Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 31 - hlaða lagðist saman Fjögur hross drápust og hlaða lagðist saman þegar stórt snjóílóö féll úr Hnjúkum í Kolbeinsdal í Skagafirði í fyrrinótt. Hlaðan var við bæinn Smiðsgerði en hrossin voru i eigu Sigurður Sigurðsson- ar á Sleitustöðum þar skammt frá. Sigurður sagði i samtali viö DV að flóðið hefði fariö yfir 10 hross og nokkur önnur heföi rétt slopp- ið. Sex hrossum tókst að bjarga úr flóðinu en fjögur drápust, eins og áöur sagði. Að sögn Sigurðar hefur snjóflóð ekki fallið á þess- um stað svo lengi sem elstu menn muna. -bjb BákkaQörður: Tugmilljóna- tjón á höfninni Tugmilljóna króna 1jón varð á Bakkafjaröarhöfn eftir vonsku- veður í fyrradag. Stórt gat kom á brimvamargarö auk þess sem flotbryggja losnaði frá landi. Tólf bátar voru bundnir viö bryggj- una en þeim tókst aö bjarga áður enstórskemmdirhlutustaf. -bjb Snj óflóðasérfræðingur: Varaðivið stórflóði á mmm_* __.■ „Við verstu hugsanlegar að- stæður getur skapast veruleg hætta á flóðum á fjölmörgum þekktum snjóflóöasvæðum og þau jafhvel gengið yfir byggð,“ sagði Hafliði Helgi Jónsson snjó- flóðasérfræðingur þegar hann dró saman niðurstöður sínar af athugunum á snjóflóðahættu á íslandi á árunum 1979 til 1984. í þessu mati voru bæði Flateyri og Súöavik nefndar sérstaklega og miðaö við svartsýnustu spá var hættan á þessum stöðum mun meiri en gert er ráö fyrir í gildandi hættumati. Hættan mun og vera mikil og meiri en nú er viðurkennt á Isafirði, Patreks- firði, Siglufirði, í Bolungarvik og í Hnífsdal. Hafliði var snjóflóöasérfræð- ingur Veðurstofunnar þegar hann komst að þessum niður- stöðum en hann hefur síðan unn- ið í Bandaríkjunum og er nú á Hawaii við jarðfræðirannsóknir. -GK Um 100 ær týndar eftir fárviðri „Það eru niestar líkur á að þess- ar 100 kindur hafi hrakist undan veðri í sjóinn og þá þarf ekkert um að binda. Þær gætu líka hafa grafist í fónn og verið er að leita i snjónum. En hann er orðinn svo harður eftir áhlaupið að litlar sem engar líkur eru til þess að flnna féð lifandi sé það undir fónn. Féð var í Glerárskógalandi og við komum því ekki á móti veörinu í fyrradag og töldum því óhætt en svo var ekki,“ sagði Guðrún Guðmundsdóttir, hús- freyja á Magnússkógum, sem eru rétt vestan við Búðardal. Hún sagðist ekki vita hvort tryggingar þeirra á Magnússkóg- um ná yfir skaða sem þennan. Fréttir Leitarhundur skarst á kvið - og missti mikiö blóð - flestir himdamir skárust á þófum „Mikki er svolítiö slasaður. Hann greip lykt, fór inn um brotna rúðu og skarst dálítið illa á kvið. Þaö var læknir af Borgarspítalanum sem deyfði hann og saumaði. Ég hvíldi hann og tók hann svo aftur í leitina. Honum versnaði svolítið eftir það og missti mikið blóð. Nú er hann bara í góðu yfirlæti eins og allir aðrir hundar héma,“ sagði Hermann Þor- steinsson, eigandi leitarhundanna Mikka og Trópí og félagi í Hjálpar- sveit skáta á ísafirði, en hann var við störf í stjómstöðinni i gamla bak- aríinu á Flateyri í gærkvöld. Hermann var í hópi 30 björgunar- manna sem komu fyrstir allra til Flateyrar frá ísafirði í gærmorgun en þeir vom ferjaðir yfir Önundar- fjörð með bátnum Æsu frá Flateyri. Björgunarmennimir voru komnir á slysstaðinn um áttaleytið í gærmorg- un og farnir aö leita um hálfníu. Fljótlega efdr að leitin hófst meiddist Mikki og var ekki talinn útkallshæf- ur eftir það. Hinn hundur Hermanns, Trópí, var hins vegar ómeiddur auk þess sem Kristján Bjami Guðmundsson frá ísafirði kom einnig með fyrsta hópn- um með hundinn sinn, Perlu. Bæði Trópi og Perla gátu því tekið þátt í leitinni af fullum krafti yfir daginn. Hermann segir að flestir hundamir á staðnum hafi skorist á þófum við leitina yfir daginn. Þeir hundar sem tóku þátt í leitinni voru orðnir hátt í tíu í gærkvöld. Skárra veður en í Súðavík „Þetta flóð er mun erfiðara að eiga við að öllu leyti nema því að við höf- um fengið skárra veður núna. Það hef- ur hjálpað okkur og björgunarstarfið hefur gengið mjög vel. Það var byljandi él þegar við byriuðum leitina í morgun en vindhraðinn var ekki sá sami og í Súðavíkurslysinu,“ sagði Hermann. Hann var einmitt í hópi fyrstu björgun- armannanna sem komu með Fagranes- inu til Súðavíkur þegar siyóflóð féll á þorpið þar í janúar. „Eg er með mörgum hundamönn- um héma alls staðar að af landinu og ég fer bráðum aö huga að því hvað við þá verður gert í kvöld eða nótt, koma þeim í góðan hvíldarstaö eða heim á leið aftur. Ég verð héma eitthvað áfram en ég veit að það er farið að flytja menn burt af svæð- inu,“ sagði Hermann. Mikki, hundur Hermanns Þorsteinssonar, skarst á kvið þegar hann fór inn í hús við björgunarstörf á Flateyri í gær. Mikki var í hópi þeirra hunda sem tóku þátt í björgunarstörfum í Súóavik i janúar og var þessi mynd þá tekin. DV-mynd BG Oþreyttir tóku við Um kvöldmatarleytið í gærkvöld kom um 200 manna björgunarlið og hundar með varðskipinu Ægi til Flateyrar og sagði Hermann að björgunarmennimir frá ísafiröi hefðu dregið sig í hlé og óþreyttu mennirnir strax tekið við, bæði við svæðisstjóm og úti á svæðunum. Meirihluti björgunarmanna frá Isafirði var með bækistöðvar í félags- heimilinu á Flateyri en bakaríið hef- ur verið stjómstöð svæðisstjómar- innar og miðstöð leitarinnar. Her- mann sagði að fátt manna væri í bakaríinu þegar DV talaði við hann seint í gærkvöld. Hann væri að hella upp á kaffi en flestir björgunarmann- anna væm komnir í bækistöðvarnar ífélagsheimilinu. -GHS Gróa Haraldsdóttir: Vaknaðiþegar raf magnið kom „Það var hringt í mig um fimmleyt- ið og mér var sagt frá flóðinu. Það var nágranni minn sem bjó nálægt flóðinu sem sagði mér frá því. Eg varð ekkert vör við það að öðru leyti en ég vaknaði við það um fjögurleyt- ið að rafmagnið var að koma á aftur. Ég veit ekki hvort það hefur verið um svipað leyti og flóðið féll,“ sagði Gróa Haraldsdóttir, íbúi við Ránar- götu á Flateyri, þegar DV hafði sam- band við hana í gærkvöld. Nágrannafólk Gróu, Herdís Egils- dóttir og Brynjólfur Garðarsson, slapp á undraverðan hátt undan flóð- inu með dætur sínar tvær, Rakel Maríu, 1 árs, og Töm Ósk, 6 ára. Bróðursonur Brynjólfs, Anton Smári, sem svaf hjá þeim í húsinu um nóttina, var grafmn upp úr fónn- inni fjórum tímum eftir að flóöiö féll. Ekki náðist í Herdísi og Brynjólf í gærkvöld þar sem þau voru um borð í varðskipinu á leið suöur ásamt bömum sínum og fjölda Flateyringa. Þegar DV talaði við Gróu í gær- kvöld sagðist hún hafa eytt deginum í aðstoð við Flateyringa, hlynnt að nágrönnum sínum og veriö við vinnu í versluninni Félagskaupi. Gífurleg sorg hefði ríkt meðal fólksins í allan gærdag. -GHS Verkamannasambandiö: Krefstveru- legra launa- hækkana „Bregðist ríkisstjóm og at- vinnurekendur ekki viö sann- gjömum kröfum verkalýðshreyf- ingarinnar um endurskoðun Kja- rasamninga bera þeir ábyrgð á þvi sem kann að gerast á \dnnu- markaðinum næstu vikur," segir í kjaramálaályktun Verka- raannasambandsins. í ályktuninni segir að forsendur kjarasamninganna séu brostnar og skoraö er á launanefnd og verkalýðsfélögin að segja upp samningunum. Við nýja samn- ingsgerð verði grundvaflar- krafan sú að krefiast verulegra hækkunar lægstu launa ásamt fullri tryggingu fyrir því aö sá kaupmáttur haldi sem samið verðurum. -kaa Nissan Sunny SR ‘94, hvítur, rafdr.rúður, álf., saml. o.fl., ek. 30 þús. km. Verö 1.200.000, ath. skipti. M. Benz 500 SE ‘84, græns., leðursæti, líknarb., ABS-bremsu- kerfi, rafdr. rúður, rafdr. sæti, hiti í sætum, sóll., álf., o.fl., ek. 162 þús. km, sem nýr. Verð 2.200.000, ath. skipti. BMW 518i Special Edition ‘88, grás., álf., rafdr. rúður, sóll., saml., fallegur bíll, ek. 80 þús. Verð 850.000, ath. skipti ód.. Toyota Land Crusier LX ‘88, turbo, dísil, intercooler, gulls., 33” dekk, upph., ek. 160 þús. km. Verð 1.200.000, ath. sk. ód., eigum einnig ‘87 og ‘88 langan, turbo, dísil. Nissan Patrol turbo dísil ‘95, nýr bíll, óekinn, upph., 33" dekk, hvítur, eigum einnig ‘91, ‘92, ‘93 og ‘94. Volvo 740 GL ‘85, græns., ssk., ek. 120 þús. km. Verð 590.000, traustur bíll. Eigum til úrval af fólks- bifreiðum og jeppum í öllum stærðum og verðflokkum. Hringdu eða komdu við og við vinnum fyrir þig! Veríö velkomin! BILASALAN HORNH) Dugguvogi 12, „græna húsið á horninu” Síftif 553-2022 Opnum 9.30 og höfum opiö til 21.00 eða lengur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.