gamla bak-
aríinu á Flateyri í gærkvöld.
Hermann var í hópi 30 björgunar-
manna sem komu fyrstir allra til
Flateyrar frá ísafirði í gærmorgun
en þeir vom ferjaðir yfir Önundar-
fjörð með bátnum Æsu frá Flateyri.
Björgunarmennimir voru komnir á
slysstaðinn um áttaleytið í gærmorg-
un og farnir aö leita um hálfníu.
Fljótlega efdr að leitin hófst meiddist
Mikki og var ekki talinn útkallshæf-
ur eftir það.
Hinn hundur Hermanns, Trópí, var
hins vegar ómeiddur auk þess sem
Kristján Bjami Guðmundsson frá
ísafirði kom einnig með fyrsta hópn-
um með hundinn sinn, Perlu. Bæði
Trópi og Perla gátu því tekið þátt í
leitinni af fullum krafti yfir daginn.
Hermann segir að flestir hundamir
á staðnum hafi skorist á þófum við
leitina yfir daginn. Þeir hundar sem
tóku þátt í leitinni voru orðnir hátt
í tíu í gærkvöld.
Skárra veður en í Súðavík
„Þetta flóð er mun erfiðara að eiga
við að öllu leyti nema því að við höf-
um fengið skárra veður núna. Það hef-
ur hjálpað okkur og björgunarstarfið
hefur gengið mjög vel. Það var byljandi
él þegar við byriuðum leitina í morgun
en vindhraðinn var ekki sá sami og í
Súðavíkurslysinu,“ sagði Hermann.
Hann var einmitt í hópi fyrstu björgun-
armannanna sem komu með Fagranes-
inu til Súðavíkur þegar siyóflóð féll á
þorpið þar í janúar.
„Eg er með mörgum hundamönn-
um héma alls staðar að af landinu
og ég fer bráðum aö huga að því
hvað við þá verður gert í kvöld eða
nótt, koma þeim í góðan hvíldarstaö
eða heim á leið aftur. Ég verð héma
eitthvað áfram en ég veit að það er
farið að flytja menn burt af svæð-
inu,“ sagði Hermann.
Mikki, hundur Hermanns Þorsteinssonar, skarst á kvið þegar hann fór inn
í hús við björgunarstörf á Flateyri í gær. Mikki var í hópi þeirra hunda sem
tóku þátt í björgunarstörfum í Súóavik i janúar og var þessi mynd þá tekin.
DV-mynd BG
Oþreyttir tóku við
Um kvöldmatarleytið í gærkvöld
kom um 200 manna björgunarlið og
hundar með varðskipinu Ægi til
Flateyrar og sagði Hermann að
björgunarmennimir frá ísafiröi
hefðu dregið sig í hlé og óþreyttu
mennirnir strax tekið við, bæði við
svæðisstjóm og úti á svæðunum.
Meirihluti björgunarmanna frá
Isafirði var með bækistöðvar í félags-
heimilinu á Flateyri en bakaríið hef-
ur verið stjómstöð svæðisstjómar-
innar og miðstöð leitarinnar. Her-
mann sagði að fátt manna væri í
bakaríinu þegar DV talaði við hann
seint í gærkvöld. Hann væri að hella
upp á kaffi en flestir björgunarmann-
anna væm komnir í bækistöðvarnar
ífélagsheimilinu. -GHS
Gróa Haraldsdóttir:
Vaknaðiþegar
raf magnið kom
„Það var hringt í mig um fimmleyt-
ið og mér var sagt frá flóðinu. Það
var nágranni minn sem bjó nálægt
flóðinu sem sagði mér frá því. Eg
varð ekkert vör við það að öðru leyti
en ég vaknaði við það um fjögurleyt-
ið að rafmagnið var að koma á aftur.
Ég veit ekki hvort það hefur verið
um svipað leyti og flóðið féll,“ sagði
Gróa Haraldsdóttir, íbúi við Ránar-
götu á Flateyri, þegar DV hafði sam-
band við hana í gærkvöld.
Nágrannafólk Gróu, Herdís Egils-
dóttir og Brynjólfur Garðarsson,
slapp á undraverðan hátt undan flóð-
inu með dætur sínar tvær, Rakel
Maríu, 1 árs, og Töm Ósk, 6 ára.
Bróðursonur Brynjólfs, Anton
Smári, sem svaf hjá þeim í húsinu
um nóttina, var grafmn upp úr fónn-
inni fjórum tímum eftir að flóöiö féll.
Ekki náðist í Herdísi og Brynjólf í
gærkvöld þar sem þau voru um borð
í varðskipinu á leið suöur ásamt
bömum sínum og fjölda Flateyringa.
Þegar DV talaði við Gróu í gær-
kvöld sagðist hún hafa eytt deginum
í aðstoð við Flateyringa, hlynnt að
nágrönnum sínum og veriö við vinnu
í versluninni Félagskaupi. Gífurleg
sorg hefði ríkt meðal fólksins í allan
gærdag. -GHS
Verkamannasambandiö:
Krefstveru-
legra launa-
hækkana
„Bregðist ríkisstjóm og at-
vinnurekendur ekki viö sann-
gjömum kröfum verkalýðshreyf-
ingarinnar um endurskoðun Kja-
rasamninga bera þeir ábyrgð á
þvi sem kann að gerast á \dnnu-
markaðinum næstu vikur," segir
í kjaramálaályktun Verka-
raannasambandsins.
í ályktuninni segir að forsendur
kjarasamninganna séu brostnar
og skoraö er á launanefnd og
verkalýðsfélögin að segja upp
samningunum. Við nýja samn-
ingsgerð verði grundvaflar-
krafan sú að krefiast verulegra
hækkunar lægstu launa ásamt
fullri tryggingu fyrir því aö sá
kaupmáttur haldi sem samið
verðurum. -kaa
Nissan Sunny SR ‘94, hvítur,
rafdr.rúður, álf., saml. o.fl.,
ek. 30 þús. km.
Verö 1.200.000, ath. skipti.
M. Benz 500 SE ‘84, græns.,
leðursæti, líknarb., ABS-bremsu-
kerfi, rafdr. rúður, rafdr. sæti, hiti
í sætum, sóll., álf., o.fl., ek. 162
þús. km, sem nýr.
Verð 2.200.000, ath. skipti.
BMW 518i Special Edition ‘88,
grás., álf., rafdr. rúður, sóll.,
saml., fallegur bíll, ek. 80 þús.
Verð 850.000, ath. skipti ód..
Toyota Land Crusier LX ‘88,
turbo, dísil, intercooler, gulls., 33”
dekk, upph., ek. 160 þús. km.
Verð 1.200.000, ath. sk. ód.,
eigum einnig ‘87 og ‘88 langan,
turbo, dísil.
Nissan Patrol turbo dísil ‘95,
nýr bíll, óekinn, upph., 33" dekk,
hvítur, eigum einnig ‘91, ‘92, ‘93
og ‘94.
Volvo 740 GL ‘85, græns., ssk.,
ek. 120 þús. km.
Verð 590.000, traustur bíll.
Eigum til úrval af fólks-
bifreiðum og jeppum í öllum
stærðum og verðflokkum.
Hringdu eða komdu við og við
vinnum fyrir þig!
Veríö velkomin!
BILASALAN
HORNH)
Dugguvogi 12,
„græna húsið á horninu”
Síftif 553-2022
Opnum 9.30 og höfum opiö til
21.00 eða lengur