Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
Sviðsljós
Tiggy Legge-Bourke,
Paul McCartney vildi gjaman geta kallað sig sör:
Svekktur yfir að
vera ekki aðlaður
- vill vera eins og Cliff Richard, Andrew Iioyd-Webber og fleiri
Bam-
fóstran
stælir Díönu
Díönu prinsessu þykir nóg um
hversu gott samband er á milli
prinsanna Williams og Harrys og
bamfóstru þeirra, Tiggy Legge
Bourke, sem Karl prins réð til
starfa.
Díönu .gremst þvi liklega enn
meir aö sjá bamfóstruna stæla
sig í klæöaburöi. Þegar Tiggy
renndi sér á hjólaskautum á dög-
unum í Hyde Park í London leit
hún út eins og hún hetði farið í
fataskáp prinsessunnar. Hún var
meö eins kaskeiti og í eins trimm-
fatnaði og Díana á.
„Allir Bítlamir eiga MBE-orðuna,
nema John Lennon. Hann endurs-
endi sína. Það er lægsta heiðurs-
merki sem Bretland veitir. Lægsta
heiðursmerkið,“ segir Bítiliinn fyrr-
verandi, Paul McCartney. Já, Paul
er svekktur yfir því að hafa ekki enn
verið aðlaður almennilega og gerður
að „Sir“.
En Paul er ekki einn um það. Þús-
undir aðdáenda þeirra hafa líka furð-
að sig á því að fjórmenningamir frá
Liverpool skyldu aldrei hafa verið
heiðraðir sem skyldi fyrir framlag
sitt til breskrar tónlistar. Það fram-
lag verður sjálfsagt seint metið.
Paul bendir á að ýmsir aðrir úr
poppbransanum hafi verið aðlaðir,
svo sem plötusnúðurinn Jimmy Sav-
ile, tónskáldið Andrew Lloyd-Web-
ber og nú síðast jesúplastpopparinn
Cliff Richard. Þessir menn geta allir
sett „Sir“ fyrir framan nafnið sitt.
Meira að segja George Martin, upp-
tökustjóri þeirra Bítlanna, fékk æðra
heiðursmerki en mennimir sem
hann vann með.
Ekki má heldur gleyma Bob Geld-
of, sem skipulagði hungurtónleikana
Live Aid. Hann er eins konar heið-
ursriddari. Bæði Paul og George
Harrison hafa einnig tekið þátt í og
skipuiagt tónleika í góðgerðarskyni.
Er nema von að Paul sé súr? Hann
viðurkennir það að visu ekki sjálfur.
„Maður getur bara ekki setið með
hendur í skauti og óskað þess að
maður hafi verið gerður að ridd-
ara,“ segir hann.
Það var Harold Wilson, þáverandi
forsætisráðherra Bretlands, sem var
aðalhvatamaðurinn að því að Bítl-
amir fengu MBE-orðuna árið 1965.
Sú -ráðstöfun vakti hins vegar litla
hrifningu meðal fína fólksins, sem
var vant því að umgangast klassíska
leikara og támjóar ballerínur en ekki
uppivöðslusama unga menn með sítt
hár og nýja tegund tónlistar.
I BOÐI G0CA-C0L4
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
ÍSLENSKI LISTINN ER
OG SAMA DAG ER HANN
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN A MÁNUDAGS-
KVOLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
ÍSLENSKl LISTINN ER SAMVINNUVERKEFNIBYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA A ÍSLANDI. USTINN ER NIOURSTAÐA SKOÐANAKONNUNAR SEM ER FRAM-
D DVIHVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER A BIUNU 300-400, A ALDRINUM14-35 ARAAF ÖLLU LANDWU. JAFNFRAMT ER TEK-
--------------* VUM. (SLENSKI LISTINN BIRTIST A HVERJUM LAUGARDEGII DV OG ER FRUMFLUTTUR A BYGJUNNI A
D HLUTAI TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. ÍSLENSKIUSTINN TEKUR ÞATT f VAU „WORLD
CART" SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO EXPRESSILOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN AHRIF A EVRÓPUUSTANN SEM BIRTUR ERITÓNUSTARBLAÐ-
INU MUSIC A MEDIA SEM ER REKK) AF BANDARÍSKA TÓNUSTARBLAÐINU BILLBOARD.
Paul og Linda eiginkona hans eru hress og kát en væru sjálfsagt kátari ef
þau væru „Sir“ og „Lady“.
Þessi skrautlegi maður er í hefðbundnum kínverskum óperubúningi. Hann
tók þátt i skrúðgöngu til að minnast þess að 50 ár voru liðin frá sjálfstæði
Taivans frá Japan í lok styrjaldarinnar. Símamynd Reuter
Amold og Maria
deila um bameignir
Vöðvabúntið Amold Schwarzeneg-
ger, sem er orðinn 46 ára, vill eignast
fleiri böm. Helst vill hann eiga sex
böm, þrjú af hvom kyni, en eigin-
konan, Maria Shriver, sem enn hefur
bara fætt honum þrjú böm, telur að
nú sé nóg komið. Hún vill nefnilega
geta sinnt starfi sínu.
Maria, sem er systurdóttir Johns
F. Kennedys, fyrrum Bandaríkjafor-
seta, er hrædd um að meiri bameign-
ir muni háfa áhrif á feril hennar sem
umsjónarmaður þátta hjá NBC sjón-
varpsstöðinni.
Amold er á þeirri skoðun að þaö
væri betra fyrir fiölskylduna ef Mar-
ia væri heimavinnandi húsmóðir og
fæddi fleiri böm. En sjálfur er hann
ekki tilbúinn að vera heima hjá böm-
um sínum.
Arnold Schwarzenegger og Mariu
Shriver greinir á um hversu mörg
böm eigi að setja í heiminn.